Dagur - 26.02.1972, Síða 1
Landhelgisgæzlan til Akureyrar?
Plaströrum frá Reykjalundi skipað í land á Akureyri. (Ljósm.: E. D.).
Plaströr sunnan frá Reykjalundi verða nofuð í
siofnæð Vatnsveifu Ákureyrar
FJÓRÐUNGSSTJÓRN sam-
þykkti á fundi 21. þ. m., að
skora á Alþingi og ríkisstjórn,
að beita sér fyrir því, að höfuð-
stöðvar Landhelgisgæzlunnar
verði fluttar til Akureyrar.
Á Akureyri virðast vera ákjós
anleg skilyrði fyrir Landhelgis-
gæzluna. Landhelgisgæzlan er
ekki hluti af miðstjórnarkerfi
ríkisins og getur því verið stað-
sett þar sem hagstæð skilyrði
eru fyrir hendi.
Á Akureyri er hafnaraðstaða
mjög góð, og þar sem nú er
unnið að gerð aðalskipulags fyr-
ir bæinn, er mögulegt að gera
HANNES J.MAGNÚS-
SON LÁTINN
HANNES J. Magnússon lézt að-
fararnótt sl. laugardags á Lands
spítalanum. Hann fæddist 22.
marz 1899 að Torfumýri í Skaga
firði. Hannes lauk kennaraprófi
1932, starfaði á ýmsum stöðum
sem kennari, var síðast skóla-
stjóri Barnaskóla Akureyrar.
Hannes starfaði að félagsmál-
um, bindindis- og barnaverndar
málum, og vann að ritstörfum.
Hann var kvæntur Sólveigu
Einarsdóttur frá Fjarðarseli í
Seyðisfirði.
Utför hans fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag, laugardag. □
Reýnihlíð 24. febrúar. Veður-
blíðan er slík, að maður undr-
ast. ísinn á Mývatni mun bílfær
ennþá, en hann er auðvitað
miklu þynnri en þegar veðrátta
er köld. I vikunni sem leið
skaust frostið upp í 24 gráður,
eitt kvöldið, en frostlaust var
morguninn eftir, á fimmtudag-
inn.
í gær og fyrradag var unnið
að vegagerð á Neslandatanga,
en þar var verið að aka möl.
Tvö lömb fundust nýlega suð-
ur í Sellöndum. Þau litu vel út,
enda nægir hagar þar í vetur.
Lömbin fundust þegar menn
voru að líta eftir hrossum, sem
þar ganga, og átti þau Árni
bóndi Halldórsson í Garði.
Vinnuflokkur af Héraði kom
sérstakar- ráðstafanir í skipulagi
hafnarsvæðis bæjarins með til-
liti til- þarfa Landhelgisgæzlunn
ar, sem fælu í sér t. d. sérstök
hafnarmannvirki og lóð við
höfnina. Líklegt er, að kostur
geti orðið á- nýju skrifstofuhús-
næði í miðbænum- innan tíðar.
Dráttarbraut' ■ Akureyrarhafnar
getur tekið'öll' varðskipin upp
og hér er hægt að framkvæma
hverskyns skipaviðgerðir. Og á
Akureyrarflugvelli er stórt flug
skýli í eigu ríkisins og ágæt að-
staða til viðhalds flugvéla. Einn
ig er hér til nokkur flugvéla-
kostur, sem vonandi fer vax-
andi, og gæti reynzt hentugur
í ígripum.
Fjórðungssamband Norðlend-
inga væntir þess með tilvísun
til þeirrar yfirlýsingar ríkis-
stjórnar að stuðla að tilflutningi
opinberra stofnana úti um land,
að gerð verði heildarkönnun á
staðsetningu höfuðstöðva Land-
helgisgæzlunnar á Akureyri.
Með staðsetningu Landhelgis-
gæzlunnar á Akureyri væri
stigið athyglisvert spor í þá átt
að efla jákvæða byggðaþróun
og yrði vafalaust upphaf af
dreifingu annarra stofnana úti
um landið.
(Fréttatilkynning frá Fjórð-
ungssambandi Norðlendinga).
FRÉTTIR herma, að vart hafi
orðið garnaveiki í sauðfé í Norð
ur-Þingeyjarsýslu, þ. e. í Keldu-
hverfi. En svæðið á milli Jökuls
ár og Skjálfandafljóts hefur
verið laust við vágest þennan
fram að þessu.
Maíveður í Grímsev
j
Grímsey 24. febrúar. Veðráttan
er einstaklega góð, en gæftir
ekki að sama skapi. Þrír bátar
réru með línu í dag og eru tveir
þeirra komnir að og var aflinn
ekki mikill hjá þeim. Rauðmaga
veiði er mjög lítið stunduð. Sjó-
menn eru lengi að hreinsa net-
in, en þau vilja fyllast af þara
Hér er eiginlega maíveður, og
það eitt vantar að betur gefi á
sjó. S. S.
hingað um helgina og er að
byggja skemmu fyrir Kísiliðj-
una. Er það stækkun vöru-
geymslu, en þess var mikil þörf,
svo sem glögglega kom fram í
vetur. En þá var stöðvun fram-
leiðslunnar yfirvofandi, ef verk
fallið hefði staðið einum degi
lengur. En kísilgúrinn er léttur
og rúmfrekur, pokinn aðeins 23
kíló.
