Dagur - 08.05.1971, Page 5

Dagur - 08.05.1971, Page 5
3 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. Menntamiðstöð utan Reykjavíkur ATHAFNABÆRINN HÚSAVÍK Eingöngu smábátar ATHYGLI ber að vekja á því, að bæjarstjóm Akureyrar hefur nú ný- lega samþykkt með ellefu sainliljóða atkvæðum að skora á ríkisvaldið, að stofna verzlunarskóla á Akureyri, enda taki skólinn til starfa ekki síðar en liaustið 1972. í j>essu sambandi rifjast það upp meðal annars þegar frumvarp til laga um tækniskóla íslands kom frain á Alþingi fyrir allmörgum ár- um, samþykkti bæjarstjórnin áskor- un til þingsins um að ákveða að skólinn yrði á Akureyri. Framsóknarmenn héðan tóku upp þessa tillögu þegar í stað og var þá sú málamiðlun gerð við kennslu- málaráðherran um meðferð málsins, að undirbúningsdeild skyldi vera hér á Akureyri og stefnt að stofnun reglulegs tækniskóla hér. Undirbún- ingsdeildin var stofnuð og starfar hér, en engar efndir liafa orðið á skólastofnuninni sjálfri og ríkið heldur ekki byggt neitt hús hér fyrir hana. Rétt er líka að minna á tillögu j>á, sem Ingvar Gíslason og fleiri Fram- sóknarmenn fluttu á síðasta þingi, um að Alþingi lýsi yfir þeim vilja sínum, að sérstaklega skuli að því stefnt, að Akureyri verði efld sem skólabær og miðstöð lista og vísinda utan höfuðborgarinnar. Þetta var raunar ekki nýtt mál, því tillaga svipaðs efnis var fyrst flutt á Alj>ingi af Ingvari og fleirum árið 1964. Þeirri tillögu var þá vísað til ríkis- stjórnarinnar og ekki meira um það. í greinargerð J>essarar tillögu eins og hún var lögð fram sl. vetur, lýstu flytjendur því nánar, hvað fyrir þeim vekti, þar var rætt um stofnun tækniskóla og verzlunarskóla og kennaraskóla, eða kennaradeildar við Menntaskólann og henta jwetti sérstakrar félagsmáladeildar við verzlunarskólann. Einnig var þar rætt um garðyrkjuskóla. Þegar kenn- araháskólafrumvarp stjórnarinnar kom til sögunnar í vor og ákveðið var að lögin um j>ann skóla, skyldu endurskoðuð innan tveggja ára, lögðu Framstiknarmenn héðan til, að endurskoðun sú skyldi við það miðuð, að kennaraliáskóli eða kenn- araskóli yrði á Akureyri. Q SJÓRINN og það sem úr hon- um fæst, er ein af undirstöðum atvinnulífsins á Húsavík. En út- gerðin á Húsavík hefur nokkra sérstöðu á Norðurlandi, því þar er eingöngu smábátaútgerð, sem mest er stunduð á sumrin. Togskip myndi lengja starfstím ann hjá Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur á veturna, en það er eini fiskkaupandinn á staðnum Forstjóri Fiskiðjusamlagsins er ungur maður, Tryggvi Finns son að nafni, og hittum við hánn að máli á Húsavík fyrir skömmu og umræðuefnið var bátar og fiskur. — Héðan eru eingöngu gerð- ir út smábátar. Hvað eru þeir margir? — Þetta eru um 50 trillubát- ar, einir tíu dekkbátar, en við fáum stundum togfisk úr að- komubátum, þegar mikið veið- ist. Tryggvi Finnsson. í vetur að hörpudiski, en lítið fannst. Áætlað mun vera að leita fyrir Norðurlandi á næst- unni. Um rækjuveiðarnar er það að segja, að einn bátur var styrktur á rækjuveiðar, því bát arnir okkar eru yfirleitt of litlir til að stunda þessar veiðar, sem svo djúpt þarf að sækja. Að lokum lýsti Tryggvi því yfir, að hann væri bjartsýnn á framtíð Húsavíkinga til sjávar- ins og við þökkum honum fyrir spjallið. S. B. — Fær Fiskiðjusamlagið alltaf nógan fisk? — Það er misjafnt. Veturinn er dauðasti tíminn og þá er oft lítið, en fyrir kemur, að við eig- um fullt í fangi með að taka við, en reynum þó að taka við öllu. Uppistaðan er handfæra- fiskur, sem kemur daglega — Hvernig er svo fiskurinn unhinn? — Mest af honum fer í fryst- ingu, en einnig er verkaður salt fiskur og skreið, ef þannig fisk- ur kemur. — Hvernig hefur grásleppu- veiðin gengið í vor? . .