Dagur - 23.05.1973, Blaðsíða 8

Dagur - 23.05.1973, Blaðsíða 8
8 ÞJÓÐLEGT T í M A R ! T Pósthólf 267 ■ Akureyri • Simi 96-123-31 AGUR Akureyri, miðvikudaginn 23. maí 1973 FERM- INGAR- GJAFIR í MIKLU ÚRVALI SMÁTT & STÖRT Gefjun — ullarblöndunarstöð. Erindi dags. í gær frá Sam- bandi íslenzkra samvinnufélaga, þar sem sótt er um lcyfi til að byggja viðbyggingu úr járn- bentri steinsteypu við ullar- þvottastöð SÍS á Gleráreyrum, samkvæmt meðfylgjandi teikn- ingum dags. 27. og 28. marz 1973, frá Teiknistofu SÍS. Samþykkt með fyrirvara um eldvarnir. Leyfið er háð „gjald- skrá“ um byggingargjald. Heimilisrafstöðvar. Samþykkt var að fela rafveitu stjóra að afla upplýsinga um Herstöðvarandstæð- INGAR, sem hér í kjördæminu hafa kosið undirbúningsnefnd, til þess að vinna að því, að ákvæði málefnasamnings stjórn arinnar um brottför hersins á kjörtímabilinu nái fram að ganga, ætla að halda opinberan fund um málið í Alþýðuhúsinu á Akureyri 27. maí kl. 4 e. h. Fundarstjóri verður Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn. Á fundinum verður fjallað um það, hvernig bezt megi skipuleggja baráttuna sem fram undan er og hvernig bezt verði náð til alls þess mikla fjölda, sem andvígir eru dvöl erlends hers hér á landi. □ MARGT GETUR SKEÐ Gos eru tíð á íslandi, en aldrei hefur það áður skeð, að boðnir séu beinharðir peningar í vikur inn, áður en hann er orðinn kaldur. Vestmannaeyingar eiga nú 1.3 millj. rúmmetra af vikri eða gjalli, sem hreinsa þarf í kaupstaðnum. Erlendir aðilar hafa áhuga á þessu efni í bygg- ingar. Samkvæint tilboðum er vikurinn 450—500 milljón króna virði, ísl. króna. Síðast barst Vestmannaeyingum fast og ákveðið verðtilboð á tonnið frá Norðmönnum. Getur þetta létt undir með Eyjamönnum að hreinsa til hjá sér, og því má svo bæta við, að ógrynni af vikri eru í Vestmannaeyjum, utan kaupstaðarins, og hefur víst enginn áætlað magn hans. KLÁMMYNDIR Verulega eru hugmyndir manna á reiki um, hvað nefna megi klám og hvað ekki, svo sem í bókmenntum, myndum og kvikmyndum. Fyrir tveim árum gerði lögreglan í Reykja- vík upptæk veggspjöld af því tagi, en Hæstiréttur hefur ný- lega kveðið upp úrskurð sinn í málinu. Staðfesti hann úrskurð undirréttar, þess efnis, að vegg- spjöldin séu klám. Það var nú svo sem gott og blessað að fá skilgreiningu Hæstaréttar á málinu. En fleira þarf til að koma ef stuðla á að útrýmingu þess háttar mynda. HÆTTA VIÐ GLERÁR- BRÚNA Glögg og velviljuð húsmóðir bað blaðið að koma þeirri ósk á framfæri, að hið bráðasta verði gcrt við austustu Glerárbrúna, þar sem aðalumferðin er, bæði bíla og gangandi fólks, en óvar- in op á miðju þessa mannvirkis, bjóða hættunni heim. Þessu er hér með komið á framfæri við rétta aðila. Þá hafa borizt kvartanir um hunda og ketti. Um hundahald eru í gildi ákveðnar reglur, sem eigendum þeirra dýra er skylt að fylgja. Um 50 hundar eru á Akureyri og að því er virðist er liundahald stórvandræðalaust hér á Akureyri. Hins vegar virðast kettir utan við lög og rétt og þeir eru af mörgum illa séðir, einkum um varptímann. Enn er í fullu gildi það ágæta ráð, að hengja bjöllu á köttinn, til að minnka veiðihæfni þeirra. INNFLUTTU HÚSIN Talið er, að Viðlagasjóður muni flytja inn 435 hús, 100—125 fer- metra hvert, handa Vestmanna- eyingum og eru þau fyrstu kom in á sína grunna sunnanlands. Leiga fyrir þessi hús verða 6— 10 þús. kr. á mánuði. Ennfrem- ur ætlar Viðlagasjóður að láta byggja fjölbýlishús með 70 íbúð um og annað með 30 íbúðum. Á hið stærra að vera í Reykja- vík, en það minna í Hafnarfirði. Þá er í athugun að byggja á Húsavík og í Borgarnesi. En luis þau, innflutt og þau, sem ákveðið er að byggja, eru fyrir 45 f jölskyldur, og erlendu húsin verða sett niður á Suður- og Suðvesturlandi. 