Dagur - 14.02.1973, Page 1
K O P R A L
Dagur
LVI. árg. — Akureyri, miðvikudaginu 14. febrúar 1973 — 7. tölubl.
osið
ENN gýs viðstöðulaust í Heima-
■ ey. í gær var veður vont þar og
hafði aðeins ein flugvél lent á
Vestmannaeyjaflugvelli fyrir há
degið. Undirbúinn er flutningur
véla og tækja úr verkmiðjum
með stórum flutningaflugvélum
varnarliðsins.
Frá hraunjaðrinum voru síð-
degis í gær 180 metrar að Yzta-
kletti, 160 metrar að Heima-
kletti og 80 metrar að syðri
hafnargarðinum. Að öðru leyti
var staðan lítið breytt.
Vegna frosta hafa miðstöðvar
kerfi í mörgum íbúðarhúsum
sprungið, en vinnuflokkar eru
enn í Eyjum og vinna m. a. við
að vatnstæma miðstöðvar íbúð-
arhúsa. □
verkfaU” á Sauðárkróki
Sauðárkróki 13. febrúar. í gær
var hér versta veður og enn
verra í dag. Enginn mjólkurbíll
kom í gær og ekki er útlit fyrir,
að það verði heldur í dag. Verð-
r
Islandsmeistarar í
bridge í heimsókn
UM næstu helgi, 17. og 18. febr.,
koma til Akureyrar íslands-
meistararnir í bridge, sveit
Hjalta Elíassonar frá Reykjavík,
til að spila við Akureyringa.
Sveit Hjalta og félaga hans
hefur verið með beztu bridge-
sveitum landsins á undanförn-
um árum.
Á laugardaginn spila íslands-
meistararnir tvímenningskeppni
er hefst kl. 1 e. h., og á sunnu-
daginn verður sveitahrað-
keppni. Spilað verður á Hótel
Varðborg.
Frá Bridgefélagi Akureyrar.
86 HJS. SMÁLESTIR
AF LOÐNU
Á LAUGARDAGSKVÖLD
höfðu borizt á land 86.584 lestir
af loðnu, á móti tæpum 60 þús.
lestum á sama tíma í fyrra. Afla
hæsta skipið er Guðmundur frá
Reykjavík með 4072 lestir.
Þá höfðu 39 skip fengið eitt
þúsund tonna afla eða meira.
Á Seyðisfirði var búið að landa
18.045 lestum, á Eskifirði 13.461
lest og í Neskaupstað 12.601 lest.
■ um við því að sötra svart kaffi,
bæði börn og fullorðnir.
Leikfélag Skagfirðinga, ungt
félag, frumsýndi fyrra sunnu-
dag Allir í verkfall undir leik-
stjórn Kristjáns Jónssonar frá
Reykjavík. Á leiklistarnám-
skeiði félagsins voru 17 nemend
ur. Leikendur í Allir í verkfall
eru þessir: Kristján Sigurpáls-
son, Lundi, Hildur Kristjáns-
dóttir, Lundi, Guðjón E. Jóns-
son skólastjóri og frú, Sveinn
Árnason, Víðimel og frú og
María Valgarðsdóttir, Hátúni.
Leiknum var ágætlega tekið og
þóttu leikendur fara mjög vel
með hlutverk sín. Jónas Þór
Pálsson gerði leiktjöld. Formað-
ur Leikfélags Skagfirðinga er
Knútur Ólafsson, Lauftúni.
Þrjú þorrablót voru hér í ná-
grenni um síðustu helgi. G. Ó.
Skíðahótelið í Hlíðarfjalli.
VETRARÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ-
IN í Hlíðarfjalli tók til starfa
fyrir skömmu. Rekstrarfyrir-
komulag verður svipað og und-
anfarin ár.
Þær breytingar hafa orðið á
starfsliði, að Sigtryggur Sig-
DOLLARANS FELLT
f GÆRMORGUN var tilkynnt
10% gengisfelling Bandaríkja-
dalsins. Japanska myntin er
„fljótandi“ en þýzka markið er
óbreytt.