-r- Fremur treglega, en afl- inn mun vera að glæðast núna, sem er seinna en venjulega. Húsavík er líklega stærsti fram leiðandi grásleppuhrogna á landinu og ef til vill er það vegna grásleppunnar, sem svo mikið er hér um smábáta. Nú nýverið var samið um sölu á 500 tunnum af grásleppuhrogn- um til Þýzkalands og Danmerk- ur. Svo erum við að byrja að leggja niður kavíar og stefnum að því, að flytja hann út full- . unninn. — Iivað starfar margt fólk í frystihúsinu að jafnaði? — Kjarninn er um 60 manns, en á sumrin eru fleiri. Frysti- húsið er ágætt og starfsaðstaða þar góð. Starfstíminn að vetr- inum yrði mun drýgri þar, ef togskip legði þar upp afla sinn. — Hafa Húsvíkingar ekki áhuga á að eignast togara? — Áhuginn er nú eitthvað blandaður, en það er búið að setja á laggimar nefnd til að athuga málið. — Hvernig er með aðrar fisk- tegundir en bolfisk og grá- sleppu. Er ekkert reynt við liörpudisk og rækju, til dæmis? — Jú, það hefur verið reynt. Það var leitað héma í Flóanum Ekkert „unglmgavandamál44 EKKI má leggja svo leið sína um Húsavík, að gefa ekki and- legum málum staðarins gaum. Pesturinn á staðnum, sr. Björn H. Jónsson, er að sjálfsögðu manna líklegastur til að ræða þau mál. En séra Björn er svo sem fleiri hnútum kunnugur í mannlífinu á Húsavík, því hann kemur víða við en í kirkjunni, á það til að skreppa í róður eða byggingavinnu, þegar færi gefst, auk þess að kenna fjölda námsgreina í skólunum á staðn um. Við litum inn til séra Björns nýlega og ræddum við hann um stund um aðalstarf hans og sitthvað fleira. — Ert þú Þingeyingur að uppruna? — Nei, ég er Skagfirðingur, en kom hingað fyrir átta árum og fannst gott að vera hér. — Þú berð eitt og annað við, fyrir utan prestskapinn? — Já, mér finnst engin ástæða til að gera það ekki. Ég hef kostað mig til náms með vinnu og fer ekki að snúa baki við henni eftir á. Það er líka nauðsynlegt fyrir líkamann og heilsuna, að hreyfa sig og þá er vinnan ekki verri en hvað annað. Ég er fæddur og upp- alinn í sveit við sjávarbakkann og skrepp á sjó hér, þegar vel stendur á með bátspláss. Á sumrin geng ég að fleiru, til dæmis byggingavinnu, en á veturna kenni ég í efstu bekkj- um barnaskólans og í gagn- fræðaskólanum, ýmsar náms- greinar í stundakennslu, en þó aðallega kristinfræði. Ég tel mjög jákvætt að kenna við gagnfræðaskólann, þar nær maður góðu sambandi við fólk- ið. — Nú eiga prestarnir að vera sálusorgarar fólksins. Leitar fólk mikið til þín með vanda- mál sín? — Já, mér virðist fólk eiga auðvelt með að hafa samband við mig, ef einhver vandamál steðja að til dæmis í félags- eða hjúskaparmálum. Ég þakka það því, að ég er innan um fólkið, geng til vinnu með því og tek þátt í félagsmálunum. Sú skoð- un er liðin undir lok, að líta skuli á prestinn álengdar. Sam- band mitt við Húsvíkinga er mjög gott. — Hvemig er kirkjusóknin á Húsavík? — Yfirleitt góð. Að vísu má segja, að