Dagur - 04.04.1973, Page 5
4
5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-11-66 og 1-11-67
Bitstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAYÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
UM ORKUMÁL
StJ VAR TÍÐIN, fyrir rúmlega ein-
um áratug, að þorri Norðlendinga
var einhuga um, að stefna bæri að
virkjun Dettifoss fyrir Norðurland
og Austurland og hefja þar með
norðlenzka iðnvæðingu á nýtt fram-
tíðarstig. Allir þingmenn Norður-
landskjördæmis eystra fengu á Al-
þingi samþykkta Dettifossáætlun ár-
ið 1961. En ráðandi stjómvöld
ákváðu að virkja Þjórsá og koma
upp stóriðju við Faxaflóa. Þá var
Norðlendingum boðið að virkja
Laxá og Gljúfurversáætlun varð til.
Hóf Laxárvirkjunarstjóm (eigend-
ur: Akureyrarbær og ríkið) undir-
búning og síðan framkvæmdir undir
liandleiðslu ríkisvaldsins. Þá upp-
hófst Laxárdeilan víðfræga. Niður-
staða hennar virðist ætla að verða
sú, að framkvæmdaaðili (Akureyri
og ríkið) verði að greiða 2—300
milljónir króna vegna mistaka, auk
eðlilegs virkjunarkostnaðar við 6.5
MW virkjun, sem að er unnið.
Virkjunum við Laxá verði þar með
lokið.
Stjórnvöld áforma að leggja hing-
að orkuveitu að sunnan. Naumast
verður hálendislína hingað komin í
tæka tíð, því að nú þegar er orðið
raforkuhungur á Norðurlandi. Marg
ir álíta, að bráðri raforkuþörf verði
mætt með díselvélakaupum, en ekki
virkjunum við fallvatn eða jarðhita.
Raforkuráðherra hefur gefið í skyn,
að Dettifossáætlun verði lokið á
þessu ári, en jafnframt hafa menn
auga á Skjálfandafljóti, Svartá og
Jökulsá í Skagafirði, Blöndu, nýrri
Skeiðfossvirkjun og svo jarðhita-
virkjun. Fjórðungssambandið liefur
óskað eftir því, að skipuð verði sam-
starfsnefnd þess og ríkisins til að
athuga þessi mál, en ekki liefur af
því orðið.
Þótt orkuveita komi að sunnan, er
auðvitað tímabært að komast að
niðurstöðu um sérstaka virkjun á
Norðurlandi. En á þetta að vera til-
tölulega lítil virkjun eða stórvirkj-
un?
Margt er í óvissu um framtíðar-
skipulag raforkumála hér á landi.
Fyrir hinar dreifðu byggðir skiptir
mestu, þegar rafvæðingu er lokið,
að orka sé næg, orkuverð lágt og hið
sama um land allt. Margt bendir til,
að hagkvæmt sé að virkja jarðhitann
og að jarðhitavirkjun sé fljótlegasta
lausnin fyrir þennan raforkuhungr-
aða landshluta.
Og víst er, þrátt fyrir allar deilur
um raforku og virkjanir, að allir
geta ferið sammála um þörf á meiri
raforku, og það fljótt. □
ERINDI GUÐRIÐAR EIRIKSDOTTUR, SKÓLASTJÓRA
Hressingarhæli á Norðurlandi
„ÞETTA MÁL SNERTIR HVERJA EINUSTU..
rr
GÓÐIR áheyrendur! Mig lang-
ar til að ræða við ykkur um
alvarlegt mál, en það er stofnun
hressingarhælis á Norðurlandi,
svipað því sem nú er rekið af
Náttúrulækningafélagi íslands í
Hveragerði.
Ástæðan fyrir því, að nú er
_ farið að ræða um nýtt hressing-
' atrhæli er sú, að í hælið í Hvera-
gerði komast ekki svipað því
allir sem þurfa slíkrar þjónustu
við. Telja fróðustu menn í þess-
um efnum, að nú þegar mundi
100 rúma hæli fyllast af sjúkl-
ingum. Það er því engin spurn-
ing um þörfina fyrir slíka stofn-
un. Fyrir Norðlendinga er það
heldur ekkert vafamál hvar sú
stofnun eigi að rísa af grunni,
hún á að vera á Norðurlandi.
