Dagur - 24.01.1973, Síða 1

Dagur - 24.01.1973, Síða 1
Eldgos haflð i Vest LAUST fyrir klukkan 2 á þriðju dagsnótt varð eldgos í Vest- mannaeyjum, örskammt frá byggð í Heimaey. Á þeirri sömu nóttu voru flestir Vestmanna- eyingar fluttir til meginlands- ins. Fóru þaðan flestir með bát- um og skipum en einnig með flugvélum. Engin stórslys urðu í þessum mestu mannflutning- um, sem um getur á einni nóttu. Flestir bátar voru í höfn, því að það var landlegudagur og því gengu flutningarnir eins vel og raun bar vitni, og veður var gott, nær logn, en sjóveiki þjáði þó marga á leiðinni til Þorláks- hafnar, enda víðast þröngt í bát unum. Þyrlur varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli fluttu alla sjúklinga, 60 að tölu, til Reykja- víkur, og þaðan voru fleiri flugvélar í förum. Flugfélag ís- lands stefndi vélakosti sínum til Vestmannaeyja strax um nótt- ina. Nálægur skipakostur var þegar viðbúinn til aðstoðar, en almannavarnir skipulögðu flutn ingana og þær aðgerðir allar, sem nauðsynlegastar þóttu, í samráði við bæjaryfirvöld Vest mannaeyja. Utvarp hófst af þessum atburðum klukkan fjög ur um nóttina og voru þar frétt- ir sagðar jafnóðum, og sjónvarp ið hafði fréttaauka klukkan eitt um daginn, þann sama sólar- hring. Aukablöð komu út í Reykjavík af atburðinum. For- s?ti íslands flutti ávarp til þjóð- arinnar í hádgeisútvarpi, og for sætisráðherra flutti á þriðju- Árshátíðin fjölmenn og ánægjuleg FRAMSÓKNARFÉLÖGIN við Eyjafjörð héldu árshátíð sína á Hótel KEA á föstudaginn. Var hún auglýst hér í blaðinu og tóku þá þegar að berast pant- anir um þátttöku úr nágranna- sveitum og svo auðvitað úr bænum. Varð aðsókn svo mikil, að stóri samkomusalur hótels- ins hrökk hvergi nærri til, svo að margir urðu frá að hverfa. Hefur svo mikil aðsókn ekki þekkzt áður, að hún bókstaf- lega sprengdi Hótel KEA. Fundu menn sárt til þess, að hafa ekki enn stærri húsakynni uppá að bjóða, til að geta mætt hinni gífurlegu aðsókn. Aðal heiðursgestur árshátíð- arinnar var Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra og kona hans, frú Dóra Guðbjartsdóttir, enn- fremur ekkja Bernharðs Stef- ánssonar alþingismanns, frú Hrefna Guðmundsdóttir, og dóttir þeirra, Berghildur. Árshátíðin hófst með borð- haldi og voru matföng mikil og góð og framreiðsla gekk miklu fljótar en menn höfðu búizt við. Árshátíðinni stjórnaði Haraldur M. Sigurðsson, þar til að dans- inum kom, þá tók við stjórninni Baldur Halldórsson á Hlíðar- enda, og voru báðir starfi sínu vel vaxnir. Forsætisráðherra, Ólafur Jó- hannesson, flutti ávarp og sáu menn þar og heyrðu kátan og snjallan rseðumann, sem í þetta sinn lét stjórnmálin lönd og leið en rifjaði upp menntaskólaárin sín hér á Akureyri, gaman og alvöru, sem hátíðargestir tóku af miklum fögnuði. Friðrik Vestmann tók ljós- myndir, m. a. þær, er hér fylgja. Áskell Jónsson stjórnaði al- mennum söng með aðstoð nokk- urra manna úr næstu hrepp- um og lék undir. Frú Sig- ríður Schiöt í Hólshúsum fór með gamankvæði eftir Hjalta Finnsson í Ártúni og fleiri kvæði og vísur, en sonur henn- ar, Reynir, lék undir. Var gerð- ur að því góður rómur. Þórir Valgeirsson í Auðbrekku fór með bráðsnjallt gamankvæði um