Dagur - 13.10.1971, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Nýtt þing —
ný stjórn
NÝKJÖRIÐ Alþingi kom saman 11.
október. Þingið er nú á annan hátt.
skipað en áður. Tíu þingmenn, eða
sjötti hver þingmaður sitja þar nú í
fyrsta sinn. Átta þingmenn hafa að
vísu setið þar áður sem varamenn,
en voru ekki meðal kjörinna þing-
manna á síðasta kjörtímabili.
Eftir kosningarnar 1967 voru
þingflokkar fjórir, en eru nú fimm.
Og þá er þess einnig að minnast, að
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokkurinn,
sem á síðasta kjörtímabili mynduðu
meirihluta, eru nú í minnihluta, og
að ríkisstjórn sem styðzt við hinn
nýja meirihluta þriggja flokka, er
komin til valda.
Nýja stjórnin hefur setið við völd
í þrjá mánuði. Of snemmt er að
leggja dóm á störf hennar og getu.
En það mun vera glmennt álit í
landinu, að stjórnin liafi farið vel af
stað og að ráðherrar leggji stund á
að hafa sem bezta samvinnu sín í
milli. í landhelgismálinu hefur
stjórninni tekizt að efla einingu inn-
anlands og jafnframt lítur út fyrir,
að ráðherrum og staifsm. þeirra
hafi orðið verulega ágengt í því að
auka skilning erlendis á málstað Is-
lendinga í þessu máli. Og unnið er
að því að auka landhelgisgæzluna
þegar til útfærslu hennar kemur.
Það hefur bersýnilega mælzt vel
fyrir, að stjómin lét hækka trygg-
ingabætur 1. ágúst og leiðrétti vísi-
tölugreiðslur. En hvorttveggju höfn-
uðu stjórnarflokkarnir á síðasta
þingi.
Afnuminn hefur verið söluskatt-
ur á ýmsum nauðsynjum og fiskverð
til sjómanna hækkað. Mun það
nokkuð almenn skoðun, að allt þetta
hafi verið rétt ráðið, jafnvel íhald og
kratar segja, að þetta sé framhalcl
fyrri stjórnarstefnu!
í stefnuskrá stjórnarinnar, sem
birt var við stjórnarmyndunina, er
gefið til kynna, að réttur verði hlut-
ur landsbyggðarinnar og gerð verði
tilraun til að ráða bót á þeirri öfug-
þróun, sem verið hefur í búsetumál-
um þjóðarinnar og ofvexti höfuð-
borgarinnar. í því sambandi er gert
ráð fyrir að ljúka rafvæðingu í sveit-
um á skömmum tíma.
Láta mun nærri, að héraðslæknar
landsins séu 25—30% færri en þeir
eiga að vera samkvæmt lögum. Milli
Eyjafjarðar og Fljótsdalshéraðs eru
nú fimm hémð læknislaus og fleiri
að verða það liér nærlendis. Yrði því
fagnað ef hér yrði ráðin bót á.
Ályktanir frá kj ördæmisþinginu, Laugum
AUK þeirra ályktana kjördæm-
isþings Framsóknarmanna á
Laugum í sumar, er birtar hafa
verið, eru hér nokkrar til viðb.
Skóla og menningarmál. —
Uppbygging skólakerfisins.
Kjördæmisþingið ítrekar
fyrri ályktanir sínar um það,
að fræðslumál og uppbygging
skólakerfisins séu meðal stór-
mála þjóðarinnar á hverjum
tíma, sem hvorki megi van-
rækja né vanmeta, og stöðug
endurskoðun þurfi að eiga sér
stað í þeim efnum. Að því ber
að stefna með fullum hraða, að
börn og unglingar, hvar sem er
á landinu, njóti kennslu í föst-
um skóla undir leiðsögn vel
menntaðra kennara.
Kjördæmisþingið lýsir yfir,
að það telur nauðsynlegt að
hraða frekari endurskoðun
fræðslulöggjafarinnar. Að gefnu
tilefni vill þingið undirstrika
nauðsyn þess, að valdir verði
fulltrúar hinna dreifðu byggða
í nefnd þá, sem kemur til með
að fjalla um þá endurskoðun.
