Dagur - 05.05.1971, Blaðsíða 1

Dagur - 05.05.1971, Blaðsíða 1
FILMU húsið Hafnarstrætj 104 Akureyri Sfmi 12771 • P.O. Box 397 SÉRVERZLUN: LJOSMYNDAVÖRUR FRAMKÖLLUN - KOPIERING Nær öll skólabörn veikfusl Siglufirði 4. maí. Dagný var að landa hér 100 lestum og Hafnar nesið, sem datt í ólukkupottinn syðra, í hópi 14 skipanna, er á leiðinni með töluverðan afla. Kríars er komin NÚ MÁ segja, að loftið kveði við af söng farfuglanna á mild- um vordögum. Og krían er komin, sást á sunnudagsmorg- unin. Hrossagaukurinn er kom- inn fyrir nokkru, og einn var sá fugl, sem gleymdist að nefna og var þó hingað kominn flest- um fyrr, en það er jaðrakaninn, sem er að auka landnám sitt á Norðurlandi og verpir á nokkr- um stöðum við Eyjafjörð. Þá er sandlóan komin, svo og lóu- þrælinn og kjóinn. □ Hrognkelsaveiðin er miklu minni en í fyrra og þó fleiri bátar við þær veiðar. Rauð- magaveiði hefur að vísu verið góð, en lítill markaður fyrir hann. En grásleppan er treg. Atvinnan er góð og hafa allir vinnu. Og nú eru prófin byrjuð í barna- og gagnfræðaskóla svo að þetta er allt í fullum gangi hjá okkur. Hitaveiki eða inflúensan hef- ur verið slæm á Siglufirði og tók hún nær 100% barnaskóla- nemenda. Mörg voru veik í heila viku. Ennfremur veiktist margt fullorðið fólk og sumu sló niður ef það fór ekki nógu vel með sig. Nú er þessi veiki að mestu gengin yfir. Samgöngur hafa verið góðar, veðurblíða síðustu daga og snjórinn óðum að fara, en í dag er þoka. J. Þ. .....................'*..........................................v? *'! Mynd frá atliafnabænum Húsavík. (Ljósm.: E. D.) in vörusala og balnandi hagur Grásleppubjófar á Dalvlk GRÁSLEPPUÞJÓFAR voru á ferðinni á Dalvík í síðustu viku. Fóru þeir í hjalla og höfðu á brott með sér signa grá sleppu að verðmæti um 10 þús- und krónur. Það eru vinsam- leg tilmæli lögreglunnar á Dal- Hólaskóla var slitið 2. maí FRA AÐALFUNDIKAUPFELAGS ÞINGEYINGA vík, að ef einhverjir á Dalvík eða í nágrenni og á Akureyri hafa orðið varir við þessa vöru á ferðinni, gefi þeir sig fram, því' varla munu þeir fingra- löngu hugsa sér að borða alla þessa grásleppu heima hjá sér. HÓLASKÓLA var slitið á sunnudaginn, 2. maí. Braut- skráðir voru 24 nemendur og þar af ein kona. En 17 tóku próf upp úr yngri deild. Settur skólastjóri er Harald- ur Árnason frá Sjávarborg og sleit hann skólanum og afhenti prófskírteini. Hæstu einkunn við burtfarar próf hlaut Rafn Arnbjörnsson, Dalvík, 9.14, en í yngri deild Magnús Kristinsson, Árnesing- ur, og fékk hann 8.85. Eins og kunnugt er, sagði Haukur Jörundson upp skóla- stjórastarfi sínu og var skóla- stjórastaðan auglýst laus til Sauðburður að hef jast Sauðárkróki 4. maí. Nú er afli lítill og stærri bátamir eru farn ir suður, held ég. Margir stunda grásleppuveiðar, ekki sízt sunnudagamenn, eða þeir, sem stunda þær veiðar í tómstund- um. Sauðburður er að byrja í sveitum. En hér í baenum stend ur sauðburður yfir. Vegir eru mjög að spillast. S. G. HINN 9. mai verður haldin ráð- stefna um ferðamál í Reynihlíð í Mývatnssveit, á vegum kjör- dæmissambands Framsóknar- manna í þessu kjördæmi. Er þetta í framhaldi af Akureyrar- ráðstefnunni um ferðamál, sem haldin var fyrir skömmu. Ræðtunenn verða; Björn Frið umsóknar. Umsóknarfrestur rennur út í dag. Munu fjórir hafa sótt um stöðu þessa, að því er heyrzt hefur. Aðsókn að skólanum næsta skólaár er allmikil og hefur skólinn verið vel sóttur undan- farna vetur, í skólastjóratíð Hauks Jörundssonar. □ Ólafsfirði 4. maí. Aflahrota sú, er hér er kennd við páskana, er búin og afli lítill, einkum hjá Góður aflð Húsavík 4. maí. f gær var góður afli á færi og línu í Skjálfanda- flóa, en i netin veiðist fremur lítið. Loðna hefur fengizt við Sandinn og er henni beitt, og ennfremur er hún keypt á Akureyri. Hrognkelsaveiðin er treg. Þ. J. finnsson, er talar um ferðamál- in í Þingeyjarþingi, Birgir Þór- hallsson talar um ferðamál og ráðstefnuþjónustu, Finnur Guð mundsson um náttúruvernd í Mývatnssveit í ljósi aukins ferðamannastraums, Heimir Hannesson um endurskipulagn- ingu ferðamólu og Jónas Jóns- AÐALFUNDUR Kaupfélags Þingeyinga var haldinn í Húsa- vík 27.