Mun ég víkja að þessu atriði
síðar.
Áður en lengra er haldið lang
ar mig að fara nokkrum orðum
um tilgang hressingarhælis,
sem svo brýn þörf er fyrir.
Hann er í fyrsta lagi sá að bæta
líðan þeirra, sem þrautir þjá, og
er það í sjálfu sér nægilegt tak-
mark fyrir hvaða stofnun sem
er. En hressingarhæli eins og
það, sem hér um ræðir, hefur
ekki síður þann tilgang að veita
langþreyttu fólki hvíld og að-
hlynningu áður en streita og
þreyta verða að langvinnum
sjúkdómi. í þriðja lagi er svo
takmark slíkrar stofnunar það
að kenna fólki skynsamlega
lifnaðarhætti, ekki einungis í
mat og drykk, heldur einnig, ef
verða mætti, að breyta andlegu
viðhorfi manna til lífsins. Þann-
ig er takmarkið þríþætt og hið
síðastnefnda, sjálf mannræktin,
er að mínu viti hvað nauðsyn-
legust á þessum síðustu og
verstu tímum, þegar eiturlyfja-
neyzla og allskonar upplausn
fara yfir löndin eins og logi yfir
akur. Einstaklingarnir, fólkið
sjálft, verður að læra að lifa
heilbrigðu og dáðríku lífi, því
að annars er voðinn vís. Þetta
viðhorf verður að vera undir-
staða allrar kennslu með þjóð-
inni og einnig í heilbrigðismál-
um.
Nú kann einhver að spyrja,
fyrir hvaða fé eigi að byggja
þetta hressingarhæli, sem ég
hef gert að umtalsefni. Þeirri
spurningu mun ég ekki svara
til fulls. En ég ætla að leyfa
mér að rifja upp tvö ævintýri,
sem gerzt hafa með þjóðinni í
minni núlifandi manna. Hið
fyrra er stofnun Kristneshælis
á árunum 1925—1927. Þá voru
hinir mestu krepputímar, en
samt tókst að glæða þann áhuga
með þjóðinni að hælið, með öllu
innbúi, var reist á 2 árum, að
hálfu leyti fyrir samskotafé,
sem að langmestu leyti var safn
að á Norðurlandi. Tel óg að
þetta hafi verið hlutfallslega
meira átak en að reisa nú hress-
ingarhæli á nokkrum árum að
mestu leyti fyrir samskotafé.
Hitt ævintýrið gerðist fyrir
12—15 árum. Þá var hafin bygg
ing hælisins í Hveragerði fyrir
forgöngu Jónasar heitins Krist-
jánssonar, læknis. Sjálfur gaf
hann allar eigur sínar til hælis-
ins og starfaði síðan í mörg ár
sem læknir hælisins fyrir ekki
neitt. Slíks manns er gott að
minnast, sem lyfti slíku Grettis-
taki á gamals aldri eftir að hafa
skilað ágætu ævistafi í þágu
lands og þjóðar. Um Jónas heit-
in Kristjánsson eiga þessi vísu-
orð vel við: „Þetta er að kunna
vel til vígs, og vera lands síns
hnoss“. Og ég vil treysta því,
að enn sé fyrir hendi sá fórnar-
hugur með Norðlendingum,
sem endist til að koma upp í
áföngum á næstu árum hress-
ingarhæli fyrir 100—120 sjúkl-
inga.
Að lokum kem ég aftur að
því, hvers vegna það er svo
nauðsynlegt, að hælið verði
reist á Norðurlandi. Það er
vegna þess, að í raun og veru
berst dreifbýlið fyrir lífi sínu.
Guðríður Eiríksdóttir.
Straumurinn til þéttbýlisins við
Faxaflóa er svo þungur, að til
landauðnar horfir sumstaðar
úti á landsbyggðinni. Og þar
sem bezt gengur gerir lítið bet-
ur en að standa í stað um íbúa-
töluna, þegar Norðurlandið í
heild er haft í huga. Veigamikill
þáttur í þessari þróun er ein-
mitt hin ójafna aðstaða í skóla-
mólum og heilbrigðismálum.
