Dagur - 10.11.1971, Blaðsíða 1

Dagur - 10.11.1971, Blaðsíða 1
l®^\ i* idavd® papp'w AKUREYRI FILMUhúsio Sjóvamargarður aftur á dagskrá Grímsey 8. nóv. Komið er ágætt veður, eftir norðan hvassviðrið um helgina. Föl er á eynni. Engir skaðar urðu. Þegar gefur á sjóinn aflast vel, en ógæftir hafa verið þótt tíð hafi verið góð að öðru leyti. Einn bátur rær með línu en aðrir fiska á handfæri. í síðustu viku var dálítið róið og var þá ágætur afli. En dagar eru farn- ir að styttast, svo að ekki er hægt að sækja langt. Búið er að taka allan fiskinn hjá okkur og farið að safna nýjum birgðum, svo að eitthvað verði til hjá okkur fyrir ára- mótin. Nú er sjóvarnargarðurinn sæli kominn á dagskrá á ný. Þörfin á að byggja hann, er knýjandi, ekki aðeins fyrir okk- ur, heldur marga aðra, sem fiska á miðunum hér í kring. I sumar kom hér bæði sam- göngumálaráðherrann og flug- málastjórinn til að skoða flug- völl og höfn. Þótti okkur koma þeirra góð, því að svo háttsettir menn sjást hér ekki vanalega, helzt að þingmannaefni skjótist til okkar rétt fyrir kosningar. S. S. Fólkið meí sfærsfu prófin Ófeigsstöðum 8. nóv. Snjór er lítill og fært úr sveitum til Húsavíkur. í dag er norðan skætingsveður og snjókoma. Illfært er til Akureyrar eins og er, en veginn átti að opna í dag. Sauðfé hér um slóðir var allt í húsi þegar stórhríðin skall á, aðfararnótt sl. sunnudags, því betur, en lítið er búið að gefa nema lömbum. Heimtur voru góðar. Sláturfé var með betra móti máski með bezta móti mið- að við síðari ár. Heyforði á að vera betri og meiri en um mörg undanfarin ár, eftir óvenjulega hagstæða sumartíð. Ekki voru köl. Stórutjarnarskóla á að setja í dag, ef veður hamlar ekki. Á laugardaginn var jarðsung- in á Lundarbrekku Guðbjörg Sigurðardóttir frá Lækjarvöll- um, Bárðardal. Hún var dóttir Sigurðar ráðherra í Yztafelli Jónssonar, öldruð kona. En í dag, mánudag, verður jarðsung- inn að Garðshorni, Kinn, Hauk- ur Ingjaldsson bóndi, aldraður merkismaður. Hann var upp- finningarmaður í búskap. Á morgun verður jarðsunginn á Hálsi í Fnjóskadal, Stefán Tryggvason fyrrv. oddviti á Hallgilsstöðum. Til eru sjóðir minninga um þetta fólk. Það tók stærstu próf- in, sem tekin eru í skóla lífsins. B. B. Tveir ráðherrar koma norður Á LAUGARDAGINN 13. nóv. verður almennur fundur í Borg arbíói á Akureyri, á vegum Framsóknarmanna. . Einar Ágústsson utanríkisráðherra mætir á fundinum og flytur ræðu, ennfremur Ingvar Gísla- son alþingismaður. Umræðuefni verður stjórnar- stefnan, landhelgis- og varnar- mál. Fundurinn hefst kl. 4 e. h. Bæjarbúar og aðrir eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Á Húsavík mætir Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra ásamt Stefáni Valgeirssyni al- þingismanni, á fundi Fram- sóknarmanna þar, og hefst fund urinn kl. 4 laugardaginn 13. nóvember. Ennfremur mæta þeir Hall- dór E. Sigurðsson og Stefán Valgeirsson á fundi á Grenivík föstudaginn 12. nóv. og hefst fundurinn kl. 9.30. □ ^Einar Ágústsson, utanríkisráðherra. Ingvar Gíslason, alþingismaður. Dalvik. Alvinna er meiri en nægileg á (Ljósm.: E. D.) Dðlvík MINKABÚ RÍS Á BÖGGVISSTÖÐUM í VIÐTALI við sveitarstjórann á Dalvík, Hilmar Daníelsson, á mánudaginn, kom