Dagur - 23.05.1973, Side 2
2
Gjafir Isl Elliheirilis Ákiireyrar
GJAFASJÓÐI Elliheimilis Ak-
ureyrar hafa nýlega borizt tvœr
stórrausnarlegar gjafir:
Guðrún Sæmundsdóttir,
Holtagötu 8, Akureyri, hefir
gefið heimilinu íbúð sína í
Holtagötu 8, neðri hæð, skuld-
lausa með öllu.
Orgelsjóði Elliheimilis Akur-
eyrar hefir borizt 15.000,00 kr.
gjöf frá frú Sigrúnu Benedikts-
dóttur, Hörg, Svalbarðseyri.
Og til minningar um frú Her-
dísi Tryggvadóttur frá Arndísar
stöðum í Bárðardal, áður ljós-
móður, en vistkonu á Elliheim-
ili Akureyrar síðustu ár, hefir
sjóðnum borizt 100.000,00 kr.
frá ÆTTINGJA.
Loks hefir Radióbúðin, Akur-
eyri, fært Elliheimilinu að gjöf
3 stk. Carmen 7 og 4 stk.
Carmen 11, að verðmæti kr.
15.790,00.
Allar þessar gjafir þakkar
stjórn Elliheimilis Akureyrar
af alhug.
Stjórn EHA.
Til sölu er bifreiðin
A—1513 sem er Land
Rover dísel árg. ’66.
Uppl. veitir Vilhjálmur
Þórarinsson, Bakka
Svarfaðardal,
sími um Dalvík.
Ung stúlka óskar eftir
atvinnu. Vön verzlunar-
og skrifstofustörfum.
Tilboð leggist inn á af-
greiðslu blaðsins fyrir
30. maí, merkt
„ATVINNA 213“.
Vantar stelpu til að gæta
2ja barna í sumar frá 1.
júní, kl. 4—10 e. h.
Sími 2-10 86.
12 ára drengur óskar eft-
ir að komast á gott
sveitaheimili í sumar.
Meðgjtif eftir samkomu-
lagi.
Uppl. í síma 1-11-05,
Akureyri.
ATVINNA óskast.
Ung stúlka með Sam-
vinnuskólapróf og góða
reynslu í skrifstofustörf-
ium óskar eftir atvinnu
frá 15. sept. n. k.
Þeir sem vilja athuga
þetta eru beðnir að
leggja nöfn sín ásamt
upplýsingum um at-
vinnuna inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir 15. júní
n. k. merkt
„ATVINNA 7552.
13 ára drengur óskar eft-
ir að komast á.gott
sveitaheimili í sumar.
Uppl. í síma 1-13-53.
Ábyggileg stúlka óskast
til afgreiðslustarfa hálf-
an daginn.
Tilboð er tilgreini nafn,
aldur, iheimilisfang og
símanúmer, léggist inn á
afgreiðslu blaðsins fyrir
föstudagskvöld.
KAUPMENN,
KAUPFÉLÖG!
Ungur reglusamur mað-
ur óskar eftir verzlunar-
stjórastarfi í haust eða
fyrr. Er vanur verzlunar-
störfum og verzlunar-
stjórn. Getur unnið
sjálfstætt. Húsnæði
æskilegt.
Tilboð merkt „Fjöl-
skyldumaður“ sendist af-
greiðslu blaðsins fyrir
1. júní n. k.
Vanur skrifstofuniaður
óskaí* eftir atvinnu hálf-
an eða allan daginn.
Tungumálaþekking.
Er einnig vanur meira-
prófs-bifreiðastjóri.
Uppl. í síma 1-26-00,
herb. 24 eða 2-17-14.
Duglegur strákur á aldr-
inum 14—16 ára, óskast
í kaupavinnu á myndar-
legt sveitaheimili í
Vatnsdal í sumar.
Gott kaup.
Uppl. gefur ritstjóri.
ATVINNA.
Piltur sem er að Ijúka
við 5. bekk verzlunar-
skólans vantar sumar-
vinnu um næstu mán-
aðarmót.
Uppl. í síma 1-15-30 og
2-18-70 f. h.
Óska eftir duglegri
stelpu 12—13 ára í sveit.
Uppl. í síma 2-11-81.
12—13 ára drengur ósk-
ar eftir plássi í sveit.
Sími 1-18-45.
Ung hjón með eitt barn
vantar 2—3 herbergja
íbúð til leigu. Erum
liúsnæðislaus í maí.
Vinsamlegast hringið í
síma 1-15-51 milli kl.
