Dagur - 13.10.1971, Blaðsíða 1
Dagur
LIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. okt. 1971. — 52. tólublaii.
Fataverksmiðjan Hekia stækkuð
VIÐ Fataverksmiðjuna Heklu
á Akureyri er verið að byggja
625 ferm. hús úr strengja-
steypu. En þar vex starfsemin
ár frá ári og hin nýja viðbygg-
ing áað mæta þeim vexti, eink-
um framleiðslu kvenkápa úr
íslenzkum skinnum. En und-
anfarna mánuði hefur verið
selt dálítið af þeim vörum til
Þýzkalands og ennfremur til
Austurríkis og þær líkað vel.
Er hér e. t. v. um að ræða byrj-
un á veigamikilli útflutnings-
grein mjög verðmikilla iðn-
vara, þótt of snemmt sé að spá
í framtíðina í þessu efni.
Um 220 manns er á vinnuskrá
hjá Iieklu, en mjög margt af
starfskonum vinnur aðeins hálf-
an daginn og vantar þar starfs-
fólk.
Húsbyggingar á Akureyri
LAUSLEGT yfirlit yfir bygg-
ingaframkvæmdir á Akureyri
1971 (til 10. okt).
ÍBÚÐARHÚS
Hafin er bygging 44 íbúðar-
húsa með 130 íbúðum, það sem
af er árinu. Alls eru í byggingu
99 íbúðarhús með 263 íbúðum,
og má ætla, að þar af verði 23
íbúðarhús með 85 íbúðum skráð
fullgerð um næstu áramót.
ÝMSAR BYGGINGAR
Hafin er bygging nokkurra
stærri bygginga svo sem barna-
skóla í Glerárhverfi, 6 hæða
verzlunarhúss K. E. A. við
Hafnarstræti 95, afgreiðsluhúss
fyrir Skeljung h.f. við Hjalt-
eyrargötu 8 og skipasmíðastöðv-
ar Narfa h.f. við Óseyri 16.
í byggingu frá fyrri árum eru
stækkun flugstöðvar á Akur-
eyrarflugvelli og afgreiðslu- og
verkstæðishús Norðurflugs h.f.
á sama stað.
Vegagerð ríkisins er að ljúka
byggingu 1. áfanga verkstæðis-
og skrifstofuhúss við Miðshúsa-
veg og Olíuverzlun íslands hef-
ur tekið ínotkun hús sitt við
Tryggvabraut.
A, auki eru í smíðum ýmsar
byggingar iðnfyrirtækja.
(Frétt frá byggingafulltrúa).
Starfsfólk prentsmiðjunnar.
(Ljósm. ED).
Nýir eigendur Prentsmiðju Björns Jónssonar á AK
Vaxandi verkefni sýna þörfina og hvefja fil dáða
TVEIR prentarar, þeir Svavar
Ottesen og Haraldur Ásgeirsson
hafa undanfárin ár haft á leigu
Prentsmiðju Björns Jónssonar
hf. En nú hafa þeir keypt prent-
smiðjuna og eru endanleg kaup
Byggingaframkvæmdir á vegum K.E.A
EFTIR að gamla Hótel Goða-
foss við Hafnarstræti 95 og
nokkur gömul vörugeymsluhús
á baklóðum Hafnarstrætis 91 og
93 voru rifin á s.l. vori hófst
bygging nýs verzlunar- og skrif
stofuhúss á lóðinni Hafnarstr.
95, en á fyrstu hæð þess mun
Stjörnu-Apótek síðan flytja.
Er nú unnið við 2. hæð húss-
ins og ætlunin að ljúka steypu-
vinnu fyrir næstu mánaðarmót,
ef veðurfar leyfir. Mun unnið
að einangrun, pípu- og raflögn-
um, múrhúðun og slíku í vet-
ur. Húsið verður 6 hæðir og
verða næstu 4 hæðir væntan-
lega steyptar upp næsta sumar
og gengið frá götuhlið.
