Dagur - 25.08.1971, Blaðsíða 5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síuiar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
NÝ VIDHORF
NÝJA ríkisstjórnin hefur aflað sér
mikilla vinsælda meðal alls alménn-
ings fyrir margháttaðar aðgerðir sín-
ar, sem eru í samræmi við yfirlýsta
stefnu hennar. Morgunblaðið er eins
og vængbrotinn fugl í sínu nýja hlut-
verki, sem stjórnarandstöðublað og
nær ekki fluginu. Það deilir á stjórn-
ina fyrir eyðslusemi og ráðaleysi er
hún bætir hag gamla fólksins og
hinna lægst launuðu, en lætur í hinu
orðinu á sér skilja, að þetta hefði
gamla stjórnin líka gert, ef hún hefði
verið við völd. En af einhverjum
ástæðum dróst það í tólf ár, hvernig
sem á því stendur. Laun liafa aðeins
liækkað og framfærsluvísitalan lækk-
að, og er sú þróun auðvitað óskiljan-
leg í augum Morgunblaðsmanna.
Hins vegar finnnr fólkið, sem fær nú
hærri ellilífeyri, verkafólkið, sem fær
sín réttmætu vísitölustig í launa-
umslaginu og sjómaðurinn, sem fær
aukinn skiptahlut, að önnur og ný
stjórn er tekin við völdum, og að það
er stjórn fólksins, sem nú heldur un\
stjórnartaumana.
Af aðkallandi viðfangsefnum
stjórnarinnar ber landhelgismálið
þó hæst og um það þarf að verða
þjóðareining, og raunar ekki ástæða
til að ætla annað, þegar á reynir. I»að
bjóst enginn við því af íhaldi og
krötum, að þeir hefðu nokkum
manndóm í sér eða áhuga á að kref j-
ast lífsnauðsynlegrar útfærslu land-
helginnar. Þeir flokkar hafa því ekki
valdið þjóðinni miklum vonbrigð-
um, en hins vegar er þess vænst nú,
að beztu menn þeirra fylgi þeirri
stefnu, er nú er mörkuð og getur
fært Islendingum umráðarétt yfir
landgrunninu öllu. í ráðaleysi sínu
hefur Morgunblaðið keppzt við
sjálft sig í því að vera bergmál þeirra
erlendu aðila, sem telja sinn hag
fyrir borð borinn með stækkun ís-
lenzkrar landlielgi, í stað þess að
lcggja sig fram um að vinna hinni
íslenzku stefnu fylgi á erlendri
grund.
Miklar vonir em við það bundnar,
að takast megi að halda vinnufriði í
landinu og þá jafnframt, að efla at-
vinnulífið og treysta grundvöll Jress.
En undir vexti og viðgangi atvinnu-
lífsins og framleiðslunnar er það
komið, að þjóðin geti haldið áfram
á braut framfara og menningarlífs,
svo sem nauðsyn ber til. Núverandi
forseti Al]>ýðusambands íslands hef-
ur lýst því yfir, að ástæða sé til að
ætla, að kapítulaskipti hafi orðið í
kjaramálum og að friðvænlega horfi
á vettvangi kaupgjaldsmálanna, en
það er vegna nýrra viðhorfa og nýrr-
ar stjómarstefnu. □
EINN hinna mörgu ferða-
manna, sem leið sína lögðu til
Akureyrar í ágústblíðunni var
dr. Halldór Pálsson, búnaðar-
málastjóri og Sigríður Klemens
dóttir kona hans. Komu þau
Sprengisandsleið að sunnan og
þótti búnaðarmálastjóra ófagrar
auðnir og gróðurleysi hálendis-
ins en frúin naut fegurðar fjall-
anna.
Dagur hitti búnaðarmálastjór
ann að máli í síðustu viku og
lagði fyrir hann nokkrar spurn-
ingar, er hann svaraði góðfús-
lega, og fer samtalið hér á eftir.
Það mun vera ánægjulegt að
vera búnaðarmálastjóri um
þessar mundir?
Já, þetta sumar er betra en
komið hefur síðan 1939 og sum-
ir telja, að það sumar hafi jafn-
vel ekki verið eins hagstætt
bændastéttinni.
Er heyskapur hvarvetna jafn
góður?
Grasspretta er ágæt um land
allt, og þó allra mest á Suður-
landi, enda hlýrri júnímánuður
þar en hér fyrir norðan og í
öðrum landshlutum. Furðan-
lega hefur gróið upp í gömlu
kalskemmdunum um land allt.
