Dagur - 23.05.1973, Side 8
8
ÞJÓÐLEGT
T í M A R ! T
Pósthólf 267 ■ Akureyri • Simi 96-123-31
AGUR
Akureyri, miðvikudaginn 23. maí 1973
FERM-
INGAR-
GJAFIR
í MIKLU ÚRVALI
SMÁTT & STÖRT
Gefjun — ullarblöndunarstöð.
Erindi dags. í gær frá Sam-
bandi íslenzkra samvinnufélaga,
þar sem sótt er um lcyfi til að
byggja viðbyggingu úr járn-
bentri steinsteypu við ullar-
þvottastöð SÍS á Gleráreyrum,
samkvæmt meðfylgjandi teikn-
ingum dags. 27. og 28. marz
1973, frá Teiknistofu SÍS.
Samþykkt með fyrirvara um
eldvarnir. Leyfið er háð „gjald-
skrá“ um byggingargjald.
Heimilisrafstöðvar.
Samþykkt var að fela rafveitu
stjóra að afla upplýsinga um
Herstöðvarandstæð-
INGAR, sem hér í kjördæminu
hafa kosið undirbúningsnefnd,
til þess að vinna að því, að
ákvæði málefnasamnings stjórn
arinnar um brottför hersins á
kjörtímabilinu nái fram að
ganga, ætla að halda opinberan
fund um málið í Alþýðuhúsinu
á Akureyri 27. maí kl. 4 e. h.
Fundarstjóri verður Hjörtur E.
Þórarinsson á Tjörn.
Á fundinum verður fjallað
um það, hvernig bezt megi
skipuleggja baráttuna sem fram
undan er og hvernig bezt verði
náð til alls þess mikla fjölda,
sem andvígir eru dvöl erlends
hers hér á landi. □
MARGT GETUR SKEÐ
Gos eru tíð á íslandi, en aldrei
hefur það áður skeð, að boðnir
séu beinharðir peningar í vikur
inn, áður en hann er orðinn
kaldur. Vestmannaeyingar eiga
nú 1.3 millj. rúmmetra af vikri
eða gjalli, sem hreinsa þarf í
kaupstaðnum. Erlendir aðilar
hafa áhuga á þessu efni í bygg-
ingar. Samkvæint tilboðum er
vikurinn 450—500 milljón króna
virði, ísl. króna. Síðast barst
Vestmannaeyingum fast og
ákveðið verðtilboð á tonnið
frá Norðmönnum. Getur þetta
létt undir með Eyjamönnum að
hreinsa til hjá sér, og því má
svo bæta við, að ógrynni af
vikri eru í Vestmannaeyjum,
utan kaupstaðarins, og hefur
víst enginn áætlað magn hans.
KLÁMMYNDIR
Verulega eru hugmyndir
manna á reiki um, hvað nefna
megi klám og hvað ekki, svo
sem í bókmenntum, myndum
og kvikmyndum. Fyrir tveim
árum gerði lögreglan í Reykja-
vík upptæk veggspjöld af því
tagi, en Hæstiréttur hefur ný-
lega kveðið upp úrskurð sinn í
málinu. Staðfesti hann úrskurð
undirréttar, þess efnis, að vegg-
spjöldin séu klám. Það var nú
svo sem gott og blessað að fá
skilgreiningu Hæstaréttar á
málinu. En fleira þarf til að
koma ef stuðla á að útrýmingu
þess háttar mynda.
HÆTTA VIÐ GLERÁR-
BRÚNA
Glögg og velviljuð húsmóðir
bað blaðið að koma þeirri ósk á
framfæri, að hið bráðasta verði
gcrt við austustu Glerárbrúna,
þar sem aðalumferðin er, bæði
bíla og gangandi fólks, en óvar-
in op á miðju þessa mannvirkis,
bjóða hættunni heim. Þessu er
hér með komið á framfæri við
rétta aðila.
Þá hafa borizt kvartanir um
hunda og ketti. Um hundahald
eru í gildi ákveðnar reglur, sem
eigendum þeirra dýra er skylt
að fylgja. Um 50 hundar eru á
Akureyri og að því er virðist er
liundahald stórvandræðalaust
hér á Akureyri. Hins vegar
virðast kettir utan við lög og
rétt og þeir eru af mörgum illa
séðir, einkum um varptímann.
Enn er í fullu gildi það ágæta
ráð, að hengja bjöllu á köttinn,
til að minnka veiðihæfni þeirra.
INNFLUTTU HÚSIN
Talið er, að Viðlagasjóður muni
flytja inn 435 hús, 100—125 fer-
metra hvert, handa Vestmanna-
eyingum og eru þau fyrstu kom
in á sína grunna sunnanlands.
Leiga fyrir þessi hús verða 6—
10 þús. kr. á mánuði. Ennfrem-
ur ætlar Viðlagasjóður að láta
byggja fjölbýlishús með 70 íbúð
um og annað með 30 íbúðum.
Á hið stærra að vera í Reykja-
vík, en það minna í Hafnarfirði.
