Dagur - 23.05.1973, Side 5

Dagur - 23.05.1973, Side 5
4 irrni1 /■-/ 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Valdbeiting Breta SÚ ákvörðun brezku stjómarinnar, að senda herskip til verndar veiði- þjófum á íslandsmiðum, kom flest- um á óvart. Að vísu höfðu þessháttar hótanir dunið yfir um langt skeið, en togaraeigendur í Bretlandi af- þökkuðu jafnan flotavernd, minnug ir hinna árangurslitlu veiða í fyrra „þorskastríði". Daginn áður hafði brezki sjávarútvegsráðherrann til- kynnt, hvað gerast þyrfti á miðun- um, til þess að herskipin yrðu send inn í landhelgina. Ekkert af því, sem liann taldi upp, liafði gerzt og engin áreitni höfð í frammi af hendi ís- lenzku Landhelgisgæzlunnar við þá fáu togara, sem eftir voru innan 50 mílna markanna, frá því yfirlýsing brezka ráðherrans var gefin út og þar til brezki flotinn öslaði inn í landhelgina. Það liggur ljóst fyrir, livers vegna orð ráðherrans reyndust svo ómerk. Ástæðan var sú, að brezk- ir togarasjómenn voru yfirbugaðir í taugastríði sínu við löggæzlumenn hinnar íslenzku Landlielgisgæzlu og þeir neituðu algerlega að halda veiðunum áfram og liéldu máli sínu til streitu. Það vom því þeir, sem beygðu brezku ríkisstjórnina. Brezku togarasjómennimir hótuðu heim- siglingu og til þess að koma í veg fyrir að brezka stjómin missti svo algerlega andlitið, var flotinn send- ur á vettvang. Þrjú herskip, dráttar- bátar og aðstoðarskip ösla nú um- hverfis veiðiþjófana, sem verða að stunda veiðiskapinn í þéttum hnapp. Og nú sjá allir sjóræningjaandlit Breta, ódulbúið. Það andlit sér allur heimurinn. Laxardeilu lokið Á LAUGARDAGINN vom undir- ritaðir samningar í hinni löngu og illvígu Laxárdeilu. Forystu- menn beggja deiluaðila hafa lýst ánægju sinni yfir gerðum samning- um. í þeim felst það m. a., að hætt verður öllum frekari virkjunarfram- kvæmdum í Laxá, umfram þá 6.5 MW virkjun, sem lengi hefur verið að unnið, nema fullt samþykki land- eigenda komi til. Ríkissjóður tekur þátt í „umframkostnaði“ við þessa virkjun. Gerðardómur sker úr skaða bótakröfum landeigenda. Með samn- ingi þessum falla niður málaferli þau, sem risið hafa vegna virkjunar- framkvæmda og lögbanni er aflét. Ríkissjóður kosti fiskveg framhjá virkjunum og Geirastaðakvísl. Lax- árvirkjun greiði landeigendum tvo af þúsundi tekna, sem Laxárvirkjun fær af orkuverum sínum í ánni. Ríkisstjómin láti semja fmmvarp til laga um vemdun Laxár og Mývatns. frá húsmæðraskólanum laugum FRÁ BÆNDASKÖLANUM á HÖLUM SÍÐARA námstímabili Hús- mæðraskóla S.-Þingeyinga að Laugum lauk 12. maí sl. Eins og kunnugt er af frétt- um var skólinn rekinn með ólík um hætti í vetur, en verið hef- ur. Var honum skipt í tvö náms tímabil. Hinu fyrra lauk 15. desember og var það sniðið við þarfir framreiðslufólks. Síðara námskeiðið hófst 10. janúar og var með venjulegum hætti húsmæðrafræðslu, að öðru leyti en því, að nú var í fyrsta sinn í sögu skólans ekki kenndur þar vefnaður. Þetta síðara námstímabil sóttu 20 nemendur og hafa því nálega 40 nemendur stundað nám við skólann í vetur. Auk þess nutu nemendur 4. bekkjar gagnfræðastigs Héraðsskólans náms í matreiðslu í Húsmæðra- skólanum, þrjá tíma í viku. Þeir voru 47. Fastir kennarar skólans, auk frk. Jónínu Bjarnadóttur skóla- stjóra, eru aðeins tveir, frú Fanney Sigtryggsdóttir handa- vinnukennari og frú Hjördís Stefánsdóttir