Þó er langt frá því, að þau tún,
sem verst kólu á síðasta ári hafi
gefið mikla uppskeru nú í sum-
ar. En þetta sýnir, að orsök
kalsins stafar fyrst og fremst af
kaldri tíð, og bollaleggingar
manna um aðrar orsakir kals-
ins, eru meira og minna út í
hött, ekki þó algerlega ástæðu-
lausar. Margir réðust á Kjarn-
ann og töldu notkun hans orsök
kalsins. En í sumar sprettur vel
af Kjarna. Kjarninn einn út af
fyrir sig á enga sök á kali í
túnum. Túnbeit er heldur ekki
frumorsök kals. En vel má
vera, að hinar þungu dráttarvél
ar, mikil beit og óskynsamleg
áburðarnotkun, sláttur mjög
seint og enn fleira, eigi sinn
þátt í túnaskemmdunum, eða
auki kal í vondu árferði.
í sumar hafa heyín verkazt
vel?
Heyin eru eflaust óvenjulega
góð um land allt, því að það
hafa verið langir þurrkakaflar
og auðvelt að þurrka heyið, víð-
ast hefur það þornað svo að
segja jafnóðum. Og heymagnið
er nú meira en nokkru sinni
fyrr. Þó má vera, að einhverjir
álíti nú hey sín meiri en þau
eru vegna þess að víða mun það
laust í hlöðum. Gamall máls-
háttur segir: Þau gefast fljótt
grænu heyin, og það getur sann
ast í vetur og ættu menn ekki
að ofmeta þau, þótt þó séu bæði
mikil og góð. Mér þykir líklegt,
að heyin verði 30—40% meiri
í haust en í fyrrahaust.
Tún hafa stækkað mjög und-
anfarin ár?
Já, þau hafa stækkað mikið
á undanförnum árum en upp-
skeran ekki vegna hinnar köldu
veðráttu, nema síður sé. En nú,
þegar hvarvetna hefur sprottið
vel, skila þessi miklu ræktar-
lönd feikna mikilli uppskeru.
Svo hygg ég, að nú komi að ein-
hverju leyti að notum áburð-
ur, sem safnazt hefur fyrir í
jarðveginum í köldu árunum,
einkum steinefni, sem varðveit-
ast frá ári til árs.
Stækka bændur bú sín?
Ég reikna með mikilli fjölgun
búfjár í haust, einkum sauð-
fjár en einnig nautgripa. Það er
eðlilegt, að bændur reyni að
koma þeim stofni upp á ný, sem
þeir þurftu að skerða vegna
fóðurvöntunar á undangengn-
um árum. Sauðfé fækkaði t. d.
um 80 þúsund á tveim síðustu
árum og munu bændur setja
fleira fé á vetur en áður, og
í sumar er bjart yfir búskapnum
mjólkurframleiðendur munu
einnig auka kúastofn sinn. Þó
held ég, að bændur ættu að
auka bústofn sinn með gát en
siga heldur á, jafnvel þótt þeir
eigi nú yfirdrifin hey.
Hve margt sauðfé er á fjalli
í sumar?
Um það veit enginn nákvæm-
lega. En lambahöld voru góð en
heldur með færra móti af tví-
lembingum. Samt hygg ég að
séu um 1600 þúsund fjár á fjalli.
Og vænleikinn er efalaust mik-
ill. Það er venja í þurrkasumr-
um eins og í sumar. Það verður
aldrei vænt fé í rigningartíð.
Hve margar mjólkurkýr eru
í landinu?
Rúm 40 þúsund, en heildar-
tala nautgripa er miklu hærri
vegna þess hve margir bændur
stunda nú nautakjötsfram-
leiðslu og ala upp kálfa til slátr-
unar. Það er mikil eftirspurn
eftir þessu nautakjöti, ekki sízt
í sambandi við hótelin og ferða-
fólkið. Mér finnst sjálfsagt að
bændur fylli þann markað af
geldneytakjöti. Sjálfsagt er
einnig að svara eftirspurn í
svína- og hænsnakjöti. En hafa
verður í huga, að þær skepnur
eru að mestu aldar á erlendu
fóðri, og það er því ekki eins
þjóðhagslega æskileg fram-
leiðsla og sú, sem framleidd er
af innlendu fóðri að mestu eða
öllu.
Enn fæst ekki innflutt sæði
holdanauta?