m. a. fram. Snjór er nokkur, fært á stór- um bílum til Akureyrar. Okkur tókst ekki að koma nýju sund- lauginni fyrir að fullu áður en veður spilltist, en næsta góðan veðurdag verður þessu lokið og Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra. Stefán Valgeirsson, alþingismaður. þá mun ekki standa á fólki að fá sér sundsprett í hinni nýju plastsundlaug. Unnið hefur verið við skóla- lóðina ásamt uppsetningu varan legrar girðingar, sem ekki er að fullu lokið. Þá hafa í sumar farið fram jarðvegsskipti í göt- um. Steyptur var götukafli fyrir tveim árum, en nú er ætlunin að halda áfram við gerð slitlags á götum staðarins. En því mið- ur veröur að undirbyggja allar götur, sem eldri eru en frá 1965. Atvinna er meiri en nóg og er erfitt að fá fólk til nauðsyn- legra starfa eins og er, og hefur t. d. ekki gengið of vel að fá nægan vinnukraft til frystihúss- ins. Mjög tregt fiskirí hefur verið hjá togbátunum nú undanfarið, en smærri dekkbátum fjölgaði um fjóra í sumar, 8—26 tonna. Dekkbátar eru því alls orðnir hér einir sjö eða átta og eitt- hvað af trillum, auk togbát- anna Björgvins og Björgúlfs. Þessi bátafloti hefur haldið uppi fullri vinnu í frystihúsinu, lengst af. Nú er í athugun, að þeir Björgvin og Björgúlfur fari í SUMAR gaf SÍS út vandaðan leiðbeiningabækling um fóður. Ætti hann að vera til á hverjum bóndabæ, sem auðveld og skýr handbók fyrir alla þá, sem nota innlent og erlent kjarnfóður. En SÍS hefur löngum verið stærsti innflytjandi fóðurvara, og með aðstoð innlendra og erlendra fóðurfræðinga og reynslu bændanna sjálfra hefur tekizt að svara fóðurþörfinni á skynsamlegan hátt. Samsetning fóðurs fyrir hin- ar einstöku tegundir búfjár og notkun kjarnfóðurs er vísinda- grein, sem hver bóndi á að til- einka sér eftir megni, með að- st*i ei0m reynslu og niðurstöð- söluferðir, ef þeir afla sæmilega þessa dagana. Allmiklar húsabvggingar standa yfir. Byrjað var á sjö íbúðum og miklu fleiri eru í smíðum og er mikil byggingar- vinna. Auk þess er Aðalsteinn Loftsson að láta byggja frysti- geymslur við fiskverkunarhús sitt, og sonur hans, Þorsteinn, er að byggja minkabú á Böggvis stöðum. Mun hann ætla að fá dýr í það nú í vetur. □ ALBERT SÖLVASON LÁTINN ALBERT SÖLVASON, Akur- eyri, lézt 6. nóvember og verð- ur jarðsettur n. k. laugardag. Hann var 64 ára, Skagfirðingur að ætt og uppruna, en fluttist til Akureyrar 1940, ketil- og plötusniiður, hagur atorkumað- ur og stundaði iðn sína á nieðan kraftar entust. Albert Sölvason tók mikinn þátt í félagsmálum og naut livarvetna hins fyllsta trúnaðar vegna góðra hæfileika sinna, áhuga á framfara- og menning- armálum og drengskapar í orði og verki. □ um fóðurrannsókna. Kjarnfóð- urkaup hafa verið mikil hér á landi og einn stærsti kostnaðar- liður búanna. Er því nauðsyn, að þessi þáttur í fóðri búpen- ings, sé eins hagkvæmur og tök eru á. Leiðbeiningabók SÍS um fóð- ur, er umtalsverð viðleitni í þessa átt. □ Heimild til uppsagnar Á ALMENNUM fundi í Félagi verzlunar- og skrifstofufólks á Akureyri hinn 4. nóv. sl., var stjórn og fulltrúaráði veitt heimild til verkfallsboðunar. (Fréttatilkynning) Leiðbeiningar um fóður

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.