Dagur - 26.02.1972, Page 2

Dagur - 26.02.1972, Page 2
2 Hermannsiiiéii Enska knattspyrnan, staðar úíslit HAFSTEINN SIGURÐSSON VAR SIGGRSÆLL Uafsteinn Sigurðsson, ísafirði, nieð Hermannsbikarinn. Stórsvig karla: Tími 1. Hafsteinn Sigurðsson, í 88.10 2. Björn Haraldsson, H 88.90 3. Arnór Guðbjartsson, R 89.25 4. Hákon Ólafsson, S 89.97 5. Viðar Garðarsson, A 91.64 Hlið 50. Fallhæð 350 m. Lengd 1400 m. Stórsvig kvenna: Timi 1. Margrét Þorvaldsd., A 107.70 2. Karolína Guðm.d., A 136.13 3. Áslaug Sigurðard., R 148.91 Hlið 50. Fallhæð 350 m. Lengd 1400 m. Svig karla: Tími 1. Hafsteinn Sigurðss., í 102.97 2. Viðar Garðarsson, A 108.57 3. Ágúst Stefánsson, S 112.38 4. Haraldur Haraldss., H 124.96 5. ívar Sigmundsson, A 125.44 I Hlið 50. Fallhæð 180 m. Lengd 450 m. Svig kvenna: Tími 1. Margrét Þorvaldsd., A 121.98 2. Áslaug Sigurðard., R 224.36 Hlið 45. Fallhæð 175 m. Lengd 400 m. ! 15 km. ganga: Tími 1. Halldór Matthíasson, A 58.11 2. Sigurður Steingrímss., S 71.10 3. Guðjón Höskuldsson, í 74.15 I : 1 , Tvíkeppni, svig og stórsvig, ikarlar: Stig 1. Hafsteinn Sigurðsson, í 0.00 2. Viðar Garðarsson, A 53.13 3. Ágúst Stefánsson, S 98.42 4. Hákon Ólafsson, S 143.15 5. ívar Sigmundsson, A 150.80 K Tvíkeppni, svig og stórsvig, ikonur: Stig 2. Margrét Þorvaldsd., A 0.00 2. Áslaug Sigurðard., R 432.72 Starfsmenn: Mótsstjóri: Hermann Sig- tryggsson. Yfirtímaverðir: Frí- mann Gunnlaugsson og Guð- mundur Ketilsson. Tímaverðir: Óðinn Árnason, Baldvin Þor- steinsson, Leifur Tómasson, Július Björnsson, Árni B. Árna- son, Stefán Jónasson. Brautar- lagning: Reynir Pálmason Á MIÐVIKUDAGINN var léku Fram og Haukar í 1. deildinni í handknattleik og lauk þeirri við ureign með yfirburðasigri Fram og voru þeir þar með búnir að fá 2 Ostig. Á eftir léku Valur og FH og va rþað mikill baráttu- leikur sem endaði með jafn- tefli, 14:14, o gþar með var FH með 19 stig og Valur 14 stig og Fram því íslandsmeistarar 1972. Má segja að þeir hafi sigrað óvænt að þessu sinni. (svig), Guðmundur Ketilsson (ganga). Form hliðvarða: Tóm- as Leifsson. Hliðverðir og braut arverðir: Skíðafólk úr yngri flokkum. Ræsar: Jóhannes Hjálmarsson og Sigurbjörn Sveinsson. Veður mótsdagana mjög óhag stætt. Sunnan hvassviðri. Skara færi. □ Haukar féllu niður í II. deild, en þeir fengu aðeins 3 stig, og má þar eflaust um kenna brott- för tveggja af þeirra beztu mönnum til FH. Úrslit urðu þessi í I. deild: Fram 20 stig FH 19 stig Valur 14 stig Víkingur 14 stig KR 7 stig ÍR 7 stig Haukar 3 stig VID birtum hér fyrir þá, sem vilja fylgjast með ensku knatt- spyrnunni, stöðuna eins og hún er eftir síðustu umferð, í I. deild, og úrslit úr síðustu um- ferð. Staðan í I. deild: L. Liðin. Stig 29 Manch. City.............41 29 Leeds ..................39 29 Derby C.................38 29 Arsenal ................37 29 Tottenham ............. 35 29 Liverpool...............35 29 Wolves..................35 29 Manch. Utd..............35 28 Chelsea ...............33 29 Sheff. Utd.............33 29 Stoke ................. 27 29 Newcastle ..............26 29 West Ham................25 UNGLINGAMEISTARAMÓT íslands á skíðum fer fram á Akureyri 30. marz til 2. apríl 1972. Dagskrá mótsins er þessi: Fimmtudagur 3.0 marz: Kl. 11.00 Mótið sett. Kl. 14.00 Stórsvig. Kl. 16.00 Stökk. Laugardagur 1. apríl: Kl. 13.00 Svig. Kl. 16.00 Ganga. Sunnudagur 2. apríl: Kl. 11.00 Flokkasvig. 29 Everton ............. 25 29 Coventry .............25 29 Ipswich ..............25 28 Southampton......... 