Dagur - 10.11.1971, Blaðsíða 8
o
Ú>
SMÁTT & STÓRT
Valur Arnþórsson flytur ávarp sitt.
Kaupfélögin á Akureyri og í Vesferos
■>ANN 16. september sl. opnaði
xaupfélagið í Vasterás, vinabæ
Akureyrar í Svíþjóð, eitt
stærsta og fullkomnasta vöru-
hús þar í landi, en öll vöruhús
samvinnumanna í Svíþjóð nefn-
ast Domus og hefir þeim fjölgað
mjög ört hin síðari ár. Sam-
vinnuhreyfingin stendur traust-
um. fótum í Vasterás en nýlokið
er sameiningu allra kaupfélaga
: Vástmanlandsfylki, í eitt stórt
kaupfelag, Kaupfélag Vastman-
ands, með nær 50 þús. meðlimi.
Arið 1937 byggði kaupfélagið í
Vásterás fyrsta vöruhúsið þar í
íandi, utan Stokkhólmsborgar,
en a árunum 1968—70 varð það
ásamt ýmsum fleiri byggingum
að víkja fyrir hinu nýja húsi.
Nýja Domus-vöruhúsið er 3
næðir, og stendur í miðri borg-
inni. Það er samtals 32.000 ma
auk 7000 m2 bílastæðis á þaki
þess, en alls eru bílastæði 420 í
íúsinu. Sölurýmið er samtals
12.000 m2 — svipað og 2 knatt-
spyrnuvellir —■ og vöruval geysi
nikið. Veitingaaðstaða er
jrennskonar í húsinu, og hefur
samtals sæti fyrir 540 gesti.
Starfsfólk er um 350, þar af
únnur um helmingur hluta úr
degi. Áætluð heildarvöruvelta
Ðomus-vöruhússins fyrsta heila
starfsárið samsvarar rösklega
einum milljarði ísl. króna.
Sumarið 1969 kom 45 manna
hópur frá Kaupfélagi Vástman-
lands, félagsstjórn, fram-
kvæmdastjórn og ýmsir forráða
menn samvinnufyrirtækja í
Vasterás, í heimsókn til Akur-
eyrar. Buðu þeir þá fjórum full-
trúum KEA ásamt eiginkonum
að vera við vígslu vöruhússins
þann 16. sept. 1971. Við vígsluna
mættu svo fyrir kaupfélagsins
hönd Valur Arnþórsson, kaup-
félagsstjóri, Finnbogi S. Jónas-
son og Gunnlaugur P. Kristins-
son ásamt eiginkonum og nutu
mikillar gestrisni og mjög vin-
samlegra móttöku samvinnu-
manna í hinum sænska vinabæ.
Við opnunina afhenti Valur
Arnþórsson, kaupfélagsstjóri,
Kaupfélagi Vástmanlands lág-
mynd eftir Ragnar Kjartansson
að gjöf frá Kaupfélagi Eyfirð-
(Framhald á blaðsíðu 2)
ÞOTUFLUG LOFTLEIÐA
Sá sögulegi atburður gerðist á
föstudaginn, að Rolls Royce-
flugvél Loftleiða, að nafni Leif-
ur Eiríksson, flaug sitt síðasta
farþegaflug yfir Atlantshafið og
var hún síðasta farþegaskrúfu-
þota félagsins og verður hún
hér eftir í vöruflutningum. En
sama dag tóku Loftleiðir í
notkun nýja þotu, Leif Eiríks-
son að nafni, 'og eru nú þotur á
öllum áætlunarleiðum Loft-
leiða. Gömlu Rolls Royce-vél-
arnar, 5 að tölu, fluttu nær
milljón farþega í ferðum sínum.
f fréttum er sagt frá þeirri vega
lengd, sem þessar vélar liafa
farið, og var miðað við fjarlægð
tunglsins í því sambandi.
SINN ASKIPTI
f kosningabaráttunni sl. vor
töldu stríðshetjur þáverandi
stjórnarflokka það liið mesta
„siðleysi“ og nánast glæpur, e£
íslendingar hreyfðu hönd eða
fót í landhelgismálinu fyrr en
eftir hafréttarráðstefnuna 1973.
Fyrir nokkrum dögum lýstu
þeir Jóhann Hafstein og Bene-
dikt Gröndal því yfir í sjón-
varpsþætti, að þeir styddu ein-
huga áform núverandi ríkis-
stjórnar í landhelgismálinu og
er komið nýtt hljóð í strokkinn.
Ber að fagna þeim sinnaskipt-
um.