unglingar sæki ekki mikið kirkju, en hins vegar koma börnin mjög vel í sunnu- dagaskólann. Hér er einnig æskulýðsstarfsemi á vegum kirkjunnar. Þar starfar ekki margt fólk, en áhugasamt. — Nú er mikið í tízku, að tala um „unglingavandamál“. Er nokkuð hér, sem hægt væri að kalla því nafni? — Nei, áreiðanlega ekki. Hér er mjög lítið um óknytti af hálfu unglinga og hreinasta undantekning að heyra um inn- brot og þess háttar. — Hverju er það að þakka? — Sennilega því, að fyrir tveimur árum gekkst barna- verndarnefnd fyrir því, að kala saman foreldrafund, þar sem gerðar voru ýmsar samþykktir til dæmis um útivist barna og unglinga. Afrit af fundarsam- þykkt var síðan sent á hvert heimili og foreldrar brugðust mjög vel við þessu. — Hvernig hafa unglingarnir ofan af fyrir sér? — Það er til dæmis hérna í félagsheimilinu haft opið hús öðru hverju. Aðildarfélög húss- ins hafa skiptzt á um að hafa eftirlit með þessum kvöldum. Unglingarnir sjá sjálfir um sína dagskrá, dansa, spila og leika sér, en við bara fylgjumst með og látum sem minnst á okkur bera. mesta kirkjusókn, þegar öll sóknarbörnin, að undanteknu einu, komu til messu. — Þó mun eitt og annað mega betur fara? — Ég hef ekki yfir neinu að kvarta varðandi mína starfsað- stöðu. Hitt er svo annað mál, að lengi má finna upp á nýjum verkefnum og starf prestsins á að vera meira en að stíga í stól- inn. Mikið er rætt um afstöðu fólks og kirkju, svo og ferm- ingarundirbúninginn. Það sem mér finnst vanta mest nú, er beinlínis fræðsla fyrir ungt fólk, um þær skyldur, sem hjú- skapur og heimili leggur því á herðar. Fermingarfræðslan er ekki nóg, livað það snertir. Ef þessi fræðsla væri fyrir hendi, yrði komið í veg fyrir marga árekstra síðar. Fólk á það til að fara út í hjúskap allt of ungt og ófrótt um lífið. Þetta er ekki bara ást og rómantík og réttara er að gera sér grein fyrir því í tíma. — Nokkuð sérstakt að lok- um? — Ekki nema það, að það er ósk mín eins og hvers sálusorg- ara, að vera í beinu sambandi við þá hjörð, sem hann á að gæta. Á þann eina hátt má vænta árangurs af starfi hans. Á DAGSKRÁ Fóru á snjókettinum upp a S. B. ÞANN 31. apríl sL lagði Rpwers og Hjálparsveit skáta á Akur- eyri af stað í leiðangur og var ferðinni heitið á Vatnajökul. Fararskjóti var „Snjóköttur“ Baldurs Sigurðssonar. Var farið vestur á Oxnadalsheiði og þar upp á hálendið, eftir gilþragi er Kaldbaksdalur heitir. Mun þetta v.era í; fyrsta skipti,. sem þessi leið er farin á vélknúnu ökutæki. Ferðin gekk vel í alla staði, en vegna þoku var áætlun breytt og farið á Hofsjökul. Þar var ágætt skygni og hið bezta skíðafæri. Myndina sem fylgir tók Olaf- ur Baldvinsson og sýnir hún hópinn efst á Hofsjökli. Q Missagnir leiðréttar Séra Björn H. Jónsson. — Þjónar þú eingöngu Húsa- vík sem prestur? — Já, nema hvað ég messa nokkrum sinnum á ári í sam- komuhúsinu á Tjörnesi. Fyrst eftir að ég kom hingað, þjónaði ég líka Flateyjarsókn, en þar býr nú enginn maður lengur. Þangað var oft erfitt að kom- ast, en þar hef ég líka fengið NOKKRAR missagnir hafa orð- ið í viðtali blaðamanns Dags við fréttaritarann á Húsavík, Þor- móð Jónsson, í síðasta blaði, þar sem rætt var um félagsmálin á Húsavík. Þormóður hefur beðið blaðið að koma eftirfarandi á framfæri: í greininni segir, að Sigurður Sigurjónssonar hafi verið