Dagur - 14.02.1973, Síða 7

Dagur - 14.02.1973, Síða 7
7 RITSTJÓRI Dags hefur mælzt til þess, að ég gerði nokkra grein fyrir starfsemi Bænda- klúbbs Eyfirðinga í tilefni þess, að haldinn var afmælisfundur á Hótel KEA 31. jan. sl. til þess að minnast 25 ára starfsemi klúbbsins. Mér þykir hlýða að verða við þessu, þó að lítið sé um skráðar heimilðir, því að Dagur hefur alla tíð v^rið þessum félagsskap hlynntur , og greitt götu hans, baeði méÍ5 því að tilkynna fund- iná frá' þeim tíma, er hann breiddist út um héraðið og með frásögnum um það, sem á fund- unum gerðist, jafnvel stundum úrdrátt úr framsöguerindum. Ég byggi því það, sem hér kemur fram í fyrsta lagi á mínu eigin minni og annarra, sem staríað hafa í klúbbnum frá stofnun hans, í öðru lagi á því, sem ég hefi fært í mínar dag- bækur hverju sinni, nema allra fyrstu árin og í þriðja lagi á því, sem skráð stendur í Degi. Arnór Sigurjónsson fyrrum skólastjóri á Laugum í Reykja- dal kenndi við Gagnfræðaskól- ann á Akureyri veturna 1946— 47, 1947—48 og 1948—49. Hon- um voru landbúnaðarmál hug- leikin og hann ræddi um það við nokkra menn á Akureyri, sem áður höfðu stundað búskap eða sinnt öðrum landbúnaðar- störfum, hvort þeir 'myndu ekki hafa ánægju af að koma til eins konar „rabbfunda" um búnaðar mál. Tóku flestir vel undir þetta og varð niðurstaðan sú, að nokkrir menn komu saman í Rotary-salnum á Hótel KEA til þess að ræða um tilhögun á slík- um umræðufundum og ákveða stað og tíma til fundarhalda. Ég heimsótti Arnór sl. vetur í Reykjavík og innti hann eftir því, sem hann kynni að muna um tildrögin og fyrstu fundina. Hann sagðist aldrei hafa skrifað neitt niður um þetta, en hann hefði gert þetta til þess að fá , eins konar „sálufélaga", er vildu sameiginlega leiða hugann að þessum málum. Hann minnti að fyrsti fundurinn hefði verið í janúar 1948. Þeir, sem þarna mættu ræddu þessa hugmynd og ákváðu að koma saman aftur eftir hálfan mánuð og skipuleggja þá vænt- anlega starfsemi. Segja má, að næsti fundur hafi verið eins konar stofnfund- ur þessa félagsskapar. Varð þá samkomulag um, að þetta yrði óformlegur félagsskapur, þar sem hverjum væri heimilt að vera með, sem áhuga hefðu á að fylgjast með umræðum um land búnaðarmál. Ekki skyldi leggja mönnum neinar skyldur á herð- ,at aðrar en þær að greiða kaffi- ígjald sitt. Mönnum átti að vera heimilt E)ð koma í félagið og fara úr því eftir því, sem þeim . thentaði, enga gerðabók skyldi halda, engin skráð lög eða reglu ■igerðir hafa, engin félagsgjöld, engar ályktanir yrðu gerðar á pessum fundum, en fylgja skyldi þeirri óskráðu stefnuskrá að ræða og fræða um landbún- aðarmál. Var ákveðið að koma saman annan hvorn mánudag kl. 9 að kvöldi. Arnór tók að sér að útvega fundarstað og minna menn á fundina. Varð samkomulag um að hafa aðeins eitt mál á hverj- um fundi. Fyrstu veturna sóttu þessa fundi frá 10 til 20 manns oftast tvisvar í mánuði. Nokkrir lærð- ir og búfróðir menn voru í þess- um hópi, s. s. Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri, Jónas Krist- jánsson mjólkurbússtjóri, Hjört- ur E. Þórarinssoon búfræði- kandidat, Jón Rögnvaldsson garðyrkjumaður og Þorsteinn Davíðsson verksmiðjustjóri. Auk Arnórs höfðu þessir menn framsögu á fyrstu fundunum. Arnór talaði á fyrsta fundinum um „að búa sér til skemmtun- ar“. Helga Kristjánsdóttir kona Arnórs hafði framsögu á einum fundinum og segist hafa talað um „uppeldisgildi sveitalífsins". Fæstir muna nú orðið hvaða mál þeir innleiddu á þessum fyrstu fundum. Þegar ákveðið var, að Arnór flyttist til Reykjavíkur, var stungið upp á Ólafi Jónssyni til að hafa forystu um framhald á félagsstarfinu, því engir vildu, að það félli niður. Ólafur færð- ist undan því að taka að sér að kalla menn saman til funda, en lagði til, að formanni Jarðrækt- arfélagsins yrði falið það. Ég var þá formaður Jarðræktar- félagsins og varð samkomulag um, að þeir sem voru ásamt mér í stjórn þess, yrðu með í ráðum um val málefna og framsögu- manna. Þetta leiddi til þess, að í raun og veru varð stjórn Jarð- ræktarfélagsins jafnframt stjórn Bændaklúbbsins. Aðrir í stjórn- inni voru þá, Jónas Kristjáns- son og Jón G. Guðmann bóndi á Skarði. Næstu vetur var starfseminni haldið áfram með sama hætti, og fór þeim fjölgandi, sem fund- ina sóttu meðfram af því, að bændur úr nágrenninu fóru að leggja leið sína þangað. Stöku sinnum voru fengnir búfróðir aðkomumenn til þess að inn- leiða umræður og svara fyrir- spurnum. Þegar ég var kosinn í stjórn Búnaðarsambands Eyjafjarðar, varð Árni Jónsson tilraunastjóri formaður Jarðræktarfélagsins og jafnframt oddamaður þess- arar starfsemi. Jónas og Jón voru áfram í stjórninni og sem áður styrkar stoðir Bænda- klúbbsins. Eftir að farið var að boða til fundanna í Degi, fór þátttaka bænda úr héraðinu stöðugt vax- andi, og var því gert meira að því að fá ráðunauta Búnaðar- félags íslands til að innleiða mál efni og svara fyrirspurnum. Af því leiddi smám saman, að nokk urn kostnað varð að greiða stöku sinnum. Samkvæmt ósk Jarðræktarfélagsins varð því að ráði, að Búnaðarsambandið tæki að sér Bændaklúbbinn. Þá voru KOMINN er út 23. árgangur Handbókar bænda. Að venju hefst bókin á alman aki, með stuttum ábendingum varðandi ýmsa þætti búskapar- ins, þá er skrá yfir helztu stofn- anir landbúnaðarins og ýmis Mjög ítarlegar áburðarleið- beiningar eru að þessu sinni þar sem verulegar breytingar eru fyrirhugaðar á tegundum til- búins áburðar sem gert er ráð fyrir að verði á markaðnum næsta vor. Gagnlegar upplýsing ar eru um bændaskólana og garðyrkjuskólann. Þá hefur Árni Jónsson, land- námsstjóri skrifað um lánaregl- ur Stofnlánadeildar. Sveinn Ein arsson, veiðistjóri skrifar um minkaveiðar. Markús Á. Einars- son, veðurfræðingur skrifar um hitafar í lofti, næst jörðu og frosthættu. Lengsta grein bókar innar er um grænfóður, tekið saman af Magnúsi Oskarssyni, kennara. Stuttar greinar eru frá tilraunastjórum jarðræktar- líka farnir að sækja fundina menn frá næstum öllum bún- aðarfélögum á sambandssvæð- inu. Samþykktir um þessa breyt ingu voru gerðar á aðalfundum Jarðræktarfélagsins og B.S.E. 1963. Hefur klúbburinn starfað á vegum Búnaðarsambands Eyjafjarðar síðan. Frá 1953 til 1963 hafa verið 7 fundir á ári að meðaltali og fundarsókn að meðaltali tæp- lega 90 manns. Frá 1963 til 1970 Ármann Dahnannsson. voru 5 fundir að meðaltali á ár; og mættir fundarmenn að meðal tali rúmlega 110. Samgönguerfiðleikar hafa stundum valdið því, að færri fundir hafa orðið á vetri en áætlað var. Það má segja, að flest þau málefni, sem landbúnaðinn varða, hafi verið tekin til með- ferðar á fundum Bændaklúbbs- ins, og þó ekki hafi verið gerðar ályktanir, hefur verið vakin athygli þar á ýmsum nauðsynja málum, sem síðar hafa verið gerðar ályktanir um á aðalfund- um B.S.E., S.N.E., Stéttarsam- bands bænda og jafnvel Bún- aðarþingi. Má þar til nefna verð