V ARN ARLIÐIÐ
Fyrrverandi ríkisstjórn hafði
hvorki hug né dug til að færa
út landhelgina eða ákveða end-
urskoðun varnarsamningsins
síðustu tólf árin. Var tími til
Á Húsavík eru 40 íbúðarhús í smiðum
Gistihús og gagnfræðaskólahús í byggingu
FYRIR skömmu var stofnað
ferðamálafélag fyrir Þingeyjar-
sýslur og Húsavíkurkaupstað,
og heitir Ferðamálafélag Þing-
eyinga. Formaður þess er Hauk
ur Logason fulltrúi í K. Þ. Til-
gangur félagsins er að efla ferða
mál, bæta móttökur og auka
ferðamannastrauminn. Var
áhugi mikill á þessu máli. Með
Hauki í stjórn félagsins eru:
Jón Illugason, Oskar Ágústsson,
Kristján Ármannsson og Hjört-
ur Tryggvason.
Reytingsafli er þegar gefur
og eru það einkum dekkbátarn-
ir, sem róa, en þeir eru á öðrum
tug talsins og trillur allt að sjö-
tíu. Frystihúsið hefur því hrá-
efni nema þegar ógæftir hamla-
veiðum.
Atvinna er ágæt. Allmikil
vinna er við útskipun á kísilgúr,
svona öðru hverju. Skipakomur
munu hér tíðari en annarsstað-
ar á Norðurlandi, eða til jafn-
aðar um 20 flutningaskip á
mánuði.
Hjá bænum voru vatnsveitu-
framkvæmdir, m. a. vegna nýja
sláturhússins, og gatnagerð
vegna nýrra íbúðarhúsa, ásamt
hitaveitulögn í þau. Fjárfrek-
asta framkvæmdin hjá bænum
Sauðárkróki 9. nóv. Hegranesið
og Drangey hafa undanfarið
aflað fyrir erlendan markað og
selt í Grimsby. Mjög gott verð
nefur fengizt fyrir aflann og má
með sanni segja, að um metsölu
hafi verið að ræða í hverri sölu-
férð. Nú í gær seldi Hegranesið
KÖKUBAZAR
ÖNNUM kafnar hjúkrunarkon-
nr halda kökubazar á Hótel
KEA á sunnudaginn, til ágóða
fyrir Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri. Er þar um að ræða
margar tegundir og eflaust góm
sætar og hollar.
Til þess mun ætlast, að marg-
ir komi og kaupi þetta heima-
bakaða brauð hjúkrunarkvenn-
anna. Og hvers vegna ekki að
reyna viðskiptin, gera hag-
kvæm kaup, styrkja gott mál-
efni og þakka konum fram-
takið? □
og fékkst 44.65 króna meðalverð
fyrir aflann.
Miklar byggingaframkvæmd-
ir hafa verið hér í sumar og
alveg fram á þennan tíma, því
að veðurfarið hefur verið með
eindæmum gott. Fólksfjölgun
er hér mikil og mjög mikil eftir
spurn eftir húsnæði. Tvö fjöl-
býlishús eru hér í smíðum.
Annars eru nær eingöngu
byggð einbýlishús. Verið er að
reisa dvalarheimili fyrir aldrað
fólk. Er þár um fjórar íbúðir að
ræða. Sauðárkróksbær, sýslu-
nefnd Skagafjarðar og kirkju-
samtökin í Skagafirði standa að
þessari framkvæmd.
Um síðustu helgi var hér
haldinn fundur með þin.gmönn-
um kjördæmisins, sem boðaður
var af bæjarstjórn Sauðárkróks.
Þar voru hin ýmsu málefni bæj
arins rædd og þingmönnum
kynnt það sem efst er á baugí
í vaxandi bæ eins og Sauðár-
króki. Mörg vandamál kalla á
úrlausn. Framkvæmdir bæjar-
ins hafa verið miklar, en tekju-
stofnar bæjarfélagsins mjög tak
markaðir, eins og reyndar allra
bæjarfélaga.
Til Sauðárkróks er nú kom-
inn nýr prestur, séra Tómas
Sveinsson, og kona hans, frú
Unnur Halldórsdóttir, en hann
tók við af séra Þóri Stephensen,
er fluttist suður til Reykjavík-
ur. Séra Tómas og frú Unnur
hafa þegar hafið starf sitt í
söfnuðinum. Sérstaklega ber að
fagna því æskulýðsstarfi, sem
þau hjónin vinna hér að.
Á laugardaginn var dansleik-
ur í Miðgarði, þar sem fjöl-
menni var, enda um fjáröflunar
dansleik að ræða á vegum Lions
klúbbs Sauðárkróks. Menn og
konur skemmtu sér hið bezta.
En gamanið tók af þegar dans-
leiknum lauk og gestir tóku að
(Framhald á blaðsíðu 7)
er bygging gagnfræðaskólans,
og er húsið tilbúið undir tré-
verk og ætlunin er að taka þar
tvær kennslustofur í notkun í
vetur. Ennfremur er hótelbygg-
ing við félagsheimilið í smíðum
og verið að steypa þriðju hæð-
ina, en kaupstaðurinn og kaup-
félagið eru þar stærstir hlut-
hafar. Þá hefur efsta hæð
sjúkrahússbyggingarinnar verið
fullgerð og verður væntanlega
tekin í notkun um miðjan des-
ember. Þar bætast við 37 sjúkra
rúm, en sennilega verða 17 rúm
tekin í notkun til að byrja með.
