Dagur - 23.02.1972, Side 1
Á MÁNUDAGINN bauð Æsku-
lýðsráð Akureyrar fréttamönn-
um, bæjarstjóm o. fl. að skoða
þann stað, er um þessar mundir
er opnaður, sem æskulýðsheim-
ili. En það er Lón, félagsheimili
Karlakórsins Geysis, tvær efri
hæðir hússins.
Hafa ungmenni og fleiri unn-
ið þar að undanförnu við ýmis-
konar breytingar og skreyting-
ar, vegna breyttrar starfsemi.
Hermann Sigtryggsson æsku-
lýðsfulltrúi bauð gesti vel-
komna, er síðan hlýddu á söng
og spil og nutu ennfremur veit-
inga og ræðuhalda.
Á neðri hæð er dáns- og
fundarsalur, auk nokkurra smá
rimlabása, þar sem fólk getur
verið ofurlítið út af fyrir sig.
Þar er einnig aðstaða til veit-
inga.
Ungt fólk' hefúr ákaft óskað
þess að fá æskulýðsheimili til
sinna nota. Nú, þegar óskin
hefur verið uppfyllt, reynir á
hina ungu, að láta hina nýju
aðstöðu verða sér til yndis og
þroska.
Ingólfur Ármannsson er for-
maður húsnefndar, en Haraldur
Hansen er umsjónarmaður, með
aðstoð fleiri ungra manna. O
Á NÆSTU 2—3 árum er ráð-
gert að stækka togaraflota lands
manna með þrjátíu skuttogur-
um af ýmsum stærðum, og er
þetta stórátalc. Hins ber að geta,
að árið 1960 voru gerðir hér út
46 togarar, en nú aðeins 22.
Einnig ber að hafa í huga þá
möguleika, sem skapast til veiða
við útfærslu landhelginnar, og
við það hverfa 2—300 erlendir
togarar af miðunum.
Á blaðamannafundi í Reykja-
vík upplýsti sjávarútvegsráð-
herra, að af núverandi togara-
flota væru aðeins 5 skip til fram
búðar, en hinir 20—25 ára gaml-
ir og ættu því stuttan tíma eftir.
DAGUR
kemur næst út á laugardaginn,
vegna mikils efnis og auglýs-
inga. Efni og annað, sem nauð-
synlega þarf að koma í blaðinu
þá, þarf að berast sem fyrst.
Bændaklúbbsfundur
verður að Hótel KEA mánu-
dagskvöldið 28. þ. m. kl. 19.00.
Grétar Símonarson mjókurbús-
stjóri á Selfossi skýrir frá
reynslu Sunnlendinga varðandi
tankvæðingu til mjólkurflutn-
inga. □
raffðfans
En yfirlit ráðherra sýndi glöggt
í hvaða niðurlægingu togveiðar
voru komnar í tíð fyrrverandi
stjórnar, sem ekki hugsaði fyrir
endurnýjun togaraflotans, svo
að hann drafnaði niður.
Þá gat ráðherra þess, að á 19
skuttogara þyrfti jafn marga sjó
menn og nú á 11 nýsköpunar-
togara, og yrði því auðveldara
að fá togarasjómenn til starfa
en margir byggjust við.
Þeir togarar, sem væntanlega
munu bætast í íslenzka togara-
flotann á næstu 2—3 árum eru
8 togarar af stærri gerð (900—
1100 rúmlestir), þar af verða 2
smíðaðir innanlands. 12 aðilar
hafa uppfyllt skilyrði í sam-
bandi við kaup á skuttogurum
af stærðinni 400—500 lestir.
Til viðbótar þessari tölu koma
5—7 skip af þessari stærð. Þá er
verið að smíða einn togara af
þessari stærð innanlands, og
eru þetta því 20 skip.
Að auki eru líkur á að 3—4
skip af stærri gerðinni verði
keypt til viðbótar við áður
gerða samninga.