22 29 W. Bromwich .........22 29 C. Palace............20 30 Huddersfield.........20 30 Notth. For............15 Úrslit í síðustu viku: Mörk Chelsae—Leicester 2—1 Coventry—Wolves 0—0 Derby—Notth. For. 4—0 Ipswich—Arsenal 0—1 Leeds—Manch. Utd. 5—1 Liverpool—Sheff. Utd. 2—0 Manch. C.—Huddersf. 1—0 Newcastle—Everton 0—0 Tottenham—Stoke 2—0 West Brom.—Southampton 3—2 West Ham—Crystal P. 1—1 Kl. 13.30 Boðganga. Verðl.afhending. Mótsslit. Þátttökurétt hafa drengir fæddir 1955, 1956, 1957 og 1958, og stúlkur fæddar 1956, 1957 og 1958. (Flokkar: Drengir 13—14 ára og 15—16 ára. Stúlkur 13— 15 ára). Þátttökugjald er kr. 20.00 fyrir hvern keppanda í hverri grein og skal senda það með þátttökutilkynningunum. Þátttökutilkynningar berist Skíðaráði Akureyrar, pósthólf 557, fyrir 15. marz n. k. Skíðaráð Akureyrar. FRAM ÍSLANDSMEISTARI 1972 Unglingameistaramót íslands á skíðum haldið í Hlíðarfjalli SVOLÍTIÐ UM SUMARVEÐRÁTTU 1 OKTÓBERHEFTI tímaritsins H.eima er bezt minnist ritstjór- :lnn lítillega á hið nýliðna sum- ar. Helzt lítur út fyrir, að rit- stjórinn telji að sumarið nýliðna þoli varla samanburð við sumr- án 1934 og 1939. En þau sumur tvö segir hann, að verið hafi hlýjust á þessari öld. Ég varð allmjög undrandi, þegar ég sá, að þessum tveimur sumrum var skipað hlið við hlið og lögð að jöfnu. Hins vegar íinnst mér vel mega jafna sam- an sumrunum 1939 og 1971. Treysti ég mér helzt ekki til að gera upp á milli þeirra. Samt grunar mig, að heldur mundi halla á það fyrrnefnda, ef hægt væri að gera nákvæman saman- burð. T. d. munaði mjög miklu bvað vorið var seinna á ferð- ánni 1939 en 1971. Aftur á móti anunu mánuðirnir allir þrír, júní, júlí og ágúst, hafa verið eitthvað hlýrri 1939. Þó mun sólfar hafa verið ennþá meira síðastl. sumar. En þrátt fyrir það var vökvun ekki af eins skornum skammti í júní í sum- ar sem leið og hún var í júní 1939. Þá kom ekki dropi úr lofti lengi og lá mjög nærri, að harðvelli sviðnaði. Torfþök urðu t. d. hvítgrá, þó að græn væru áður. Um sumarið 1934 er það að segja, að það var hið mesta ill- viðra- og óþurrkasumar, a. m. k. á Norðausturlandi. Þar byrjaði það með norðaustan hríðarveðr- um, sem heldust í viku. En að henni lokinni skullu á vestan og suðvestan rosar, afar illúð- legir. Stóðu þeir í hvorki meira né minna en hálfan mánuð. Þegar þeim loksins slotaði tóku við norðaustan stormar og hríð- ar á ný. Linnti því veðurfari ekki neitt að ráði fyrr en liðnar voru sex vikur af sumrinu. En þá lcomu hlýindi í viku. Yfir- leitt var júnímánuður nokkuð veðragóður og þurr. Seinni hluti þess mánaðar var meira að segja of þurr fyrir grassprett- una. Þá voru líka svo miklir lculdar að lyng tók litaskiptum vegna næturfrosta, og jarðepla- gras lét á sjá. Með júlí byrjaði svo þurrka- leysið. Voru ýfilieitt góð eða sæmileg vinnuveður, að vísu allan mánuoinn, að undantekn- um cinum tveimur illviðrisdög- um. Ágúst heilsaði með illviðri. Fram að þeim 20. komu aðeins tvisvar svikular þurrkglórur. Af þeim ellefu dögum, sem þá voru eftir af mánuðinum, voru aðeins tveir þurrkdagar. Hina dagana, svo til alla, var rigning og súld. Einn daginn var ill- viðri. September byrjaði með sudda köstum og rigndi flesta daga fyrri helming mánaðarins. Oft mikið. Þann 16. og 17. var þurrk ur. Þann 19. skall á hið mesta foratsveður. Þá var stórrigning í byggð, en stórhríð til fjalla. Sú stórhríð stóð á annan sólar- hring. Var ótíð, allan tímann, fram til tólfta októbers. Hafði þá aldrei þornað eitt einasta strá frá því 17. september. En allmikið mun hafa rætzt úr eftir — eða um miðjan október. Sá, sem þetta ritar var staddur á Suðurlandi, þegar hér var kom- ið sögu. Hann getur því ekki dæmt um það með vissu, hvern- ig veðurfari var háttað fyrir norðan, þá daga sem eftir voru til veturnótta. En fyrir sunnan tók ekki betra við. Þar var nóg um rigningar og napra storma. Þetta var nú um sumarið 1934. í upphafi þessarar greinar minnist ég aðeins á góðsumrin 1939 og 1971. Skal nú veðurfari þess síðarnefnda lýst ofurlítið nánar: í apríl tilheyrðu níu síoustu dagar mánaðarins sumrinu. Einn daginn var 12 stiga hiti, annan 11, þriðja 10, fjórða 8, fimmta einnig 8. Þann sjötta, sjöunda og áttunda var hiti 3— 4 stig. Þann níunda var hiti um frostmark. í maí voru hlýindi í 21 dag. Hæst steig hiti í 14—15 stig (7.). Hina 10 daga mánaðarins var yfirleitt svalt. Þá var norðlæg átt um daga, en kyrrur um næt- ur. Þoka var í lofti og rigndi einn dag og lítið eitt tvær næt- ur. Aðra nóttina .var svo kalt að fjöll gránuðu. í júní voru 24 daga yfirleitt hlýir og sólfar mikið. Kom aldrei dropi úr lofti þá daga að heitið gat. Suma þá daga voru að vísu svalar hafgolur. Sex daga mánaðarins var oftast þoka í fjöllum og svöl norðlæg átt. Einn daginn af þessum sex og eina nóttina rigndi dálítið. í júlí voru tíu dagar mánað- arins með smá skúrir og lítils- háttar rigningu öðru hverju. Svalir gátu þeir dagar ekki tal- ist. Hinir dagarnir, 21 að tölu, voru allir með sólskin. Sumir með svalar hafgolur um hádag- inn en kyrrur og hlýindi hina tíma sólarhringsins. í ágúst komu 12 dagar svalir. Þá daga rigndi ekki það, sem neitt gerði til, að undanteknum tveimur. Það voru dagarnir 26. og 27. Þá var norðan stormur og stórrigning í byggð, og að sama skapi snjóburður á fjöll- um og heiðum. Nítján daga mán aðarins voru mjög björt veður og oftast hlý. Þó var stundum svalt um nætur, þegar heiðríkt var. Þá kom einum tvisvar eða þrisvar sinnum frostkali. í septcmber komu 12 úrkomu dagar. Sjö þeirra voru kaldir en fimm hlýir. Einn þeirra mjög hlýr. Sumir dagarnir, sjö, komu með snjó í fjöll. Rigningarnar voru oft alldrjúgar. Fram að áttunda degi mánaðarins voru þær þó ekki meiri en það, að á einum bæ við Eyjafjörð var borið upp í hey, 400 bagga flekk ur, sem aðeins hafði verið tek- inn í garða áður. Við þessa tólf úrkomudaga, sem nefndir hafa verið bætast sex dagar þurrir, en kaldir (Þ. 23. var 3—4 stiga næturfrost). Þá eru eftir tólf dagar af mánuðinum og voru þeir allir hlýir. Aðeins frostkali þriðjudagsnótt þann 14. í október tilheyrðu 22 dagar sumrinu. Níu þeirra voru með skúrir og- smárigningu. Þrír voru með hvössu él og allmikla snjókomu. Þá steig frost hnest í 8 stig að morgni þess 13. Þeir 10 dagar, sem þá voru eftir voru allir þurrir að heita mátti; bjart ir dagar og öðru hverju frost um nætur. Þíðviðri var þann;15. Þetta var nú um veðurfarið sumarið 1971. Þess skaj að lok- um getið að þessi veðurfarslýs- ing sumarsins gildir fyrir Akur- eyri hér um bil alla mánuðina júní, júlí og ágúst. Lýsingin á veðurfarinu í maí og vikuna fyrstu af júní er skráð norður í Ærlæk í Öxarfirði. Þá er enn- fremur lýsingin á veðurfari í september og október bókfærð í Skjaldarvík við Eyjaíjörð. Sennilega mun hafa verið enn betra veðurfar á Akureyri í maí, en það var norður í Öxar- firði. Enda var byrjaður sláttur og búið að hirða af túnblettum á Akureyri áttunda júní. Akur- eyringar sögðu þá líka, að allt væri fast að því þrem vikum fyrr á ferðinni, hvað gróður snerti, en venjulega. Ó . S.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.