Dagur - 06.12.1972, Page 8
8
itxSx$x$xíx3xí>3xSxSx$xexSx$><í>3x£<$xSxí>#3xíx§xS>3x$x$xSx$x$xex£^3xSxSxS>3xSxíx®>3xí>3x$x$xexíxSx$x$xex$>3x£3xSx$>
111
Hreindýrin eru nú komin í stórum hópum til byggða á Austurlandi.
MESTU SlMASKAÐAR UM ARATUGI
SMATT & STORT
HÉR um slóðir hafa orðið meiri
símabilanir en áður um áratugi,
sagði Maríus Helgason síma-
stjóri á Akureyri blaðinu í gær-
morgun. Frá Ljósavatnsskarði
að Fosshóli brotnuðu um 70
staurar fyrir rúmri viku. Þegar
búið var til bráðabirgða að gera
við þetta fór það strax nóttina
eftir. En bilanir þessar urðu
vegna ísingar og hvassviðris.
Símalínurnar, sem eru 3—4 mm
Gunnarsstöðum, Þistilfirði 5.
des. Hér hefur verið mun minni
snjór en víða annars staðar. Að
vísu er kominn mikill snjór inni
á heiðum, en meðfram strönd-
inni er snjólétt. Stórhríð er hér
í dag og mikil snjókoma. Langa
nesið utan við Þórshöfn var al-
autt. Hins vegar hefur veðrátt-
an verið leiðinleg, lítið frost
löngum og búið að gefa miklu
meira hey en í fyrra á sama
tíma, enda spara menn eklti
heyin, svo vel heyjaðist í
sumar.
Nú þegar er búið að panta
byggingarefni í 12 íbúðarhús
liér á svæðinu Þórshöfn, Sauða-
nes- og Svalbarðshreppum. Þar
að auki var byrjað á þrem íbúð-
arhúsum í sumar. Ennfremur
eru ný hús lengra á veg komin
og verið að flytja í sum þeirra.
Samtals munu þetta vera 18
íbúðarhús, sem ýmist eru í
byggingu eða ákveðið að byggja
á næsta sumri. En þetta er
Akureyrartogararnir
KALDBAKUR landaði 30. nóv.
85 tonnum.
Svalbakur landaði á mánu-
daginn ca. 100 tonnum.
Harðbakur landaði á mánu-
daginn ca. 100 tonnum.
Sléttbakur landaði 28. nóv.
59 tonnúm.
Sólbakur landaði 27. nóv. 125
tonnum. Q
Víkja af ijinp
GÍSLI Guðmundsson víkur um
sinn af þingi vegna vanheilsu,
en sæti hans tekur Jónas Jóns-
son. Þá víkur af þingi Magnús
Jónsson vegna anna, en sæti
hans tekur Jón G. Sólnes.
Fleiri mannaskipti verða á
Alþingi um þessar mundir, þótt
hér verði eigi greindar. Q
í þvermál urðu eins og hand-
leggur manns að gildleika og
jafnvel enn sverari af ísingunni.
Svo slitnuðu símalínur á
Fljótsheiði í síðustu viku á
þrem stöðum, en þar brotnuðu
staurar ekki.
Notendalínur í sveitunum,
svo sem í Kaupangssveit, bil-
uðu og urðu þar um 20 bæir
símalausir frá því á þriðjudags-
nótt, en símasambandið mun
alveg óvenjulegt hér um slóðir.
Þórshafnarhreppur ætlar að
byggja 5 íbúðir og kaupir húsin
tilbúin. Þá er búið að panta efni
í þrjú fjárhús og tvær stórar
hlöður.
íbúar Sauðaneshrepps gáfu
66 þúsund krónur í Landhelgis-
sjóð og mun það vera ríflega
eitt þúsund á mann í hreppn-
um. Þar er þó ekki stundaður
sjór, en bændur hafa ekki síður
skilning á þýðingu stækkunar
landhelginnar en sjómennirnir.
Þetta er nú heldur meira en í
Reykjavík, en þar mun borgar-
sjóðurinn hafa gefið sem svarar
kr. 12 á mann. Ó. H.
