Dagur - 08.03.1972, Blaðsíða 8
s
SMÁTT & STÓRT
A æi'ingu í Músagildrunni.
r
LEIKSTJORI ER STEFAN RALDURSSON
LEIKFÉLAG AKUREYRAR
:rumsýnir á sunnudagskvöldiS
rið fræga sakamálaleikrit
Vletafli af loðnu
iuiOÐNUAFLINN var um helg-
: na orðinn nær 250 þús. tonn,
sem er metveiði á loðnuvertíð.
Aflahæst var Eldborg GK 13
:neð 9002 tonn. En þetta mikla
aflaskip var, sem kunnugt er,
smíðað á Akureyri.
Löndunarbið var á öllum mót
ökustöðvum frá Vestmanna-
eyjum til Akraness í gær
Taka sæti á þingi
ÞRÍR varaþingmenn tóku sæti
á Alþingi í gær. Það eru þeir
Ingi Tryggvason, 2. varaþing-
maður Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra,
Hafsteinn Þorvaldsson, 1. vara-
oingmaður Framsóknar í Suður
iandskjördæmi, og Tómas Karls
son, 1. varaþingmaður Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík.
Ingi Tryggvason og Hafsteinn
Þorvaldsson hafa ekki setið á
pingi áður. 0
DAGUR
kemur næst út á laugardaginn.
Auglýsingar og annað, sem birt-
ast á í blaðinu, þarf að berast
fímanlega.
„Músagildruna" eftir Agatha
Christie. Leikrit þetta er fræg-
asta leikrit höfundar, sem nú er
komin á níræðisaldur. Það hef-
ur verið sýnt í sama leikhúsinu
í Londón í nær 20 ár samfleytt
og mun slíkt «insdæmi. Eins og
oftaSt: þjá A'ggtha Christie, er
hér um'mjög sþennandi atburða
rás að ræða og sökudólgurinn
ekki afhjúpaður fyrr en á síð-
ustu mínútu.
Leikendur í „Músagildrunni“
eru átta: Guðlaug Hermanns-
dóttir, Arnar Einársson, Gestur
Einar Jónasson, Þórhalla Þor-
steinsdóttir, Guðmundur Gunn-
arsson, Sigurveig Jónsdóttir,
Jón Kristinsson og Þráinn Karls
son.
Halldór Stefánsson þýddi leik
(Ljósmyndastofa Páls)
á sunnudag
ritið, leikmynd er eftir Ivan
Török og leikstjóri er Stefán
Baldursson.
Frumsýningargestir vitji miða
sinna á föstudag og laugardag
milli kl. 3 og 5 e. h. Q
MINKURINN
í Glerárhverfi hefur orðið vart
við minka að undanförnu og
hafa þeir drepið bæði hænsn og
endur. Um helgina náðist einn
í minkaboga í Vallholti, en hann
hafði áður gert nolskrar endur
höfðinu styttri. Sama dag eða
daginn áður ók maður nokkur
yfir mink á veginum við sjóinn,
framan við Samkomuhúsið, og
var minkurinn með rottu í kjaft
inum, er hann varð undir hjóli
bifreiðarinnar. Virðast nú næg
verkcfni fyrir minkabana hér á
Akureyri.
:s ',st f. * • r . •
ÓSKILGETIN BÖRN
Þau eru mörg óskilgetnu börn-
in á íslandi, eftir því sem skýrsl
ur herma. Árin 1967—1969 voru
30 börn af hverju hundraði
óskilgetin. Þar sláum við frænd
um okkar á hinum Norðurlönd-
unum heldur betur við. Danir
eru með 11.1%, Finnar 4,8%,
Norðmenn 5.1% og Svíar eru
aðeins hálfdrættingar með 15%
óskilgetinna barna. Þessi liáa
tala barna — „getinna í synd“
liefur lengi vakið athygli nema
liér á landi, þar sem margir líta
svo á, að þessi háa hundraðs-
tala sé eftir atvikum mun lægri
en búazt mætti við.
Brefar leggja landhelgismálið
fyrir aiþjcðadómsfólinn í Haag
BREZKA stjórnin tilkynnti í
fyrradag, að hún ætli að biðja
Alþjóðadómstólinn í Haag að
fjalla um útfærslu íslenzku fisk
veiðilögsögunnar í 50 mílur.
Anthony Royle aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bretlands skýrði
frá þessu í fyrirspurnartíma á
fundi neðri málstofu brezka
þingsins. Hann sagði, að þótt
ákveðið hefði verið að vísa mál-
inu til Alþjóðadómstólsins, væri
ekki loku fyrir það skotið, að
haldið yrði áfram óformlegum
viðræðum Breta og íslendinga
í von um samkomulag.