Efnaverksmiðjan Sjöfn, sem
er sameign KEA og SÍS, keypti
húseign Valbjarkar við Glerár-
götu 26 s.l. vor og mun flytja
þangað málningarframleiðslu
sína, sem stöðugt hefir farið
vaxandi undanfarinár. Bygg-
ingu þessa húss hafði ekki ver-
ið lokið en vegna yfirvofandi
skemmda á þaki þess varð þeg-
ar í stað að hefja byggingu
þeirra tveggja hæða, sem eftir
voru. Er nú loft komið á þá
fyrri og ætlunin að halda áfram
með síðari hæðina og síðan þak,
ef veður leyfir.
Ný kyndistöð var byggð á
þessu ári við Kjötiðnaðarstöð
KEA á Oddeyrartanga. Er það
gufuaflstöð með nýjum katli,
sem sér Kjötiðnaðarstöðinni,
sláturhúsunum, garnastöðinni,
beinaverksmiðjunni og OIíusölu
dcildinni fyrir orku til allrar
starfsemi þessara fyrirtækja. —■
Sú kyndistöð, sem áður annað-
ist þetta að mestu, var slitin
orðin og gömul, auk þess sem
hagkvæmara þótti að gera eina
gufustöð fyrir þessi fyrirtæki.
Malbikað var á þessu ári
sunnan og norðan Kjötiðnaðar-
stöðvar, en áður hafði verið
steypt og malbikað að þeim
húsum KEA á Oddeyrartanga
þar sem fengist er við matvæla-
iðnað. Þykir það stuðla mjög að
auknum þrifnaði.
Sauðfjárslátrun hófst á Akur-
eyri 17. september s.l. og mun
að öllum líkindum ljúka þann
20. október. Þann 7. okt. s.l.
hafði verið slátrað 18.060 kind-
um og nam kjötþunginn 276.542
kg, að meðalvigt 15,3 kg.
3
hui
í sláturhúsi KEA á Akureyri
er áætlað að slátrað verði um
30 þús. kindum og í sláturhús-
um félagsins á Dalvík og Greni-
vík samtals um 15 þúsund kind-
um. Haustið 1970 var alls slátr-
að í sláturhúsum KEA rösklega
51 þúsund kindum. □
nýgerð og frágengin. Vinna þar
nú ellefu manns við ýmiskonar
prentstörf, og hafa þeir bætt við
sig bókbandsvélum, svo að unnt
er að binda þar jafnóðum allar
bækur, sem prentaðar eru í
prentsmiðjunni.
Prentsmiðja Björns Jónsson-
ar h.f. er eitt elzta iðnfyrirtæki
landsins, stofnuð 14. apríl 1852,
en á ýmsu hefur oltið um rekst-
ur hennar hin síðari árin, en
hún er til húsa í gömlu Skjald-
borg. Og undir Skjaldborgar-
nafninu hafa tvímenningarnir
gefið út allmargar bækur og þar
er nú verið að prenta bækur,
sem þeir gefa út í ár, en rneð
því verða bækur þeirra orðnar
fjórtán að tölu og af þeim eru
nokkrar eftir Norðlendinga.
Þegar fréttamaður Dags leit
þar inn fyrir helgina, var þar
mikið að gera og næg verk-
efni framundan, að því er virt-
ist. Mun í athugun að auka enn
verulega vélakostinn til prent-
unar blaða og bóka. Prent-
'smiðja Björns Jónssonar h.f.
verður áfram rekin undir sínu
gamla nafni, eins og segir í aug-
lýsingu á öðrum stað í blaðinu.
FORSETI ÞINGSINS
Stórgjöi ISI Landverndar
Pilluáiið talið hóllegt
Hrísey 12. okt. Hér eru skörp
él af norðvestri. Allir bátar eru
í höfn og fer vel um þá síðan
höfnin var lagfærð, og urðu
engar skemmdir svo ég viti af
völdum norðanveðursins. Snjó
festi lítið, enda hvasst.
Ég hef fengið þær vinsamlegu
ábendingar hér í eynni, að
„pilluát“ kvenna sé hér ekki
mjög óhóflegt, eins og ég lét á
mér skilja í síðustu frétt frá
Hrísey. Þessu til sönnunar séu
átta barnsfæðingar orðnar í
eynni eða í vonum á þessu ári,
allt át bezt íhófi. Mun jietta
rétt vera.