Nú hefur verið hafin sókn í
skólamálum víða um Norður-
land, þótt betur megi, ef duga
skal. Heilbrigðismálin hafa hins
vegar meir lent á hakanum. En
það er lífsnauðsyn að hefja sókn
á þeim vettvangi, og einn þátt-
urinn í þeirri sókn er bygging
hressingarhælis. Þar sem fjár-
festing í þörfum stofnunum á
sér stað, þar verður atvinna fyr-
ir hendi bæði við að reisa stofn-
anirnar frá grunni og síðan við
að reka þær um alla framtíð.
Hressingarhæli á því að vera
ein af mörgum stofnunum, sem
þurfa að rísa á Norðurlandi á
næstu árum og áratugum.
Um staðarval skal ég vera
fáorð að þessu sinni. Sú stað-
reynd má þó vera öllum aug-
Tónleikar í
ljós, að nægur jarðhiti verður
að vera fyrir hendi til að hita
stofnunina. Þá verður einnig að
hafa í huga að reisa hælið sem
næst fólkinu, sem mest notar
það í framtíðinni. í því sam-
bandi vil ég minna á það, að
ferðakostnaður þeirra sjúklinga
frá Akureyri og nágrenni, sem
fara til Hveragerðis, mun nú
vera hátt í 4 þúsund krónur
fyrir hvern einstakling, og er
þá rniðað við flugfar báðar
leiðir.Árið 1970 sóttu 161 sjúkl-
ingur frá Norðurlandi til Hvera
gerðis og skiptist sú þannig: tala
Sjúkl- ingar
Akureyri 58
Eyjafjarðarsýsla 12
Eða samtals 70
Siglufjörður 25
Olafsfjörður 10
Sauðárkrókur 19
Skagafjarðarsýsla . . . . 18
Eða samtals 142
Þá kemur Húsavík með og Þingeyjarsýslurnar 6
báðar með 13
Eða samtals 19
Ég hef ekki handbærar upp- lýsingar um sjúklingatölu úr Húnavatnssýslum, enda er það
svo, að fleiri munu sækja suður
úr þeim sýslum, ef þeir geta val ið um staði. En ef tölurnar sem ég les upp eru athugaðar, þá er
ferðakostnaður þessara sjúkl-
inga nálægt 600 þúsund krónur
á ári. Þegar það er nú athugað,
að með hverju ári sem líður
fjölgar því fólki, sem þarfnast
hælisvistar, auk þess sem ekki
fá svipað því allir pláss nú í
Hveragerði; sem þess óska, þá
er óhætt að' fullyrða, að um það
bil sem líkur væru til, að hæli
hér fyrir norðan gæti hafið
starfsemi sína, þá væri árlegur
ferðakostnaður sjúklinga suð-
ur orðinn á aðra milljón krón-
ur, ef nýtt hæli yrði byggt fyrir
sunnan en ekki hér fyrir norð-
an. Þessir peningar væru vissu-
lega betur komnir í hælisbygg-
ingu, sem ætti eftir að verða
Norðlendingum heilsugjafi um
langa framtíð.
Ef við athugum nú nánar töl-
urnar sem ég las upp áðan, þá
kemur í ljós, að um 88% sjúkl-
inganna ýmist eru frá Akureyri
og nágrenni, eða eiga greiðasta
og ódýrasta leið að sækja til
Akureyrar. Þegar af þeirri
óstæðu kemur næsta nágrenni
Akureyrar fyrst í hugann, þeg-
ar staðarval fyrir hressingar-
hæli er rætt. Hitt er þó ennþá
mikilvægara atriði, að Akur-
eyri hlýtur að verða sá kjarni,
sem hefur yfirstjórn allrar
heilsugæzlu Norðlendinga í
framtíðinni. Það er því mín
ákveðna skoðun, að væntanlegt
hressingarhæli eigi að reisa í
nágrenni Akureyrar, ef nægi-
legt heitt vatn og önnur nauð-
synleg aðstaða fæst þar.