Þá er í athugun að byggja á
Húsavík og í Borgarnesi. En
luis þau, innflutt og þau, sem
ákveðið er að byggja, eru fyrir
45 f jölskyldur, og erlendu húsin
verða sett niður á Suður- og
Suðvesturlandi. 872 fjölskyldur
hafa sótt um íbúðir til Viðlaga-
sjóðs.
BLÓTUÐU FREY OG FREYJU
Fleiri eru í fréttum en Baháí-
menn, þeirra manna, er láta
trúarbrögð til sín taka. Þannig
liafa ásatrúarmenn hér á landi
(Framhald á blaðsíðu 5)
ingar halda fund
HERSTÖÐ V AR ANDSTÆÐ-
TÓNLEIKAR í AKUREYRARKIRKJU
SÖNGFÉLAGIÐ GÍGJAN og
Karlakór Akureyrar efna til
tónleika í Akureyrarkirkj u dag
ana 25., 26. og 27. maí næstkom-
andi og hefjast tónleikamir kl.
9 síðdegis alla dagana.
Efnisskrá er fjölbreytt og
samanstendur hún af lögum
m. a. eftir Áskel Jónsson, Árna
Thorsteinsson, Björgvin Guð-
mundsson, Sigursvein D. Krist-
insson, Jakob Tryggvason, ís-
lenzkum þjóðlögum í útsetn-
ingu Jóns Ásgeirssonar, syrpu
af lögum eftir Béla Bartók o. fl.
Hluta af söngskránni syngur
hvor kór út af fyrir sig, en síðan
syngja þeir saman alls 14 lög.
Söngstjórar eru Michael J.
Clarke og Jón H. Áskelsson.
Undirleik annast Dýrleif
Bjarnadóttir ásamt strengja-
sveit og einnig er leikið undir
á harmoniku í einu lagi.
Þá leikur strengjasveitin
Presto úr kartett no. 2 eftir F.
J. Haydn og Allemand og
menúett.eftir J. J. Rousseau.
Einsöngvarar eru Gunnfríður
Hreiðarsdóttir, Guðmundur B.
Stefánsson, Helga Alfreðsdóttir
og Petrína E. Þórarinsdóttir.
Aðgöngumiðar fást í Bóka-
búðinni Huld og þar geta styrkt
aríélagar einnig fengið miðum
skipt á milli daga og eru þeir
vinsamlega beðnir að gera það,
henti þeim ekki þeir miðar, sem
sendir hafa verið heim til
þeirra.
Dagana 30. maí til 3. júní
næstkomandi fara kórarnir í
söngför til Suðurlands. Áformað
er að syngja á eftirtöldum stöð-
um: Borg í Grímsnesi, Flúðum,
Félagsheimili Seltjarnarness og
Félagsbíói í Keflavík.
(Fréttatilkynning)
Eitt og annað frá bæjarstjórn —
Akureyri, fremst á myndinni eru kappróðrarbáta r.
FuIItrúar á vinabæjamót
í Álasundi.
Bæjarráð samþykkir að til-
nefna bæjarfulltrúana Ingólf
Árnason og Sigurð Jóhannes-
son sem fulltrúa Akureyrar-
bæjar á vinabæjamóti í Ála-
sundi 16.—17. júní næstkom-
andi.
Fuíltrúar í boðsferð til Narssak.
Bæjarráð samþykkir að til-
nefna Jón G. Sólnes forseta
bæjarstjórnar, Stefán Reykjalín
varaforseta og Bjarna Einars-
son bæjarstjóra, sem fulltrúa
Akureyrar í boðsferð til
Narssak í byrjun ágústmánaðar
næstkomandi.
verð á litlum vara-heimilisraf-
stöðvum fyrir bæjarbúa, vegna
hins ótrygga ástands í rafveitu-
málum.
Oseyri 16.
Erindi dags. 29. janúar sl. frá
Jóni Steinbergssyni f. h. Varar
h.f,. þar sem sótt er um leyfi til
að byggja viðbótarbyggingu úr
steinsteypu og stáli á lóðinni
nr. 16 við Óseyri, samkvæmt
meðfylgjandi teikningum dags.
í janúar og marz 1973 eftir Birgi
Ágústsson.
Samþykkt. Bygginganefnd
samþykkir að bílastæði verði
a. m. k. 30 talsins og fyrirkomu
lag þeirra sýnt á teikningu sem
lögð verði íyrir bygginganefnd
til samþykktar. Veggur milli 1.
og 2. áfanga verði eldvarnar-
veggur ofan dyraopa og sjálf-
virkar reyklúgur settar á þak
2. áfanga samtals 12 fermetrar
að stærð. Veggur úr óbrennan-
legu efni verði á milli trésmíða-
verkstæðis og járnsmíðaverk-
stæðis. Leyfið er háð „gjald-
skrá“ um byggingargjald.
Nefndin óskar eftir að staðsett-
ar verði snyrtingar á 1. hæð
hússins.
(Ljósm.: E. D.)