Hríseyjarferjan er nú aftur
komin í lag og eru fastar ferðir
til lands tvisvar í viku í vetur,
en eru þrjár í viku hverri á
sumrin. — Nú bíða menn eftir
betra veðri og afla. S. F.
AF TILEFNI 25 ára afmælis 01-
íufélagsins h.f. ákvað aðalfund-
ur þess, eftir tillögu stjórnar, að
gefa Landgræðslu- og náttúru-
verndarsamtökum íslands 500.
þús. krónur.
Stjórnarformaður Olíufélags-
ins h.f., Hjörtur Hjartar, og for-
stjóri þess, Vilhjálmur Jónsson,
boðuðu formann og fram-
kvæmdastjóra Landverndar á
fund sinn s.l. fimmtudag og til-
kynntu þeim þessa ákvörðun.
Um leið og Hjörtur Hjartar af-
henti gjöfina, gat hann bess, að
þegar það var rætt hvernig af-
mælisins skyldi minnzt, hefði
þessi hugmynd fljótlega komið
„Olíufélagið verzlar með vöru,
sem hefur mikil áhrif á um-
hverfið, ekki sízt sem aflgjafi
bifreiða og' annarra gagnlegra
tækja, sem þó þarf að sýna var-
úð við notkun á. Það þótti jjví
vel til fallið að leggja nokkuð
af mörkum til þeirra samtaka,
sem beita sér fyrir góðri með-
ferð gróðurs og annarar nátt-
úru, ásamt vörnum gegn hvers
konar mengun,“ sagði Hjörtur
Hjartar meðal annars, er hann
afhenti gjöfina.
Hákon Guðmundsson, yfir-
borgardómari, formaður Land-
verndar þakkaði gjöfina fyrir
hönd samtakanna og kvaðzt
vona, að þau mættu sýna þann
styrk í starfi, að gefendum
þætti fénu vel varið.
Eysteinn Jónsson.
f gær var Eysteinn Jónsson
kjörinn forseti Sameinaðs þings
Yegurinn opinn ti! Reykjavíkur
VEGAGERÐIN sagði blaðinu
eftirfarandi í gær: Flestir vegir
eru færir ennþá. Þó lokaðist
Múlavegur á sunnudag, var
opnaður á mánudag og mun
hanga opinn. Vaðlaheiðarveg
átti að opna á mánudag, en án
árangurs vegna hriðar og skaf-
rennings. Vegur til Húsavíkur
um Dalsmynni er fær, en færið
hefur þó versnað í dag. Dalvík-
urvegur er að verða jumgfær
fólksþílum.
Öxnadalsheiði er nær snjó-
laus og gott færi til Reykja-
víkur. Lágheiðar- og Riglu-
fjarðarvegir urðu ófærir.
Lögreglan tjáði blaðinu: Öku-
menn fóru yfirleitt mjög var-
lega er snjóa tók og umferðin
var hæg en örugg. Á sunnudag-
inn ók þó einn á ljósastaur og
tveir árekstrar urðu á mánu-
daginn en enginn í gær. Enginn
slasaðist. Um helgina var brot-
ist inn í verzl. Stefáns Hall-
grímssonar við Glerárgötu og
sambyggðu útvarps- og segul-
bandstæki stolið. □
Og allir komu þeir....
Dalvík 12. okt. Allir vegir eru
vel færir nema Múlavegur. Og
nú vildi svo til, að það snjóaði
í frosti, svo að beitarjörð er
hvarvetna góð. Eftirleitarmenn
lentu í miklu illviðri um helg-
ina, töfðust en komu allir heilir
á húfi.
Búið er að gera samning um
nýtt togskip (sjá á öðrum stað)
og hér mun senn bætast við
flotann nýr bátur jieirra Gunn-
laugs Kárasonar og sona á
Litla-Árskógssandi, sem verður
gerður út á Dalvík, J. H.