Bretar leggja málið fyrir dóm
stólinn 1. september, sama dag
og íslenzka lögsagan verður
færð út í 50 mílur. Q
Sönghátíð í Ljósvetningabúð
Laugum 27. febrúar. f gær-
kveldi hélt Kirkjukórasamband
Suður-Þingeyjarprófastsdæmis
söngmót í félagsheimilinu Ljós-
vetningabúð.
Komu þar saman 10 kirkju-
kórar og var fyrst sezt að sam-
eiginlegu kaffiborði. Meðan á
borðhaldi stóð sungu 6 kóranna
hver í sínu lagi 2 eða 3 lög.
Þessir kórar sungu:
Kirkjukór Hálsprestakalls,
söngstjóri sr. Friðrik A. Frið-
riksson. Kirkjukór Húsavíkur-
Ldndkynningarsiarfsemi F. í.
UM þessar mundir dreifa skrif-
stofur Flugfélags íslands erlend
is nýju landkynningarriti, sem
félagið gefur út. í ritinu, sem er
24 síður í stóru broti, er mögu-
leikum erlendra ferðamanna á
íslandi lýst og raktar ferðir sem
á boðstólum eru um landið.
Þetta nýja landkynningarrit,
sem fyrst kemur út á ensku og
nefnist „Iceland Travel
Plannei", er að hluta prýtt lit-
myndum, en textasíður eru að
meginhluta til í einum lit. Alls
eru 87 myndir í ritinu þar af 49
litmyndir.
Efninu er skipt niður í kafla,
sem hver um sig f jallar um viss-
an þátt íslandskynningarinnar.
Þar er í myndum og texta
fræðsla um sérkenni íslands og
íslenzkrar náttúrufegurðar. Ser
stök áherzla er lögð á hreinleika
lofts, lands og vatns.
Sérstakur kafli er um veiði-
ferðir. Lax- og silungsveiði hér
á landi og í Grænlandi og
stangaveiði í sjó.
kirkju, söngstjóri Steingrímur
Sigfússon. Kirkjukór Neskirkju,
söngstjóri Sigurður Demenz
Franzson. Kirkjukór Grenjaðar
staðakirkju, söngstjóri Sigurður
Sigurjónsson. Kirkjukór Reykja
hlíðarkirkju, söngstjóri Jón
Árni Sigfússon. Kirkjukór
Skútustaðakirkju, söngstjóri sr.
Orn Friðriksson.
Að loknu borðhaldi sungu all-
ir kórarnir sameiginlega 5 lög
undir stjórn jafn margra söng-
stjóra. Lög þessi höfðu verið
æfð undanfarnar vikur í kórun-
um og hvíldi það æfingastarf
mikið á Friðriki Jónssyni organ-
ista, Halldórsstöðum í Reykja-
dal, sem ferðaðist milli kóranna
og kenndi lögin. Alls er talið að
um 250 manns hafi skipað þenn-
an samkór, en samkomugestir
hafi verið um 350.
Kirkjukórasambandið var
stofnað árið 1950 og hefur hald-
ið allmörg söngmót á starfsferli
sínum. Núverandi formaður
þess er Þráinn Þórisson, skóla-
stjóri, Skútustöðum og stjórn-
aði hann samkomunni.
Virtist það einróma álit
manna, að samkoma þessi hefði
tekizt hið bezta, bæði um alla
skemmtan og gæði söngs og þar
með árangur starfs hjá einstök-
um kórum. G. G.
60 ÞUSUND FERÐAMENN
Á síðasta ári komu til íslands
rúmlega 60 þúsund erlendir
ferðamenn, sem cr 15% aukning
frá árinu áður, en þar að auki
komu 10—11 þús. ferðamenn
með crlendum skemmtiferða-
skipum.
Talið er, að beinar og óbeinar-
tekjur af þessum ferðamönnum
hafi numið um 1.2 milljörðum
króna. Búizt er við aukningú
freðamanna á þessú ári og
næstu árum, ef komið er til
móts við þarfir þeirra, sem
hingað vilja leggja leið sína.
AÐ BIRTA NÖFN
Öðru hverju berast blaöinu
óskir um, að birt séu nöfii þessr
ara eða hinna manna, sem brot-
legir liafa gerzt við lög. Dagur
liefur áður vikið að því máli.
Ilinar ýmsu fréttir frá lögregl-
unni um óhöpp manna og þá
verknaði af ýmsu tagi, sem
varða við lög, eru birtar án
nafna, samkvæmt liennar fyrir-
mælum. Verður svo gert fram-
vegis, nema að til komi nýjar
reglur um þetta efni, og mun
blaðið þá að sjálfsögðu haga
fréttaflutningi í samræmi við
það.