Að lokum vonast ég til, að
allir einstaklingar og öll félög
á Norðurlandi taki þetta mál
upp á sína arma og veiti því
brautargengi til sigurs. □
(Framhald af blaðsíðu 8)
hina margvíslegu örðugleika,
sem á því er að gera skólastarf
í sveit og kaupstað að öllu leyti
eins í framkvæmd, þótt annars
sé gengið út frá sömu grund-
vallarforsendu um lýðræðislegt
skólakerfi. Sveitafólkið benti
m. a. á þá staðreynd, að við ís-
lenzkar aðstæður er óhjákvæmi
legt að vista mikinn fjölda
barna og unglinga að heiman
vegna skólanáms. Það verður
ekki hjá því komizt að senda
bömin að heiman. Foreldrar
verða að sjá af börnum sínum
og börnin verða að sjá af for-
eldrum sínum. Hér er um að
ræðá mannlegt og tilfinninga-
legt vandamál, sem varla er
hægt að láta kyrrt liggja. Hið
eldra frumvarp um grunnskóla
tók ekki nægilegt mið af þessu
vandamáli, og ég hygg, að það
hafi verið meginorsök þess,
hversu andstaðan gegn því
reyndist mikil, þrátt fyrir ýmis
merk ákvæði og lofsvert mark-
mið. Þessi tiltekni agnúi á frum
varpinu, sem ég hef gert að um-
talsefni, — og er vissulega
mikill —, átti að líkindum rót
sína að rekja til þess, að í hinni
upphaflegu nefnd, sem fjallaði
um grunnskólamálið, átti eng-
inn sá fulltrúi sæti, sem þekkti
af eigin reynslu viðhorf sveita-
fólksins til lengdrar skólaskyldu
og árlegs skólatíma.
Mólið endurskoðað.
í athugasemdum við þetta
frumvarp segir nú, að frum-
varpið hafi tekið miklum stakka
skiptum frá því sem var um hið
fyrra frumvarp.
Á þessi orð get ég fallizt.
Eftir að hafa gengið í gegnum
stífan hreinsunareld nefndar-
vinnu, víðtækrár kynningar og
SAMBANDSFRÉTTIR
TÓNLISTARSKÓLINN á Akur
eyri efndi til tónleika í Borgar-
bíói sl. föstudagskvöld til styrkt
ar Minningarsjóði Þorgerðar S.
Eiríksdóttur. Söngfélagið Gígj-
an söng nokkur lög undir stjórn
Michael Clarke við undirleik
Dýrleifar Bjarnadóttur. Þá
komu fram nemendur Sigurðar
Demetz Franzsonar og hann
söng einnig sjálfur nokkur lög.
Undirleikarar voru Soffía Guð-
mundsdóttir og Jón Hlöðver Ás-
kelsson. Tónleikarnir voru
sæmilega sóttir og flytjendum
vel tekið.
Næstu tónleikar verða í Borg
arbíói n. k. laugardag, 7. apríl,
kl. 17.00. Þar koma fram kenn-
arar og nemendur við Tónlistar
skólann á Akureyri og verður
leikið á píanó, fiðlu og blásturs-
hljóðfæri.
Allur ágóði rennur í Minning
arsjóð Þorgerðar S. Eiríksdótt-
ur. Q
(Framhald af blaðsíðu 1)
viðkomuhöfnin Vopnafjörður.
Er það lestað fóðurvörum frá
Svendborg, sem það losar þar
og á Norðurlands og Vestfjarða-
höfnum. Heimahöfn skipsins er
Þorlákshöfn, og að losun lok-
inni mun það m. a. koma við
þar til lestunar á mjöli.
Ráðstefna viðskiptafræðinema.
Félag viðskiptafræðinema við
Háskóla íslands hélt ráðstefnu
um samvinnuhreyfinguna á
Akureyri 10.—11. marz sl. Var
þar lögð fram nær 150 bls.
skýrsla um starfsemi Sambands
ins og kaupfélaganna, sem fé-
lagsmenn höfðu unnið, og var
hún lögð til grundvallar um-
ræðum á ráðstefnunni. Auk
þess fluttu þier Áskell Einars-
son framkv.stj. og Baldur Ósk-
arsson fræðslustj. erindi þar, og
í frjálsum umræðum sátu þeir
Erlendur Einarsson forstj. og
Valur Arnþórsson kaupfélags-
stj. fyrir svörum.