Þá minntist Lúðvík aðeins á
þá tvo litlu skuttogara, sem
gerðir hafa verið út frá Aust-
fjörðum sl. ár. Gat hann þess,
að þeir hefðu kostað 42 millj.
en hefðu fiskað fyrir 40 millj.
kr. á sl. ári. □
I
I
I
I
é
I
*)'
*
&
i
i
i
I
1
s
T
*
i
I
s
t
i
*
e>
I
©
I
1882 1902 1972
ISLENZK samvinnulireyfing á í dag merkisafmæli.
Kaupíélag Þingeyinga, elzta kaupfélag landsins, er 90
ára og 70 ár eru liðin frá stoínun Sambands íslenzkra
sanvv i nnufélaga.
A jjessum merku tímamótum vill Sambandið færa
hinum ljölmörgu félagsmönnunv Sanvbandskaupfélag-
anna og öllum viðskiptamönnum Sambandsins og íé-
laganna beztu kveðjur og þakkir fyrir viðskipti og
félagslegan stuðning á liðnum árum.
Það er von forráðamanna Sambandsins, að hinum
fjölmennu samvinnusamtökum auðnist á komandi ár-
um að leysa mörg framfaramál í hinum ýmsu byggðar-
lögum landsins til lieilla fyrir félagsfólkið og þjóðina
alla. Hér veltur mikið á því, að sem flestir gerist virkir
þátttakendur í samvinnufélögunum og sameini þannig
kraftana til nýrra átaka í atvinnu- og efnaliagsmálum
þjóðarinnar. — 20. febrúar 1972. —
Jakob Frímannsson Erlendur Einarsson
stjórnarformaður forstjóri
I
?
I
1
í
f
1
©
*
<■
?
f
?
*
?
*
f
?
I
?
Ý
<■
?
f
?
f
?
í
Á íuntli í stofunni á Þverá. Talið frá vinstri: Illugi Jónsson, Þráinn Þórisson, Baldvin Baldursson,
Finnur Kristjánsson, kaupfélagsstjóri, Úlfur Indriðason, stjórnarformaður, Jóhann Hermannsson,
Skapti Benediktsson og Sigurjón Jóhannesson.
(Ljósmynd: Jón Jóliannesson)
Aðalfimdur K. Þ. á Húsavík
minnist 90 ára afmælis síns og er í örum vexti
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA
hélt 91. aðalfund sinn dagana 19.
og 20. febrúar og minntist um
leið 90 ára afmælis síns með
ýmsum hætti. Bárust félaginu
margar kveðjur og góðar gjafir,
m. a. stórt málverk eftir Jón
Þorleifsson af stofnfundi Sam-
bandsins í Yztafelli árið 1902.
Fulltrúar á aðalfundinum
voru 117, auk endurskoðenda,
stjórnar, framkvæmdastjóra og
margra gesta úr hópi fyrrver-
andi forystuliðs félagsins.
Úlfur Indriðason stjórnarfor-
maður K. Þ. setti fundinn og
minntist þá þriggja látinna full-
trúa: Ásmundar Kristjánssonar,
Lindahlíð, Hauks Ingjaldssonar,
Garðshorni og Ketils Indriðason
ar, Fjalli.
Mesta framkvæmd K. Þ. á síð
asta ári var að ljúka sláturhús-
byggingunni, sem kostar 41
milljón. Einnig voru endurnýj-
aðar frystivélar í frystihúsinu
og keyptar trésmíðavélar.
Tekið var upp á árinu afslátt-
arkortakerfi, sem þótti gefast
vel og ennfremur lækkaði félag-
ið verulega álagningu á heilum
sekkjum.
Finnur Kristjánsson kaup-
félagsstjóri flutti skýrslu um
Frumsýmng M.A.
á sunnudaginn
UM þessar mundir standa yfir
hjá Leikfélagi Menntaskólans,
æfingar á leikritinu „Minkarn-
ir“ eftir Erling E. Halldórsson.
