Dagur - 16.06.1971, Blaðsíða 7
7
Frá Barnaskóla Akureyrar
SKÓLINN hófst með kennara-
fundi 1. sept., en var formlega
settur 3. september.
Níu kennarar sóttu námskeið
í sumaríríum sínum.
í vetur starfaði skólinn í 30
bekkjardeildum, fastir kennar-
ar voru 25 og stundakennarar 2.
Nemendur voru 762.
Leikfimi var nú kennd í öll-
um bekkjum, 2 stundir á viku,
en vegna húsnasðisskorts hafa
7 og 8 ára börn ekki notið leik-
fimiskennslu í nokkur ár.
Eðlisfræði var kennd í öllum
11 ára bekkjum og hefir skólinn
sérstaka stofu til þeirrar
kénnslu, sem er vel búin tækj-
um. Börn úr Glerárskóla sóttu
hingað tíma í eðlisfræði.
Danska var kennd í öllum 12
ára bekkjum, eins og að undan-
förnu.
Hjálparkennsla var aukin og
í raun og veru starfaði einn fá-
mennur hjálparbekkur í skól-
anum.
Dr. Matthías Jónasson athug-
aði hér nokkur börn haustið
1970.
Lesstofa var starfrækt, en í
nokkur ár hefir starfsemi henn-
ar legið niðri.
Stúlkur í 3. bekk fengu nám-
skeið í handavinnu, sem dreng-
ir hafa aðallega fengizt við til
þessa, og drengir fengu tilsögn
í handavinnu stúlkna.
Plastmyndagerð var tekin
úpp í sambandi við teikni-
kennsluna og er það algjör
nýjung, — mjög vinsæl.
„Vettvangsskóli“ fyrir 12 ára
börn fór fram að Hólavatni í
september og er Barnaskóli Ak
ureyrar brautryðjandi hérlend-
is á því sviði. Skólinn fékk
nokkra fyrirgreiðslu hjá ríki og
bæ til að standa straum af þess-
ari tilraun, sem tókst mjög vel.
Þriggja daga skíðanámskeið
fyrir 12 ára börn fór fram í
Hlíðarfjalli með sama sniði og
áður, og var ég fenginn til að
kynna það fyrir nemendum
íþróttakennaraskóla íslands er
hér voru við skíðaiðkanir laust
eftir páska.
íþróttamót eru fastur liðúr í
starfi skólans og er þá jafnan
um flokkakeppni að ræða.
Keppt er um farandverðlaun í
þessum greinum: Boðsund (8
manna sveit). Handknattleikur
stúlkna. Handknattleikur
drengja. Flokkakeppni í svigi
(6 manna sveit).
Viðurkenning er veitt bezta
fimleikaflokk drengja og
í frjálsíþróttakeppni ÍSÍ og
Æskunnar (þríþraut) var skól-
inn með 100% þátttöku.
í skólakórunum voru á annað
hundrað börn í vetur. Kórinn
æfði 17 lög og kom að venju
fram við jólaguðþjónustu auk
þess sem hann söng á Elli-
heimili Akureyrar um jólin.
Einnig söng kórinn á skóla-
skemmtuninni í marz og síðast
í Borgarbíói 15. maí.
Fimleikasýning fór fram á
vegum skólans 20. maí og kom
þar fram á þriðja hundrað
börn. Er það fjölmennasta hóp-
sýning er fram hefir farið á Ak-
ureyri og vonandi markar hún
tímamót í sambandi við fim-
leikasýningar skóla hér í bæn-
um. Húsfyllir var bæði á söng-
skemmtuninni og íþróttasýning
unni.
Eins og að undánförnu komu
Gideonfélagar og færðu öllum
11 ára börnum Nýja-Testament-
ið að gjöf.
Þá sendi Tónlistarfélag Akur
eyrar okkur góða gesti. Fyrst
komu þau Ruth Little Magnús-
son og Jósep Magnússon ásamt
Guðrúnu Kristinsdóttur og
fluttu tónleika fyrir 6. bekk, og
síðar kom Karmel Kaine fiðlu-
leikari og Philip Jenkins píanó-
leikari og fluttu tónleika fyrir
5. bekk.
Nokkrar bekkjardeildir buðu
foreldrum í skólanum til að
hlýða á dagskrá, sem börnin
höfðu æft. Oll börn bekkjanna
fluttu þar skemmtiefni.
6. bekkur í 9. stofu flutti dag-
skrá er helguð var 100 ára af-
mæli Steingríms Thorsteins-
sonar.
. Foreldradagur var 25. nóv. og
fóru þá fram 680 viðtöl.
Foreldrafundur var í septem-
ber vegna Vettvangsskólans.
Við innritun 7 ára barna í
maí var mælst til þess að ein-
hver fullorðinn kæmi með
hverjum nemanda fyrsta skóla-
daginn. Var þeim fullorðnu þá
gerð grein fyrir starfsemi for-
skólans (skóla 6 ára barna),
auk þess sem vikið var að skóla
göngu þeirra er voru að hefja
nám.
