Dagur - 08.05.1971, Page 1
FILMU HÚSIÐ
Hafnarstræti 104 Akureyri
Sími 12771 • P.O. Box 3S7
SÉRVERZLUN:
LJÖSMYNDAVÖRUR
FRAMKÓLLUN - KOPIERING
Mikill ðfli Grenivlkurbáfa
PJÖLGAR ÖRT í MINKABÚINU
Laufási 7. niaí. Vegirnir eru nú
þannig hér um slóðir, að þeir
eru ófærir sumum bílum og
öðrum illfærir. Eru menn al-
mennt gramir yfir seinagangi í
vegaviðgerðum. í gær hætti
Vegagerðin vinnu um hádegi
og voru þá eftir tveir stórir
þyttir á veginum sunnan við
Fagrabæ.
Undanfarin hálfan mánuð
hefur verið ágætur afli á Greni-
vík og mikil vinna þar.
Nú fjölgar ört í minkabúinu,
því að læðurnar eru óðum að
gjóta og allt gengur þetta vel.
Sauðburður er að hefjast og
er útlitið gott, því nú grænkar.
Æðarfuglinn hefur ekki enn
vitjað varpstöðva sinna. B. G.
iri vex
AF lögreglufréttum síðustu dag
ana er helzt, að bíll valt framan
við bæinn um kl. 6 í gærmorg-
un. Ökumaður, sem var einn í
bílnum, meiddist nokkuð, en
ekki alvarlega. Hann var grun-
aður um að hafa fengið sér ein-
um of mikið í staupinu. Bíllinn
er mikið skemmdur.
Þá var kveikt í glerkistu bak
við Glerárgötu 20 og eyðilögð-
ust nokkrar plötur af spegil-
gleri. Grásleppuþjófarnir frá
Dalvík hafa ekki enn komið í
leitirnar, né heldur þýfið.
Nokkrir árekstrar hafa orðið í
bænum, en enginn alvarlegur.
Tveir smábátar rákust saman í
smábátahöfninni og skemmdist
Ölvun á almannafæri virðist
fara nokkuð vaxandi. 115
manns hafa fengið að gista lög-
reglustöðina, það sem af er
þessu ári og er það mun hærri
tala, en á sama tíma í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar eru unglingar ekki í
meirihluta þessara gesta. □
Pétur ljósmyndari tók þessa mynd á Húsavíkurfundinum.
Fjölmennur lundur haldinn á Húsavík
ALMENNUR fundur Framsókn
armanna var haldinn í félags-
heimilinu á Húsavík á miðviku-
dagskvöldið. Var fundurinn
mjög vel sóttur. Umræðuefni
voru landhelgismálið, byggða-
N.Þing,
Á FIMMTUDAGINN var hald-
inn á Kópaskeri aðalfundur
Kaupfélags Norður-Þingeyinga.
Voru þar mættir 40 fulltrúar
fimm félagsdeilda, auk stjórn-
ar, framkvæmdastjóra og gesta.
Fundarstjóri var Grímur B.
Jónsson, Ærlækjarseli. Jóhann
Helgason, stjórnarformaður
kaupfélagsins, og Kristján Ár-
mannsson kaupfélagsstjóri
fluttu skýrslur og skýrðu rekst-
ur og hag samtakanna á síðasta
ári. Heildarvöruvelta varð 105
milljónir króna, sem er veruleg
aukning. Heildarsöluauknning
varð 25% meiri en árið áður.
Kristján Ármannsson.
Bændur fengu ríflega grund-
vallarverð fyrir sauðfjárafurðir
búa sinna. Samþykkt var að
greiða 6% arð af ágóðaskyldri
vöruúttekt félagsmanna, 3% í
stofnsjóð og 3% í reikninga.
Félagsmenn í Kaupfélagi N,-
Þingeyinga eru 342. Félagið
hefur útibú á Raufarhöfn,
Keldunesi og Grímsstöðum.
í stjórn félagsins eru: Jóhann
Helgason, Leirhöfn, Björn Guð-
mundsson, Lóni, Ingimundur
Jónsson, Brekku, Stefán Jóns-
son, Ærlækjarseli og Þórarinn
Haraldsson, Laufási. Fastráðið
starfsfólk er 25 talsins. □
Akureyringar löluverSir búmenn
AKUREYRING AR eiga 1860
kindur á fóðrum. Nú stendur
sauðburður yfir og er margt tví
lembt. Eins og sjá má á þessari
mynd eru ærnar í „stuttu tízk-
unni“, klipptar á áliðnum vetri
og virðist líða vel.