Kjördæmisþingið telur að ávallt
beri að leita nýrra leiða um
miðlun fræðslu og þekkingar og
bendir á þá möguleika, sem
felast í að hagnýta sjónvarp til
fræðslustarfsemi og skipuleg'rar
kennslu.
Kjördæmisþingið tekur ein-
dregið undir þá hugmynd, að
fullorðnu fólki séU sköpuð sem
bezt skilyrði til þess að afla sér
fræðslu og öðlast réttindi, sem
bundin eru við tiltekna mennt-
un eða próf. Þar sem „fullorðins
fræðsla“ er enn mjög skammt
á veg komin hér á landi, hvetur
kjördæmisþingið yfirstjórn
menntamála til að hraða að-
gerðum í því máli.
Jöfnun námsaðstöðu.
Kjördæmisþingið telur það
réttlætismál að jafnaður verði
fjárhagslegur aðstöðumunur
skólanemenda vegna aukakostn
aðar, sem leiðir af dvöl nem-
enda utan heimilis vegna skóla-
göngu og að ríkið greiði allan
rekstrarkostnað heimavista.
Einnig telur þingið að þátttaka
ríkisins í kennslukostnaði verði,
meira en nú er, miðuð við þörf
hvers skóla, en ekki eftir nem-
endafjölda.
Þá telur þingið nauðsynlegt,
að breytt verði stöðlum varð-
andi stærð íþróttahúsa við
skóla í fámennari byggðalögum,
svo að hlutdeild ríkisins í bygg-
ingarkostnaði þeirra vaxi.
Skólabyggingar.
Þótt baráttan fyrir úrbótum í
skólabyggingamálum hafi borið
nokkurn árangur, vill kjördæm
isþingið minna á, að skólaþörf
í kjördæminu er fjarri því að
vera fullnægt. Bendir þingið m.
a. á nauðsyn þess að reisa
barna- og unglingaskóla fyrir
Svalbarðs- og Sauðaneshrepp,
koma upp fullkomnum fram-
haldsskóla í Eyjafjarðarsýslu og
efla miðskólann í Lundi í Öxar-
firði, að byggingum og annarri
starfsaðstöðu.
Dreifing nienntastofnana og
Akureyri sem skólamiðstöð.
Kjördæmisþingið ítrekar
stuðning sinn við þá hugmynd,
að sérskólum verði dreift um
landið og að Akureyri verði sér
staklega efld sem skólabær og
miðstöð vísinda og mennta utan
Reykjavíkur. Minnir þingið í
því sambandi á fyrri tillögur
sínar um stofnun tækniskóla á
Akureyri eða að Tækniskóli ís-
lands, sem er á hrakhólum í
Reykjavík verði fluttur til Ak-
ureyrar og byggt yfir hann þar.
Þingið bendir á hina brýnu
nauðsyn á stofnun verzlunar-
skóla á Norðurlandi og telur að
athuga beri, hvort ekki sé hag-
kvæmt að reka í sameiningu
verzlunar- og félagsmálaskóla,
sem þjálfaði menn til fjöl-
breyttra viðskiptastarfa og
starfa á vegum félagsmálahreyf
inga. Þá lítur þingið svo á, að
stofna beri garðyrkjuskóla á
Akureyri sem fyrst.
Þingið minnir á, að rétt sé að
athuga framtíðarmöguleika á
að stofna kennaraskóladeild og
háskóladeild á Akureyri, enda
ekki sjálfsagður hlutur, að
Kennaraskólinn og Háskóli ís-
lands hafi ávallt alla starfsemi
sína í Reykjavík. Vinna ber að
því að kynna þessa hugmynd
meðal ráðamanna í landinu.
Þingið bendir í þessu sambandi
á, að eðlilegt hefði verið, að
kennaraháskólinn hefði verið
staðsettur á Akureyri. Einnig
lýsir kjördæmisþingið stuðn-
ingi sínum við þá hugmynd, að
í sambandi við fullkomið sjúkra
hús á Akureyri fari fram hag-
nýt kennsla og starfsþjálfun
með sérstöku tilliti til sérmennt
unar héraðslækna og hjúkrunar
fólks þeirra.