í því máli starfar nefnd, einu
sinni enn. Ég tel sjálfsagt að
flytja inn sæði úr holdanautum
til blöndunar við kjötfram-
leiðslu. Djúpfrysting auðveldar
þetta mjög og að mínu áliti á
ekki að vera hætta á að inn
berist af þeim sökum búfjór-
sjúkdómar. Þetta yrði tvímæla-
laust ávinningur, því að kúa-
kyn okkar er smávaxið og frem
ur holdlítið, frábært mjólkur-
kyn, en ekki vel fallið til kjöt-
framleiðslu. Við getum að vísu
fengið ljúffengt kjöt af íslenzk-
um nautgripum, en ekki eins
mikið kjöt og við viljum og
dýrara kjöt í framleiðslu en af
holdakynjum. Margt er enn
órannsakað í þessari fram-
leiðslugrein. Hve gamlir eiga
kálfarnir að vera þegar þeim er
slátrað? Og hve þungir eiga
þeir þá að vera, hvernig aldir
síðasta tímann o. s. frv.? Sumir
telja, að kjöt af ársgömlum kálf
um hafi tapað kálfakjötsbragð-
inu en sé hins vegar ekki búið
að fá nautakjötsbragðið. Hér
þarf að rannsaka sameiginlega
þetta og önnur atriði, jafnhliða
því hvað hagkvæmast er í fram
leiðslunni. Kálfar gefa vissu-
lega möguleika til verðmæta-
sköpunar og sjálfsagt að nýta
þá möguleika eins skynsamlega
og unnt er. Danir framleiða
óhemju magn af kálfakjöti, án
þess að fóðra á heyi og ítalir
og fleiri þjóðir kaupa kjöt af
þriggja mánaða kálfum, þannig
öldum, við háu verði. Ég er
ekki viss um, að við eigum að
stefna að þeirri framleiðslu.
Allt þetta þarf þó rannsókna
við.
En er ekki me'ðferð kjöts, t. d.
í sláturhúsum, skemmra á veg
komin en mjólkuriðnaðurinn?
íslenzkar mjólkurvörur hljóta
viðurkenningu bæði utanlands
og innan og mjólkuriðnaðurinn
stendur á háu stigi hér á landi,
miðað við þróun í mörgum öðr-
SEGIR DR. HALLDÓR PÁLSSON BLNAÐARMÁLASTJÓRI
um greinum. Mér finnst að
nokkru réttmæt gagnrýni á
nautakjötsframleiðslu okkar.
En sú gagnrýni á ekki að bein-
ast að bændum meira en efni
standa til. Húsmæður í kaup-
stöðunum, sem kaupa nautakjöt
í matinn fyrir hátt verð, verða
oft fyrir vonbrigðum. En hvers
vegna? Það er, að mínum dómi,
eins oft að kenna meðferðinni
á kjötinu, eftir að það er komið
úr höndum bændanna. Þeir,
sem annast slátrun, meðferð
alla og geymslu, þurfa að kunna
sín fræði. Það er heil fræði-
grein. Sjálfur er ég sérfræðing-
ur í kindakjöti, einkum hvað
snertir vaxtarlag fjárins og sam
anburð á fjárkynjum. En margt
sá ég athyglisvert um meðferð
nautakjöts, sem eftirtektarvert
var, er ég var við nám og störf
erlendis. Nautakjötið var t. d.
látið hanga ótrúlega lengi uppi,
þar til það meirnaði hæfilega
af vissri „gerð“, sem í það kem-
ur, en þar má engu skeika til
að fá hið eftirsótta bragð og
kjötið verði eins meyrt og ljúf-
fengt og það hefur eiginleika
til. Ég sá í vönduðustu kjöt-
búðum uppihangandi skrokka,
sem lá við að væru farnir að
slepja að utan og með aðeins
grænni slykju þegar vel var að
gáð. Þetta var auðvitað þurrk-
að af, og þetta var allra bezta
kjötið. Það er alveg sama hve
ljómandi gripi við tökum til
slátrunar, að ef við steikjum
eða sjóðum kjötið strax á eftir,
verður það seigt, þótt bragðið
geti verið ágætt. Hvert slátur-
hús þarf að kunna að verka
nautakjöt, en þar mun víða á
skorta. Við höfum auðvitað
mörg fyrsta flokks sláturhús,
hvað hreinlæti og vinnubrögð
snertir, þegar um sauðfjárslátr-
un ræðir. En það mun víða ekki
unnt að hengja nautgripa-
skrokkana upp í heilu lagi, held
ur eru þeir bútaðir í fjórðu-
parta og látnir hanga þannig.
Þetta má ekki gera. Skrokkana
verður að láta stirðna í heilu
lagi því að við það eitt verður
kjötið meirara. Kjötið þarf að
stirðna þannig, að sem mest
reyni á vöðvana. Þegar skrokk-
arnir eru skornir sundur heitir,
skreppa vöðvarnir saman og
kjötið verður seigara. Hin rétta
meðferð á allri skinnavöru er
stórt fjárhagsatriði. Þegar
skakkt er rist fyrir eða skinn
skorið, eða það er ekki nægi-
lega vandlega saltað, stór-
skemmist varan, og þær vöru-
skemmdir eru bændum ekki að
kenna. Gærurnar eru ágætis-
vara og þekktar, og úr þeim má
vinna mjög verðmikil skinn til
klæðagerðar, eins og allir
þekkja. En til þess að gærurnar
haldi íullu gildi sínu, má ekkert
á skorta um vandaða meðferð í
sláturhúsunum. Og í þessu sam
bandi má nefna húðir af skjótt-
um hrossum, kálfum og folöld-
um, skrautskinn í háu verði.