Zontaklúbbs-konur buðu 5.
bekk í Nonnahúsið eins og að
undanförnu og komu síðar í
skólann með verðlaun fyrir
beztu ritgerðir um Nonna. Ein
verðlaun í hverja bekkjardeild.
Á vegum „Áfengisvarnar-
nefndar" var efnt til ritgerða-
samkeppni um efnið: „íþróttir,
æskulýðsmál og bindindi.“
Fimm verðlaun voru veitt.
Sex kennaranemar luku hér
kennsluviku sinni.
Fræðsluráði var boðið í skól-
ann til að líta á endurbætur er
gerðar voru á húsinu á siðast-
liðnu sumri, og til að sjá hvað
hér þarf að lagfæra í framtíð-
inni.
Námsstjórinn Valgarður
Haraldsson kom oft í skólann
og nokkrir útlendingar heim-
sóttu okkur.
Sunnudaginn 23. maí var hér
venjuleg vorsýning á vinnu
nemenda og var hún mjög fjöl-
sótt.
Heilsufar var gott í skólanum
í vetur, og nærri éngin leiðin-
leg vandamál við áð fást á
nokkru sviði.
Barnapróf tóku 107 börn. 22
börn hlutu ágætiseinkunn.
Við Barnaskóla Akúreyrar
eru til tveir sjóðir, sem stofn-
aðir voru til minningar um Pál
J. Árdal skáld, sem lengi var
hér kénnari. Eldri sjóðurinh,
sem stofnaður var árið 1930
styrkir skólaferðalög og náms-
ferðir. Hinn sjóðurinn var
stöfnaður er börn Páls gáfu
skólanum allar tékjur er verða
af skáldverkum hans, frá 1.
febrúar 1962 að telja.
Náttúrufræði og íslenzka
voru eftirlætisnámsgreinar Páls
og éru sjóðirnir tehgdir þeim
báðum.
Ur síðari sjóðnum ér véitt
viðurkenning þeim nemanda,
ér sýnir mestar framfarir í ís-
lenzku á síðasta hámsárinu í
Barnaskóla Akureyrar og var
sú viðurkenning veitt í fyrsta
sinn við lok þéssa skölaárs.
Við skólaslit fninntist skóla-
Stjóri 100 ára afmælis Bama-
skóla Akureyrar. Valgarður
Haraldsson námsstjóri flutti
kveðjur frá menntamálaráð-
herra, Gylfa Þ. Gíslasyni, og
Helga Elíassyni fræðslumála-
stjóra. □
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju- n. k, sunnudag kl.
10.30 f. h. Sálmar: 530, 354,
137, 207, 675. Hópur Vestur-
íslendinga kemur í messuna.
Fjölmennum og fögnum
þeim. B. S.
MESSAÐ verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kl. 2 e. h. Sálmar: 572, 354,
137, 207, 681. Bílferð verður
úr Glerárhverfi kl. 1.30. B. S.
Möðruvallaklaustursprestakall:
Guðsþjónusta á Glæsibæ n.
k. sunnudag, 20. júní, kl. 2
e. h. — Sóknarprestur.
SLÖKKVISTÖÐIN — Sjúkra-
bíllinn — Brunaútkall sími
1-22-00.
RAKARASTOFUR okkar
verða lokaðar á laugardög-
um til 18. september.
Sigtryggur Júlíusson.
Valdi, Ingvi og Halli.
DAVÍÐSHÚS. Opnað 16. júní
kl. 5—7 e. h. Opið alla daga.
MATTHÍASARHÚS. Opnað 16.
júní kl. 2—4 e. h. Opið alla
daga.
(Framhald af blaðsíðu 8).
verki og komið sér hjá aðgerð-
um. Það hefur jafnvel verið tal-
in afsökun illra verka að vera
fullur, og látið er viðgangast,
að ofdrykkja eins manns leggi
heimili í rúst og valdi bömum
óbætanlegu heilsutjóni vegna
andlegra og jafnvel líkamlegra
misþyrminga. Barátta okkar
fyrir heilbrigðu og farsælu lífi
fólks, verður m. a. að beinast
að því tvennu, að reyna að fyrir
byggja vín- og eiturlyfjaneyzlu,
og koma þeim til hjálpar, sem
fallið hafa.
ÞEGAR ÞJÓÐIN GERIR
KRÖFUR
Því miður er enginn stjórnmála
flokkur hreinn af þessum van-
rækslusyndum, því að kjósénd-
ur hafa verið vægir í kröfum
til frambjóðenda í bindindis-
málum og eiturlyfjaneyzlan er
ný og aðsteðjandi hætta, frem-
ur en vandamál hér á landi,
enn sem komið er. En þegar
þjóðin rís upp og gerir kröfur
í þessum efnum, verður á hana
hlustað, þótt það verði síðar.
NÝR FLOKKUR
Fyrir mörgum árum tók Sjálf-
stæðisflokkurinn upp þá ný-
breytni, vegna daprar fundar-
sóknar, þar sem pólitískur boð-
skapur var fluttur, að senda
Baldur og Konna eða aðra
skemmtikrafta á fundarstaðina
til að örva aðsóknina. Aðrir
flokkar tóku sér þetta til fyrir-
myndar. Eftirhermur urðu Vin-
sælastar á þessum samkomum.
