Dagur - 10.11.1971, Page 1
l®^\ i*
idavd® papp'w AKUREYRI
FILMUhúsio
Sjóvamargarður aftur á dagskrá
Grímsey 8. nóv. Komið er ágætt
veður, eftir norðan hvassviðrið
um helgina. Föl er á eynni.
Engir skaðar urðu.
Þegar gefur á sjóinn aflast
vel, en ógæftir hafa verið þótt
tíð hafi verið góð að öðru leyti.
Einn bátur rær með línu en
aðrir fiska á handfæri. í síðustu
viku var dálítið róið og var þá
ágætur afli. En dagar eru farn-
ir að styttast, svo að ekki er
hægt að sækja langt.
Búið er að taka allan fiskinn
hjá okkur og farið að safna
nýjum birgðum, svo að eitthvað
verði til hjá okkur fyrir ára-
mótin.
Nú er sjóvarnargarðurinn
sæli kominn á dagskrá á ný.
Þörfin á að byggja hann, er
knýjandi, ekki aðeins fyrir okk-
ur, heldur marga aðra, sem
fiska á miðunum hér í kring.
I sumar kom hér bæði sam-
göngumálaráðherrann og flug-
málastjórinn til að skoða flug-
völl og höfn. Þótti okkur koma
þeirra góð, því að svo háttsettir
menn sjást hér ekki vanalega,
helzt að þingmannaefni skjótist
til okkar rétt fyrir kosningar.
S. S.
Fólkið meí sfærsfu prófin
Ófeigsstöðum 8. nóv. Snjór er
lítill og fært úr sveitum til
Húsavíkur. í dag er norðan
skætingsveður og snjókoma.
Illfært er til Akureyrar eins og
er, en veginn átti að opna í dag.
Sauðfé hér um slóðir var allt
í húsi þegar stórhríðin skall á,
aðfararnótt sl. sunnudags, því
betur, en lítið er búið að gefa
nema lömbum. Heimtur voru
góðar. Sláturfé var með betra
móti máski með bezta móti mið-
að við síðari ár. Heyforði á að
vera betri og meiri en um mörg
undanfarin ár, eftir óvenjulega
hagstæða sumartíð. Ekki voru
köl.
Stórutjarnarskóla á að setja
í dag, ef veður hamlar ekki.
Á laugardaginn var jarðsung-
in á Lundarbrekku Guðbjörg
Sigurðardóttir frá Lækjarvöll-
um, Bárðardal. Hún var dóttir
Sigurðar ráðherra í Yztafelli
Jónssonar, öldruð kona. En í
dag, mánudag, verður jarðsung-
inn að Garðshorni, Kinn, Hauk-
ur Ingjaldsson bóndi, aldraður
merkismaður. Hann var upp-
finningarmaður í búskap. Á
morgun verður jarðsunginn á
Hálsi í Fnjóskadal, Stefán
Tryggvason fyrrv. oddviti á
Hallgilsstöðum.
Til eru sjóðir minninga um
þetta fólk. Það tók stærstu próf-
in, sem tekin eru í skóla lífsins.
B. B.
Tveir
ráðherrar
koma
norður
Á LAUGARDAGINN 13. nóv.
verður almennur fundur í Borg
arbíói á Akureyri, á vegum
Framsóknarmanna. . Einar
Ágústsson utanríkisráðherra
mætir á fundinum og flytur
ræðu, ennfremur Ingvar Gísla-
son alþingismaður.
Umræðuefni verður stjórnar-
stefnan, landhelgis- og varnar-
mál. Fundurinn hefst kl. 4 e. h.
Bæjarbúar og aðrir eru hvattir
til að mæta vel og stundvíslega.
Á Húsavík mætir Halldór E.
Sigurðsson fjármálaráðherra
ásamt Stefáni Valgeirssyni al-
þingismanni, á fundi Fram-
sóknarmanna þar, og hefst fund
urinn kl. 4 laugardaginn 13.
nóvember.
Ennfremur mæta þeir Hall-
dór E. Sigurðsson og Stefán
Valgeirsson á fundi á Grenivík
föstudaginn 12. nóv. og hefst
fundurinn kl. 9.30. □
^Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra.
Ingvar Gíslason,
alþingismaður.
Dalvik.
Alvinna er meiri en nægileg á
(Ljósm.: E. D.)
Dðlvík
MINKABÚ RÍS Á BÖGGVISSTÖÐUM
í VIÐTALI við sveitarstjórann
á Dalvík, Hilmar Daníelsson, á
mánudaginn, kom m. a. fram.
