Dagur - 13.10.1971, Blaðsíða 8

Dagur - 13.10.1971, Blaðsíða 8
SMÁTT & STÓRT Nokkur ungneyti hjá bónda einum eyfirzkum. Þau láta fara vel um sig þó hausti að. (Ljósm. ED). Hyeriiiír á að ala .. ÁRSBYRJUN 1970 voru 53. 370 nautgripir hér á landi, en jar af aðeins 35.994 mjólkandi íýr. Síðustu árin hefur geld- neytum, sem alin eru til slátr- unar, fjölgað mjög mikið. Nú í haust munu fleiri kálfar settir á en nokkru sinni áður og í : ieiri aldursflokkum vegna nikilla heyja, og að hvergi fást :iú mjólkurkýr keyptar, svo :iokkru nemi, miðað við hið nenjumikla heyfóður, sem nú er til. En það mun sannast mála, að úændur og þeir, sem annast sölu nautgripakjöts, hafa ekki jnnþá byggt þann grunn, er jessi framleiðsla þarf að byggj- ast á. Framleiðendur vita naum ast hvernig á að framleiða naut- jripakjötið og seljendur vita ekki allt of vel hvernig á að xieta það og verðleggja. — Og ’hinn almenni neytandi hefur .njög hvarflandi hugmyndir um jessa tegund kjöts, er hann <aupir það og veit stundum ekkert hvað hann hefur keypt fyrr en hann borðar það. Hvernig á að ala kálfana? Það er hin sígilda spurning jændanna. Og hve gamlir eiga þeir að vera þegar þeim er lóg- að? Eiga þeir að vera hálfs árs, eins árs eða jafnvel tveggja ára, þegar þeim er lógað? Þetta er auðvitað eitt af hinum mörgu hagfræðilegu atriðum, sem hver bóndi verður að leysa og vænt- anlega með aðstoð ráðunauta sinna. Næsta haust má búast við því, að óvenjumikið magn kálfa -og geldneytakjöts komi á markaðinn. Á Lundi við Akureyri stend- ur yfir tilraun með fóðrun kálfa í fjórum flokkum. Sú til- raun á að að svara nokkrum veigamiklum spurningum um það, hvernig unnt er að koma kálfum til góðs þroska með mis- munandi fóðri — og einn til- raunaflokkurinn, sem er á kálfana? bráðaeldi á að svara þeirri spurningu, hvað kálfar geti vaxið ört. Eftir 100 daga höfðu flokk- arnir þrír bætt við sig til jafn- aðar 750 gr. á dag en bráðaeldis', flokkurinn bætti við sig meira en kílói á dag. Sá flokkur var alinn á mörmjólk, þ. e. þurr- mjólk og fitusprengdri tólg. En tilkostnaður í fóðri var um 3 þús. kr., nema á bráða- eldisflokknum, þar var fóður- kostnaður um 6 þús. krónur á grip. Næsta haust munu þessir til- raunakálfar, allt að 50 samtals, gefa fróðleg svör, ef þeir fá að lifa svo lengi. □ GARNAEITRUN f SAUÐFÉ Hér í héraðinu herjar gamaeitr- un í sauðfé á einuin bæ eink- um og e.t.v. þó fleiri í nágrenni hans. — Bólusetniug hefur ekki dugað og drepst fé úr þessari veiki á haustin og fram eftir vetri og er bráðdrepandi likt og pestin. Er hér um vírussjúk- dóm að ræða, að siign. Margir eru áhyggjufullir út af veiki þessari, en ekki uisui nein ákvörðun hafa verið tekin um meðferð þessa fjár eða reglur settár, sem varni útbreiðslu veikinnar. MÓTMÆLI f LONDON Fyrir nokkrum dögum bar það við hjá sendiráði fsiands í Lond on, að þar bar að garði sjö manns með tvo eða þrjá hunda. Bar fólk þetta mótmælaspjöld, þar sem m. a. stóð: „Skömm sé borgarstjórn Reykjavíkur, — liundamorðingjunum“. — Og á öðru: „Dýravinir sameinist um að kaupa ekki íslenzkar vörur“. Eftir það afhenti hópurinn sendiherranum mótmælabréf. NORÐURLANDAFERÐIN Norðurlandaför sú, sem kjör- dæmissamband Framsóknar hér í kjördæminu efnir til næsta vor og frá var sagt í síðasta tölublaði Dags, virðist vekja á- liuga. Yfir þrjátíu manns hafa þegar látið skrá sig til ferðar- innar og margir aðrir hafa haft samband við skrifstofu samtak- anna (sími 21180, Akureyri) og óskað ýmiskonar upplýsinga. — Farið verður til Noregs, Sví- þjóðar og Danmerkur, og mun Sagan