Auk viðskiptafræðinema tók
fjöldi heimamanna þátt í ráð-
stefnunni, sem í heild þótti tak-
ast hið bezta, en hluti af skýrslu
viðskiptafræðinema verður
væntanlega birtur í Samvinn-
unni á næstunni.
Sniíði orlofshúsa SF/SÍS hafin.
Að sögn Reynis Ingibjarts-
sonar formanns Starfsmanna-
fplags Sambandsins í Reykja-
vík er nú vel á veg komin smíði
tíu orlofshúsa félagsins, sem
rísa eiga við Hreðavatn. Húsin
eru smíðuð á trésmíðaverkstæði
Sigurðar Guðmundssonar á Sel-
fossi, en samkvæmt samning-
um eiga fimm húsanna að vera
tilbúin til uppsetningar 1. júní,
en hin fimm 1. júlí. Strax og
frost leysir verður hafin vinna
við grunna og lagnir, sem verk-
takar í Norðurárdal hafa tekið
að sér, en áætlað er, að upp-
setningu húsanna verði lokið 1.
ágúst. Trésmíðaverkstæði Sam-
bandsins hefur tekið að sér að
sjá um uppsetningu á innrétt-
ingum og frágangi innanhúss,
og er stefnt að því, að öll húsin
verði fullfrágengin fyrir septem
Ytarleg lýsing húsanna með
uppdráttum birtist í nóvember-
hefti Hlyns 1972, og er nú greini
lega að vakna mikill áhugi með-
al samvinnustarfsmanna víðs
vegar um landið á byggingu
fleiri orlofshúsa á þessum stað.
Má geta þess í því sambandi, að
nú er unnið að undirbúningi að
stofnun landssambands sam-
vinnustarfsmanna, m. a. í þeim
tilgangi að vinna að þessum
málum.
ÞOR SIGRAÐI KA í 2. DEILD í HANDBOLTA
ÞAÐ fór eins og búast mátti
við, að viðureign Akureyrar-
liðanna, Þórs og KA, var tví-
sýn og skemmtileg. KA komst
í 3:0 á fyrstu mín. en Þór jafn-
aði. í leikhléi var staðan 8:8.
Þór skoraði fyrsta markið í síð-
ari hálfleik en KA jafnaði. Eftir
það hélt Þór forustu til leiks-
loka og komst mest 5 mörk yfir,
19:14. En leiknum lauk með
sigri Þórs 20:17. Með þessum
sigri sínum er Þór aðeins hárs-
breidd frá 1. deild og ef Þórs-
arar sigra Gróttu um næstu
helgi þá hljóta þeir sætið, sem
losnar í 1. deild. Það verður í
fyrsta skipti sem lið frá Akur-
eyri leikur í 1. deild í hand-
knattleik og fagna allir hand-
knattleiksunnendur því. Ekki
er að efa að margir leggja leið
sína í Skemmuna á laugardag
og sunnudag og fylgjast með
síðustu leikjum Aðureyrarlið-
anna á keppnistímabilinu. Það
má eflaust búast við skemmti-
legum leikjum, því Grótta hefur
sterku liði á að skipa.
(Aðsent)
UNGLINGAMOT ROTARY A SKIÐUM
UM næstu helgi verður haldið
unglingamót Rotary í stórsvigi
og svigi í Hlíðarfjalli, Rotary-
klúbbur Akureyrar, ásamt
Skíðaráði, standa að þessu móti,
en mót sem þetta hafa verið
haldin um nokkurra ára skeið.
Keppt er um verðlaunagripi,
sem gefnir eru af Rotaryklúbbi
USA, en sá klúbbur stendur nú
fyrir því, að 4 unglingar frá
Bandaríkjunum keppa á þessu
móti. Fararstjóri þeirra heitir
Harry Pollard, og var hann
mótsstjóri á fyrsta Rotarymót-
inu, sem haldið var hér. Hann
er mikill áhugamaður um skíði
og er jafnframt formaður sam-
ríkjunum. Unglingar þessir
bands hjálparsveita í Banda-
dvelja í boði Rotary á Akureyri
í 5 daga.
Ennfremur er gert ráð fyrir
keppendum frá Húsavík, Ólafs-
firði, Siglufirði, ísafirði og
Reykjavík, auk heimamanna.