söng- stjóri Karlakórsins Þryms í nokkur ár. Orðin nokkur ár eru villandi. Sigurður stjórnaði kórnum með miklum ágætum í 17 ár. Þá spyr blaðamaðurinn á einu stað, livort handknatt- leiksfólk hafi góða aðstöðu. f svarinu hefur fallið niður, að fréttaritari greindi frá því, að enginn viðunandi útihandknatt leiksvöllur væri á Húsavík. Q Akureyrar í TILEFNI af 100 ára afmæli Barnaskóla Akureyrar éfnir skólinn til söngskemmtunar og leikfimissýninga, sem eirikum • er ætluð til að kynna aðstand- endum barnanna og öðru full- orðnu fólki starfsemi skólans á þessum sviðum. Söngskemmtunin fer fram í Borgarbíói laugardaginn 15. maí og hefst kl. 5.00 e. h. Þar kemur kór skólans fram, en í honum voru yfir hundrað börn í vetur. Um jólin söng kórinn við guðsþjónustu í Akureyrar- kirkju og einnig á Elliheimili Akureyrar og var söngskráin þá rniðuð við hátíðina. V-..- GRÓÐRARSTÖÐIN Fyrir sjö áratugum plöntuðu bjartsýnir Norðlendingar trjá- plöntum sunnan við Akureyri, og varð sá staður síðan um ára- tugi landsþekktur undir nafn- inu Gróðrarstöðin. Staðurinn varð mörgum andleg heilsubót því að þar óx og dafnaði skóg- urinn og síðan í skjóli hans blóm og matjurtir og enn síðar varð þar uppeldisstöð trjá- plantna. Þessi fagri og þroska- mikli gróður vitnaði um gróð- urmátt moldar, og um þá, sem trúna höfðu og þor til að hefja skógrækt og önnur gróðrarstörf með nýjum hætti. Gróðrarstöðin. á Akureyri var um fjölda ára garðyrkjuskóli í formi námskeiða, undir stjórn vel menntaðra búvísindamanna. Hún var stolt Akureyringa og Ræktunarfélags Norðurlands. Þegar tímar liðu gerðu fuglar sér hreiður í krónum trjánna, elskendum var það unun að ganga um vel hirta gangstíga stöðvarinnar, anda að sér ilmi gróðursins og sjá hvað unnt er að gera með því að rétta gróður öflunum örvandi hönd. Fyrir nokkrum árum þótti hæfa, að reisa í Gróðrarstöðinni vandaðar styttur af Sigurði Sig- urðssyni og Páli Briem, braut- ryðjendum í ræktunar- og menningarmálum. Litlu siðar hvíslaði púki því í eyru ein- hverra forráðamanna Gróðrar- stöðvarinnar, að þeir ættu að selja hana fyrir peninga. Það gerðu þeir, og seldu ríkinu. Bærinn átti forkaupsrétt, bæjar stjórn var þá ekki enn haldin jarðakaupaæði, og lét hjá líða að rifta kaupunum og neyta réttar síns. Þar með komst Gróðrarstöðin, þessi nafnfrægi menningarrreitur, úr eigu Akur eyringa og Norðlendinga, og varð einskonar próventukerling hjá ríkinu, að engu metin og vanhirt. Er nú svo komið, eftir nokkur ár frá óhappasölunni, að nánast enginn vill við Gróðr- arstöðina kannast, enda raéður hirðuleysið þar ríkjum. Illgres- ið dafnar, ruslið berst að fot- stalli brautryðjandanna og úfn- ir villikettir eru nálega einu spendýrin, sem erindi vilja eiga . við hinn afrækta stað, þar sem afrek voru unnin á fyrri ára* tugum þessarar aldar, en skammsýnir menn lögðu í eyði. Vill bæjarstjórn Akureyrar ekki athuga möguleika á því að bæta fyrir drýgðar vanrækslu-. syndir og hefja Gróðrarstöðina til vegs á ný, svo sem skylt er? Bæjarbúi. HALLDORA BJARNA- DÓTTIR, BLÖNDUÓSI, BIÐUR DAG AÐ BIRTA ÞESSA ORÐSENDINGU. Sem gámall skólastjóri á Ak- ureýri og bæjarfulltrui lángar rriið til, þó seint sé, að senda ykkur, ungá fólkinu á Akur- eyri, Kæra kveðjii míria og beztu þakkir fyrir prúðrriann- 'léga og vírðulega framkomu ýkkar, þegár þið