NAFNBIRTING ER REFSING
Margir segja sem svo, að þegar
sagt er frá afbroti, en nafn er
ekki birt um Ieið, hljóti fleiri
eða færri aðrir að liggja undir
grun og er það rétt. En á hitt
ber jafnframt að líta, að nafn-
birtingin ein er veruleg refsing,
stundum þyngri en sú refsing,
sem dómstólar leggja á'menn.
Dagur getur ekki fremur en
önnur blöð lagt þá aukarefsingu
á brotlegt fólk, að birta nöfn
þess, nema að það sé þá hluti af
dómi eða refsingu og með því
reiknað við uppkvaðningu dóma
hjá dómstólum. Og að þá verði
eitt látið yfir alla ganga.
GIFTINGARALDUR
Árið 1969 voru karlar, sem giftu
sig, 25.5 ára að meðaltali og kon
ur 23.3 ára. Um síðustu aldamót
voru karlar rúmlega þrítugir að
meðaltali og konur 28 ára við
giftingu.
KURTEISI EKKI ÞEIRRA
AÐALSMERKI
Svo fór, sem hér var spáð ný-
lega, að upp myndu hefjast deil-
ur um úthlutun listamanna-
launa. Þess bar glöggan svip
sjónvarpsþáttur Ólafs R. Gríms
sonar á þriðjudaginn, 29. febrú-
ar. Þar var í sal samankomið
„Iistafólk,“ mikill hópur. Flestir
munu hafa orðið fyrir vonbrigð-
(Framhald á blaðsíðu 4)
ngar á Akureyri
Enn hrakar læknisbjónustunni
Kópaskeri, 6. marz. Margir búa
sig undir grásleppuveiðina. —
Menn vinna héraf kappi í sjó-
húsum, sem eru í smíðum og
eru misjafnlega langt komin. —
Við erum ánægðir hér með póst-
flugið, sem er tvisvar í viku, en
óánægðir með skipaferðir, sem
hér eru engar, og að F. í. lagði
niður flug hingað. Ekki var talið
líklegt, að læknisþjónustan
versnaði, en þó er útlitið þannig,
að svo verði. Hingað komu lækn
ar frá Húsavík hálfsmánaðar-
lega, en nú mun of fátt lækna á
Húsavík til að annast þessa þjón
ustu og enginn læknir er á Rauf
arhöfn, þegar frá eru taldar
tvær vikur, sem Úlfur Ragnars-
son starfaði þar og nuturn við
góðs af því. Er því um afturför
að ræða, þótt ekki sé trúlegt —
og ekki heldur sómasamlegt.
Ekki verðum við þess þó varir,
að okkur sé hlíft við að greiða
okkar gjöld til samfélagsins, —
þótt við fáum lítið í staðinn á
sumum sviðum. Kvenfélagskon-
ur hafa hér saumanámskeið um
þessar mundir. K. Á.
YFIRLIT yfir byggingarfram-
kvæmdir á Akureyri árið 1971.
Tölurnar í sviga eru sambæri-
legar tölur frá árinu 1970.
íbúöarhús:
Hafin var bygging 50 (27)
húsa með 140 (97) íbúðum á
árinu. Skráð voru fullgerð á
árinu 32 (28) hús með 98 (53)
íbúðum. Fokheld voru um sl.
áramót 55 (44) hús með 136
(113) íbúðum og 24 (15) hús
með 45 (23) íbúðum voru þá
skemmra á veg komin. Á árinu
voru því 107 (87) hús með 275
(189) íbúðum í byggingu.
:i ■ •£ : •_!-*. m
Aðrar liyggingar:
Af öðrum byggingum sem
skráðar voru fullgerðar á árinu
má m. a. nefna: Afgreiðslu og
viðgerðarhús Norðurflugs á
Akureyrarflugvelli; Trésmíða-
verkstæði Reynis s.f., Furuvöll-
um 1; verkstæðis og skrifstofu-
hús Vegagerðar ríkisins, Mið-
húsavegi 1; skrifstofuhús Olíu-
verzlunar íslands h.f. við
Tryggvabraut og iðnaðarhús að
Oseyri 6.
Af byggingum sem fokheldar
voru um sl. áramót má m. a.
nefna: Skrifstofu og lagerhús
Olíuverzl. Skeljungs h.f. við
Hjalteyrargötu; skrifstofuhús
Byggingavöruverzl. Akureyrar,
Glerérgötu 20; iðnaðarhús Sand
blásturs og málmhúðunar h.f.
við Hjalteyrargötu; skipasmíða-
stóð Varar h.f., Óseyri 16; 3. og
4. hæð Efnaverksm. Sjafnar,
Glerárgötu 28; viðbygging við
verksmiðjuhús Heklu, Glerár-
eyrum og viðbyggingar við tré-
smíðaverkstæði Haga h.f., Ós-
eyri 4.
Akureyri, í febrúar 1972,
Byggingafulltrúi Akureyrar.