Keppnin hefst í Hlíðarfjalli á
laugardag kl. 14.30 í stórsvigi,
og á sunnudag kl. 13.00 í svigi,
Keppt verður í stúlknaflokki
13—15 ára og í drengjaflokkum
13—14 ára og 15—16 ára. ,
umræðu fjölmargra aðila víða
um land, liggur frumvarpið nú
fyrir þessari háttvirtu þingdeild
í endurbættri útgáfu. Það er
tæpast á mínu færi og ekki
ástæða til þess af minni hálfu
að rekja breytingar þær, sem
gerðar hafa verið. En ég hygg,
að flestar breytingarnar séu til
bóta. Ég held, að við höfum nú
fyrir framan okkur betra frum-
varp en það, sem lagt var fram
fyrir 2 árum. Sérstaklega fagna
ég því, að grunnskólanefndin
hefur gert sér far um að líta
með skilningi á viðhorf sveita-
fólks í sambandi við fram-
kvæmd skyldunámsins, án þess
að hún hviki frá meginstefnu
frumvarpsins um sem jafnasta
skólasetu barna og unglinga
hvar sem er á landinu. Eins og
frumvarpið er nú úr garði gert,
ætti að vera kleift að haga fram
kvæmd skólaskyldu og öðru
skólastarfi í eðlilegu samræmi
við óskir þær og skoðanir, sem
fram hafa komið hjá mörgu
sveitafólki og talsmönnum
bændastéttarinnar. Að vísu er
mér ljóst, að enn mun heyrast
raddir um það, að heimild til
styttingar árlegs starfstíma
grunnskólans sé ekki nægilega
rúm. Sjálfsagt munu ýmsir
verða til þess að krefjast heim-
ildar til enn meiri styttingar en
frumvarpið gerir ráð fyrir. Ef
slíkar kröfur koma fram, er
aldrei nema eðlilegt, að alþingis
menn íhugi þær nánar, eins og
nauðsynlegt er að gera um aðr-
ar ábendingar, sem berast
kunna, eftir að málið er nú lagt
fram í nýjum búningi. Þó að ég
viðurkenni, að grunnskólanefnd
in hafi unnið ágætt starf í sam-
bandi við endurskoðun frum-
varpsins, þá leysir það ekki
alþingismenn undan þeirri
skyldu að gaumgæfa hverja
grein þess áður en það verður
að lögum.
Boðar ekki byltingu.
Frumvarpið um grunnskóla
lýsir óneitanlega miklum metn-
aði þeirra, sem að því standa.
Með frumvarpinu er stefnt að
því, að íslendingar komi upp
barna- og unglingaskólum, sem
jafnast á við það sem gerist
meðal skyldra menningarþjóða.
Ég felst á þessa stefnu og lýsi
því sem minni skoðun, að með
því sé viðhaldið stefnumörkun,
sem þegar var grundvölluð með
setningu fræðslulaga árið 1907.
Frumvarp það, sem hér liggur
fyrir, boðar enga byltingu í
skólamálum, — menn þurfa
ekki að óttast það þess vegna.
Það er miklu minni breyting en
margir vilja vera láta, þótt lög-
fest sé 9 ára skólaskylda og ár-
legur skólatími lengdur að auki.
Hér er miklu fremur um stigs-
niun að ræða en eðlisbreytingu.
Það getur ekki talizt til bylt-
ingar, þótt stefnt sé að því á 10
árum að jafna sem verða má
skólagöngu allra barna og ungl-
inga í landinu og færa starfs-
aðstöðu skólanna til nútíma-
horfs. Ég held, að það væri í
miklu ósamræmi við metnað
íslendinga á öðrum sviðum
þjóðlífsins, ef við settum okkur
lágt markmið í skólamálum og
þá sérstaklega hvað varðar
skyldunámið.
Vandasöm framkvæmd.
Hitt er svo annað mál, að við
verðum án efa að halda vel á
spöðum, ef okkur á að auðnast
að gera stefnumið grunnskóla-
frumvarpsins að veruleika í öll-
um greinum. Það kostar ekki
einasta mikið fjármagn, heldur
krefst það fyrst og fremst nægi-
legs úrvals og framboðs starfs-
krafta.
