Dagur - 14.02.1973, Blaðsíða 8

Dagur - 14.02.1973, Blaðsíða 8
s DAGUR . DAGUR . DAGUR Vér viljum vekja athygli á auglýsingasíma okkar, sem er 1-11-67 DAGUR . DAGUR . DAGUR Akureyri, miðvikudaginn 14. febrúar 1973 TRÚ- LOFUNAR- HRING- ARNIR afgr. samdægurs SMÁTT & STÓRT og gáfu jafnvel upp nöfn á söku dólgnum. Eftir að málið varð upplýst hefur fólk lialdið áfram að ræða þetta mál og m. a. ósk- að þess, að nafn hins seka sé birt. Blaðið getur ekki orðið við þeim tilmælum, fremur en áður, að birta nöfn sekra. FRJALSLYNDIR OG VINSTRI MENN Flokkur með þessu fallega nafni vann sigur í síðustu kosn- ingum. Hann ætlaði að vinna að sameiningu allra íhaldsandstæð inga í landinu — sameina vinn- andi stéttir í öflugt stjórnmála- afl í landinu — taka upp mál- efnalegar og heiðarlegar bar- áttuaöferðir, uppræta spillingu íslenzkra stjórnmála. Nú liafa þessi stjórnmálasamtök, sem áttu að vera hið eina og sanna sameiningartákn, klofnað í tvær fylldngar, sem berjast af heift sín í milli. Ganga klögumálin á víxl og Bjarni Guðnason hefur sagt sig úr þingflokknum. Hvor flokksparturinn um sig vill hafa yfirráð yfir blaðinu Nýju landi. Síðasti Verkamaður, annað tölublað þessa árs, ber gleggst vitni þessari baráttu hins mis- lieppnaða stjórnmálaflokks. FÓLK A AÐ KVARTA Hálfur þriðji tugur barna og unglinga ber Dag um bæinn og gengur það yfirleitt mjög vel því að börnin vinna þetta starf samvizkusamlega. Þegar út af ber, sem fyrir getur komið, eru kaupendur beðnir að láta af- greiðslu blaðsins vita, svo að unnt sé úr að bæta. Fólk á að fá sín blöð, sem það greiðir skil- víslega, en þess er óskað, að það láti vita þegar vanskil verða, og er enn einu sinni á þetta minnt. HROLL SETTI AÐ KONUM Nokkrar konur urðu fyrir árás ungs pilts á Akureyri og kærðu sumar til lögreglunnar, en aðrar létu kyrrt Iiggja. Eftir að frá þessu var sagt, setti hroll að konum og þorðu þær naumast út úr húsi, eftir að skyggja tók. En ein konan, sem komst í kast við pilt þennan, þekkti hann aftur og komst málið þannig upp. Fjöímargir liringdu til blaðsins á meðan á rannsókn málsins stóð, ræddu þetta mál Eyfirðinga Frá Kaupfélagi KIRKJUR f BÆNUM Tankvæðing mjólkur- flutninganna. Á aðalfundi Mjólkursamlags KEA vorið 1972 var samþykkt að hefja skyldi tankvæðingu m j ólkurf ramleiðslusvæðis Mjólksamlags KEA. Tankvæð- ingjn felur í sér, að komið skal upp kælitönkum á hinum ein- stöku búum til varðveizlu mjólk urinnar, jafnframt því sem Eldur í Snæfellinu ELDUR varð laus í hásetaklefa í Snæfellinu á Akureyri sl. föstudag, þar sem það lá við Togarabryggjuna. Slökkviliðið kom þegar á vettvang og slökkti eldinn. Tjón varð nökkurt, m. a. af reyk og vatni. Q mjólkin verður flutt frá búun- um til mjólkursamlagsins á tankbifreiðum, sem mjólkursam lagið kaupir og rekur. Sam- þykktin fól í sér, að svæðið skyldi tankvætt í áföngum, en stjórn félagsins og samlagsráð ákváðu síðar, í samráði við bændur í Ongulstaðahreppi og í Svalbarðsstrandarhreppi, að þessir hreppar yrðu