Þetta er fyrsta sviðssetning
verksins.
Leikstjóri er María Kristjáns-
dóttir og leikmynd gerði Ivan
Török.
Að uppsetningu verksins hafa
starfað milli 30 og 40 nemendur.
Einnig er tónlist við verkið
frumsamin og flutt af þeim.
Frumsýning er fyrirhuguð
sunnudaginn 27. febrúar.
L. M. A.
verzlun og viðskipti á liðnu ári.
Verzlun jókst verulega, eða um
25% og er það ekki aðeins verð-
hækkunaraukning, heldur einn-
ig veruleg magnaukning.
Niðurstöðutölur rekstrar-
reiknings eru 232.3 millj. kr. og
rekstrarhagnaður varð 2.45
millj. kr.
Aðalfundur ákvað að leggja
Norðlenzk
HINN 20. febrúar átti Kaup-
félag Þingeyinga 90 ára afmæli
og er það elzta kaupfélag lands-
ins. Sama dag átti Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga 70 ára
afmæli. Kaupfélagið var stofnað
á Þverá í Laxárdal, en Sam-
bandið var stofnað á Yztafelli
í Köldukinn, og eru sambands-
félögin 50 talsins. Þau annast
jöfnum höndum sölu á inn-
lendum afurðum og innfluttum
nauðsynjavörum, en mörg
þeirra annast einnig rekstur
frystihúsa og eiga þátt í útgerð,
og nokkur hafa verulegan iðn-
rekstur. Þó eru þau félög til, er
eru aðeins neytendafélög, s. s.
eins neytendafélög, svo sem
KRON í Reykjavík. Kaupfélag
Eyfirðinga er stærst þessara
félaga og hefur fjölbreyttasta
starfsemi og velta þess á sl. ári
fór yfir tvo milljarða króna.
Samband íslenzkra samvinnu
félaga rekur sjö aðaldeildir: Bú
vörudeild, Sjávarafurðadeild,
Innflutningsdeild, Véladeild,
Skipadeild, Iðnaðardeild og
Skipulagsdeild. Þar að auki má
nefna Samvinnuskólann, Bréfa-
skóla SÍS og ASÍ, og timaritið
Samvinnuna.
Stjórnarformenn Sambands-
ins frá upphafi hafa verið eftir-
taldir menn: Pétur Jónsson á
Gautlöndum 1902—1905 og 1910
—1922, Steingrímur Jónsson
1905—1910, Ólafur Briem 1922
—1925, Ingólfur Bjarnason 1925
—1938, Einar Árnason 1936—
1.2 millj. kr. í varasjóð, og sam-
þykkti tillögu stjórnarinnar,
sem haldinn var á Þverá í Lax-
árdal 17. febrúar sl. um að
leggja eina milljón kr. í Menn-
ingarsjóð K. Þ. í tilefni afmælis
ins og því fé verði síðar ráð-
stafað til menningarmála í hér-
aðinu.
Félögum hefur fjölgað veru-
lega að undanförnu og eru fé-
lagsmenn nú 1731.
(Framhald á blaðsíðu 5)
forysta
1948, Sigurður Kristinsson'‘1948
—1960, Jakob Frímannsson frá
1960.
í öndverðu voru formenn
Sambandsstjórnar jafnframt
framkvæmdastjórar Sambands-
ins, en síðan 1915 hafa eftir-
taldir menn gegnt starfi for-
stjóra: Hallgrímur Kristinsson
1915—1923, Sigurður Kristins-
son 1923—1946, Vilhjálmur Þór
1946—1954, Erlendur Einarsson
frá ársbyrjun 1955.
Má af þessu ljóst vera, að
hlutur Norðlendinga hefur ekki
eftir legið í málefnum landssam
taka samvinnufélaganna, eftir
að frumherjarnir höfðu rutt
brautina með tuttugu ára þrot-
lausu og sigursælu starfi. □
Jakob Frímannsson, formaður
Sambandsins.