En verðið hrapar ef einhvers-
staðar er áfátt í meðferð. Það
er vandi að vera sláturhússtjóri
og fá allt starfsfólkið til að
vanda vinnu sína samkvæmt
ströngustu kröfum um vöru-
vöndun í smáu og stóru. Við
verðum að viðurkenna, að við
erum að vissu leyti skemmra á
veg komnir í þessum störfum
en í mjólkuriðnaðinum, sem
bændur mega vera stoltir af.
Þessu til viðbótar vil ég þó
benda á, að við höfum lengi
verkað lambakjöt samkvæmt •
fyllstu kröfum á erlendum
mörkuðum og þar stöndum við
í stöðu okkar.
Verður nú ekki flutt minna
inn af erlendu kjarnfóðri cn
áður?
Alveg eflaust. 'Bændur vilja
au'ðvitað nota sitt innlenda fóð-
ur eftir því sem hægt er og það
geta vonandi allir í vetur. Und-
Halldór Pálsson,
búnaðarmálasfjóri.
anfarandi harðindaár hafa
menn ekki aðeins notað erlent .
kjarnfó'ður sem fóðurbæti, held
ur einnig í stað heys vegna hey-.
vöntunar og það. í stórum stíl.
Nú vona ég að það verði ekki,.
enda staðreynd,, að það geta ,
engir bændur búi'ð við búfé.
nema með því að afla megin-.-
hluta fóðursins sjálfir. Það er ■
undirstaðan undir íslenzkum
búskap. Það vita bændur mæta
vel, ekki sízt þeir, sem þurft.
hafa að kaupa heyköggla og er- ■■
lent fóður fyrir stórfé. En með -
því hefur bændum tekizt að
fleyta sér yfir undanfarandi
harðindatímabil á þann veg,.
að hvergi hefur orðið fellir,,
eins og á mörgum fyrri harð-.
indaskeiðum. Bændur eru marg.
ir skuldugir vegna fóðurkaup-
anna, en þeir hafa ekki misst
afurðirnar af bústofni sínum,.
þótt það hafi verið keypt dýru ,
verði og þeir hafa haldið bú-
stofni sínum að stærstum hluta.?
Þetta má þakka bæði aukinni
búfræðilegri þekkingu og víð-
tæku félagsmálastarfi, og að-.
stoð hins opinbera.
Nú er Jítil eftirspurn eftir
heyi?
Já, satt er það, en bændur
ættu ekki.að hafa áhyggjur af
því, þótt þeir eigi nokkur um-
framhey, margir hverjir. Bænd-
ur og aðrir, sem framleitt hafa
söluhey á undanförnum árum,
eru hinir þörfustu, og hafa
bjargað miklu. En nú er rnark-"
aður naumur og ekki fyrir
nema lítið brot af því, sem í
bo'ði er. En þá kemur hið alda-’
gamla vandamál, sem oft er
rætt, en það eru fóðurforðabúr-
in. Ég held að það sé erfitt a'ð,
framkvæma hugmyndir um
þessi heyfor'ðabúr, á annan hátt
en þann, a'ð bændurnir sjálfir
hafi hver um sig heyforðabúr
frá góðu árunum, til a'ð mæta
þeim lélegri. Menn vilja að vísu
fá peninga fyrir umframheyin
strax, en það er ekki mögulegt
eins og er. En ef bændur stefna
að því að eiga sjálfir heyforða-
búr, eins og allir beztu bændur
hafa* gert og þeir bændur hafa
ævinlega búið bezt og orðið
efnaðastir, fá þeir að vísu ekki
peninga eða vexti fyrir þessa
framleiðslu, og auk þess rýrna
heyin við geymslu. En þess er
þá líka að geta, að peningar
rýrna meira en heyin, eða svo
hefur það verið á undanförnum
árum. Bændur þurfa að stefna
að því, að eiga heyhlöður fyrir
allt sitt hey í beztu árunum.
Þar geymist það vel og það
gengur fljótt á þær fyrningar
þegar verr árar. Hlöðurnar
þurfa að taka svo sem 50%
meira eh bóndinn þarf fyrir
hey sitt í meðalári. Það hafa
fáir eða engir skaðazt á því að
eiga fyrningar. Og sumir hafa
skaðazt á því að stækka bú sín
í stökkum í góðu ári. Það er
fyrsta skilyrði til farsæls bú-
skapar, að eiga alltaf nægilegt
af vel geymdu og góðu fóðri.