endurtekur sig eystra Egilsstöðum 12. október. Lítill snjór er hér, en þó grátt yfir að líta. Vegir hafa ekki lokast, en þó orðnir seinfærir á heið- um hér í nágrenni. Víða er hálka. Slátrun gengur greiðlega og féð er vænt. En færra er lógað nú en áður, eftir þetta óvenju góða sumar. Skólarnir eru byrjaðir og þéttsetnir, nema Húsmæðra- skólinn á Hallormsstað, en þar, eins og í fleiri húsmæðraskól- um landsins vantar nemendur. í Eiðaskóla eru um 120 nem- endur og hann alveg fullskip- aður. — Hér á Egilsstöðum er barna- og unglingaskóli. Við- byggingu þess :skóla er ekki alveg lokið og starfar skólinn ekki að fullu fyrr en húsnæðið er tilbúið, sem verður bráðlega. þessi sé ekki lyftistöng atvinnu- lífsins hér, eins og vera þyrfti. Aðkomumenn fara með næst- um með alla peninga, er greidd- ir eru fyrir vinnu manna og véla. Þetta er hliðstætt því, sem gerðist á síldarárunum, þegar aðkomumenn settu sig víða niður á meðan síldin veiddist, en hurfu svo burt með ágóða síldaráranna. V. S. förin geta orðið hin skemmti- legasta og auk þess lærdóms- rík. TIÍ- FYRIRMYNDAR Á fuadi Lionsklúbbsins Hugins á Akureyri, var nauðstaddra barna frá Pakistan minnzt á þann veg, að hver yiðstaddur ga£ 50U krónur í söfnun kirkj- unnar og nam upphæðin 16.560 krónutn. Er þetta til fyrirmjt'nd- ar og þakkarvert. Mættu fleiri hugsa tii sveltandi barna í flóttamannabúðunum, - er þeir sjálfir sitja yfir gnægð matar dag hvern. RÁÐHERRAHEIMSÓKN Hingað' til Akureyrar mun á morgun koma til bæjarins iðn- aðar- og samgöngumálaráð- herra Magnús Kjartansson. Er ætlun hans, samkvæmt lausleg- um fregnum að ræða um orku- mál við samtök norðlenzkra sveitarfélaga og þá væntanlega einnig við Laxárvirkjunar- stjórn, kynna sér atvinnurekst- ur í bænum o. s. frv. Ber að fagna því er ráðherrar leggja hingað leið sína til að kynnast norðlenzkum mólefnum af eig- in sjón og raun, og mættu þeir oftar konia þeirra erinda. FENGU LOKS ATVINNU Skagaströnd 12. október. Barna- og unglingaskólinn var settur í síðustu viku. Nemendur eru 112. Skólastjóri er Jón Pálsson. — Snjór er lítill og bílfæri sæmi- legt. Síðustu daga hefur ekki gef- ið á sjó. Alltaf reytist töluvert af skel, þ. e. hörpudiski, þegar gefur. Eru þrír bátar við þær veiðar og skapar þetta mikla vinnu. . Trollbátarnir Örvar og Arnar sigla með aflann að þessu sinni og selur annar á fimmtudag en hinn á mánudaginn. Atvinna hefur verið góð í haust og í fyrsta sinn höfðu unglingar töluverða atvinnu fram að skólatíma. X. vtt skólahús á Blönduósi Lík Frakkans íannst uppi í fjalli BERKLAR IIAFA KOMIÐ LPP Á SIGLUFIRÐI Blönduósi 11. okt. Hér er orðið alhvítt og hefur aðeins dregið í skafla. Uti á Skaga kann að vera, að snjór loki leiðum í bráð, en naumast annars staðar. Nýlega var nýtt skólahús- næði tekið í notkun hér á Blnöduósi. Var það viðbygging við barnaskólann. í nýja hús- næðinu er unglinga- og gagn- fræðaskóli og ennfremur efstu bekkir barnaskólans. Þetta virð- ist vera hið skemmtilegasta húsnæði og lítur mjög vel út.— Nemendur eru hálft annað hundrað, ef ég man rétt. Skóla- stjóri er Bergur Friðleifsson. Sauðfjárslátrun stendur yfir og er lógað 1400 á Blönduósi og tæplega 400 á Skagaströnd. — Vinnan gengur mjög vel í nýja sláturhúsinu. Að þessu sinni fer nær ekkert út af kjöti í haust, aðeins 500 tonn til Færeyja og er það kjöt tekið á Austfjörð- um. Stundum höfum við losnað við verulegt kjötmagn í slátur- tíð, allt upp í 300 tonn til út- flutnings, en nú fer ekkert út frá okkur í haust, en við verð- um þó að losa okkur við kjötið að mestu og keyrum