fjölmenrituð, fýlktu íiði undir kröfuspjcildum og áletruðum borðum á fund bæjarstjórnar Akureyrar, á sl. h'aristi, til áð fylgja fram kröfu ykkar um bættá félagslega að- stöðu um húsnæði til tóm- stúndaiðju. Bæjárstjórn tók fulltrúa kröfugöngunnar vél, og forseti löfáði uriga fólkið fyrir prúð- mannlega framkomu, sem hann kvað Tnyftdi stýðja að fram- gangi málsins hjá bæjarstjórn. Það er talið,,að um 600 manns Síðan var önnur söngskrá æfð, sem flutt var á skóla- skemmtuninni í marz sl. og nú hefir. nokkrum lögum verið bætt við með þetta boð í huga. Alls hefir kórinn æft 17 lög í vetur fyrir utan messusvörin. í tengslum við skólann hefir Birgir Helgason kennt nokkr- um börnum á blokkflautur og melodikur og koma nokkur þeirra fram við þetta tækifæri. Auk þess leika börn á píanó. Ingimar Eydal annast undir- leik með kórnum, en Birgir og Ingimar eru báðir söngkenn- arar við skólann. Hinn 20. maí kl. 5.00 e. h. verður leikfimissýning í íþrótta skemmunni og koma þar fram á þriðja hundrað 11 og 12 ára börn. Þetta verða fjölmennustu hóp sýningar, er fram hafa farið á Norðurlandi. íþróttakennarar skólans eru Valgerður Elín Valdemarsdóttir og Kári Árnason. Sunnudaginn 23. maí verður venjuleg vorsýning á vinnu nemenda en síðar í sumar mun skólinn efna til yfirlitssýningar um sögu skólans í hundrað ár. (Fréttatilkynning) Skógræktarfél. Akureyrar HÉR fara á eftir kaflar úr ræðu Heimis Hannessonar lögfræð- ings, er hann flutti á ferðamála ráðstefnunni á Akureyri fyrir skömmu. hafr'tekið' ;þatt i göngu þessari. Lögreglumenn þurftu engin af- skipti að hafa af göngu þessari á neinn hátt, og þeim kom_sam- an um, að hún hafi verið unga fólkinu til sóma. Gleðilegt sumar, góðu ung- menni. Verið í Guðs friði. Héraðshælinu Bl., 23/4 1971. Halldóra Bjarnadóttir. Fáar atvinnugreinar hafa náð jafn örum vexti í heiminum hin síðari ár og ýmiskonar ferða- mannaþjónusta, og flest virðist benda til þess að þessi öra þró- un muni halda áfram enn um sinn. Veldur þar mestu batn- andi afkoma alls almennings í velmegunarþjóðfélögunum beggja megin Atlantshafsins, ör tækniþróun í samgöngumálum og kannske ekki sízt að með fáum undantekningum hefur verið tiltölulega friðsamt í hin- um svokallaða ferðaheimi, og ytri aðstæður að því leyti hag- stæðar. Sláandi undantekning er hið ótrygga ástand við Mið- jarðarhaf, og nú síðast atburð- irnir á Norður-írlandi. Það er byggt á þessum sama skilningi, að það er nú orðin yfirlýst stefna ýmissa alþjóðlegra fjár- málastofnana, t. d. Alþjóðabank ans, að fátt sé líklegra til að stuðlá að friði og auknum skiln ingi á milli þjóða heimsins, en áframhaldandi þróun á sviði ferðamála, auk þess sem fáar atvinnugreinar eru líklegri til að skapa gjaldeyrissnauðum þjóðum nauðsynlegar gjaldeyr- istekjur. Þessi nýja stefna hef- ur í mjög vaxandi mæli séð dagsins ljós í lánveitingum og allskyns fyrirgreiðslu alþjóð- legra stofnana, og þá einkum stofnana Alþjóðabankans. Hafa lán og styrkir til ferðamála sí- fellt aukizt, m. a. svo langt ver- ið að gengið að stórfelld lán hafa verið tekin í alþjóðlegum peningamörkuðum í því skyni að lána til ferðamála í fjölmörg- um löndum. Sá vöxtur sem hér hefur orð- AÐALFUNDUR Skógræktar- félags Akureyrar var haldinn í Hvammi sl. fimmtudagskvöld. Fundarstjóri var Ármann Dal- mannsson. Hallgrímur