Vísindastofnanir á Norðurlandi
Kjördæmisþingið fagnar þeim
áföngum, sem náðzt hafa í sjálf
stæðu vísindastarfi á Norður-
landi og telur stofnun Efnarann
sóknarstofu Norðurlands, Akur
eyri og Rannsóknarstöðvarinn-
ar Kötlu á Víkurbakka við Eyja
fjörð markverða atburði. Bend-
ir þingið á, að mörg mikilvæg
rannsóknarverkefni bíði úr-
lausnar og ber að styðja fram-
tak hinna norðlenzku vísinda-
manna sem mest og virkja
þannig áhuga þeirra og sérþekk
ingu í þágu norðlenzkrar menn-
ingar og framfara.
Listir og menningarstarfsemi.
Kjördæmisþingið leggur sem
fyrr áherzlu á að veita beri
menningar- og félagsstarfsemi
áhugamanna í bæjum og byggð
um viðunandi fjárhagsstuðning.
Einnig ber að vinna að því, að
opinberum menningarstofnun-
um, sem kostaðar eru af al-
mannafé, s. s. Þjóðleikhúsi,
Listasafni ríkisins og Sinfóníu-
hljómsveit, verði gert kleift að
rækta sem bezt skyldur sínar
við þjóðina í heild, enda standa
landsmenn allir undir rekstri
þessara stofnana og eiga tilkall
til þeirra til jafns við þá, sem
næst þeim búa.
Raforkumál.
I.
Raforkuskortur er þegar orð-
inn tilfinnanlegur í kjördæm-
inu. Kjördæmisþingið harmar,
að Laxárdeilan skuli enn vera
óleyst, og rannsóknir á öðrum
úrlausnarleiðum í raforkumál-
um skammt á veg komnar. En
þær eru: Vatnsvirkjun við Jök-
ulsá á Fjöllum og Skjálfanda-
fljót, gufuvirkjun eða orkukaup
frá stórvirkjun sunnan fjalla.
Verði rannsóknum hraðað eftir
megni, svo að samanburður um
hagkvæmustu lausnina liggi til
grundvallar nauðsynlegri
ákvörðun um raforkumálin.
II.
Kjördæmisþingið væntir þess
eindregið, að lokið verði á kjör-
tímabilinu rafvæðingu á þeim
sveitabýlum, sem enn hafa ekki
rafmagn frá samveitum eða
eigi lakari kjörum og stefnt
verði að því, að raforka verði
seld á sama verði til sömu nota
um land allt.
Þar sem nú hefur verið lögð
háspennulína um mikinn hluta
Norður-Þingeyjarsýslu, leggur
kjördæmisþingið til að rafveit-
ur ríkisins noti gildandi laga-
heimild til að virkja Sandá í
Þistilfirði til raforkuframleiðslu
fyrir Norðausturland milli Tjör
ness og' Smjörvatnsheiðar.
Með skírskotun til breytinga,
sem gerðar voru á síðasta Al-
þingi á lögum um Landsvirkj-
un, og með hagstæða virkjun
Jökulsár í huga, mótmælir kjör
dæmisþingis því harðlega, að
stórvirkjun fallvatna verði að-
eins framkvæmd sunnan fjalla
og þar með vitandi vits stuðlað
að ójafnvægi milli landshluta.
Telur þingið sjálfsagt, að áður
en fullnotaðar eru heimildir til
Tungnárvirkjana, samtals um
340 þús. kw. verði karoið .upp
öflugri virkjun eða virkjunum
hér norðanlands, og einnig að
því stefnt, að tengja saman orku
verin um land allt og samræma
að fullu raforkuverðið. Þá telur
þingið þjóðar nauðsyn að nýta
raforku til húsahitunar. □
Úrbæfur i iangelsismálum
Ríkisstjórnin hefur sent frá
sér fréttatilkynningu þá, sem
hér fer á eftir:
„Svo sem kunnugt er hefur
verið mikill skortur á aðstöðu
til þess að fullnægja refsidóm-
um hér á landi að undanförnu.