Á Húsavík eru fjórir starfandi
læknar og er þar óformleg
læknamiðstöð.
Mikið er byggt nú. Um 40
íbúðarhús eru í smíðum og
byrjað á þeim öllum á þessu ári.
Þetta verður 10% aukning á
íbúðarhúsnæði í bænum, en þó
er mikill húsnæðisskortur enn.
Tékkneskur maður, Ladislav
Vojka, æfir hér lúðrasveit og
karlakór. Steingrímur Sigfús-
son æfir kirkjukórinn. □
komimi, að taka þau mál á dag-
skrá. Engin ákvörðun hefur ver
ið tekin í varnartnálunum. önn-
ur en sú, að endurskoðaður
verði vamarsamhingurinn urn
dvöl vamarliðsins. hér á landi
o. £1. í því sambandi. Sú endur-
skoðun getur nauraast órkað
tvímælis. ítarleg könnun þess
ntáls, sem nú er gerð undir
stjórn Einars Ágústssonar ttten-
ríkisráðherra og viðrivður' Ls«
lenzkra stjórnvalda við Banda-
ríkjastjóm og stjórnir aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins,
eiga að vísa veginn í því niáli,
í stað upphrópana unt einstaka
þætti þess, sem heyrzt hafá,
KONURNAR í SVISS
Nú í haust fengu konur í Sviss
að kjósa til þings í fyrsta skipti
þar í landi, og fengu þær einnig
kjörgengi og koinust að á nokkr
um stöðum. Á kjörskrá voru
fleiri konur en karlar. Mönnum
þykir það undarlegt -wi á tím-
um, að konur hlytu ekki þenn-
an rétt miklu fyrr. Hitt er enn
merkilegra, að í þjóðaratkvæða
greiðslu um kosningarétt
kvenna þar í landi, fengu þær
þennan rétt með naumum meiri
hluta, og kjörsókn var aðeins
50%.
FJÓRAR Á ÞINGI
Nú sitja fjórar konur á Alþingi
og hefur það ekki gerzt áður, að
svo margar konur hafi setið þar
samtímis, Þrjár konur, þær
Svava Jakobsdóttir (AB), Auð-
ur Auðuns (S), og Ragnhildur
Helgadóttir (S), eiga sem kunn
ugt er sæti á AlþingL Svo tók
hins vegar Bjarnfríður Leós-
dóttir (AB) sæti Jónasar Árna-
sonar á þingi, sem annar vara-
maður þingmafansins,. en Skúli
Alexandérsson, sem setið hefur
á þingi fy.rir Jónas og,er 1. vara
maður, þurfti frá að hverfa
vegna anna við sveitarstjórnar-
störf. Á síðasta kjörtímabili átti
ein kona sæti á þingi, Auður
Auðuns.
Fréttatilkynning
STOFNAD hefur verið norðan-
lands félagið Heyrn, samtök til
stuðnings heyrnarskertu fólki,
og til að vinna að málefnum
þess. Stofnfundur hefur verið
haldinn og framhaldsstofnfund-
ur hefur v.erið ákveðinn laugar-
daginn 13. nóv. kl, 14 í Oddeyr-
arskólanum, Aku'reyri.
Þar verður lagt fram frum-
varp til laga fyrir samtökin,
kosin stjórn og starfið skipu-
lagt. Allir sem hafa áhuga á
málefninu eru velkomnir á
fundinn.
Jóhannés Óli Sæmundsson,
Valdís .Tónsdóttir,
Sigurður Flosason.
Stórutungu 6. nóv. Haustið hef-
ur verið misviðrasamt og kalt.
Snjóað hefur öðru hverju, en
tekið fljótt aftur svo hauststörf
gengu sinn vana gang.
Sláturfé var vænna en í fyrra,
ef miða á við það „hallærisár".
í haust eru sett á fleiri lömb en
áður, því nú þarf að ná upp
fjártölunni aftur, eftir fækkun-
ina í fyrra. Það tekst þó ekki á
einu ári.
Heimtur eru slæmar á lömb-
um, aðalllega á bæjum austan
fljótsins, sem eiga land á heið-
inni þar austuraf. Á annað
hundrað lömb wim vanta, upp í
20 á búi. Þetta verður ekki rak-
ið til annars en áfellisins í
ágúst. Mýrarfiar á heiðinni eru
hættulegar þegar slíkt veður
gerir og allt floir í krapi. Lítið
af þessu fé hefur fundizt.
í haust fór jarðýta um sveit-
ina og braut land til ræktunar.
Enginn uppgjafatónn er í fólki
hér.
29. þ. m. andaðist á Sjúkra-
húsinu á Húsavík Guðbjörg Sig
urðardóttir á Lækjavöllum, 80
ára að aldri. Hún átti við mikla
vanheilsu að stríða hin síðari
ár, en dvaldi þó lengst af á
hetmih sínu. Þ. J.