- Ilefur hrossum fækka'ð veru-
lega hér á landi síðustu ár?
Þeim hefur aðeins fækkað en
ekki mikið. Þær breytingar eru
verulegar, að hrossaeignin hef-
ur færzt meira á hendur þétt-
býlismanna en áður. Hrossin
virðast eiga mikla framtíð og
ég vona, að hrossabúskapurinn
breytis.t á þann veg, að þar
verði um algeran ræktunarbú-
skap að ræða. Ég hef engan sér-
stakan áhuga á hrossakjötsfram
leiðslu. Framtíðin á að fela í
sér framleiðslu reiðhesta, reglu-
legra gæðinga, sem víða um
lönd er góður markaður fyrir.
Það felst mikil .verðmætasköp-
un í því að temja hesta, en enn-
þá fæst ekki nægilega hátt ver'ð
fyrir reiðhestana. En víst er um
það, að hrossaútflutningurinn
hefur ekki verið verðbættur
-enn sem komið er, og ég hygg
að bændur telji þá framleiðslu
ekki síður svara kostnaði en
hver önnur framleiðsla búanna.
Það er alltaf verið að flytja út
hrossahópa, bæði til Þýzka-
lands, Sviss, Hollands og Norð-
urlandanna,
Viltu segja eitthvað um vél-
væðinguna?
Vélvæðingin hefur verið ákaf
lega ör og vera má, að hún hafi
verið það um of. Bændur eru
nýjungagjarnir og lausir við
íhaldssemi á. sviði vélvæðingar-
innar. Vélvæðingin á verulegan
þátt í aukinni framleiðslu og
framförum í sveitum. En hver
Og einn ijóndi verður að hugsa
bæði' frá eigin sjónarmiði og
frá. þjóðhagslegu sjónarmiði, er
hann vélvæðir bú sitt. Því að-
eins eiga vélar rétt á sér, að
framleiðsla búanna verði hag-
kvapmarii ekki aðeins til þess
a'ð frainleiða meira því að þa'ð
er ekki markmið í sjálfu sér,
h«ldur hitt, að bóndinn eigi
. stærri hlut eftir þegar upp er
gert og framleiðsluverðið hækki
ekki. Ég get sem daemi tekið
heybindiyélina, sem er að breið
ast út. Ég get ekki séð a'ð þessar
vélar þjóni eins gagnlegum til-
gangi^ og vera .ætti, nema þegar
um sölu heys og langa flutninga
er að ræða. Margir telja óspart
fram .kosti þessara véla. Þessar
vélar eru nokkuð dýrar í inn-
kaupi og í viðhaldi. Bindigarnið
er dýrt, sag'ði bóndi á Suður-
landi nýlega við mig. Hann
sagðjst ekki yilja borga 45 þús.
krónur fyrir bindigarn utan um
hey sitt. Þessi bóndi hefur mikil
tún. Svo framarlega að heyið,
sem vélbundið er, sé ekki fram-
úrskarandi vel þurrt, skemm-
ist það oft í þessum böggum.
Við höfum reynzlu af þessu
undanfarin heykaupaár. Vél-
bundnu baggarnir voru grænir
að utan, en stundum saman-
pressaður mygluklumpur í miðj
unni. Kostirnir eru aftur á móti
þeir, að þægilegt er að gefa vél-
bundna heyið og sérstaklega
þægilegt er það þegar gefa þarf
heyið út.
Félagseign tækja hefur víða
gefizt mjög vel og vil ég koma
þeirri hugmynd á framfæri,
hvort bændur sæju ekki ástæðu
til þess að eiga vara-dráttarvél
tiltæka þegar einhver bóndinn
stendur uppi me'ð bilaða vél og
á e. t. v. mikil hey úti en vara-
hlutir ekki við hendina, stund-
um ekki til í landinu. Umboðin
eru ekki nægilega varahluta-
birg.
Framleiðni landbúnaðarins?
Já, oft er talað um hagræð-
ingu og framleiðni á síðustu
tímum. Ég held að bændur
þurfi ekki að bera kinnroða
fyrir sínum hlut í því efni, því
að, framleiðni í landbúna'ði hef-
ur aukizt alveg geysilega mikið
og er hjá mörgum bændum
mjög mikil. Bændur þurfa að
líta á búskap sinn frá hagfræði-
legu sjónarmi'ði en þó ekki að-
eins á þann hátt að framleiða
sem mest og bezt og ódýrast,
þótt það sé út af fyrir sig mark-
mið búskapar að verulegu leyti.