872 fjölskyldur hafa sótt um íbúðir til Viðlaga- sjóðs. BLÓTUÐU FREY OG FREYJU Fleiri eru í fréttum en Baháí- menn, þeirra manna, er láta trúarbrögð til sín taka. Þannig liafa ásatrúarmenn hér á landi (Framhald á blaðsíðu 5) ingar halda fund HERSTÖÐ V AR ANDSTÆÐ- TÓNLEIKAR í AKUREYRARKIRKJU SÖNGFÉLAGIÐ GÍGJAN og Karlakór Akureyrar efna til tónleika í Akureyrarkirkj u dag ana 25., 26. og 27. maí næstkom- andi og hefjast tónleikamir kl. 9 síðdegis alla dagana. Efnisskrá er fjölbreytt og samanstendur hún af lögum m. a. eftir Áskel Jónsson, Árna Thorsteinsson, Björgvin Guð- mundsson, Sigursvein D. Krist- insson, Jakob Tryggvason, ís- lenzkum þjóðlögum í útsetn- ingu Jóns Ásgeirssonar, syrpu af lögum eftir Béla Bartók o. fl. Hluta af söngskránni syngur hvor kór út af fyrir sig, en síðan syngja þeir saman alls 14 lög. Söngstjórar eru Michael J. Clarke og Jón H. Áskelsson. Undirleik annast Dýrleif Bjarnadóttir ásamt strengja- sveit og einnig er leikið undir á harmoniku í einu lagi. Þá leikur strengjasveitin Presto úr kartett no. 2 eftir F. J. Haydn og Allemand og menúett.eftir J. J. Rousseau. Einsöngvarar eru Gunnfríður Hreiðarsdóttir, Guðmundur B. Stefánsson, Helga Alfreðsdóttir og Petrína E. Þórarinsdóttir. Aðgöngumiðar fást í Bóka- búðinni Huld og þar geta styrkt aríélagar einnig fengið miðum skipt á milli daga og eru þeir vinsamlega beðnir að gera það, henti þeim ekki þeir miðar, sem sendir hafa verið heim til þeirra. Dagana 30. maí til 3. júní næstkomandi fara kórarnir í söngför til Suðurlands. Áformað er að syngja á eftirtöldum stöð- um: Borg í Grímsnesi, Flúðum, Félagsheimili Seltjarnarness og Félagsbíói í Keflavík. (Fréttatilkynning) Eitt og annað frá bæjarstjórn — Akureyri, fremst á myndinni eru kappróðrarbáta r. FuIItrúar á vinabæjamót í Álasundi. Bæjarráð samþykkir að til- nefna bæjarfulltrúana Ingólf Árnason og Sigurð Jóhannes- son sem fulltrúa Akureyrar- bæjar á vinabæjamóti í Ála- sundi 16.—17. júní næstkom- andi. Fuíltrúar í boðsferð til Narssak. Bæjarráð samþykkir að til- nefna Jón G. Sólnes forseta bæjarstjórnar, Stefán Reykjalín varaforseta og Bjarna Einars- son bæjarstjóra, sem fulltrúa Akureyrar í boðsferð til Narssak í byrjun ágústmánaðar næstkomandi. verð á litlum vara-heimilisraf- stöðvum fyrir bæjarbúa, vegna hins ótrygga ástands í rafveitu- málum. Oseyri 16. Erindi dags. 29. janúar sl. frá Jóni Steinbergssyni f. h. Varar h.f,. þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbótarbyggingu úr steinsteypu og stáli á lóðinni nr. 16 við Óseyri, samkvæmt meðfylgjandi teikningum dags. í janúar og marz 1973 eftir Birgi Ágústsson. Samþykkt. Bygginganefnd samþykkir að bílastæði verði a. m. k. 30 talsins og fyrirkomu lag þeirra sýnt á teikningu sem lögð verði íyrir bygginganefnd til samþykktar. Veggur milli 1. og 2. áfanga verði eldvarnar- veggur ofan dyraopa og sjálf- virkar reyklúgur settar á þak 2. áfanga samtals 12 fermetrar að stærð. Veggur úr óbrennan- legu efni verði á milli trésmíða- verkstæðis og járnsmíðaverk- stæðis. Leyfið er háð „gjald- skrá“ um byggingargjald. Nefndin óskar eftir að staðsett- ar verði snyrtingar á 1. hæð hússins. (Ljósm.: E. D.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.