— Hefur dómsmálaráðuneytið
unnið að lausn þessara mála og
eru nú þrjár framkvæmdir í
undirbúningi til lausnar þeirra.
í fyrsta lagi var borgarráði
skrifað 1. þ. m„ að afstöðnum
viðræðum ráðuneytisins og
borgarinnar, og það beðið að
fallast á, að fangageymslan í
Síðumúla verði um takmark-
aðan tíma (3—4 ár) hagnýtt
sem gæzluvarðhalds- og afplán-
unarfangelsi, en ríkið og
Reykjavíkurborg eiga þá hús-
eign að jöfnu. Má búast við, að
borgarráð taki umsókn þessa
viðræður milli dómsmálaráðu-
til meðferðar á næstunni.
í öðru lagi fara farið fram
neytisins og Reykjavíkurborgar
um úthlutun lóðar, þar sem
byggt verði gæzluvarðhalds-
fangelsi til frambúðarnotkunar,
en það mundi koma í stað hegn-
ingarhússins við Skólavörðustíg
og fangelsis í Síðumúla. Er gert
ráð fyrir, að í hinu nýja hús-
næði megi vista um 50 fanga.
í þriðja lagi er viðbygging við
vinnuhælið á Litla-Hrauni á
lokastigi, en þegar hún er full-
gerð eykst fangarýmið þar úr
29 í 52. Verður hið nýja hús-
næði tekið í notkun á komandi
vetri.
Ennfremur er áfram unnið að
áætlanagerð um byggingu rík-
isfangelsis í landi ríkisins að
Ulfarsá í Mosfellssveit, en gert
er ráð fyrir, að framkvæmdir
þess verkefnis hefjist að lokn-
um þeim þremur verkefnum,
sem áður er getið.
Reykjavík 4. október 1971.
Forsætisráðuneytið'.
Falleg og
skemmtileg bók
NÝKOMlN er út árbókin
„Hélztu heimsfréttir í máli og
myndum“ fyrir árið 1970. Áður
eru kompar 5 bækur í þessum
bókaflolíki hver annarri glæsi-
legri áð ytri sem innri gerð. —
Síðásta ár.bókin' er síður en svo
óffirbátuf' hinna. Hún flytur
fréftir áf. öllu því markverðasta,
sem skeð hefir um víða veröld á
Iiðnu ári, og fylgir textanum
ipörg hundruð fallegra mynda,
þar af 114' í litum. Eins og í fyrri
áfbÓkum ér sérstakur kafli um
hélitu ýiðburði hér á landi, —
samantekinn af Birrii Jóhanns-
syni 'og íylgja honum tugir
mynda, sumar í litum. Einnig
er sérkafli um íþróttir og
íþróttamenn ársins 1970 með
mörgum fallegum myndum. —
Bókin er í mjög stóru broti með
fagurlega skreyttri kápu í 5
litum.
Útgefandi árbókarinnar er
Hafsteinn Guðmundsson, sá
landskunni snillingur, sem hlot-
ið hefir lof og viðurkenningu
fyrir fádæma smekklegan frá-
gang bóka sinna. Má þar nefna
þjóðsögur Jóns Árnasonar, —
Grímu, Gráskinnu og Rauð-
skinnu, sem nú.er að koma út.
Allar þessar bækur býður út-
gáfan með mjög hagstæðum
greiðsluskilmálum. Aðalumboðs
maður bókanna hér norðan-
lands er Árni Bjarnarson í Bóka
verzluninni Eddu á Akureyri.
Bjarni M. Gíslason.
Viiide over jöklen
LJÓÐABÓK með þessu nafni
eftir Bjarna M. Gíslason er
komin út hjá Grevas Forlagi í
Danmörku. En Bjarni er kunn-
ur rithöfundur og skáld þar í
landi, og ennfremur kunnur
hér heima fyrir vegna baráttu
sinnar í handritamálinu.
Hin nýja ljóðabók Bjarna er
90 blaðsíður og þriðja ljóðabók
hans á dönsku.