7 og 8 á kvöldin.
Væntanlegan starfsmann
á Sólborg vantar her-
bergi frá 10. júní til 1.
október.
Uppl. í síma 1-12-49.
Herbergi óskast til leigu
sem fyrst.
Uppl. á Hótel Varðborg
sími 1-26-00.
ÍBÚÐ!
Óskum að taka á leigu
2—3ja herbergja íbúð
frá miðjum ágúst.
Sími 6-13-06.
Ungan reglusaman
mann vantar herbergi í
bænum til 15. júlí. Gott
ef fæði getur fylgt.
Sími 1-25-25.
Óskum eftir lítilli íbúð.
Þrennt í heimili.
Uppl. í síma 2-10-87.
Til sölu 2ja herbergja
íbúð á Eyrinni.
Uppl. í síma 1-20-63
milli kl. 7 og 8.
Herbergi óskast til leigu
sem fyrst.
Uppl. í síma 1-21-12.
Einlileypan mann vant-
ar herberg, lielst nokk-
uð stórt. Æskilegt væri
að fá keypt fæði á staðn-
um.
Uppl. í síma 1-26-00,
herb. 24 eða 2-17-14.
W
Leikfélag
Akureyrar
KLUKKUSTRENGIR
eftir Jökul Jakobsson.
fimmtudag, laugardag
og sunnudag.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan opin kl. 3—5
á miðvikudag og sýning-
ardaga. Einnig klukku-
tíma fyrir sýningu.
SÍMI 1-10-73.
Hárgi-eiðslustofa
SOFFÍU verður lokuð
til 6. júní.
KONUR!
Fjölbreytt úrval af
prjónuðum dúkum til
sölu í Langholti 17,
niðri.
KÝR til sölu!
Til sölu í Hlíð í Ljósa-
vatnshreppi næstu viku
8 vor- og sumarbærar
kýr. Sanngjarnt verð.
Góðir greiðsluskilmálar.
Kúnum annars iógað.
Alfreð Ásmundsson.
Barnavagn til sölu.
Sími 1-16-09.
Til sölu nýlegur kerru-
vagn á kr. 5.000,00.
Uppl. í síma 2-17-86.
Barnavagn til sölu.
Upjil. í síma 1-10-51
eftir kl. 8 e. h.
Til sölu notuð Rafha
eldavél og barnakerra.
Sími 2-12-93.
Barnavagn til sölu.
Sími 2-11-73 eftir kl. 8
e. h.
Til sölu rafmagnsorgel
tegund Farfisa fest 5 og
einnig magnari sömij
tegundar 30 W.
Uppl. í síma 1-18-7Q.
Til sölu mjög vandað
sófasett, tveir stólar,
annar með háu baki og
4ra sæta sófi. Svefnsítóll.
Uppl. í síma 1-23-94.
Lóð undir einbýlishús
ásamt teikningum til
sölu.
Uppl. í síma 1-14-85.
Notaður ísskápur til
sölu. Boch.
Sími 1-25-24.
REGLUSAMUR PILTUR
Uttr GETUR KOMIST AÐ SEM
NEMI í handsefningu
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR HF.
HAFNARSTRÆTI 88. - AKUREYRI.
TILBOÐ
Tilboð óskast í 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í
tvíbýlishúsi við Holtagötu.
Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 31. maí
n. k., sem veitir allar nánari upplýsingar.
Réttur er áskilin til að taka- hva'ða tilboði sem er
eða hafna öllutn.
FASTEIGNASALAN H.F:,
Glerárgötu 20, sími 2-18-78. Opið kl. 5—7.
um
Oþinbert uppboð fer fram við lögreglustöðina á
Akureyri föstudaginn 1. júní 1973 kl. 16.00 að
kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, Elreins Páls-
sonar hdl., Hákonar H. Kristjónssonar, hdl., Ás-
mundar S. Jóhannssonar hdl., Gunnars Sólnes
hdl., Kjartans Reynis Ólafssonar hrl., Guðmund-
ar Inga Sigurðssonar hrl. og Hákonar Árnason-
ar hrl. til lúkningar ýmsum kröfum.
Eftirtaldir munir verða seldir:
Bifreiðarnar A—286, A—406, A—4249, A—3134,
A—4190, og A—3186, einnig „Kuba Imperial“
radiofónn og „Kuba“ sjónvarpstæki.
Greiðsla fari fram við hamarshöggr.
OO
UPPBOÐSHALDARINN Á AKUREYRI,
22. MAÍ 1973.