lagsmál, framleiðslumál, efna- rannsóknir og tilraunir, afkvæmarannsóknir, kynbætur búfjár, fóðurblöndur, áburð, bú vélar, fræðslumál o. fl. Meðal annars má rekja þangað upp- tökin að útgáfu Vasahandbókar bænda. Þessir fundir hafa reynzt kjörinn vettvangur til að auka samstarf og kynni ey- firzkra bænda og ráðunauta Búnaðarfélags íslands og for- ystumanna í landbúnaðarmál- um víðs vegar um landið. Stöku sinnum hafa erlendir stöðvanna, þá eru greinar um eyðingu illgresis, sáðvöru á markaðnum, súgþurrkun heys, loftræstingu peningshúsa og tæmingu haughúsa. Nokkuð langur kafli er fyrir garðyrkjubændur, skrifaður af Axel Magnússyni, ráðunaut. Þá er grein eftir Þórarinn Lárus- son, sérfræðing, um prótein og steinefni í heyfóðri. Grein er um lax- og silung eftir Ólaf Skúlason. Páll A. Pálsson, yfir- dýralæknir skrifar um alla helztu svínasjúkdóma, sem vart INNFLUTNINGUR bifreiða síð asta ár varð mikill, eins og bú- ast mátti við. Alls voru fluttir inn 7.137 bifreiðar og er það heldur lægri tala en árið 1971, en þá voru innfluttir bílar alls 7.729. Af innfluttum bílum 1972 voru fólksbifreiðar flestar, eða fræðimenn um landbúnaðarmál komið og flutt erindi á Bænda- klúbbsfundum. Þátttaka í umræðum á þess- um fundum hefur oftazt verið töluverð og hefur komið fyrir, að allt að 20 manns hafa tekið til máls á sama fundi. Oft hefur verið létt yfir þessum fundum og stökur látnar fjúka inn á milli. Bændurnir Jón Bjarnason í Garðsvík á Svalbarðsströnd og Aðalsteinn Guðmundsson á Flögu í Hörgárdal hafa átt hvað drýgstan þátt í að halda uppi hressilegum umræðum. Oftast hafa fundirnir verið á Hótel KEA, en um skeið voru nokkrir fundir haldnir í félags- heimilum sveitanna, Svalbarðs- eyri, Freyvangi, Sólgarði og Dal „ELDGOS klýfur íslenzka eyju í tvennt“. Þannig hljóða forsíðu fyrirsagnir í blöðunum í Noregi, eftir eldgosið í Vestmannaeyj- um. Líklega hefur engin önnur frétt frá íslandi vakið aðra eins athygli hér í landi. En það virð- ist líka svo, að frétt sem þessa hafi þurft til að svipta þeirri hulu af íslandi, sem yfir því hefur legið í norskum frétta- miðlum. Ein og ein stuna hefur heyrzt um landhelgismálið, sennilega vegna þess að norskir telja sig tapa á því, og virðast norska menn vanta nær allan skilning á okkar sjónarmiðum í landhelgisdeilunni. Það er mik- ið þekkingarleysi. Nú eftir gosið birtist grein í einu dagblaðanna, er fjallaði einmitt um þekkingar- og skiln- ingsleysi Norðmanna á íslenzk- um málefnum. Kom þar fram, að þótt Noregur væri ein mesta fiskveiðiþjóð í Evrópu, gæfi sá útvegur aðeins 10% af þjóðar- tekjunum. Þeir ættu því erfitt með að skilja, að íslendingar ættu svo að segja allt undir sjávarútveginum. Þeir menn á íslandi, sem um þessi mál fjalla, virðast ekki hafa kynnt þau nægilega hér í landi, og þar af leiðandi fá þeir almenning ekki með sér, svo sem vera myndi, ef málið væri vel kynnt. Þeir Norðmenn eru þó til, sem undrast fálæti sinnar ríkisstjórnar í þessu máli, og lætur nánast að hún viti vart um útfærslu ísl. landhelginnar hefur verið hér á landi. Grein er eftir Hjört E. Þórarinsson á Tjörn, sem hann nefnir „Bænd- ur og náttúruvernd“. Margar aðrar stuttar greinar eru í bókinni, skrifaðar af ráðu- nautum og sérfræðingum, alls hafa 20 manns lagt til efni að þessu sinni. Handbókin er að þessu sinni 431 blaðsíða, hún er prentuð í Prentsmiðju Jóns Helgasonar, bundin hjá Bókbindaranum h.f. Ritstjóri Arnar Guðnason, út- gefandi er Búnaðarfélag íslands. 