Indriða- son flutti starfsskýrslu félags- ins á liðnu ári og sagði frá fyrir huguðum framkvæmdum. Plantað var um 20 þús. plönt- um í Kjarnalandi, nokkrar jarðabætur gerðar, grisjuð og hirt skóglendi félagsins. Verið er að ganga til samn- inga við Akureyrarkaupstað um Kjarnaland, í sambandi við útivistarsvæði fyrir bæjarbúa. Kjörnir voru 18 fulltrúar á aðalfund Skógræktarfélags Ey- firðinga, sem haldinn verður í kvöld, 8. maí. Q um, þ. e. a. s. samgöngumála- ráðherra. Undir hann heyra nú öll ferðamál, og nú nýverið sam kvæmt lagabreytingu einnig starfsemi Ferðaskrifstofu ríkis- ins. Eins og fram hafði komið áður, er íslenzk ferðaþjónusta ekki lengur á frumstigi heldur vaxandi atvinnugrein. Hún hef- ur hins vegar þá sérstöðu með Heimir Hannesson. öðrum íslenzkum atvinnugrein- um, að svo virðist sem opinber- ir aðilar hafi ekki viðurkennt þessa starfsemi í raun, eða geri' sér ekki enn grein fyrir mikil- vægi hennar. Þessi afstaða eða afstöðuleysi kemur fram með ýmsu móti, m. a. því, að öll fjár- málaleg uppbygging atvinnu- greinarinnar er mjög losaraleg og stofnlánasjóðir nánast engir fyrir hendi, og þrátt fyrir ört vaxandi gjaldeyristekjur af henni, virðist sem bankakerfið hafi ekki enn tekið hana inn í sitt skipulag á sama hátt og aðra og í rauninni sambærilega aðila, og skipulagsbundinna vinnubragða til úppbýgginga;.' atvinnugreinarinttar gætir var: ennþá. Ferðamál eru í eðli sínu vic- skipti, sem lúta sömu lögmalum og önnur viðskipti, og þegar fyrir dyrum standa stór átök i sambandi við nýja uppbygg- ingu, m. a. með aðild eða í san ■ vinnu við alþjóðlega sjóði, e * spurning hvort ekki væri retí að stíga skrefið til fulls og af- nema núverandi skipulag, sem í rauninni er óvirkt, en koma þess í stað á fót virku og ábyrgu framkvæmdafélagi ferðamála, sem lagt gæti grunn inn að hinni vaxandi atvinnu • grein. í þessu sambandi held ej; að skynsamlegt væri að kanna vel hvernig þessum malum e ’ háttað í nágrannalöndum okk- ar, t. d. á Norðurlöndum og' :í litlu landi eins og Hollar.di. Un það get ég ekki fullyrt, en þó er mér kunnugt um, að t. d. i Finnlandi starfar af miklun. krafti ferðamálaráð og terðt ■ málasjóður með 80 hluthöfum, þ. á. m. eru bankar og iöiJ'yriz ■ tæki sem hagsmuna hafa ao gæta í sambandi við ferðamá;, ferðaskrifstofur, hótel og fjöi ■ mörg viðskiptafyrirtæki, sen tengd eru ferðamálum taeint o); óbeint. Eins er vitað, að þa :■ sem alþjóðlegar lánastofnani: hafa stutt að þróun ferðamák, hafa þær beitt sér fyrir stofnun framkvæmdafélaga, sem meó viðskiptalegri þátttöku o;j rekstri á fjölmörgum þáttun. ferðamála, m. a. þátttöku í hótel byggingum, uppbyggingu séz ■ stakra ferðaþjónustukjarna o.fl. Hefur myndun slzkra fran ■ kvæmdafélaga oft á tíðum verio foz-senda þess, að alþjóðlega.’ lánastofnanir hafa veitt sizia ach (Framhald á blaðsíðu 7). ið hefur ekki skapazt af skipu- lagsbundnum aðgerðum hins opinbera eða samræmdum að- gerðum einkaaðila. Sú þróun sem hér hefur orðið er fyrst og frernst ávöxtur af margra ára starfi m. a. ferðaskrifstofa og flugfélaga. Á síðasta ári varð farþegaaukning hjá Loftleiðum t. d. um það bil 40%, og fluttu þeir um það bil 280.000 farþega. Veruleg aukning varð hjá Flug- félagi íslands, og þar stendur fyrir dyrum aukning á þotu- kosti félagsins, nýir áfangastað- ir eru