Á Norðurlöndum var um það
fjallað í gær, hversu með mynt-
ir þessara þjóða skuli farið. En
ýmsir spáðu því, að íslenzka
krónan yrði felld um 10%. Q
DAGUR
kemur næst út 21. febrúar.
Einí
raoir i myrKri cg mm
Ilrísey 13. febrúar. Hér er hið
versta veður, búið að vera raf-
magnslaust síðan kl. 10 í gær-
EKKERT lát er enn á stórhríð-
inni, sagði Jóhannes Haralds-
son, fréttamaður Dags á. Dalvík
í gærmorgun. En brim er ekki
jnjög mikið hér á Dalvík og fer
sæmilega vel um bátana hér í
höfninni. Öðru hverju sést hér
fram á höfnina, en þess á milli
hverfur allt í hríðarkófinu.
Við erum rafmagnslaus síðan
í gærkveldi og þykir ekki gott.
Við höfum að vísu heitt vatn til
upphitunar, en þar þarf raf-
magn einnig að koma il, því að
vatninu er dælt upp. Svona
erum við háðir raforkunni.
Skaftafell liggur hérna fram
á víkinni og bíður þess að geta
lágt að, til að taka frosinn fisk.
Komin er feiknamikil fönn.
Mjólk, sem sótt var í sveitina á
sunnudaginn, og svo var lagt af
stað með hana á jarðýtusleða í
morgun, áleiðis til Akureyrar.
Mjólkurlaust var hér á Dalvík
í gær, en Drangur á að koma
með hana eftir hádegið.
Börnin komu ekki í Húsa-
bakkaskóla eftir helgina. Hér á
Dalvík var skóli part úr degi í
gær, en enginn í dag.
kveldi, símalaust einnig, kalt og
dimmt. Illa að okkur búið með
rafmagnið. í morgun var byrjað
að keyra litla mótorrafstöð hér
í eynni og skipta rafmagninu.
Hætt er við að þegar hafi orðið
skaðar af frosti í miðstöðvum
húsa hér í Hrísey. Enn er það
þó tæpast komið í ljós að fullu.
Skaflar eru orðnir stórir.
Tjón af völdum óveðurs hafa
ekki orðið á bátum eða mann-
virkjum, nema það, er að fram-
an greinir. S. F.
tryggsson mun í vetur veita
skíðalyftunni forstöðu og Júní-
us Björgvinsson er forstöðu-
maður Skíðahótelsins.
í sumar og haust hfeúr verið
unnið mikið að lagfæringum og
endurbótum bæði á skíðaleiðum
og mannvirkjum í Hlíðarfjalli.
Meðal annars er búið að setja
upp grilltæki í eldhúsi hótelsins
ásamt ýmsum fleiri lagfæring-
um.
Á síðasta vetri gistu um 1200
skólanemendur víðsvegar af
landinu í Skíðahótelinu. Gert er
ráð fyrir meiri fjölda í vetur.
Aðsókn utanbæjarskóla eykst
ár frá ári. Þá er töluverð hreyf-
ing í þá átt að flytja Sunnlend-
inga til Akureyrar til skíða-
iðkana. í því skyni hefur verið
efnt til sérstakra ferða frá
Reykjavík og munu ferðaskrif-
stofur á höfuðborgarsvæðinu
hafa skipulagningu þeirra ferða
með höndum.
Nokkur meiri háttar skíða-
mót fara fram í Hlíðarfjalli í
vetur, og ber þar hæst Her-
mannsmót, er fer fram um
næstu helgi, 17.—18. febrúar,
með þátttöku allra beztu skíða-
manna landsins. 1 næstu viku,
19.—24. febrúar, eru fyrirhuguð
skíðanámskeið í Hlíðarfjalli
bæði fyrir börn og fullorðna.
Fyrir hádegi verður námskeið
fyrir börn á aldrinum 7—9 ára.