Léttsteypan hér í sveit, hefur
naumast haft undan í vetur og
eru steinarnir fluttir til Austur-
lands, Akureyrar og víðar. Það
eru bændur og heimilismenn í
Vogum og Reykjahlíð, sem hafa
félag um þessa framleiðslu.
Þarna vinna stöðugt 5—G menn.
P. J.
MEÐ Hofsjökli kom til Akur-
eyrar óvenjulegur flutningur
nú í vikunni. Það voru plaströr
frá Reykjalundi, sem nota á í
Þetta kom í ljós þegar innyfli
úr sjúkri kind voru send að
Keldum til rannsóknar.
Ströng gæzla átti að vernda
þetta svæði. En hvort hún hefur
brugðizt eða að sjúkdómurinn
hefur borizt með öðru en sauð-
fé, liggur ekki ljóst fyrir.
Sauðfjársjúkdómanefnd hefur
tekið mál þetta til meðferðar,
en ókunnugt er blaðinu um,
hvernig á málinu verður tekið.
EINAR Ágústsson utanríkisráð-
herra hefur afhent sendiherrum
Breta og V.-Þjóðverja í Reykja-
vík greinargcrðir, þar sem skýrt
er frá þeirri ákvörðun íslenzku
ríkisstjórnarinnar, að ný reglu-
gerð um 50 sjómílna fiskveiði-
takmörk komi til framkvæmda
1. september 1972.
Utanríkisráöherra boðaði
sendiherrana á sinn fund af
þessu tilefni í fyrradag.
í greinargerð eru rakin þau
aðalatriði landlielgismálsins,
sem svo oft hafa verið rakin og
rökstuðningur þessarar mikil-
vægu ákvörðunar íslenzkra
stjórnvalda, sem þjóðin nú
stendur saman um sem einn
maður.
Sendiherrarnir, sem ráðherra
boðaði á sinn fund eru John
Mckinzie frá Bretlandi og Karl
Rovvold frá V.-Þýzkalandi.
Með þessu hafa íslendingar
stigið það skref, sem tímamót-
stofnleiðslu hinnar nýju vatns-
veitu bæjarins. En vatnið verð-
ur tekið á Vaglaeyrum á Þela-
mörk og leitt 14 km leið til
bæjarins.
Plaströrin nýju eru tólf þuml-
ungar í þvermál og fimmtán
metra löng, og eiga að geta flutt
um 100 1. á sek. Þau eru svo
soðin saman með sérstakri vél.
Búið er að leggja 1200 metra
stálrör frá vatnsbóli í 120 m.
hæð upp hjá Krossastöðum.
Einnig er búið að koma fyrir
öflugum djúpdælum í tveim bor
holum á Vaglaeyrum. Verið er
að vinna við þriðju holuna.
Akureyringar nota nú yfir
100 1. á sek. af neyzluvatni. Á
vetrum minnkar vatn lindanna
í Hlíðarfjalli og hefur þurft til
um veldur í landhelgismálum,
og hljóta um leið að búa sig
undir þá sókn og vörn er því
fylgir. Framhald á bls. 7.
Einar Ágústsson
utanríkisráðherra.
þess að grípa, að nota verra
vatn til að mætá hinni miklu
vatnsnotkun. Var fyrirsjáan-
legt, að auka þyrfti vatn Vatns-
veitunnar með nýjum hætti og
voru ýmsir staðir rannsakaðir í
því skyni. Niðurstaðan varð sú,
að taka vatnið á Vaglaeyrum.
Þar er gott vatn, sem mestu
skiptir, og þar er nóg vatn.
í næsta mánuði verða nýju
plaströrin „lögð út“, þ. e. sett á
sinn stað og þau soðin saman,
en síðar í vor verða þau svo
lögð í skurð.
Vatnsveitustjóri á Akureyri
er Sigurður Svanbergsson. □
STRENGJASVEIT í
BORGARBÍÓI
Á LAUGARDAGINN
STRENGJASVEIT Tónlistar-
skólans í Reykjavík kemur fram
á 3. tónleikum Tónlistarfélags
Akureyrar í Borgarbíói laugar-
daginn 26. febrúar kl. 5 e. h.
Strengjasveitina skipa 10 ung
ar stúlkur, sem eru nemendur
Tónlistarskólans í Reykjavík,
en stjórnandi þeirra er Ingvar
Jónasson. 7 stúlknanna koma
einnig fram sem einleikarar
með hljómsveitinni.
Á efnisskránni eru verk eftir
Mozart, Hándel, Vivaldi, Gluck,
Ingvar Jónasson og fleiri. Einn-
ig flytur sveitin íslenzk þjóðlög
í útsetningu stjórnandans.
Stúlkurnar leika einnig fyrir
nemendur í Tónlistarskólanum
á Akureyri sama dag kl. 3 e. h.
Á sunnudaginn kemur strengja-
sveitin fram í Húsavíkurkirkju
kl. 4 e. h.
(Fréttatilkynning frá Tónlist-
arfélagi Akureyrar).
Bændaklúbbsfundur
NÆSTI fundur verður á mánu-
daginn, 28. febrúar. Grétar
Símonarson mjólkurbússtjóri á
Selfossi skýrir fré reynslu Sunn
lendinga varðandi tankvæðingu
til mjólkurflutninga.
Fundurinn hefst kl. 9 e. h. á
Hótel KEA. □
Vágestur í N-Þing.
Fundu tvö lömb í Sellöndum
Lsndhelgin 50 sjómílur l.sept.
Bretum og V-Þjóðverjum tilkynnt álvvörðunin