Bjarni M. Gíslason er 63 ára
og hefur verið búsettur í Dan-
mörku síðan 1934.
Stóra fuglabókin
BÓKAÚTGÁFAN Fjölvi, Rvík,
hefur sent frá sér Fuglabók eft-
ir J. Hanzak í þýðingu og endur
sögn Friðriks SigUrðssonar.
Hér er um að ræða 580 blað-
síðna bók í nýjum fjölfræða-
bókaflokki. í henni er mikill
fjöldi mynda, bæði svarthvítra
og litmynda og hverri fuglateg-
und gerð nokkur skil í alþýð-
legri lýsingu, svo að bókin er
skemmtilestur.
Náttúrunnendur og fuglavin-
ir munu taka bók þessari opn-
um örmum, er þeir vanda mest
bókakaup sín fyrir sjálfa sig
eða til gjafa.
Árngrímur Árngrímsson
NáttúruYeriidarmeim
Ávarp lil Akureyringa
„VIÐ undirrituð hvetjum Ak-
ureyringa til að spara sér dýra
helgarmáltíð en gefa andvirði
hennar til flóttamannasöfnunar
innar á Indlandi. Það gæti
bjargað nokkrum börnum.
Prestarnir á Akureyri og
vikublöðin íslendingur-ísafold
og Dagur veita framlögum við-
töku. Einnig verður framlögum
veitt móttaka að lokinni guðs-
þjónustu í Akureyrarkirkju."
Séra Pétur Sigurgeirsson.
Séra Birgir Snæbjörnsson,
Valur Amþórsson, framkvstj.
Páll Gunnarsson, yfirkennari.
Eiríkur Sigurðsson, fyrrv.
skólastjóri,
Kristján frá Djúpalæk, skáld.
Katrín Kristjánsdóttir, húsfrú,
Indriði Úlfsson, skólastjóri.
Ragnheiður O. Björnsson, kaup-
kona,
Sverrir Pálsson, skólastjóri,
Hólmfríður Jónsdóttir, húsfrú.
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri.
AÐALFUNDUR Náttúruvernd-
arsamtaka Austurlands var
haldinn í Neskaupstað fyrir
skqmmu. Fundinn sóttu um 30
félagsmenn víða af Austurlandi
auk nokkurra gesta. Formaður
samtakanna, Hjörleifur Gutt-
ormsson, setti fundinn og bauð
sérstaklega velkomna gesti
fundarins, þá Ingvar Hallgríms-
son, fiskifræðing og Árna Reyn
isson, framkvæmdastjóra Land-
verndar.
Formaðurinn, Hjörleifur Gutt
ormsson, flutti skýrslu um störf
félagsins á þessu fyrsta starfs-
ári, en samtökin voru stofnuð í
september 1970. Gat hann þess
að á sl. vori sendu samtökin út
til fjölmiðla og margra aðila á
Austurlandi, áskorun um bætta
umgengni, og er þetta fyrsta
skref félagsins til bóta í þeim
efnum. Þá hafa samtökin hafið
heimildarsöfnun um stöðu
flestra þátta náttúruverndar á
Austurlandi, og hefur verið leit
að til allra félagsmanna í sam-
tökunum með fyrirspurnir þar
að lútandi. Á næstunni mun
verða hafin samantekt á nátt-
úruminjaskrá fyrir Austurland,
og ákvað aðalfundurinn að
verja talsverðri upphæð af ráð-
stöfunarfé félagsins til þessa
verks, og rannsókna þar að lút-
andi. Á stofnfundi í fyrra höfðu
140 einstaklingar gerzt félagar í
samtökunum, en síðan hafa
bætzt við 36 og 7 styrktaraðilar,
þ. e. félög, stofnanir og fyrir-
tæki, sem styrkja samtökin fjár
hagslega. Nýlega hefur félags-
stjórnin leitað eftir styrktar-
aðild fjölmargra aðila á Austur-
landi og væntir hún góðra und-
irtekta.