Þeir mega ekki verða vinnu-
þrælar eða binda sig svo við
vinnu, að líta ekki upp úr
henni. Við búskap eru hvers-
konar vinnuvísindi nauðsynleg.
En það eru a'ðeins þeir bændur,
sem eru lifandi í starfi sínu,
sem búa vel. Bændur verða að
hafa sinn hvíldartíma og þeir
verða einnig að gefa sér tíma til
að taka þátt í félagsstörfum og
menningarmálum. Sveitamenn-
ingin verður að haldast og að
bændur leggi fram verulegan
skerf til þjóðlegrar menningar,
eins og þeir hafa alltaf gert.
Okkar menning er og var
bændamenning og hún þarf að
halda áfram að vera það, ríflega
að sínum hluta, þótt við getum
ekki vænst þess, að bændur
einir eigi að leggja til skáldin
og listamennina, eins og löng-
um hefur verið. Hlutverk bónd
ans er ekki eingöngu matvæla-
framleiðsla fyrir þéttbýlisfólk
og sjálfa sig, þótt svo eigi að
vera í stórum dráttum. Þeir
verða að rækja sinn menningar-
þátt í þjóðfélaginu, ásamt því
að sjá sjálfum sér og sínum fjár
hagslega borgið, þeir verða líka
að varðveita land sitt og á
tvennan hátt. Þeir þurfa að
varðveita eignarétt bændastétt-
arinnar á ábýlisjörðunum og
helzt óskiptum, selja ekki utan
úr jör'ðum sínum smáskika und-
ir sumarbústaði. Það gera að-
eins skammsýnir menn, því að
vi'ð þetta minnka jarðirnar að
verðmæti og gildi. Bændur
geta hins vegar leigt lyngmó,
kjarrblett eða grænan bolla við
góðan læk fyrir ákveðið gjald
á ári, til langs tíma og sé þá
leigan miðuð við ver'ð á mjólk-
urlítra, kjötkílói eða einhverja
vísitölu. Þetta getur verið báð-
um aðilum hagkvæmt. í öðru
lagi þurfa bændur að varðveita
land sitt á þann hátt, að láta
ekki gróðurlendið minnka eða
rýrna. Ofbeit er hættuleg og
víða veldur hún uppblæstri.
Þar þarf að snúa vörn í sókn
og græða landið á ný. Þrekvirki
hefur verið gert í því að þurrka
mýrlendi og gera það verðmætt
land. En þó vil ég *að griðland
verði fyrir þær fuglategnudir,
sem lifa á votlendi. Smára eða
aðrar belgjurtir þurfum við að
flytja á uppblásið land og láta
þær sjálfar safna köfnunarefni
úr loftinu til að bæta jarðveg-
inn fyrir aðrar plöntur. Jörðin
líður af fosfathungri, þ. e. hið
þurra og viðkvæma land og
þarf að miða uppgræðsluna við
þá staðreynd.
Tilraunastarfsemin?
Tilraunastarfsemin í landbún
aðinum þarf að aukazt á fjöl-
mörgum sviðum, einnig leið-
beiningaþjónustan. Maður heyr
ir því stundum fleygt, að til-
raunastarfsemi í landbúnaði sé
ekki mikils virði. En víst er, að
niðurstöður tilrauna hafa verið
grundvöllur allra framfara í
jarðrækt og búfjárrækt lands-
manna. Tilraunamennirnir hafa
ekki byggt stórbýlin hér á
landi, en tilraunirnar hafa verið
leiðarvísir duglegra bænda til
framkvæmda og framfara. En
það verður jafnframt að játa,
að við stöndum berskjaldaðir
gagnvart ýmsum vandamálum,
sem úrlausnar krefjast og þurf-
um að verja miklu meira fé í
hagnýta tilraunastarfsemi og
leiðbeiningar.
- Sfefnt að 20%
(Framhald af blaðsíðu 1)
landhelgismálið hæst. Nýlega
var skipuð nefnd úr öllum
stjórnmálaflokkum til þess að
vinna að framgangi landhelgis-
málsins. Áður en utanríkisráð-
herra okkar, Einar Ágústsson,
fór til Bretlands og Vestur-
Þýzkalands til að kynna sjónar-
mið íslendinga og hagsmuni,
var þessi nefnd höfð með í ráð-
um. Utanríkisráðherra gerði þá
grein fyrir því, hvernig hann
hugsaði sér að vinna að því
máli og samþykkti nefndin þá
fyrirætlun ráðherrans. Af þeim
fréttum, sem borizt hafa er það
ánægjulegt, að förin mun hafa
tekizt vel og þó öllum sé ljóst
að meira þarf til, til að vinna
málinu fylgi, er ég sannfærður
um, að ráðherranum hefur tek-
izt að skapa það andrúmsloft,
sem nauðsynlegt er fyrir frek-
ari undirbúning málsins og
framkvæmd.