húsmæðrakenn- ari. Stundakennarar á þessu síðara námstímabili voru Páll H. Jónsson, sem flutti erindi um bókmenntir og notkun bóka, tvo tíma í viku, Friðrik Jóns- son, sem kenndi söng, einn tíma í viku og Sigurður Viðar Sig- mundsson, sem kenndi sund. Hinn 10. maí sl. heimsóttu skólann 20 ára og 10 ára nem- endur og færðu honum góðar gjafir. Einnig gáfu nemendurn- ir, er kvöddu skólann að þessu sinni peningaupphæð til auk- innar prýði á nemendaherbergj- um. Þann 11. maí var sýning á handavinnu nemenda og sóttu hana margir gestir þrátt fyrir vonda færð á vegum. Frétt frá Tónlisfarskóla Húsavíkur UM 80 nemendur stunduðu nám í Tónlistarskóla Húsavíkur í vetur, þar af 6 úr Mývatns- „svejt og 1 frá Kelduhverfi, N.- Þinjg. Auk þess hafa kennarar skólans kennt einu sinni í viku um 20 nemendum í Hafralækj- arskóla í Aðaldal. Fastir kenn- MÓTMÆLA VÍNVEITINGUM VORÞING Þingstúku Eyja- fjarðar haldið í félagsheimili templara, Varðborg, 8/4 1973, mótmælir eindregið veitingu á áfengi í opinberum veizlum ríkis og bæjar og leyfir sér jafn- framt að benda á hversu háðu- legt það er, að veita vín fyrir almannafé á sama tíma og nauð- þurftir eru skattlagðar, jafnvel ellilaun, og hótað aðför að lög- um, ef ekki er staðið í skilum með greiðslur. Pálmi Ólafsson, þingtemplar. Kjartan Jónsson, þingtemplar. arar við skólann eru skólastjór- inn, Steingrímur M. Sigfússon, og Robert Bezdek hljómsveitar- stjóri frá Prag. Stúndakennarar voru í vetur Katrín Sigurðar- dóttir, sem kenndi á píanó, og Sigurður Árnason, sem kenndi á þverflautu. í vetur var keypt til skólans rafeindaorgel, mjög hentugt skólahljóðfæri og hefur innbyggt segulbandstæki. Enn- fremur voru keypt ýmis smá- hljóðfæri. Kirkjukór Húsavíkur gaf 50.000 kr. til orgelkaupanna og 27 þús. króna styrkur var veittur til þeirra frá ríkissjóði. Orgelið kostaði 96 þús. krónur, komið til Húsavíkur. Menning- arsjóður Kaupfél. Þingeyinga veitti skólanum í vor 50 þús. krónur til kaupa á hljóðfærum. Skólinn er rekinn með þátt- tökugjöldum nemenda og styrkj um frá Húsavíkurbæ og ríkis- sjóði. Nemendatónleikar voru haldnir í anddyri Barnaskóla Húsavíkur 1. maí sl. og voru þeir vel sóttir af foreldrum nem enda og öðru áhugafólki. Skóla- slit fóru fram laugardaginn 12. maí og voru þá veitt verðlaun - Brezki sjóherinn í landhelgi (Framhald af blaðsíðu 1). sem talin eru upp þau atriði, sem fyrir hendi þyrftu að vera til að brezki sjóherinn gripi í taumana innan 50 mílnanna, en þau atriði voru ekki fyrir hendi. Talið er, að 17 brezkir togarar hafi siglt af íslandsmiðum, ýmist til Hvítahafs, Barentshafs eða á mið nálægt Færeyjum, en aðrir sneru við, er herskipin voru komin, en þau sigldu inn í landhelgina klukkan 3 síð- degis á laugardaginn. En þyrlur frá þeim höfðu áður sveimað um veiðisvæðin innan 50 míln- anna. Á sunnudaginn voru brezku togararnir 15 að tölu í landhelg- r Askorun AÐALFUNDUR Héraðssam- bands eyfirzkra kvenna, hald- inn í Sólgarði 12. maí 1973, skorar á þingmenn kjördæmis- ins og vegamálastjórn, að hraða svo sem kostur er framkvæmd- um við brúargerð, sem tengir skólastaðina Laugaland og Hrafnagil. Með tilliti til aukinnar nýt- ingar sérkennslukrafta og í von um aukin og bætt menningar- og félagssamskipti fólksins í héraðinu og til að bæta sam- göngur héraðsbúa, teljum við fulla þörf á brúargerð þessari. (Frá