En bæjarbúar eiga meira af
búpeningi, svo sem hátt á
fjórða hundrað hross og 450
stefnan, stjórnmálaviðhorfið og
fleira. Frummælendur voru
Ingvar Gíslason alþingismaður,
Ólafur Ragnar Grímsson, Stef-
án Valgeirsson alþingismaður
og Jónas Jónsson ráðunautur.
Auk þeirra tóku til máls Ás-
kell Einarsson, Hafliði Jósteins-
son, Jón Jónsson á Fremstafelli,
Baldur Óskarsson, Sigfús Jóns-
son á Einarsstöðum, en Baldur
á Ófeigsstöðum átti lokaorðið,
sem var snjöll vísa. Hinir fjöl-
mörgu fundargestir gerðu góð-
an róm að máli ræðumanna, og
það vakti ennfremur sérstaka
athygli, að fundargestir voru
um 100 og er það óvenjulegt
fjölmenni á umræðufundi, þar
sem skemmtikraftar aðstoða
ekki eða auka fundarsóknina.
Frumræðum á þessum fundi
þóttu með ágætum og vöktu
svo umtal og umræður.
Mikill stjórnmálaáhugi er í
Þingeyjarsýslu um þessar
mundir, og í sumum byggðar-
lögum a. m. k. virðist Fram-
sóknarflokkurinn eiga vaxandi
fylgi að fagna. □
Forsetahjónum vel fagnað
nautgripi, en þar af eru á annað
hundrað á Búfjárræktarstöð
bændasamtakanna, á Lundi og
Rangárvöllum. □
ÖLL þjóðin fagnar því hve
hjartanlegar viðtökur íslenzku
forsetahjónin hafa hlotið í hinni
opinberu heimsókn sinni til
nágrannaþjóða. En dr. Kristján
Eldjárn forseti og forsetafrúin,
Halldóra Ingólfsdóttir, lögðu
fyrst leið sína til Noregs og síð-
an til Svíþjóðar. Konungar, ráð
herrar og aðrir tignarmenn
þessara landa hafa sýnt þjóð-
höfðingjahjónum okkar bæði
vináttu og virðingu, og almenn-
ingur hefur einnig sýnt þjóð
okkar hlýjan hug í tilefni heim-
sóknarinnar.
íslenzku dagblöðin, útvarp
og sjónvarp hafa rækilega sagt
frá ferðum forsetahjónanna frá
degi til dags og verður það ekki
hér rakið, en því aðeins fagnað,
að virðulegir fulltrúar íslenzku
þjóðarinnar höfðu tækifæri til
að rækja vináttu við nágranna-
Næg atvinna á
Skagaslrönd
Skagaströnd 7. maí. Vorið er
komið og má heita veðurblíða.
Arnar og Örvar komu í fvrra-
dag með 120 tonn af fiski. Nóg
er að gera og vantar fólk í
vinnu.
Vegirnir eru vondir og eigin-
lega ekki öðrum farartækjum
færir ea jeppum. Dálítið reit-
ist a£ gí'ásleppu. X.
og frændþjóðir, og hve hjartan-
lega viðtökurnar voru á hverj-
um stað. □
Snæfellið
bjargar
Hrísey 7. maí. Snæfell er að
landa hérna núna, líklega 50
tonnum, eftir rúmlega viku
veiðiferð. Þetta er ákaflega
fallegur fiskur. Hrognkelsaveið-
in gengur treglega og er það
óvanalegt á þessum tíma. Allir
bátarnir nema 3 eða 4 eru á
lirognkelsi, en hinir eru á net-
um og fiska lítið. Það er Snæ-
fellið, sem bjargar þessu öllu,
fólk hefur haft svo til samfellda
vinnu við fiskinn úr því undan-
farnar vikur. S. F.
1 Stjórnörflokkarnir
| komu í veg fyrir þjóð-1
I aratkvæðagreiðslu í |
jlandhelgismálinu. Þess j
I vegna verður kosið um j
I það 13. júní.
iii.M)! ni ii ii ii iiiliiniaii 11111111111111111111111111111111111 iii«