Á aðalfundinum voru sam-
þykktar fjölmargar tillögur og
ganga þær flestar út á náttúru-
vernd og betri umgengni á
Austurlandi. M. a. var sam-
þykkt tillaga, þar sem þeim til-
mælum er beint til Vegagerðar
ríkisins, að framfylgt verði bet-
ur en til þessa, ákvæðum vega-
laga um endurgræðslu jarðvegs
sára, sem myndast við vega-
gerð. Þá hvetur fundurinn bæj-
arstjórnir og sveitarstjórnir á
þéttbýlissvæðum á Austurlandi,
að gera nú þegar verulegt átak
til þess að koma sorpeyðingu í
viðunandi horf.
Á furídíhum flutti Ingvar
Hallgrímsson, fiskifræðingur,
afar fróðlegt erirídi um ofveiði
á íslandsmiðum og aðrar hætt-
ur, sem steðja að fiskistofnum
við Ísland, og greindi hann frá
æskilegum verndarríðgerðum.
Urðu miklar umræður um
erindi íngvars og svaraði hann
mörgum fyrirspurnum. Þá
flutti Árni Reynisson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar,
ávárp, og bar ennfremur fram
árnaðaróskir þeirra samtaka og
ræddi hann ýmis mál, sem farið
hafa á milli Landverndar og
Náttúruverndarsamtaka Austur
lands, svo sem um framkvæmd
landgræðslustarfs, útgáfu á lög-
um og reglugerðum um náttúru
ycrnd í bæklingsformi og um
Vigtin nítján kg
Hagánesvik 12. okt. Kominn er
svolítill snjór en ekki hafa orðið
truflanir á samgöngum nema til
Siglufjarðar. Vegurinn var þó
opnaður í gær en lokaðist aftur.
Sauðfjárslátrun lýkur í þess-
ári viku. Féð var óvenjulega
værít að þessu sinni. Meðalvigt
liggur ekki fyrir, érí til er það,
áð bændur háfi fengið 18—19
kg meðálvigt. Mun bondinn á
Sauðanesi hafa fengið *um 19 kg
méðalvigt og annar bóndi var
með 18 kg meðálvigt.
Hér er heilsfar ágætt og
bændur vel undir vetúr búnir
eftir mjög gott og gjöfult sum-
ar. E. Á.
DAGUR
kemur út næstkomandi mið-
vikudag 20. októbcr.
friðun Hvannalinda.
Samkvæmt félagslögum
ganga tveir úr stjórn árlega.
Voru það Hilmar Bjarnason,
Eskifirði og Sigfús Kristinsson,
Reyðarfirði.
í stjórn voru kosin: Foimað-
ur Hjörleifur Guttormsson, Nes
kaupstað; aðrir aðalmenn eru
Bóas Emilsson, Eskifirði, Sigurð
ur Blöndal, Hallormsstað, Völ-
undur Jóhannsson, F.gilsstöð-
um og Þorleifur Kristmunds-
son, Fáskrúðsfirði.
Fundarstjórar voru Jón
Lundi Baldursson, sparisjóðs-
stjóri í Neskaupstað og Hilmar
Bjarnason, framkvæmdastjóri á
Eskifirði. □
KVEÐJU0RÐ
MEÐAN haustvindar blésu og
trén standa í hnipri með fall-
andi laufkrónu, andaðist 1. októ
ber á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri, Arngrímur Arngríms-
son. Hann var jarðsettur að Dal
víkurkirkju laugardaginn 9.
október að viðstöddu fjölmenni.
Sökum vináttu hans við mig
og fjölskyldu mína, er mér bæði
ljúft og skylt að minnast hans
að nokkru.
Arngrímur var fæddur að
Þorsteinsstöðum í Svarfaðardal
7. júní 1890, var einn af 6 börn-
um foreldra sinna, en þau voru
hjóninArngrímur Stefánsson og
Anna Baldvinsdóttir, sem allan
sinn búskap bjuggu að Þor-
steinsstöðum.
Arngrímur mun hafa verið
heima í foreldrahúsum til 19
ára aldurs, eða til ársins 1909,
en það ár létust foreldrar hans
báðir. Fór Arngrímur þá að
heiman til vinnumennsku, eins
og þá tíðkaðist með unga menn.