Frumvarpið um grunnskóla
gerir ráð fyrir mjög víðtækri
sérfræðiþjónustu í sambandi
við kennslu og uppeldisstörf.
Hvað það snertir setur frum-
varpið markið býsna hátt miðað
við þá starfsgetu og sérmennt-
un sem nú er fyrir hendi í
landinu.
Ef þessu marki á að verða
náð, er augljóst, að þegar í stað
verður að hefjast handa um
skipulega menntun nauðsyn-
legra sérfræðinga. Enda getur
það ekki farið milli mála, að
allt þetta kerfi stendur og fell-
ur með hæfu starfsfólki. Hér er
mikill vandi á höndum. Og ég
held, að yfirstjórn fræðslumála
verði öðru fremur að beita sér
á þessu sviði.
Snertir hverja fjölskyldu
í landinu.
Herra forseti. Ég mun ekki á
þessu stigi þræða efni þessara
frumvarpa um skólamál frá
orði til orðs, enda kemur það til
kasta þingnefndar, sem ég á
sæti í, að fjalla nánar um málin.
En ég vil minna á það, að hér
er um ákaflega veigamikil mál
að ræða, sem snerta hvern ein-
asta mann í landinu og hverja
fjölskyldu í landinu á einn eða
annan hátt. E. t. v. er engin lög-
gjöf svo nátengd fjölskyldulífi
og persónulegum högum sam-
félagsþegnanna sem skóla- og
fræðslulöggjöfin. Það skiptir
því miklu máli, að hún sé vel
úr garði gerð og m. a. í sem
nánustu samræmi vi, almenn-
ingsálitið í landinu, svo og raun
verulega getu þjóðfélagsins til
þess að framfylgja ákvæðum
hennar. Q
Ullarverksmiðjan Gefjun
heldur námskeið í lopaprjóni ef næg þátttaka
fæst.
Upplýsingar gefur Guðný Pálsdóttir, Stíflu,
síini 1-26-58.
Trésmíðaverksfæði -
Trésmiðir
Til sölu handknúin „Steinbergspressa" með þrem
tjökkum og hitaplötum, stærð 120x150.
Upplýsingar gefur verkstjóri.
SMÁRI II.F.
SÍMI 2-12-34.
Lúðrasveif <®> Akureyrar
Vortónleikar lúðrasveitarinnar verða haldnir í
Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 5. apríl n. k.
Stjórnan'di ROAR KVAM.
Aðgöngumiðasala er hjá Sigtryggi og Pétri gull-
smiðum, og við innganginn.
jp(ó}jp
Nú geta Norðlendingar fylgzt með því sem er að ger-
ast í popp-heiminum. Hjá okkur liggja frammi vin-
sældarlistarnir í Englandi og Ameríku, og við eigum
ótrúlega mikið af þeim frábæru liljómplötum, sem
fylla þann lista.
LP-PLÖTUR: Procol Harum: Grand Hotel. — Focus:
Moving Waves. — Free: Heart Breaker. — The Best o£
Mountain. — Alice Cooper: Billion Dollar Babies. —
Mahavisnu Orchestra: Birds of fire — o. m. fl.----
45-RMP: — Slade: I’m mee, I’m now, an’ thats orl. —
Elton John: Daniel. — Dr. Hook: The Cover of Rolling
Stone. — Lobo: I’d love you want me. — Focus: Sylvia.
— Al-bert Hammond: It never rains in Southern Cali-
fornia. — Gilbert O’Sullivan: Clair. — The Sweet
Blockbuster — o. m. fl.
O
fg|
O *
'f.ixílth •
WM
*•*%?-. f '-- * vL •Vií’x’. v;
% **
En þeir eru enn til, sem sitja heima með sárt ehnið dg
eiga engin hljómflutningstæki. Þá getum viðglatt með
því, að við vorum að taka upp mikið úrval af Sansui
og Philips!
Sem sagt, það borgar sig að rölta
til okkar!
Póstsendum tæki og
hljómplötur!
sini
STEFÁNS HALLGRÍMSSONAR .
VIÐGERÐARSTOFA
Glerárgötu 32 . Sími 11626 . Akureyrí