fyrsti áfang inn í tankvæðingunni. Á síðastliðnu ári var unnið verulegt starf til undirbúnings tankvæðingunni meðal annars á þann hátt, að aðstæður voru skoðaðar á hverju einstöku búi og bændum leiðbeint um þær endurbætur, sem þeir þyrftu að gera á mjólkurhúsum og heim- reiðum, og ennfremur fór fram ítarleg athugun á heppilegum heimilistönkum og tankbifreið- um. Niðurstaða þeirrar athug- unar leiddi til, að pantaðir hafa verið samtals 63 heimilistankar, þar af 30 Wedholms-tankar frá Svíþjóð og 33 Múller-tankar frá Bandaríkjunum, og tvær tveggja drifa bifreiðir frá Banda ríkjunum af Chevrolet gerð, sem búnar verða dönskum flutn ingatönkum. Gert er ráð fyrir að tankvæð- ingin komi til framkvæmda í umræddum hreppum í júní n. k. Undirbúningur að byggingu nýrrar mjólkurstöðvar. Svo sem kunnugt er hóf Kaup félag Eyfirðinga byggingu nýrr- ar mjólkurstöðvar á Lundstúni ofan við Akureyri vorið 1965. Vegna ýmissa viðhorfa í land- slefsia á Akyreyri m SÍÐdegis á sunnudaginn verður ráðstefna á Hótel KEA um byggðamál. Eru það ungir Fram sóknarmenn, sem þessa ráð- stefnu halda, og auglýsa þeir hana á öðrum stað í blaðinu í dag. En stefna hinna ungu manna felst meðal annars í eftirfarandi, sem er upphaf stefnuyfirlýsingar þeirra: Samband ungra Framsóknar- manna telur það eitt af brýn- ustu viðfangsefna í stjórnmál- um, að snúa við þeirri óheilla- þróun undanfarinna áratuga, að fólkið, yaldið, fjármagnið, menntunarmöguleikar og þekk- ingin flytjist að mestu leyti á einri stað á landinu, Reykjavík- ursvæðið. SUF telur því, að framkvæmd raunhæfrar og markvissrar Sjöstjarnan sökk SJÖSTJARNAN frá Keflavík sökk síðdegis á laugardaginn, Erfiðir flutningar ÞÖTT mjólkurflutningar hafi truflazt nokkuð, er næg mjólk í bænum. í gær komu mjólkur- bílar frá Dalvík, úr Hrafnagils- hreppi og úr Öxnadal og Hörg- árdal. Víða var rifið af vegum, en mikið hríðarkóf. Q um 100 mílur austsuðaustur af Dyrhólaey. Með henni voru tíu menn, þar af ein kona, fimm ís- lendingar og fimm Færeyingar. Skipið var að koma úr viðgerð frá Færeyjum. Það var klukkan tvö, sem tilkynnt var um leka, er kominn var að skipinu. Tveim tímum síðar voru allir komnir í björgunarbáta. Þrátt fyrir mikla leit á sjó og úr lofti, hafa bátarnir enn ekki fundizt, Véður hefur verið vont. byggðarstefnu þjóðarnauðsyn og þjóðarskýldu. Markmið byggðarstefnunhar eigi að vera, að viðhalda og efla blómlega byggð um landið allt, tryggja þannig grundvöll efnalega sjálf- stæðs velferðarþjóðfélags fyrir komandi kynslóðir. Að koma á efnalegu og menningarlegu jafn rétti þegnanna, hvar á landinu sem þeir búa, jafnframt því að krefjast þess að ríkisvaldið hefji róttækar aðgerðir er snúi þess- ari óheillaþróun við, og vill SUF vekja á því sérstaka at- hygli, að einnig verður að koma til meiri áhugi og meiri sam- staða íbúa landsbyggðarinnar. Samband ungra Framsóknar- manna hyggst halda fundi eða ráðstefnur um byggðamálin í öllum kjördæmum landsins inn- an tíðar. Má eflaust ætla, að málflutningur