í RÆÐU þeirri, er Magnús
Torfi Ólafsson menntamálaráð-
herra flutti við vígslu Hrafna-
gilsskóla sagði hann m. a.:
„Þessi skóli á Hrafnagili er
vottur þess, sem koma skal í
skólahaidi sveitanna á Islandi,
og það sem koma verður, eigi
liinar dreifðu byggðir að halda
hlut sínum í þróun margþætts
þjóðfélags í landi okkar. Stund-
um furða menn sig á, að ekki
skyldi rísa í Eyjafirði héraðs-
skóli á því tímabili þegar þeir
önnuðust sér í Iagi menntun
syeitaæskunnar, að skyldunámi
loknu. En til þess lágu gildar
ástæður. Möðruvallaskóli var
að vísu skóli allra Norðlend-
inga, en þó Eyfirðinga öðrum
fremur, vegna legu sinnar. Svo
var enn um langan aldur, eftir
að skólinn fluttist til Akureyr-
ar, sem lengi vel naut einn
stærri bæja á íslandi kostanna,
sem fylgja legu í greiðfæru bú-
sældarhéraði....
hafa komizt á í gær. Staurar
brotnuðu, einkum á línunni
austur yfir Eyjafjarðarárhólma.
Að minnsta kosti 14 bæir í
Fnjóskadal urðu símasambands
lausir fyrir viku síðan og við
höfum, sagði símastjóri, ekki
enn getað gert við símann. Og
enn urðu símabilanir í Aðaldal
og Reykjadal.
Enn sagði símastjóri: En von-
andi stendur þetta allt til bóta,
því að innan tíðar verður jarð-
símastrengur til Húsavíkur tek-
inn í notkun. Hann hefur þegar
verið lagður, en nokkra magn-
ara vantar ennþá og verða þeir
settir í vetur, svo fljótt og tök
eru á. En nú þegar er jarð-
strengurinn héðan og austur að
Vöglum notaður. □
UM síðustu helgi fór Leikfélag
Akureyrar í leikför til Reykja-
víkur og sýndi þar hláturleik-
inn Stundum bannað og stund-
um ekki, sem leikhúsgestir hér
hafa skemmt sér við undanfarn-
ar vikur. Var þetta vináttuheim
sókn á vegum Leikfél. Rvíkur.
Tókust sýningar mjög vel og
urðu þær fjórar, á föstudag og
Breytt skólaskipan gerði ann
ars vegar kröfu um almennari
Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra.
RANGHVERFA MANN- |
LÍFSINS
Páll H. Jónsson á Laugum í
Reykjadal skrifaði í Tímann
athyglisverða grein, er birtist
29. nóvember sl. Þar segir frá
margvíslegum, menningarleg-
um samskiptum skólanna á
Laugum við einstaklinga og fé-
lög í byggðunum inn af Skjálf-
anda. En dimman skugga ber
nú á í sívaxandi mæli, segir
greinarhöfundur. Og síðan orð-
rétt:
„Ölvaðir óliappamenn setja
svip sinn á gleðisamkomur í
félagsheimilum dreifbýlisins
með þeim liætti, að tæpast hef-
ur sézt þar vottur neins þess, er
talist geti til menningar. Fjöldi
þessara ölvuðu og sjúku óláns-
manna er tæpast kominn af
barnsaldri og langt frá því að
vera lögráða. Það réttlætir þó
sannarlega ekki gerðir þeirra
eða sviptir þá ábyrgð. En það
sýnir hins vegar, að þeir hafa
lent í höndunum á villimönn-
um, Ieynivínsölunum.“
OG PÁLL HELDUR ÁFRAM
„Skólarnir á Laugum liafa ekki
undanfarin haust fyrr hafið
störf, en skólaheimilin líkjast
umsetinni borg. Kvöld eftir
kvöld, viku eftir viku og mán-
uðum saman, hafa safnazt að
þeim ölvaðir óhappamenn í
bifreiðum, truflað vinnufrið,
brotið friðhelgi heimilanna og
bifreiðarnar valdið stórkost-
legri slysahættu á lóðum skól-
anna. Þeir hafa engin erindi átt
önnur en að spilla. Þeir hafa
eftir mætti reynt að lokka
ístöðulítil ungmenni upp í bif-
reiðar sínar, fá þá til þess að
neyta með sér áfengis og brjóta
skólareglur."
WÍEGGJA SVEÐJUR
Og enn segir greinarhöfundur,
að árásalýðurinn hafi komið
laugardag, tvær sýningaf hvorn
dag. VerSur leikurinn enn sýnd
ur í Austurbæjarbíói í Reykja-
vík á laugardaginn. Aðsókn að
sýningunum var ágæt og undir-
tektir mjög góðar.
Á Akureyri var leikur þessi
sýndur 19 sinnum við mikla að-
sókn og sáu hann á fimmta þús-
und mánns. Q
skólagöngu en fyrr meir tíðkað-
ist, en sneið hins vegar mið-
skóladeildina af Menntaskólan-
um, sem vaxinn var upp af liin-
um gamla skóla Eyfirðinga.