Héraðssambandi eyfirzkra kvenna). þeim nemendum, er framúr sköruðu, ennfremur fylgdi hverju prófblaði aðgöngumiði að tónleikum Sinfoníuhljóm- sveitar fslands, sem koma mun til Húsavíkur í lok maímánaðar eða snemma í júní. Steingrími M. Sigfússyni skólastjóra hefur verið boðið á „Vorhátíð tónlistarinnar“ í Prag næsta vor, 1974, og er hon- um og skólanum sýndur mikill lieiður með því. Unnið er að því að fá Ladi- slav Vojta frá Prag aftur til skólans, en hann kenndi við skólann í fyrravetur. Ef það tekst verða tveir tékkneskir tón listarmenn á Húsavík næsta vetur. Þorm. J. Alls voru unnir í saumum og handavinnu 264 munir og í föndri 100 munir. Föndur kenndi frú Hjördís Stefáns- dóttir. Hinn 12. maí sleit svo skóla- stjóri skólanum að viðstöddum öllum nemendum, kennurum og nokkrum gestum. Hæstu aðaleinkunn við brott- fararpróf hlaut Elín Eydal, Böðvarsnesi í Fnjóskadal, 9.06. Árlega viðurkenningu Lions- klúbbsins Náttfara, fyrir hátt- prýði og þegnskap í skólanum, hlaut Guðríður Valtýsdóttir, Bröttuhlíð í Svartárdal. Reynslan af þessu fjögurra mánaða námstímabili í hús- mæðrafræðslu var mjög góð. Námsmeyjar sýndu jafnan og vakandi námsáhuga og lögðu sig fram um að njóta þeirrar fræðslu, sem kostur var á. Við brottfararpróf hlutu allir nemendur skólans hæstu eink- unn, sem gefin er, fyrir hegðun. Þessi skipting skólans í tvö námstímabil hefur mælzt ágæt- lega fyrir og nemendur verið mjög jákvæðir gagnvart fyrir- komulaginu. Sú breyting hefur orðið á skólanefnd Húsmæðraskólans, að Karl Kristjánsson fyrrv. alingismaður, sem verið hefur formaður nefndarinnar í fjölda ára, lét af því starfi samkvæmt eigin ósk. í hans stað hefur menntamálaráðherra skipað séra Sigurð Guðmundsson pró- fast á Grenjaðarstað. (Fréttatilkynning) BÆNDASKÓLANUM á Hólum var slitið 2. maí. Athöfnin hófst með guðsþjónustu í Hóladóm- kirkju, þar sem prófasturinn, séra Björn Björnsson, predik- aði. Skólastjórinn, Haraldur Árnason, sleit skólanum. Ut- skrifaðir voru 23 búfræðingar, 14 eftir tveggja vetra nám og 9 eftir eins vetrar nám. Hæstu meðaleinkunn á búfræðiprófi hlaut Einar Guðmundsson frá Neðri-Mýrum í A.-Hún. fyrstu ágætiseinkunn 9.17. Tveir aðrir hlutu ágætiseinkunn, Skarphéð- inn Larsen, Lindarbakka, A,- Skaft. og Kári Sveinsson, Skr. Hinn 3. maí fóru flestir hinna nýútskrifuðu búfræðinga, ásamt skólastjóra og fleiri úr starfsliði skólans, til Færeyja. Flogið var frá Sauðárkróki beint til Vog- eyjar. Tók ferðin fjóra daga. Bændaskólinn á Hólum hef- ur nú starfað samfleitt í 90 vetur. En hann var stofnaður 14. maí 1882. Iðnaðarmannafélag Sauðár- króks gengst fyrir ráðstefnu um iðnfræðslu í Norðurlands- umdæmi vestra og verður hún á Sauðárkróki laugardaginn 2. júní. Hefst hún klukkan 13.30 og verður sett af Árna Guð- mundssyni formanni iðnaðar- mannafélagsins. Ávörp flytja: Jóhann Guðjónsson, Ólafur Pálsson, Valgeir Kárason, Guð- mundur Einarsson verkfræðing ur, Reykjavík, sem ræðir um það, hvers má vænta af nýjum lögum um iðnfræðslu, ennfrem- ur Hákon Torfason bæjarstjóri og Óskar Guðmundsson fram- kvæmdastjóri, Reykjavik. Ráð- stefnugestum verður skipt nið- ur í umræðuhópa, þar sem ávörp frummælenda verða rædd. Iðnaðarmenn og forvígis- menn sveitarfélaga í umdæm- inu eru hvattir til að mæta á þessari ráðstefnu. Hegranesið landar í dag 70 tonnum fiskjar. G. Ó. Aldrei verið meiri vinna