Dagur - 10.11.1971, Page 8

Dagur - 10.11.1971, Page 8
o Ú> SMÁTT & STÓRT Valur Arnþórsson flytur ávarp sitt. Kaupfélögin á Akureyri og í Vesferos ■>ANN 16. september sl. opnaði xaupfélagið í Vasterás, vinabæ Akureyrar í Svíþjóð, eitt stærsta og fullkomnasta vöru- hús þar í landi, en öll vöruhús samvinnumanna í Svíþjóð nefn- ast Domus og hefir þeim fjölgað mjög ört hin síðari ár. Sam- vinnuhreyfingin stendur traust- um. fótum í Vasterás en nýlokið er sameiningu allra kaupfélaga : Vástmanlandsfylki, í eitt stórt kaupfelag, Kaupfélag Vastman- ands, með nær 50 þús. meðlimi. Arið 1937 byggði kaupfélagið í Vásterás fyrsta vöruhúsið þar í íandi, utan Stokkhólmsborgar, en a árunum 1968—70 varð það ásamt ýmsum fleiri byggingum að víkja fyrir hinu nýja húsi. Nýja Domus-vöruhúsið er 3 næðir, og stendur í miðri borg- inni. Það er samtals 32.000 ma auk 7000 m2 bílastæðis á þaki þess, en alls eru bílastæði 420 í íúsinu. Sölurýmið er samtals 12.000 m2 — svipað og 2 knatt- spyrnuvellir —■ og vöruval geysi nikið. Veitingaaðstaða er jrennskonar í húsinu, og hefur samtals sæti fyrir 540 gesti. Starfsfólk er um 350, þar af únnur um helmingur hluta úr degi. Áætluð heildarvöruvelta Ðomus-vöruhússins fyrsta heila starfsárið samsvarar rösklega einum milljarði ísl. króna. Sumarið 1969 kom 45 manna hópur frá Kaupfélagi Vástman- lands, félagsstjórn, fram- kvæmdastjórn og ýmsir forráða menn samvinnufyrirtækja í Vasterás, í heimsókn til Akur- eyrar. Buðu þeir þá fjórum full- trúum KEA ásamt eiginkonum að vera við vígslu vöruhússins þann 16. sept. 1971. Við vígsluna mættu svo fyrir kaupfélagsins hönd Valur Arnþórsson, kaup- félagsstjóri, Finnbogi S. Jónas- son og Gunnlaugur P. Kristins- son ásamt eiginkonum og nutu mikillar gestrisni og mjög vin- samlegra móttöku samvinnu- manna í hinum sænska vinabæ. Við opnunina afhenti Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri, Kaupfélagi Vástmanlands lág- mynd eftir Ragnar Kjartansson að gjöf frá Kaupfélagi Eyfirð- (Framhald á blaðsíðu 2) ÞOTUFLUG LOFTLEIÐA Sá sögulegi atburður gerðist á föstudaginn, að Rolls Royce- flugvél Loftleiða, að nafni Leif- ur Eiríksson, flaug sitt síðasta farþegaflug yfir Atlantshafið og var hún síðasta farþegaskrúfu- þota félagsins og verður hún hér eftir í vöruflutningum. En sama dag tóku Loftleiðir í notkun nýja þotu, Leif Eiríks- son að nafni, 'og eru nú þotur á öllum áætlunarleiðum Loft- leiða. Gömlu Rolls Royce-vél- arnar, 5 að tölu, fluttu nær milljón farþega í ferðum sínum. f fréttum er sagt frá þeirri vega lengd, sem þessar vélar liafa farið, og var miðað við fjarlægð tunglsins í því sambandi. SINN ASKIPTI f kosningabaráttunni sl. vor töldu stríðshetjur þáverandi stjórnarflokka það liið mesta „siðleysi“ og nánast glæpur, e£ íslendingar hreyfðu hönd eða fót í landhelgismálinu fyrr en eftir hafréttarráðstefnuna 1973. Fyrir nokkrum dögum lýstu þeir Jóhann Hafstein og Bene- dikt Gröndal því yfir í sjón- varpsþætti, að þeir styddu ein- huga áform núverandi ríkis- stjórnar í landhelgismálinu og er komið nýtt hljóð í strokkinn. Ber að fagna þeim sinnaskipt- um. V ARN ARLIÐIÐ Fyrrverandi ríkisstjórn hafði hvorki hug né dug til að færa út landhelgina eða ákveða end- urskoðun varnarsamningsins síðustu tólf árin. Var tími til Á Húsavík eru 40 íbúðarhús í smiðum Gistihús og gagnfræðaskólahús í byggingu FYRIR skömmu var stofnað ferðamálafélag fyrir Þingeyjar- sýslur og Húsavíkurkaupstað, og heitir Ferðamálafélag Þing- eyinga. Formaður þess er Hauk ur Logason