—28. apríl sl. Á fundin- Karl Kristjánsson. frá níu félagadeildum, ásamt stjórn félagsins, framkvæmda- um voru mættir 100 fulltrúar netabátunum. Og grásleppan hefur lítið veiðzt ennþá. Þeir trillubátar, sem stunda þorsk- veiðar, hafa fengið reitingsafla. Ekkert markvert gerist í landi, nema að við erum ánægð- ir með þessa ágætu veðráttu undanfarið og að snjó er sem óðast að leysa. Inflúensan var afar slæm en hún er að mestu búin. Próf eru að hefjast í barnaskólanum í dag og fæ ég 100% mætingu í tveim efstu bekkjunum, en það er betra en á horfðist. B. S. son ræðir um þátt bænda í ferðaþjónustu. — Stjórnandi verður Ingi Tryggvason. Sigurður Þórisson, oddviti Skútustaðahrepps, setur ráð- stefnuna. Ráðstefnan er opin öllum áhugamönnum um ferðamál og lýkur meö borðhaldá. □ stjóra, endurskoðendum og nokkrum gestum. Fundarstjóri var kjörinn Karl Kristjánsson, formaður félagsstjórnar, en rit- arar Hjörtur Tryggvason, Húsa vík, Eysteinn Sigurðsson, Arn- arvatni og Þórarinn Þórarins- son í Vogum. Karl Kristjánsson flutti skýrslu félagsstjórnar og sagði hann frá helztu málum, sem unnið var að á liðnu ári. Bar þar hæst byggingu nýs slátur- húss, en húsið komst undir þak fyrir sl. áramót. Aðalvinnu við að múra húsið innan, mun Ijúka í maímánuði og verður þá hafist handa við flísalagnir á gólf, málningarvinnu og' upp- setningu járnakbrauta. Fjárrétt verður byggð í sumar. Áætlað er, að ljúka bygginga- framkvæmdum í sumar og taka húsið í notkun á næsta hausti. Stórgripasláturhús er í þessari byggingu. Heildarkostnaður er áætlaður um 40 milljónir- kr. Formaður gat þess, að á næsta ári yrði K. Þ. 90 ára og hefði af því tilefni verið ákveð- ið að hefja undirbúning að út- gáfu ítarlegrar sögu Kaupfélags BÓKAMARKAÐUR Bóksala- félags íslands var opnaður í Amarohúsinu á laugardaginn og er þetta annað árið, sem markaðurinn er haldinn hér. Þarna eru hvorki meira né minna en 6 tonn af bókum, alls á þriðja þúsund titlar frá fjölda útgefenda. Mun þetta vera all- miklu meira en í fyrra. Mestur hluti bókanna mun vera frá árunum 1950—60 og eru þær á sínu upprunalegu verði, en þarna má sjá bækur og rit allt frá aldamótum og fram á síð- ustu ár, en allt eru þetta þó bækur, sem ekki eru lengur fáanlegar í bókaverzlunum. Það má vera í meira lagi sér- vitur manneskja, sem ekki finn- ur eitthvað lesmál við sitt hæfi í Amarohúsinu þessa dagana. Þarna er að finna skáldsögur, íslanaí»ar þýddar, ævisögur, þ(jóð)8Öjs«í* JÍHÍaMr uœ dulrseta Þingeyinga. Hefur nú verið sam ið við Andrés Kristjánsson, rit- stjóra, að taka að sér sögurit- unina og mun hann hefja störf nú í sumar. Finnur Kristjánsson. Finnur Kristjánsson kaup- félagsstjóri las reikninga félags ins og skýrði þá. Vörusala hafði vaxið allmikið, miðað við næsta ár á undan, eða um 35%. Var hin aukna vörusala til bess, að rekstursútkoma félagsins varð góð, eða mun betri en undan- farin ár. Skuldir viðskipta- (Framhald á blaðsíðu 5) efni, guðsorð og nótnabækur, svo eitthvað sé nefnt. Þá úir og grúir af barna- og unglinga- bókum. Allt er þetta á hag- stæðu verði, ódýrasta bókin kostar einar 6 krónur. Bókamarkaðurinn verður op- inn þessa viku og næstu helgi frá klukkan 1 til 10 alla daga. Aka ógætilega SfÐUSTU dagana hafa menn ekið bílum sínum heldur hratt og ógætilega að sögn lögregl- unnar. Aðfaranótt laugardags valt bifreið frá Akureyri við Freyvang. Engin meiðsli urðu á fólki. Þá urðu um helgina þrír smáárekstrar í bænum, en enginn meiddist. Nokkrir öku- menn voru teknir fyrir of hrað- an akstur og einn grunaður um •,lyw* watdór stýri. B Páskahrotan liðin tíð — osf lítill er aflinn Ferðamálaráðslefna haldin í Reynihlíð Sex tonn af bókum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.