landhelgismál. Hljómsveit Þórarins Magnússonar lék. Að síðustu var svo stiginn dans og varð þar ekki hlé, þótt hljómsveitarmenn þyrftu að blása mæðinni hélt dansinn áfram af fullum krafti. Mun það mál manna, að árshátíð þessi hafi tekizt eins vel og vonir framast stóðu til. Naumast fer á milli mála, að koma forsætis- ráðherra hafi átt nokkurn þátt í hinni miklu aðsókn. Áramóta- ávarp hans er mönnum enn rikt í minni, viturlegt og drengi legt í senn, og það var því mörg um hugleikið að sjá hann og heyra án milligöngu sjónvarps- tækninnar, og urðu ekki fyrir dagskvöld greinargerð um fyrir ætlanir ríkisstjórnarinnar vegna eldgossins. Eldurinn kom upp í sprungu á austanverðri Heimaey, í stefnu norðaustur og lá hún undir sjó að norðan, var þar allt kraumandi og gíghólar þegar myndaðir, er náðu upp úr sjón- um. Sprungan á landi er um hálfur annar km á lengd og þar gaus á 20—30 stöðum. Vikur- og öskufall varð talsvert mikið, en brátt tók hraun að renna austur í sjó, um stuttan veg, en frá gossprungunni, sem liggur austan við Kirkjubæ, hallar austur og norðaustur. Hraunið var snemma morguns komið svo nærri Kirkjubæ, og fleiri bæjum þar, að allt var þar orð- ið mjög heitt úti, og bjóst bónd- inn við því, nýkominn til Reykjavíkur, að öll mannvirki myndu þar vera komin undir hraun, ef svo hefði haldið fram sem horfði. Sem fyrr segir, var logn í Vestmannaeyjum, en þó barst mikil brennisteinsfýla yfir kaupstaðinn, enda er hann örskammt frá. Aldrei hefur eldgos orðið á íslandi svo nærri þéttri byggð, sem nú. Vestmannaeyingar hafa orðið vitni að einhverjum hrikalegustu náttúruhamförum, sem orðið hafa. Enn veit enginn hver þróun þeirra náttúruham- fara verður. Gosið getur hætt og það getur staðið lengi. Gosið þarf ekki að valda óbætanlegu tjóni, en of snemmt er ennþá að geta sér til um það. Hinir 5300 Vestmannaeyingar, sem í fyrri- nótt yfirgáfu heimili sín með m m skjótum hætti, vita ekki, hvað um eignir þeirra og lífsaðstöðu verður í framtíðinni, eða hvort mannlíf hefst á ný eftir skamm- an tíma í Eyjum. En víst er, að eldgos þetta varðar landsmenn alla, og flestir munu vilja rétta hjálparhönd eftir mætti. Meiri háttar ráðstafanir ríkisstjórnar- innar verða einnig vel studdar af almenningi. Ekkert þessu líkt hefur við borið í Vestmannaeyjum áður, síðan Tyrkir rændu þar fólki og seldu í ánauð og myrtu sumt. Þá þvarr byggð að mestu. En nú um langt skeið hafa Vest- mannaeyjar verið ein mesta ver stöð landsins, með 70—80 báta, sem nú voru að hefja veiðar, dýrmæta höfn og þrjú stór frystihús. Það var þrekvirki, að koma yfir 5000 manns frá Vestmanna- eyjum slysalaust til lands á einni nóttu. Aðeins 2—300 manns voru eftir í Eyjum um hádegi í gær. Hlutur Vestmannaeyinga í sjósókn og aflabrögðum íslend- inga hefur verið mikill. Til marks um það má minna á, að árið 1972 veiddu Vestmanna- eyingar 89 þús. lestir af loðnu, en loðnuveiði alls það ár varð 278 þús. lestir. Sama ár veiddu þeir á vetrarvertíð 22 þúsund lestir af öðrum fiski en loðnu, og er það um fimmtungur þess aflamagns, sem á þeim tíma kom úr sjó. Meðfylgjandi mynd af Vest- mannaeyjum tók Jónas Hall- grímsson árið 1937. □

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.