fulltrúi í K. Þ. Til- gangur félagsins er að efla ferða mál, bæta móttökur og auka ferðamannastrauminn. Var áhugi mikill á þessu máli. Með Hauki í stjórn félagsins eru: Jón Illugason, Oskar Ágústsson, Kristján Ármannsson og Hjört- ur Tryggvason. Reytingsafli er þegar gefur og eru það einkum dekkbátarn- ir, sem róa, en þeir eru á öðrum tug talsins og trillur allt að sjö- tíu. Frystihúsið hefur því hrá- efni nema þegar ógæftir hamla- veiðum. Atvinna er ágæt. Allmikil vinna er við útskipun á kísilgúr, svona öðru hverju. Skipakomur munu hér tíðari en annarsstað- ar á Norðurlandi, eða til jafn- aðar um 20 flutningaskip á mánuði. Hjá bænum voru vatnsveitu- framkvæmdir, m. a. vegna nýja sláturhússins, og gatnagerð vegna nýrra íbúðarhúsa, ásamt hitaveitulögn í þau. Fjárfrek- asta framkvæmdin hjá bænum Sauðárkróki 9. nóv. Hegranesið og Drangey hafa undanfarið aflað fyrir erlendan markað og selt í Grimsby. Mjög gott verð nefur fengizt fyrir aflann og má með sanni segja, að um metsölu hafi verið að ræða í hverri sölu- férð. Nú í gær seldi Hegranesið KÖKUBAZAR ÖNNUM kafnar hjúkrunarkon- nr halda kökubazar á Hótel KEA á sunnudaginn, til ágóða fyrir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Er þar um að ræða margar tegundir og eflaust góm sætar og hollar. Til þess mun ætlast, að marg- ir komi og kaupi þetta heima- bakaða brauð hjúkrunarkvenn- anna. Og hvers vegna ekki að reyna viðskiptin, gera hag- kvæm kaup, styrkja gott mál- efni og þakka konum fram- takið? □ og fékkst 44.65 króna meðalverð fyrir aflann. Miklar byggingaframkvæmd- ir hafa verið hér í sumar og alveg fram á þennan tíma, því að veðurfarið hefur verið með eindæmum gott. Fólksfjölgun er hér mikil og mjög mikil eftir spurn eftir húsnæði. Tvö fjöl- býlishús eru hér í smíðum. Annars eru nær eingöngu byggð einbýlishús. Verið er að reisa dvalarheimili fyrir aldrað fólk. Er þár um fjórar íbúðir að ræða. Sauðárkróksbær, sýslu- nefnd Skagafjarðar og kirkju- samtökin í Skagafirði standa að þessari framkvæmd. Um síðustu helgi var hér haldinn fundur með þin.gmönn- um kjördæmisins, sem boðaður var af bæjarstjórn Sauðárkróks. Þar voru hin ýmsu málefni bæj arins rædd og þingmönnum kynnt það sem efst er á baugí í vaxandi bæ eins og Sauðár- króki. Mörg vandamál kalla á úrlausn. Framkvæmdir bæjar- ins hafa verið miklar, en tekju- stofnar bæjarfélagsins mjög tak markaðir, eins og reyndar allra bæjarfélaga. Til Sauðárkróks er nú kom- inn nýr prestur, séra Tómas Sveinsson, og kona hans, frú Unnur Halldórsdóttir, en hann tók við af séra Þóri Stephensen, er fluttist suður til Reykjavík- ur. Séra Tómas og frú Unnur hafa þegar hafið starf sitt í söfnuðinum. Sérstaklega ber að fagna því æskulýðsstarfi, sem þau hjónin vinna hér að. Á laugardaginn var dansleik- ur í Miðgarði, þar sem fjöl- menni var, enda um fjáröflunar dansleik að ræða á vegum Lions klúbbs Sauðárkróks. Menn og konur skemmtu sér hið bezta. En gamanið tók af þegar dans- leiknum lauk og gestir tóku að (Framhald á blaðsíðu 7) er bygging gagnfræðaskólans, og er húsið tilbúið undir tré- verk og ætlunin er að taka þar tvær kennslustofur í notkun í vetur. Ennfremur er hótelbygg- ing við félagsheimilið í smíðum og verið að steypa þriðju hæð- ina, en kaupstaðurinn og kaup- félagið eru þar stærstir hlut- hafar. Þá hefur efsta hæð sjúkrahússbyggingarinnar verið fullgerð og verður væntanlega tekin í notkun um miðjan des- ember. Þar bætast við 37 sjúkra rúm, en sennilega verða 17 rúm tekin í notkun til að byrja með. Á