Sumum finnst mikið fyrir
tekið hjá ríkisstjórninni og að
liún ætli sér ekki af?
Mörg verkefni er áformað að
leysa, sum mjög veigamikil fyr-
ir framtíð þjóðarinnar. Við það
er miðað, að þau verði leyst á
kjörtímabilinu eða á fjórum
árum. Gildi verkefnanna eru
mjög mismunandi og verður að
meta það hverju sinni frá hags-
munum þjóðarheildarinnar,
hver þeirra eigi að ganga fyrir.
Hraði framkvæmda mi'ðast auð-
vitað við getu þjóðarinnar
hverju sinni.
Kjaramálin, ráðherra?
Um þau vil ég endurtaka það,
sem ég áður hef sagt, að efna-
hagsstefna stjórnarinnar bygg-
ist á því, að takast megi að ná
skynsamlegri stefnu í kjaramál
um. Þá á ég við það, að þeir
kjarasamningar, sem gerðir
verða í haust, verði bæði gerðir
til nokkuð langs tíma og með
hli'ðsjón af markaðri stjórnar-
stefnu. Sú stefna er m. a. við
það miðuð, að 20% kjarabætur
náist í áföngum á tveimur
næstu árum. Þá verður að
Víða er vel búið, búnaðar-
málastjóri?
Já, og þegar komið er til Eyja
fjarðar þarf ekki langt að fara
til að benda á blómlegan bú-
skap. Búskapurinn á Svalbarðs-
strönd vekur aðdáun útlendra
og innlendra manna, þó ég hefði
nú viljað, að meira væri rúið af
ánum þar. Vestan í Vaðlaheið-
inni eru rígvænir dilkar og þó
mikill fjöldi fjár. Erlendir bú-
vísindamenn, sem hér hafa ferð-
azt, hafa látið þau orð falla, að
þessi sveit sé einhver búsældar-
legasti bletturinn á fslandi.
Þegar komið er í sveitina sjálfa
er allt ræktað milli skurða, frá
sjó og upp að klettum. Og þar
er fullt af fallegum kúm og
kartöflugarðarnir eru miklir og
vel sprottnir löngum. Býlin eru
falleg og vel upp byggð. Ég man
það þegar ég var hér í skóla
fyrir fjörutíu árum, hvernig
Svalbarðsströnd þá leit út. Þá
skar hún sig ekki úr um fram-
farir eða menningarlegan bú-
skap. Þarna er viss kraftur hjá
fólkinu, samheldni og keppni í
framförum og framsækni, sem
hefur verið einskonar driffjöð-
ur sveitarinnar, og svo má segja
um fleiri sveitir, þótt ég taki
aðeins þetta eina dæmi. En
Svalbarðsströnd sýnir, að það
er hægt að búa vel á íslandi.
Og að lokuni, dr. Halldór
Pálsson?
1 svipinn er mjög bjart yfir
búskapnum, því að auk binna
miklu heyja er útlit fyrir að viS
framleiðum í ár meiri kartöflur
en oftast áður og næg'ilegt ti;
eigin nota í landinu, jafnve1
meira. Um framtíðina er auf
vitað engu hægt að spá, því ac'
verið getur að strax næsta ve;
ur verði hörkuvetur, um þac
veit enginn og ekki er eg mef
neinar hrakspár í því efni,
Bændur hafa minni tekjur ei
aðrar vinnandi stéttir, en hin;
vegar er landbúnaðurim.
skemmtilegasta atvinnugremir
sem völ er á. Og eiginlega eigt.
ekki aðrir að stunda búsxap ei
þeir, sem hafa anægju at bú
skapnum og geta sótt lífsnan
ingju sína og þroska til pess;
atvinnuvegar, auk þess að sj;.
sér og sínum farborða. Afsetn ■
ingarvandamálið er ætið íyri:
hendi, einkum í góðæri og þac
hráefni, sem við notum ekk,
innanlands, þarf að selja a er-
lendum markaði. Og ef vif'
reiknum me'ð, að byrja'ð se góð*
æristímabil, vex auðvitaö' s;
hlutur, sem þarf að flytja út af
hráefni. Fyrir mánuði siban va.
ég staddur í Bretlandi, og þa
höfðu mjólkurvörur nyleg;.
hækkað um 25%. Smjörfjal.