Vorið 1919 giftist Arngrímur
eftirlifandi konu sinni, Sólveigu
Jóhannesdóttur frá Hærings-
stöðum. Var það hjónaband
ástsælt og traust íil hinztu
stundar. Þau hjón voru í hús-
mennsku næstu árin í Svarfað-
ardal, þar af 10 ár á Skáldalæk
hjá foreldrum mínum. Þar hóf-
ust kynni mín á þessum sæmd-
arhjónum.
Arngrímur var vel greindur
maður og einn af þessum fá-
gætu dugnaðarmönnum, þar
sem trúmennska og vilji til
góðra verka var ætíð efst í
huga.
Það er mikil hamingja fyrir
okkur systkinin að eiga þær
fögru minningar frá samvistum
með Arngrími á okkar uppvaxt •
arárum og þá ekki sízt góðvild
og hjálpsemi þeirra hjóna við
móður mína og okkar heimili
þegar erfiðleikar steðjuðu að.
Árið 1949 fluttist Arngrímu.'
með konu sinni til Dalvikui,
þar sem áttu sitt litla, hlýlega
heimili að Hafnarbraut 30.
Að leiðarlokum er mér efst i
huga þakklæti fyrir samf.ylga •
ina með Arngrími og flyt hjart-
ans kveðjur frá móður minri
og okkur systkinum.
Sólveigu sendi ég samúðar-
kveðjur og óska henni biess-
unar.
Nú göfug sál er gengin
og Guði einum fengin,
sú vissa öllum er, '
þar ætíð birtan bíður
og böl þar enginn líðui’
þar frið og sælu fáum vei
Brjúnn Guðjónsson
Sala á framleiðsluvörum bænda
Sláturhúsið í Borgarnesi upp-
fyllir áfram ströngustu kröfur.
Nýlega var hér á landi full-
trúi bandaríska landbúnaðar-
ráðuneytisins, sem hafði það
verkefni með höndum að kynna
sér ástand sláturhúsi hér á
landi. Hann kom m. a. í slátur-
Tóniisfarskólinn fekur til starfa
SKÓLASTJÓRI ER JAKOB TRYCGVASON
TÓNLISTARSKÓLI Akureyrar
var settur þriðjudaginn 5. októ-
ber í húsakynnum skólans að
Hafnarstræti 81.
Jakob Tryggvason skólastjóri
flutti setningarræðu og skýrði
frá væntanlegri námsskipan, —
en skólinn mun starfa með
svipuðu sniði og undanfarna
vetur.
Kennslugreinar eru píanó,
orgel, fiðla, söngur, tónfræði,
tónlistarsaga og tónheyrn, og
að auki verður kennt á blást-
urshljóðfæri og starfrækt barna
lúðrasveit innan vébanda skól-
ans. Sömuleiðis er fyrirhugað
að kennsla í tónheyrn taki nú
til fleiri nemenda en verið hef-
ur fram að þessu.
Þær breytingar hafa orðið á
kennaraliði skólans, að María
Bayer Juttner, sem kennt hefur
fiðluleik um nokkurra ára skeið,
lét af störfum s.l. vor, en í henn
ar stað hefur verið ráðinn ung-
ur fiðluleikari frá Bretlandi,
Michael Clarke að nafni. Aðrir
nýir kennarar eru Unnur Gígja
Kjartansdóttir, sem kennir á
orgel og Roar Kvam frá Nor-
egi, sem ásamt Stefáni Bergþórs
syni annast kennslu á blásturs-
hljóðfæri.
Alls eru kennarar tíu talsins
að skólastjóra meðtöldum. Við
skólasetningu höfðu 206 nem-
endur sótt um skólavist. í for-
skóladeild verða 94 nemendur,
og veitir Jón Hlöðver Áskelsson
henni forstöðu. Nemendur
skiptast þannig á hljóðfæri, að
píanónemendur eru að venju
langfjölmennastir eða 43, nem-
endur á orgel-harmonium verða
23, á fiðlu 17, þar af sex sem
reglulegir nemendur og ellefu í
barnadeild. í söng verða sex og
barnalúðrasveit telur 23 nem-
endur. — Rétt er að geta þess,
að tölur þessar eru ekki allar
endánlegar, því að nokkrir
munu hafa bætzt við eftir að
skólinn var settur.