Húsavík eru fjórir starfandi læknar og er þar óformleg læknamiðstöð. Mikið er byggt nú. Um 40 íbúðarhús eru í smíðum og byrjað á þeim öllum á þessu ári. Þetta verður 10% aukning á íbúðarhúsnæði í bænum, en þó er mikill húsnæðisskortur enn. Tékkneskur maður, Ladislav Vojka, æfir hér lúðrasveit og karlakór. Steingrímur Sigfús- son æfir kirkjukórinn. □ komimi, að taka þau mál á dag- skrá. Engin ákvörðun hefur ver ið tekin í varnartnálunum. önn- ur en sú, að endurskoðaður verði vamarsamhingurinn urn dvöl vamarliðsins. hér á landi o. £1. í því sambandi. Sú endur- skoðun getur nauraast órkað tvímælis. ítarleg könnun þess ntáls, sem nú er gerð undir stjórn Einars Ágústssonar ttten- ríkisráðherra og viðrivður' Ls« lenzkra stjórnvalda við Banda- ríkjastjóm og stjórnir aðildar- ríkja Atlantshafsbandalagsins, eiga að vísa veginn í því niáli, í stað upphrópana unt einstaka þætti þess, sem heyrzt hafá, KONURNAR í SVISS Nú í haust fengu konur í Sviss að kjósa til þings í fyrsta skipti þar í landi, og fengu þær einnig kjörgengi og koinust að á nokkr um stöðum. Á kjörskrá voru fleiri konur en karlar. Mönnum þykir það undarlegt -wi á tím- um, að konur hlytu ekki þenn- an rétt miklu fyrr. Hitt er enn merkilegra, að í þjóðaratkvæða greiðslu um kosningarétt kvenna þar í landi, fengu þær þennan rétt með naumum meiri hluta, og kjörsókn var aðeins 50%. FJÓRAR Á ÞINGI Nú sitja fjórar konur á Alþingi og hefur það ekki gerzt áður, að svo margar konur hafi setið þar samtímis, Þrjár konur, þær Svava Jakobsdóttir (AB), Auð- ur Auðuns (S), og Ragnhildur Helgadóttir (S), eiga sem kunn ugt er sæti á AlþingL Svo tók hins vegar Bjarnfríður Leós- dóttir (AB) sæti Jónasar Árna- sonar á þingi, sem annar vara- maður þingmafansins,. en Skúli Alexandérsson, sem setið hefur á þingi fy.rir Jónas og,er 1. vara maður, þurfti frá að hverfa vegna anna við sveitarstjórnar- störf. Á síðasta kjörtímabili átti ein kona sæti á þingi, Auður Auðuns. Fréttatilkynning STOFNAD hefur verið norðan- lands félagið Heyrn, samtök til stuðnings heyrnarskertu fólki, og til að vinna að málefnum þess. Stofnfundur hefur verið haldinn og framhaldsstofnfund- ur hefur v.erið ákveðinn laugar- daginn 13. nóv. kl, 14 í Oddeyr- arskólanum, Aku'reyri. Þar verður lagt fram frum- varp til laga fyrir samtökin, kosin stjórn og starfið skipu- lagt. Allir sem hafa áhuga á málefninu eru velkomnir á fundinn. Jóhannés Óli Sæmundsson, Valdís .Tónsdóttir, Sigurður Flosason. Stórutungu 6. nóv. Haustið hef- ur verið misviðrasamt og kalt. Snjóað hefur öðru hverju, en tekið fljótt aftur svo hauststörf gengu sinn vana gang. Sláturfé var vænna en í fyrra, ef miða á við það „hallærisár". í haust eru sett á fleiri lömb en áður, því nú þarf að ná upp fjártölunni aftur, eftir fækkun- ina í fyrra. Það tekst þó ekki á einu ári. Heimtur eru slæmar á lömb- um, aðalllega á bæjum austan fljótsins, sem eiga land á heið- inni þar austuraf. Á annað hundrað lömb wim vanta, upp í 20 á búi. Þetta verður ekki rak- ið til annars en áfellisins í ágúst. Mýrarfiar á heiðinni eru hættulegar þegar slíkt veður gerir og allt floir í krapi. Lítið af þessu fé hefur fundizt. í haust fór jarðýta um sveit- ina og braut land til ræktunar. Enginn uppgjafatónn er í fólki hér. 29. þ. m. andaðist á Sjúkra- húsinu á Húsavík Guðbjörg Sig urðardóttir á Lækjavöllum, 80 ára að aldri. Hún átti við mikla vanheilsu að stríða hin síðari ár, en dvaldi þó lengst af á hetmih sínu. Þ. J.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.