Dagur


Dagur - 13.10.1971, Qupperneq 1

Dagur - 13.10.1971, Qupperneq 1
Dagur LIV. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. okt. 1971. — 52. tólublaii. Fataverksmiðjan Hekia stækkuð VIÐ Fataverksmiðjuna Heklu á Akureyri er verið að byggja 625 ferm. hús úr strengja- steypu. En þar vex starfsemin ár frá ári og hin nýja viðbygg- ing áað mæta þeim vexti, eink- um framleiðslu kvenkápa úr íslenzkum skinnum. En und- anfarna mánuði hefur verið selt dálítið af þeim vörum til Þýzkalands og ennfremur til Austurríkis og þær líkað vel. Er hér e. t. v. um að ræða byrj- un á veigamikilli útflutnings- grein mjög verðmikilla iðn- vara, þótt of snemmt sé að spá í framtíðina í þessu efni. Um 220 manns er á vinnuskrá hjá Iieklu, en mjög margt af starfskonum vinnur aðeins hálf- an daginn og vantar þar starfs- fólk. Húsbyggingar á Akureyri LAUSLEGT yfirlit yfir bygg- ingaframkvæmdir á Akureyri 1971 (til 10. okt). ÍBÚÐARHÚS Hafin er bygging 44 íbúðar- húsa með 130 íbúðum, það sem af er árinu. Alls eru í byggingu 99 íbúðarhús með 263 íbúðum, og má ætla, að þar af verði 23 íbúðarhús með 85 íbúðum skráð fullgerð um næstu áramót. ÝMSAR BYGGINGAR Hafin er bygging nokkurra stærri bygginga svo sem barna- skóla í Glerárhverfi, 6 hæða verzlunarhúss K. E. A. við Hafnarstræti 95, afgreiðsluhúss fyrir Skeljung h.f. við Hjalt- eyrargötu 8 og skipasmíðastöðv- ar Narfa h.f. við Óseyri 16. í byggingu frá fyrri árum eru stækkun flugstöðvar á Akur- eyrarflugvelli og afgreiðslu- og verkstæðishús Norðurflugs h.f. á sama stað. Vegagerð ríkisins er að ljúka byggingu 1. áfanga verkstæðis- og skrifstofuhúss við Miðshúsa- veg og Olíuverzlun íslands hef- ur tekið ínotkun hús sitt við Tryggvabraut. A, auki eru í smíðum ýmsar byggingar iðnfyrirtækja. (Frétt frá byggingafulltrúa). Starfsfólk prentsmiðjunnar. (Ljósm. ED). Nýir eigendur Prentsmiðju Björns Jónssonar á AK Vaxandi verkefni sýna þörfina og hvefja fil dáða TVEIR prentarar, þeir Svavar Ottesen og Haraldur Ásgeirsson hafa undanfárin ár haft á leigu Prentsmiðju Björns Jónssonar hf. En nú hafa þeir keypt prent- smiðjuna og eru endanleg kaup Byggingaframkvæmdir á vegum K.E.A EFTIR að gamla Hótel Goða- foss við Hafnarstræti 95 og nokkur gömul vörugeymsluhús á baklóðum Hafnarstrætis 91 og 93 voru rifin á s.l. vori hófst bygging nýs verzlunar- og skrif stofuhúss á lóðinni Hafnarstr. 95, en á fyrstu hæð þess mun Stjörnu-Apótek síðan flytja. Er nú unnið við 2. hæð húss- ins og ætlunin að ljúka steypu- vinnu fyrir næstu mánaðarmót, ef veðurfar leyfir. Mun unnið að einangrun, pípu- og raflögn- um, múrhúðun og slíku í vet- ur. Húsið verður 6 hæðir og verða næstu 4 hæðir væntan- lega steyptar upp næsta sumar og gengið frá götuhlið. Efnaverksmiðjan Sjöfn, sem er sameign KEA og SÍS, keypti húseign Valbjarkar við Glerár- götu 26 s.l. vor og mun flytja þangað málningarframleiðslu sína, sem stöðugt hefir farið vaxandi undanfarinár. Bygg- ingu þessa húss hafði ekki ver- ið lokið en vegna yfirvofandi skemmda á þaki þess varð þeg- ar í stað að hefja byggingu þeirra tveggja hæða, sem eftir voru. Er nú loft komið á þá fyrri og ætlunin að halda áfram með síðari hæðina og síðan þak, ef veður leyfir. Ný kyndistöð var byggð á þessu ári við Kjötiðnaðarstöð KEA á Oddeyrartanga. Er það gufuaflstöð með nýjum katli, sem sér Kjötiðnaðarstöðinni, sláturhúsunum, garnastöðinni, beinaverksmiðjunni og OIíusölu dcildinni fyrir orku til allrar starfsemi þessara fyrirtækja. —■ Sú kyndistöð, sem áður annað- ist þetta að mestu, var slitin orðin og gömul, auk þess sem hagkvæmara þótti að gera eina gufustöð fyrir þessi fyrirtæki. Malbikað var á þessu ári sunnan og norðan Kjötiðnaðar- stöðvar, en áður hafði verið steypt og malbikað að þeim húsum KEA á Oddeyrartanga þar sem fengist er við matvæla- iðnað. Þykir það stuðla mjög að auknum þrifnaði. Sauðfjárslátrun hófst á Akur- eyri 17. september s.l. og mun að öllum líkindum ljúka þann 20. október. Þann 7. okt. s.l. hafði verið slátrað 18.060 kind- um og nam kjötþunginn 276.542 kg, að meðalvigt 15,3 kg. 3 hui í sláturhúsi KEA á Akureyri er áætlað að slátrað verði um 30 þús. kindum og í sláturhús- um félagsins á Dalvík og Greni- vík samtals um 15 þúsund kind- um. Haustið 1970 var alls slátr- að í sláturhúsum KEA rösklega 51 þúsund kindum. □ nýgerð og