Efnahagsbandalagsins var gifu
legt fyrir einu ári en er nt
horfið, og nú eru EyiirÖinga. ’
að framleiða snijör fyrir bviss ■
lendinga, segir dr. Halldór Páls ■
son að lokum, og þakkar blaðií.
viðtalið. E. JL.
kjarabótum
sjálfsögðu ekki miðað við kaup-
gjaldið eitt heldur raunveruleg-
ar kjarabætur. Sýnt er einnig,
að þeir kjarasamningar, sem nú
verða gerðir, verða meira virtir
en áður af stjórnvöldum. Þegar
er fram komið, að vísitalan hef-
ur lækkað en kaupið hækka'ð
vegna aðgerða stjórnvalda í
sumar, og hafa staðreyndirnar
í þessu efni ekki látið á sér
standa.
Hefur f jármálaráðherra kynnt
sér mál Slippstöðvarinnar á Ak-
ureyri?
Ríkisstjórninni hefur verið
kynnt það mál og fjármálaráðu
neytið hefur gert nokkru víð-
tækari athugun á því en
lagt var fyrir ríkisstjórnina.
Skýrslugerð af hálfu þeirra,
sem að unnu, er lokið og er
verið að athuga þær niðurstöð-
ur. Um þær aðgerðir, eða þá
stefnu, sem ríkisstjórnin kann
að taka í málinu, mun ég ekk-
ert segja að sinni, enda hefur
málið ekki fengið þá meðferð,
sem þarf til að svara því. Mér
er það hins vegar ljóst, og svo
mun vera um aðra ráðherra, að
þetta mál skipti Akureyri miklu
og að sjálfsögðu mun það haft
í huga þegar að úrbót ér unn-
ið. Mér sýnist, að nokkuð víð-
tækrar aðgerða sé þörf í Slipp
stöðinni. Annað stórmál lier ;
Akureyri er stækkun sjukr;
hússins. Til mín komu fyri *
skömmu stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri Fjórðungs*
sjúkrahússins og lögðu það ma
fyrir mig. Þetta verður tekið ti.
velviljaðrar athugunar vi't’
næstu fjárlagaafgreiðslu, er.
hins vegar eru í því mörg atriði,
sem þarf að athuga betur ei.
mér hefur unnizt tími tii. É;.:
geri ráð fyrir því, að á pess;
nauðsynlegu framkvæmd hér ;
Akureyri verði af ríkisstjornar •
innar hálfu litið með íuilur:*.
skilningi og velvilja.
Gagnrýnt hefur verið, að raf •
orkuverð til húskyndingar hati.
ekki verið lækkað cins og olíaii
til húskyndingar?
Já, þessi gagnrýni er sanr •
gjörn, en á sínar orsakir
Niðurfelling á söluskatti af olíú.
til húsahitunar og' raforku tií
sömu nota áttu að fylgjast aö',
enda hugmyndin að svo yrði,
En þá var upplýst, og kom mer
það á óvart, að á sumum stöð-
um er ekki unnt að greina á
milli þeirrar raforku, sem tii
húsahitunar er notuð og anr ■
arri raforkunotkun, eins og inr.
heimtunni er háttað. Var þvi
ekki unnt, að svo komnu máli,
að láta þetta fylgjast ao, svo
sem vera átti. Eru mál þessi í
nánari athugun.
- HEILSUHÆLI
(Framhald af blaðsíðu !)•
til Suðurlands, þar sem allar
slíkar stofnanir eru þegar yfir-
hlaðnar langt fram í tímann og
að auki hefir það ferðaköstháð
og fyrirhöfn í för með sér.
Kvenfélögin í nágrannahéruð
unum hafa þegar heitið lið-
veizlu sinni og tekið rnjög. vel
í þetta mál. Það er trú okkar,
að þið, eins og ætíð er velferða-
mál eru á fer'ð, bregðist vel við,
því munið að þetta er hags-
munamál okkar allra og enginn
veit fyrirfram hvenær hann
þarf á heilsuaðstoð að halda.
Með fyrirfram þökk fyrir lið-
veizluna.
Stjórn Náttúrulækninga-
félags Akureyrar.
Hefur þú haft tíma iil þes;5
nú, að kynna þér hin ymsu mái •
efni bæjarins?
í morgun skoðaði ég sjúkra-
húsið og núna bíður bæjarstjör *
inn, Bjarni Einarsson, eftir mer
en hann ætlar að kynna fyrir
mér ýmsa þætti bæjarmáianna.
og sýna mér nokkra staöi. Ég
hef nokkuð oft komið til Aku"-
eyrar og hef þá jafnan Kapp •
kostað að kynna mér einhverja
þætti athafna og menningai ■
mála. Það myndi ég gera nú.
með lengri dvöl ef til þess væri.
tími, og njóta um leið hins fagrn
og menningarlega bæjar og na •
grannabyggða hans við Eyjr. ■
fjörð.
Dagur þakkar svör rá'ðherv-
ans. E. D. j
*■
*