við um 300 tonnum af kjöti suður til Reykjavíkur vegna vöntunar á geymsíum hér. Búist var við, að lógað yrði alls 5 Oþús. fjár en það verður þó nokkru minna. Dilkarnir eru til jafnaðar rúmu kílói vænni en í fyrra og er meðalvigt 15,3 kg nú og vegur það verulega upp á móti fækkuninni. Norðanveðrið nú, mun ekki valda töfum eða truflun á sauð- fjárslátrun. Á. J. ÚTGERÐARFÉL. Dalvíkinga h.f. hefur gengið frá samningi við Flekkefjord Slip og Maskin fabrik í Flekkafjord í Noregi um kaup á tæplega 500 rúm- lesta skuttogara, sömu gerðar og skuttogararnir 5, sem vest- firzk útgerðarfyrirtæki sömdu um kaup á fyrir um tveimur mánuðum. Kaupverð Dalvíkur- togarans er um 104 milljónir króna og miðað er við, að skipið komi til landsins í desember 1973. Byggingaframkvæmdir eru miklar þetta árið. Fyrir utan barnaskólann er verið að ljúka við símstöðvarbvggingu og verður hluti byggingarinnar tekin í notkun í þessari viku, en hitt 1. febrúar. Læknamiðstöðin er komin undir þak og' verið er að byggja 16 íbúða blokk. Byrjað er að vinna við Lagarfossvirkjun. — Hér er vaxandi óánægja yfir því, að sú framkvæmd gefur Austfirðingum lítið í aðra hönd í vinnulaunum. Menn eru há- værir út af því, að framkvæmd Samningur Útgerðarfélags Dalvíkinga hefur enn ekki tek- ið gildi og er undirritaður með fyrirvara um samþykki ráðu- neytis og fjárfestingarsjóða. En þar sem gildistaka vestfirzku samninganna hefur þegar farið fram, má fastlega gera ráð fyrir að samþykki þessara aðila fáist. í ýmsum smáatriðum er Dalvík- urtogarinn frábrugðinn vest- firzku togurunum. Hann verður rafmagnsupphitaður í stað þess að vestfirzku togararnir eru Siglufirði. 12. október. Veturinn kom í fyrradag með frosti og fjúki og er nú kominn töluverð- ur snjór en batnandi veður. — Allir bátar hafa legið inni og ekkert hefur verið farið á sjó síðan á föstudag. Ohöpp hafa engin orðið það ég veit til í þessu vonda veðri. Heilsufar er mjög lélegt og er það æði margt, sem veldur. landsins með vatnsmiðstöð og ennfrem- ur verður helmingur af lesta- rými skipsins með skilrúmum, en í togurunum 5, sem VVest- firðingarnir kaupa, verður allur aflinn ísaður í kassa. Aðallengd skipanna verður 46.00 m, en kjöllengd 40,70 m og breidd 9,50 m. Á efra þilfari er þægileg aðstaða til að vinna við veiðarfærin undir þiljum, en skiptin verða útbúin bæði fyrir botn- og flotvörpu. Sérstök áherzla hefur verið lögð á að vanda allan útbúnað skipanna, sem lýtur að meðferð aflans um bori. Bæði er hér kvefpest og fleira, sem yfir géngur, að því er Sig- urður Sigurðsson læknir hefur sagt mér. — Ennfremur hafa berklar komið upp hér og hefur mikil leit verið gerð að smit- bera, og er hann e. t. v. íundinn. En sex manns hafa orðið að fara héðan á spítala vegna berkla, allt úngt fólk. Frakkinn, sem héðan hvarf af farfuglaheimilinu 6. septem- ber og svo mikið var búið að leita að, fannst að mánuði liðn- um. Líkið var flutt suður til krufningar, en var, eða verður, síðar sent út til greftrunar. Föt mannsins höfðu áður fundist nokkuð frá farfugla- heimilinu, Hóli. Líkið fannst svo klæðlaust að vestanverðu í firðinum, gegnt Hóli, svona 5—6 km framan við bæinn, — nokkuð framan við gamla Skarðsveginn, hátt uppi í fjalli. Líkið mun hafa verið hulið snjó um tíma. Enginn skilur þetta þetta sorglega mál hins útlenda ferðamanns. Siglufjarðarvegur er tepptur. Verið er að endurbæta lokur eða hlið Strákaganga, sem nauð synlegt er talið fyrir veturinn. J. Þ. Margir fogarar keypfir fil DALVÍKINGAR FÁ EINN ÞEIRRA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.