Ferð verður úr bænum kl. 9 á
morgnana. Kennt á skíðum frá
GESTKVÆMT
BLADIÐ hafði tal af Inga
Tryggvasyni frá Kárhóli, er
hann var staddur í Stórutjarnar
skóla á þriðjudagsmorgun.
Margt var þá í skólanum, því að
leiðir lokuðust og fjöldi ferða-
manna þar saman komið. Ingi
sagði frá á þessa leið:
I fyrrinótt munu hafa verið
hér um 85 gestir og í nótt álíka
margt eða aðeins færra, allt
ferðafólk. Stærsti hópurinn
voru unglingar frá Akureyri, á
heimleið frá Vestmannsvatni,
ennfremur 20 aðrir Akureyring
ar, ýmist á leið austur eða vest-
ur. En hér líður öllum vel, því
að gestrisni er hér í ríkum
mæli. Geta má þess, að meðal
ferðamanna eru tveir læknar og
hj úkrunarkonur.
í fyrrinótt fóru átta Höfð-
hverfingar héðan á jeppa, áleið-
is heim til sín um Dalsmynni.
Þeim gekk þolanlega þar til
kom að 170 metra breiðu snjó-
flóði, sem fallið hafði sunnan
við Skarð. Gengu þeir þar yfir
og komust heim.
Sjálfur fór ég ásamt syni mín-
um að heiman á sunnudag í
logni og heiðskíru veðri, áleiðis
til Akureyrar. Þegar kom út í
Kinn, brast á með hörkustór-
hríð, svo heita mátti ókeyrandi,
Varð að síðustu ekki áfram kom
ist nema með hjálp jarðýtu.
Hér á Stórutjörnum bíðum
við þess öll, að komast leiðar
okkar, en óvíst er á þessari
stundu um framhaldið. Q
9.30—11.30 og komið í bæinn
kl. 12. Námskeiðsgjald er kr.
350,00, innifalið 10 tíma kennsla
og lyftugjöld.
Eftir hádegi er unglinganám-
skeið fyrir þá unglinga á aldr-
inum 10—15 ára, sem hefðu
áhuga á að kynnast keppnis-
skíðun. Fyrir þetta námskeið er
(Framhald á blaðsíðu 5)
ENGIR SKAÐAR
í GRÍMSEY
Grímsey 13. febrúar. Hér er
búið að vera hið versta veður
síðan á sunnudagsnótt og enn
er dimmt af hríð og stórsjór, en
norðaustanstætt. Ekkert hefur
orðið að bátum eða mannvirkj-
um svo vitað sé. Snjór er orðinn
nokkuð mikill.
Afli var sæmilegur áður en
spilltist. Sjómenn lögðu hrogn-
kelsanet og fengu rauðmaga í
soðið. Stundum hefur rauðmagi
verið veiddur nokkru fyrr, eða
um miðjan jánúar. S. S.
LÍTIL MJÓLK TIL
HÚSAVÍKUR
Húsavík 13. febrúar. Ekkert lát
er á óveðrinu í dag, en það skall
á síðdegis á sunnudaginn. Þó er
ekki eins hvasst, en enn meiri
snjókoma og dimmviðri.
í gær komust aðeins 4 mjólk-
urbílar til Húsavíkur, úr
Reykjadal, Aðaldal og Reykja-
hverfi. Engin mjólk kom úr
Bárðardal, Mývatnssveit eða úr
Ljósavatnshreppi. í dag er ráð-
gert að senda eftir mjólk í
Reykjahverfi, en ekki er búist
við annarri mjólk í dag, nema
veður skáni verulega seinnipart
inn.
Fólk héðan frá Húsavík, nú
veðurteppt í Stórutjarnarskóla,
ætlar með hjálp snjóbíls að
reyna að koma heim í dag.
Rafmagnsskömmtun er hér.
Við höfum rafmagn í fjóra
klukkutíma en sitjum svo í
myrkrinu í tvær stundir. Þ. J.