Snjór er nokkur, fært á stór-
um bílum til Akureyrar. Okkur
tókst ekki að koma nýju sund-
lauginni fyrir að fullu áður en
veður spilltist, en næsta góðan
veðurdag verður þessu lokið og
Halldór E. Sigurðsson,
fjármálaráðherra.
Stefán Valgeirsson,
alþingismaður.
þá mun ekki standa á fólki að
fá sér sundsprett í hinni nýju
plastsundlaug.
Unnið hefur verið við skóla-
lóðina ásamt uppsetningu varan
legrar girðingar, sem ekki er að
fullu lokið. Þá hafa í sumar
farið fram jarðvegsskipti í göt-
um. Steyptur var götukafli fyrir
tveim árum, en nú er ætlunin
að halda áfram við gerð slitlags
á götum staðarins. En því mið-
ur veröur að undirbyggja allar
götur, sem eldri eru en frá 1965.
Atvinna er meiri en nóg og
er erfitt að fá fólk til nauðsyn-
legra starfa eins og er, og hefur
t. d. ekki gengið of vel að fá
nægan vinnukraft til frystihúss-
ins.
Mjög tregt fiskirí hefur verið
hjá togbátunum nú undanfarið,
en smærri dekkbátum fjölgaði
um fjóra í sumar, 8—26 tonna.
Dekkbátar eru því alls orðnir
hér einir sjö eða átta og eitt-
hvað af trillum, auk togbát-
anna Björgvins og Björgúlfs.
Þessi bátafloti hefur haldið uppi
fullri vinnu í frystihúsinu,
lengst af. Nú er í athugun, að
þeir Björgvin og Björgúlfur fari
í SUMAR gaf SÍS út vandaðan
leiðbeiningabækling um fóður.
Ætti hann að vera til á hverjum
bóndabæ, sem auðveld og skýr
handbók fyrir alla þá, sem nota
innlent og erlent kjarnfóður.
En SÍS hefur löngum verið
stærsti innflytjandi fóðurvara,
og með aðstoð innlendra og
erlendra fóðurfræðinga og
reynslu bændanna sjálfra hefur
tekizt að svara fóðurþörfinni á
skynsamlegan hátt.
Samsetning fóðurs fyrir hin-
ar einstöku tegundir búfjár og
notkun kjarnfóðurs er vísinda-
grein, sem hver bóndi á að til-
einka sér eftir megni, með að-
st*i ei0m reynslu og niðurstöð-
söluferðir, ef þeir afla sæmilega
þessa dagana.
Allmiklar húsabvggingar
standa yfir. Byrjað var á sjö
íbúðum og miklu fleiri eru í
smíðum og er mikil byggingar-
vinna. Auk þess er Aðalsteinn
Loftsson að láta byggja frysti-
geymslur við fiskverkunarhús
sitt, og sonur hans, Þorsteinn,
er að byggja minkabú á Böggvis
stöðum. Mun hann ætla að fá
dýr í það nú í vetur. □
ALBERT SÖLVASON
LÁTINN
ALBERT SÖLVASON, Akur-
eyri, lézt 6. nóvember og verð-
ur jarðsettur n. k. laugardag.
Hann var 64 ára, Skagfirðingur
að ætt og uppruna, en fluttist
til Akureyrar 1940, ketil- og
plötusniiður, hagur atorkumað-
ur og stundaði iðn sína á nieðan
kraftar entust.
Albert Sölvason tók mikinn
þátt í félagsmálum og naut
livarvetna hins fyllsta trúnaðar
vegna góðra hæfileika sinna,
áhuga á framfara- og menning-
armálum og drengskapar í orði
og verki. □
um fóðurrannsókna. Kjarnfóð-
urkaup hafa verið mikil hér á
landi og einn stærsti kostnaðar-
liður búanna. Er því nauðsyn,
að þessi þáttur í fóðri búpen-
ings, sé eins hagkvæmur og tök
eru á.
Leiðbeiningabók SÍS um fóð-
ur, er umtalsverð viðleitni í
þessa átt. □
Heimild til uppsagnar
Á ALMENNUM fundi í Félagi
verzlunar- og skrifstofufólks á
Akureyri hinn 4. nóv. sl., var
stjórn og fulltrúaráði veitt
heimild til verkfallsboðunar.
(Fréttatilkynning)
Leiðbeiningar um fóður