Enn er ekki alveg fullskipað
í sumar námsgreinar, og væri
þannig unnt að bæta fáeinum
nemendum við. Kæmi þar helzt
fiðluleikur til greina, og þó
einkum söngur, því að nokkuð
vantar á, að þar sé setinn bekk-
urinn, enn sem komið er.
hús Kf. Borgfirðinga og stað-
festi, að það hús uppfyllti öll
skilyrði um innréttingu og
ströngustu kröfur um vinnu-
brögð og hreinlæti varðandi út-
flutning á Bandaríkjamarkað.
Þannig er hægt að flytja allar
sláturafurðir hússins til sölu í
Bandaríkjunum. í þessu sam-
bandi má geta þess, að í Noregi
og Svíþjóð er ekkert sláturhús,
sem uppfyllirþessi skilyrði, að
því er Ag'nar Tryggvason tjáði
SF.
Um þessar mundir er hér líka
brezkur eftirlitsmaður og fer
hann mjög víða um landið til að
skoða sláturhúsin. Hér eru nú
11 sláturhús, sem hafa viður-
kenningu til sölu á brezkan
markað, og mun hann væntan-
lega heimsækja þau öll.
Gærusala til Póllands og Sví
þjóðar.
Nú standa yfir samningar um
sölu á gærum til Póllands. Bú-
izt er við, að samið verði um
6—7 % hærra verð en í fyrra.
Nýlokið er samningagerð við
Svía um sölu á 50—60 þúsund
gráum gærum. Er hér um að
ræða meira magn en í fyrra, því
að Svíar kaupa nú einnig 4. og
5. gæðaflokk, sem þeir gerðu
ekki á síðasta ári. Verðið á gráu
gærunum er 20% hærra en
samið var um á sama tíma í
fyrra.
Hagstæðar kjötsölur til Færeyja
Agnar Tryggvason sagði SF
ennfremur, að Búvörudeildin
hefði undanfarið selt 550 tonn
af dilkakjöti af nýju framleiðsl-
unni til Færeyja. Færeyingar
hafa sjálfir sótt kjötið á eigin
skipum beint á viðkomand:
hafnir, þ. e. Borgarfjörð eystra,
Reyðarfjörð, Djúpavog' og
Hornafjörð. Verðið á kjötinu er
kr. 75,45 fob pr. kg. Er þettt.
talsvert hærra verð en á þein.
mörkuðum, sem nú eru opni.-
fyrir íslenzkt dilkakjöt. AuL
þess sem verðið er hærra, erv.
þessi viðskipti íslendingum
mjög hagkvæm, þar sem slátur-
húsin hafa getað losnað vio
framleiðsluna jafnóðum og ekk.
hefur þurft að flytja kjötið ti;.
Reykjavíkur.
Fy rirhugaður útf 1 utningu:.
kjöts af haustframleiðslu uessa
árs er 2-3.000 tonn.
Framleiðsla frystihúsanna.
Framleiðsla á frystum afurö'ui. -.
hjá frystihúsum á vegum dan •
bandsins var á tímabilii.u frti
áramótum til 15. sept. s.l. san •
tals 16.857 tonn. Á sama tima-
bili í fyrra nam framleiðslai’.
alls 17.485 tonnum.
Þessi samdráttur í framleiðsl-
unni stafar fyrst og fremst af
minni þorskvinnslu á vetrarvei •
tíð í ár en í fyrra. Hinn 15. sepr.
s.l. nam þorsk vinnslan fra ára-
mótum 10.120 tonnum á móti
10.861 tonni á sama tíma í fyrra.
Hið háa verðlag á Bandarikja
markaði á sjávarafurðum nefu:
haldizt og er þorskverðið ser-
staklega hagstætt. Allt útlit e :
fyrir, að skortur verði á þorski
næstu mánuði.
Humarinn hefur einnig selz’i
mjög vel, og er góður markaðu
fyrir hann um þessar mundir, ;
(Sambandsfréttir). jj