5.378, og er þá átt við nýjar, en notaðar innfluttar voru 767. í tíu efstu sætunum, þ. e. sem mest var flutt til landsins voru: Volkswagen 807, þá Ford 582, Fiat 458 og Toyota 437. Síðan koma Volvo-bílar, Landrover, Saab, Skoda, Moskvitch og Sunbeam. □ vík, ennfremur einn fundur í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. Upphaflega var þessum sam- tökum ætlað einungis að vera tómstundagaman uppgjafa- bænda á Akureyri, en þau hafa þróazt í þá átt að verða eins konar fræðslustofnun til að miðla þekkingu og nýjungum í búskaparaðferðum til bænda. Jafnframt hefur þessi starfsemi orðið til kynningar og miðlunar á þekkingu og reynslu meðal bænda innbyrðis, þannig að þeir hafa getað borið saman bækur sínar og lært hver af öðrum. Það, sem m. a. gefur bendingu um, að hér hafi orðið eðlileg og æskileg þróun, er stöðugt vaxandi þátttaka ungra manna í fundahöldunum. Vafa- laust finnst þeim og hinum eldri líka, að sitthvað mætti betur fara, en þeirra er framtíðin og möguleikarnir til umbóta. og þá deilu, sem af útfærslunni hefur sprottið. í þessari sömu grein segir einnig: „Um fsland vitum við raunar harla lítið, og minna en .við eig- um gott með að viðurkennt fyr- ir sjálfum okkur. Við lifum einna helzt á tímum víkinga- aldar, Við tölum um fornsögurn ar og Snorra, sem við þó gerum að Norðmanni, þegar færi gefst á. En okkar mikilvægasta fram- lag til Snorra var, að við tókum hann af lífi. Þess vegna brestur í norskum höfðum nú, þegar áhuginn beinist að hinu nútíma lega íslandi. Vissan fyrir því hefur lengi verið augljós.“ / En þótt vissan fyrir því hafi lengi verið augljós, er hún þekkt af ákaflega fáum, svo fáum, að furðu sætir. Norðmenn vita sennilega meira um Viet- nam en ísland, og það sem þeir vita er oft byggt á úreltri landa fræðiþekkingu. Ég hef verið spurður að því af norskum stúd- entum, hvernig menn. ferðist yfir landið, hvort flugvellir séu til utan Reykjavíkur og þar fram eftir götunum. Þekking flestra nær til hvera og til Surtseyjar, og svo þekkja menn Loftleðiir. En nú hefur þessu þó verið snúið dálítið til réttrar áttar, eftir fréttir þær, sem fjölmiðlar hafa flutt af eld- gosinu, og einnig um mikilvægi hafsins og fiskveiðanna fyrir ís- lendinga, og um hina miklu ver- stöð, Vestmannaeyjar. En óskap legri furðu sætir hin augljósa, efnalega velferð fólksins á þessu eylandi, Vestmannaeyjum, eins og norskir kalla það. Og eftir að almenningur hefur séð myndir af gosinu og af Vest mannaeyjum, fyllist hann af samúð, og allir vilja hjálpa, og hjálpa á þann hátt, að það komi að sem beztum notum. Söfnun er í gangi um allt land. Fiski- mannasamtök hafa sýnt söfnun- inni sérstaklega mikinn áhuga í orði og verki, svo og margir þeir, sem á eyjum búa. Munið Islandssöfnunina má sjá stór- letrað á fyrstu síðum í blöðum hér í Álasundi. Og þeim, sem gefa, virðist áhugamál, að pen- ingarnir renni beint til bæjar- stjórnar Vestmannaeyja. Þeir virðast hafa fengið nægju sína af ýmsum söfnunum hér í landi, þar sem hehningurinn hefur svo farið í kostnað við að ákveða, hvernig haga skuli því, sem til er safnað. Þessa dagana sannast frávik frá hinu gamla máltæki, að frændur séu frændum verstir, því að nú vilja Norðmenn hjálpa fslendingum og gera það myndarlega. Viðar Már Aðalsteinsson. Handbók bænda 1973 er komin ú! Innfiulninpr bifreiða árið 1972 Ármann Dalmannsson. Lfiill pisiill frá Noregi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.