frágengin. Vinna þar nú ellefu manns við ýmiskonar prentstörf, og hafa þeir bætt við sig bókbandsvélum, svo að unnt er að binda þar jafnóðum allar bækur, sem prentaðar eru í prentsmiðjunni. Prentsmiðja Björns Jónsson- ar h.f. er eitt elzta iðnfyrirtæki landsins, stofnuð 14. apríl 1852, en á ýmsu hefur oltið um rekst- ur hennar hin síðari árin, en hún er til húsa í gömlu Skjald- borg. Og undir Skjaldborgar- nafninu hafa tvímenningarnir gefið út allmargar bækur og þar er nú verið að prenta bækur, sem þeir gefa út í ár, en rneð því verða bækur þeirra orðnar fjórtán að tölu og af þeim eru nokkrar eftir Norðlendinga. Þegar fréttamaður Dags leit þar inn fyrir helgina, var þar mikið að gera og næg verk- efni framundan, að því er virt- ist. Mun í athugun að auka enn verulega vélakostinn til prent- unar blaða og bóka. Prent- 'smiðja Björns Jónssonar h.f. verður áfram rekin undir sínu gamla nafni, eins og segir í aug- lýsingu á öðrum stað í blaðinu. FORSETI ÞINGSINS Stórgjöi ISI Landverndar Pilluáiið talið hóllegt Hrísey 12. okt. Hér eru skörp él af norðvestri. Allir bátar eru í höfn og fer vel um þá síðan höfnin var lagfærð, og urðu engar skemmdir svo ég viti af völdum norðanveðursins. Snjó festi lítið, enda hvasst. Ég hef fengið þær vinsamlegu ábendingar hér í eynni, að „pilluát“ kvenna sé hér ekki mjög óhóflegt, eins og ég lét á mér skilja í síðustu frétt frá Hrísey. Þessu til sönnunar séu átta barnsfæðingar orðnar í eynni eða í vonum á þessu ári, allt át bezt íhófi. Mun jietta rétt vera. Hríseyjarferjan er nú aftur komin í lag og eru fastar ferðir til lands tvisvar í viku í vetur, en eru þrjár í viku hverri á sumrin. — Nú bíða menn eftir betra veðri og afla. S. F. AF TILEFNI 25 ára afmælis 01- íufélagsins h.f. ákvað aðalfund- ur þess, eftir tillögu stjórnar, að gefa Landgræðslu- og náttúru- verndarsamtökum íslands 500. þús. krónur. Stjórnarformaður Olíufélags- ins h.f., Hjörtur Hjartar, og for- stjóri þess, Vilhjálmur Jónsson, boðuðu formann og fram- kvæmdastjóra Landverndar á fund sinn s.l. fimmtudag og til- kynntu þeim þessa ákvörðun. Um leið og Hjörtur Hjartar af- henti gjöfina, gat hann bess, að þegar það var rætt hvernig af- mælisins skyldi minnzt, hefði þessi hugmynd fljótlega komið „Olíufélagið verzlar með vöru, sem hefur mikil áhrif á um- hverfið, ekki sízt sem aflgjafi bifreiða og' annarra gagnlegra tækja, sem þó þarf að sýna var- úð við notkun á. Það þótti jjví vel til fallið að leggja nokkuð af mörkum til þeirra samtaka, sem beita sér fyrir góðri með- ferð gróðurs og annarar nátt- úru, ásamt vörnum gegn hvers konar mengun,“ sagði Hjörtur Hjartar meðal annars, er hann afhenti gjöfina. Hákon Guðmundsson, yfir- borgardómari, formaður Land- verndar þakkaði gjöfina fyrir hönd samtakanna og kvaðzt vona, að þau mættu sýna þann styrk í starfi, að gefendum þætti fénu vel varið. Eysteinn Jónsson. f gær var Eysteinn Jónsson kjörinn forseti Sameinaðs þings Yegurinn opinn ti! Reykjavíkur VEGAGERÐIN sagði blaðinu eftirfarandi í gær: Flestir vegir eru færir ennþá. Þó lokaðist Múlavegur á sunnudag, var opnaður á mánudag og mun hanga opinn. Vaðlaheiðarveg átti að opna á mánudag, en án árangurs vegna hriðar og skaf- rennings. Vegur til Húsavíkur um Dalsmynni er fær, en færið hefur þó versnað í dag. Dalvík- urvegur er að verða jumgfær fólksþílum. Öxnadalsheiði er nær snjó- laus og gott færi til Reykja- víkur. Lágheiðar- og Riglu- fjarðarvegir urðu ófærir. Lögreglan tjáði blaðinu: Öku- menn fóru yfirleitt mjög var- lega er snjóa tók og umferðin var hæg en örugg. Á sunnudag- inn ók þó einn á ljósastaur og tveir árekstrar urðu á mánu- daginn en enginn í gær. Enginn slasaðist. Um helgina var brot- ist inn í verzl. Stefáns Hall- grímssonar við Glerárgötu og sambyggðu útvarps- og segul- bandstæki stolið. □ Og allir komu þeir.... Dalvík 12. okt. Allir vegir eru vel færir nema Múlavegur. Og nú vildi svo til, að það snjóaði í frosti, svo að beitarjörð er hvarvetna góð. Eftirleitarmenn lentu í miklu illviðri um helg- ina, töfðust en komu allir heilir á húfi. Búið er að gera samning um nýtt togskip (sjá á öðrum stað) og hér mun senn bætast við flotann nýr bátur jieirra Gunn- laugs Kárasonar og sona á Litla-Árskógssandi, sem verður gerður út á Dalvík, J. H.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.