Kom það furðulega í ljós, að
fólk hafði meiri ánægju af eftir-
hermunum en þeim, sem hermt
var eftir, t. d. stjórnmálafor-
ingjum. Nú hefur annað furðu-
ORÐ DAGSINS SÍMI 2-18-40.
NONNAHÚS! Opið daglega kl.
2—4 e. h. frá og með 13. júní.
Sími safnvarðar er 12777.
jHhljasafmtl á Akureyri
verður opið daglega frá og
með 10. júní kl. 1.30—4 e. h.
Á öðrum tímum tekið á móti
skóla- og ferðafólki eftir sam-
komulagi.
LYSTIGARÐUR AKUREYR-
AR hefur verið opnaður og
verður opinn alla daga frá
kl. 9—22.
GJAFIR og áheit: Til Pálm-
holts kr. 2000.00 frá Sigur-
leifu Tryggvadóttur, Lyng-
holti 2, til minningar um
mann hennar, Stefán Krist-
jánsson, og foreldra, hjónin
Oddnýju Þorsteinsdóttur og
Tryggva Þórðarson. — Til
fjölskyldu í erfiðleikum kr.
2000.00 frá Svavari Þór Guð-
mundssyni á dánardegi hans.
— Áheit á Strandarkirkju kr.
200.00 frá L. G. og á Akur-
eyrarkirkju kr. 250.00 frá x.
Beztu þakkir. Birgir Snæ-
björnssön.
légt fyrirbæri komið fram; nýr
flokkur, sem býður fram til
þings, Framboðsflokkurinn.
Gerir hann grín að gömlu flokk
unum og skemmtir áhorfendum
í sjónvarpi, eins og trúðarnir
áður á fundunum. Skemmtun
er oftast góðra gjalda verð, en
nú bregður svo við, að alvöru-
stjórnmálamenn líta skenunti-
kraftana óhýru auga. Þeir vita,
að þetta er uppvakningur
íhaldsins er síðar varð einskon-
ar allra gagn.
Átján nýir
þingmenn
f NÝ AFSTÖÐNUM alþingis-
kosningum voru 18 nýir þing-
menn kjörnir, sem taka munu
sæti á Alþingi næsta kjörtíma-
bil. Fjórtán þeirra taka nú sæti
í fyrsta sinn á Alþingi, en fjórir
þeirra hafa átt sæti þar áður.
Fyrir Alþýðuflokkinn taka
nú sæti á Alþingi þeir Stefán
Gunnlaugsson og Pétur Péturs-
son; fyrir Framsóknarflokkinn
Steingrímur Hermannsson; fyr
ir Sjálfstæðisflokkinn þau Ell-
ert B. Schram, Ragnhildur
Helgadóttir, Gunnar Thorodd-
sen, Oddur Ólafsson, Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson, Ólafur
G. Einarsson, Lárus Jónsson og
Sverrir Hermannsson. Fyrir
Samtök frjálslyndra ög vinstri-
manna Magnús Torfi Ólafsson,
Bjami Guðnason og Karvel
Pálmasön og fyrir Alþýðu-
bandalagið þail Svava Jakobs-
dóttir, Ragnar Arnalds, Helgi
Seljan og Garðar Sigurðsson.
*
y
Innilegar þakkir til allra vandamanna og vina, sem §
mimitust mín með góðum óskum, gjöfum og blóm-
um á áttræðisafmæli mhm, þann 7. júní s.l. «
Ennfremur þakka ég lækmim og hjúkfunarlidi Krist-
neshælis og félaginu Sjálfsvötn, Kristneshæli, vinar- <•)
kveðjur og ágætar gjafir.
f
I
|
I-
s
I
I
I
Megi gæfdn fylgja ykkur alla tíma.
JÓNBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR.
, , f
Börnum mínum, tengdabornum, barntibÖrnum ög ©
öðrum ættingjum og vinúfii, seiii iiiinUtust iiiíii á f
sjötugsafmæli minu 7. þ. m., sendi ég hUgheiltir ^
kveðjur og þakkir. f
I
I
Óska ykkur allrar blessunar. — Lifið.heil.
KARL JÓNSSON frá Mýri.
t
s ... .
1
i
Maðurinn minn,
BJARNI HALLDÓRSSON,
Bjarmastíg 15, Akureyri,
andaðist á Fjórðungssji'iikrahúsinn s.l. sunnudag.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Margrét Gunnarsdóttir.
Minningarathöfn um
GUÐMUND PÁL JÓHANNESSON
fór fram í Akureyrarkirkju hinn 15. júní.
Þökkum hjartanlega anðsýnda samúð.
Ólafía Jóhannesdóttir,
Jóhannes Kristjánsson.
ATYINNA!
Vanur rnaður óskast á jarðýtu. — Vaktavinna.
Úppl. gefur RAFN HELGASON, Stokkahlöðum.
SMÁTT & STÓRT