þess og áhugi vekji menn til aukins áhuga á málinu, auk þess fróðleiks, sem þar mun fram koma um byggða málin almennt. Q búnaðarmálum á þeim tíma varð að hætta við framkvæmd- ina á árinu 1966, en þá hafði hluti kjallara verið steyptur ásamt strengjasteypubitum og súlum í aðalhæð hússins. Á aðalfundi Mjólkursamlags KEA vorið 1972 var samþykkt, að hafinn skyldi undirbúningur að því að hefja framkvæmdir að (Framhald á blaðsíðu 5) Glerá skiptir Akureyrarkaup- stað í tvær kirkjusóknir og er Lögmannshlíðarsókn norðan ár- innar með á þriðjp þúsund íbúa, en var áður hluti Glæsíbæjar- hrepps. Hrafnagilskirkja var fyrir eina tíð flutt til Akureyr- ar, en þá þóttu Akureyringar miðlungi kristilegur söfnuður. Þessi gamla og fyrsta kirkja (Framhald á blaðsíðu 2) Sæmilepr afli Ólafsfjarðááfa Ólafsfirði 13. febrúar. Þetta er þriðji stórhríðardagurinn og er þetta versta veðrið, sem komið hefur á vetrinum, norðaustan hvassviðri og hríð, blindbylur. Öfærð er komin og svona á tak- mörkum, að börnin komist í skólann vegna óveðurs. Hér inn fjörðinn leiddi mikinn sjó, eins og jafnan í þessari átt, þannig að ég held að engu skipi hafi verið fært inn fjörðinn á sunnudaginn, en þá var veðrið harðast. Hafnarvörð- urinn sagði mér áðan, að það gerði ekki betur en Drangur kæmist hingað inn í dag. Reitingsafli hefur verið hjá bátunum undanfarið. Róðrar- veður var sérlega hagstætt í Fréltárél úr Stórutungu 9. febrúar. í dag er jarðsungin að Lundarbrekku Jóninna Þuríður Jónasdóttir. Hún var fædd að Lundarbrekku 22. marz 1888, dóttir hjónanna Jónasar Jónssonar frá Baldurs- heimi og Jakobínu Jónsdóttur frá Garði við Mývatn. Þau fluttu að Lundarbrekku 1879 og bjuggu þar allan sinn búskap. Síðast stóð Jóninna fyrir búi með föður sínum til 1924. Síðan hefur hún dvalið á Lundar- brekku, hjá syni sínum, Sigurði Baldurssyni, á meðan hans naut við, en hann dó af slysförum janúarmánuði. Róðrarfjöldi hjá minni bátunum var því óvenju- lega mikill. Anna fór t. d. 23 róðra í þeim mánuði og er það meiri róðrarfjöldi en nokkru sinni áður á þeim bát. Aflinn var bara sæmilegur, minni síð- ustu dagana fyrir óveðrið, en þá var verra sjóveður. Stærri bát- arnir eru Sigurbjörg og Stíg- andi. En senn verður sent eftir öðrum japanska skuttogaran- um, sem verið er að smíða. Stígandi kom á föstudags- kvöldið með 25 smálestir eftir stutta útivist. Sigurbjörg hefur verið að lóna útifyrir, án þess að geta veitt. Hún kemur vænt- anlega í dag með 30 smálestir. B. S. Bárðardal i árið 1955. Það var henni og öll- um öðrum mikið harmsefni. Síð- an hefur hún verið á vegum ekkju hans og sona þeirra. Hún var heilsuveil hin síðari ár. Jóninna var greind kona í bezta lagi, einbeitt um skoðun og háttu. Veður hafa verið breytileg síðasta tímann, snjógrunnt er þó, en svellað og léleg fjárbeit. Vegir eru greiðfærir og hjarnið, þar sem svo hagar til. Meiri snjór er til heiðarinnar, ekki þó venju fremur, miðað við árs- tíma. Þ. J.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.