Vandann, sem þetta bjó byggð-
um Fram-Eyjafjarðar, er nú
verið að leysa af myndarskap
og stórhug hér á Hrafnagili.
Skólar sveitanna verða að
vera færir um að veita ungling-
unum l'ullnægjandi undirbún-
ing undir framhaldsnám, ella
klofnar þjóðin í tvo mis-réttliáa
hluta eftir búsetu í þéttbýli og
strjálbýli. Versta tilræðið, sem
hugsast getur, við íslenzkar
sveitir, væri að láta það af-
skiptalaust að sveitaæskan upp
til hópa verði að sætta sig við
Iakari fræðsluskilyrði en jafn-
aldrarnir í þéttbýli. Það jafn-
gilti því að dæma fólkið í strjál-
býlinu til að dragast aftur úr
öðrum landsmönnum í lífskjör-
um og í atviimuhátium.“ Q
vopnaður tvíeggjuðum stórum
sveðjum og otað að lieimamönn
um. Hann hefur ráðizt að kenn-
ara með barsmíðum, hótað að
„skera skólastjórann“ og þræða
nemendur upp á sveðjur sínar
og ennfremur hefur árásarlýður
inn valdið stórtjóni á húsum
skólans.
Þessi ljóta lýsing er því mið-
ur ekkert einsdæmi, en víðast
er reynt að þagga niður atburði
af þessu tagi, þótt vandséð sé,
hvaða tilgangi sú þögn þjónar.
Betra er að horfast í augu við
staðrcyndir, þótt óþægilegar
séu, og reyna að kryfja málin
til mergjar, áður en gripið er til
ráða gegn illa uppalinni æsku
í agalitlu þjóðfélagi.
NÚ MÁ KLAPPA
í KIRKJUNNI
Fyrir mörgum árum var fundið
upp á því, eflaust af guðrækni
og góðum hug, að koma í veg
fyrir það, að menn klöppuðu
saman lófum í kirkjunni á Akur
eyri. Síðan hefur enginn viljað
klappa, af ótta við að móðga
fleiri eða færri kirkjugesti.
Ekki veit sá er þetta ritar,
hvort guði er þóknanlegt klapp
í kirkju eða ekki, en Iíklegt að
það skipti hann ekki máli. Hitt
er svo annað mál, að viss form-
festa í siðurn kristinna manna,
er mannfólkinu nauðsynleg,
bæði í kirkjum og við kirkju-
legar athafnir utan kirkju. Um
kirkjuklapp eru engar aðrar
reglur til en þær, sem menn
búa sér til á hverjum stað.
Biskup landsins er talinn liafa
tekið af öll tvímæli um kirkju-
klappið nú fyrir sköinmu, og
ekkert haft við það að athuga,
að menn létu hrifningu eða
þakklæti sitt í ljósi á þann veg
í húsi drottins, að klappa lófum.
KONUR HÉLDU FUND UM
TRYGGINGARMÁL
Blaðinu er tjáð, að Kvenfélaga-
samband fslands hafi sent kven
félögum lög og reglur um trygg
ingarmál, til þess að þau gætu
fjallað um á fundum sínum.
Kvenfélagið Hvöt á Árskógs-
strönd, formaður frú Edda Jen-
sen á Rauðuvík, boðaði nýlega
til almenns fundar um málið í
sveitinni og fékk til Hallgrím
Villijálmsson tryggingafulltrúa
á Akureyri til að skýra ýmis
lagaákvæði og heimildarákvæði
laga trygginganna. Þótti fundur
þessi hinn fróðlegasti og kom
þar strax í ljós, að almenningur
er of ófróður um rétt sinn til
trygginganna. Er á þetta bent
cf verða mætti öðrum til fyrir-
myndar um fræðslu í þessum
mikilsverða málaflokki.
Gerið skil í
happdrætfinu
DRÆTTI í happdrætti Fram-
sóknarflokksins var, sem kunn-
ugt er, frestað til 9. desember.
Það eru vinsamleg tilmæli til
þeirra, sem fengið hafa heim-
senda happdrættismiða og ekki
hafa gert skil, að gera það fyrir
9. desember. Þeir umboðsmenn
happdrættisins, sem ekki hafa
enn gert skil, eru minntir á að
gera það nú þegar.
Tekið á móti greiðslum á
skrifstofu flokksins síðdegis alla
daga, og á skrifstofum Dags. □
Daguk
kemur næst út á laugardaginn,
9. desember.
Miklar hyoginpr fyrirhugaðar
ÉKKIMÁ KLJÚFA ÞJÓÐINA
I TVO MIS-RÉTTHÁA HÓPA
Góð leikför til Reykjavíkur