og á dagskrá á þessu ári. Verulegar framkvæmdir hafa orðið í hótelmálum og þá eink- um í höfuðborginni. Skilningur og áhugi hefur aukizt, m. a. á nauðsyn þess a'ð öflugri kynn- ingarstarfsemi sé haldið uppi. Hugmyndir hafa komið fram um ráðstefnuþjónustu á íslandi og margt fleira. Smám saman hafa menn verið að átta sig á því að ferðamannaþjónusta er að verða ein af atvinnugreinum landsmanna. Samkvæmt upp- lýsingum Seðlabankans námu tekjur af erlendum ferðamönn- um tæpum 680 milljónum króna árið 1969, sem á því ári voru 7.2% af heildarverðmæti útflutningsins, og það var 20.8% aukning miðað við árið áður. Sambærilegar tölur fyrir árið 1970 eru: 20% aukning miðað við 1969, fjöldi ferða- manna varð um 52 þús. eða þús urid á viku og gjaldeyristekjum ar tæpar 1000 milljónir. Segja má að opinber afskipti af íslenzkum ferðamálum hafi frekar verið fólgin í skipulags- lausri svörun við atburðarás- inni en að reynt hafi verið að hafa áhrif á hana eða hún mót- uð af hálfu þess aðila sem ber að hafa forystu í þessum mál- AFMÆLISKVEÐJA TIL TRYGGVA ÞORSTEINSONAR LENGI hefi ég vitað uzn það, að Barnaskóli Akureyrar á 100 ára afmæli á þessu ári. Hitt þótti mér ótrúlegt, þegar ég sá það svart á hvítu, að stjórnaridi hans, Tryggvi Þorsteínsson, væri sextugur að aldri á þessu sama ári. Og þakklátur var ég starfsbróður hans, Indriða Ulfs- syni, að segja frá því á jafn prýðilegan hátt og hann gerði (þegar við gömlu bræðurnir erum að heita má úr leik). Því að ekki er alveg víst, að öllum Akureyringum sé nægi- lega kunnugt um það, hvers virði það hefir verið margri upp vaxandi drengjasveit þar, að hafa átt slíkan hauk í horní um áratugi. Það væri fróðleg greinargerð, og mundi löng, ef. sarriari væri tekin, um allar þær stundir, allar þær ferðir um íjöll og dal, allt það starf, sem Tryggvi Þor- steinsson og strákarnir hans hafa átt saman öll.þessi ár, þar sem hann var kennarinn, leið- toginn, sem stappaði z allt og alla stáli. Og ef svo við væri bætt öll- um öðrum þegnskaparstörtuir, sem hanzz hefir innt af hözzdum, t. a. m. í sambandi við zþróttf,- líf í bænum o. fl. o. fl. Ég hefi á langri ævi þekkí marga starfsfúsa menzi og vinnuglaða, ötula og lagna, stjórnsama og úrræðagóða kjarnakarla, en engan honum fremri. Ég tek undir það meö starfs- bróður hans, að Tryggvi Þor- steinsson er óvenjulegur maðu:’ að dáð og dug og drengilegzi reisu í starfi og stöðu. Hann mun aldrei svíkja neitt, sem honum er til truao, helduo neyta hæfni sinnar og krafta tii þess að lyfta því til vegs og fremdar. Því er vel að, hann stýrir nú hinni 100 ára gömlu uppeldisstofnun Akureyraz'. Hann mun hvergi spara sig til þess að hún megi bjóna sem bezt því markmiði, að koma sem flestum, er hezrnar eiga a<5 njóta, til nokkurs þroska. Ég bið stofnuninm gómiu og sextugum stjórnanáa hennaí héilla og blessunar. Snorri Sigfússeri. Alm. fundur um æskulýðsmai ALMENNUR fundur um æsku- lýðsmál verður haldinn n. k. laugardag í Borgarbíói og hefst kl. 2 e. h. Rætt verður sérstak- lega um húsnæðismálin. Frummælendur verða: Ingólf ur Árnason bæjarfulltrúi, Ómar Einarsson og Friðrik Sigurós* son. Almennar umræður verða A eftir framsöguerindum. Bæjarstjórn, æskulýðsráði or* íbúum Brekkugötunnar hefuí? verið boðið sérstaklega. ,

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.