á Grenivík Ingólfur Ármannssbn á Ör. (Ljósm.: Myndver) Grenivík 18. maí. Fyrir skömmu fóru hænur Stefáns Þórðarson- ar í Hvammi að tína tölunni og hurfu ein og tvær á nóttu. Þótti þetta ekki alveg í samræmi við aðferðir minks, sem sjaldan drepur í hófi, þegar hann kemst í hænsnabú. Ekki liðu margir dagar þar til nýdauður minkur fannst við kartöflukassa og þótti mönnum þá, sem þjófur- inn myndi fundinn. En hæn- urnar héldu áfram að hverfa eftir sem áður. Var þá lagður minkabogi með árangri. Minkar þeir, sem hér var um að ræða, voru læður og geta menn sér þess til, þar sem samkomulag þeirra í milli hjá þessari tegund dýra er ekki alltof kærleiksríkt, inni, þar af 11 við veiðar á litlu svæði og undir vernd þriggja herskipa og eftirlitsskipa. Á mánudag voru landhelgis- brjótarnir orðnir 33 talsins. íslenzk stjórnvöld hafa mót- mælt aðförum Breta kröftug- lega, og með þessum aðgerðum hefur landhelgismálið tekið nýja stefnu. Og þessa sömu daga hafa brezk stjórnvöld höfð að til nýrrar og gamallar vin- áttu Breta og íslendinga og að ekkert sé þeim kærara en sætt- ir og góð samvinna. íslenzkur almenningur, ekki síður en stjórnvöld, hlýtur að fyllast rétt látri reiði yfir slíkri hræsni og fagurgala annars vegar og svo grímulausri valdveitingu. Hvar er nú NATO-vináttan? Hvar eru nú þeir, sem vernda vilja rétt smáþjóða, eins og vin- ir okkar á Miðnesheiðinni? Gæzluskip Landhelgisgæzl- unnar eru auðvitað lítil og mátt vana til að sinna löggæzlustörf- um sínum, þegar erlent flota- veldi er annars vegar. En þó varð sú raunin í síðasta „þorska stríði“, að Bretar uppgáfust og biðu hinn eftirminnilegasta ósigur, svo sem allur heimurinn veit. Svo mun fara nú, fyrst og fremst af þeirri ástæðu, að ekki er unnt að stunda fiskveiðar hér við land með sæmilegum árangri að fyrirmælum her- skipa. Ekki er heldur unnt, gagnvart umheiminum, að draga fjöður yfir þær ofbeldis- aðgerðir, sem Bretar gera sig nú seka um. p NÁTTÚRUSKOÐUN Nú er varp hafið fyrir alvöru, svo að maður getur átt þess von, svo að segja hvar sem er, að rekast á hreiður hinna ýmsu fugla, úti í náttúrunni. Og ekki þarf langt að fara til að heyra söng fuglanna og sjá ástalíf þeirra og umhyggju fyrir eggj- um og ungum. Ég ók dag einn kippkorn suð- ur fyrir kaupstaðinn og tók tali allstóran hóp ungmenna, svona á fermingaraldri, er þar var einnig á ferð, hjólandi: Fannst mér það ólíkt skynsamlegra en að vera í bíl, svo mjög auðveld- ar það alla náttúruskoðun. Ég spurði unga fólkið hvort það hefði séð jaðrakana og rauð- höfðaendur. Já, líklega voru rauðhöfðaendur hérna útfrá, a. m. k. einhverjar endur. En jaðrakanar, hvað er það, með leyfi? Eru það kannski fugl- arnir í hvítu og svörtu? Nú hófst kennslustund í fugla fræði á veginum. Rauðhöfðar, grænhöfðar, jaðrakanar, tjald- ur, stelkur, hrossagaukur, urt- önd, hávella, æðarfugl, hettu- mávur, svanur, gæs, kjói og raunar enn fleiri fuglar voru í sjónmáli. Ekki veit ég um ár- angur kennslunnar, en ef miðað er við forvitni nemendanna var hann kannski einhver. Ekki var auðgert að heyra, að þetta fólk hefði opnað dýrafræðina sína, þar sem segir frá fuglum, eða að það hefði heyrt kennara sinn minnast á þessháttar skepnur. Nokkrum dögum síðar voru með mér þrjú önnur ungmenni og mun yngri og skoðuðum við náttúrunnar ríki á melhól einum um stund. Þau voru enn fróðleiksfúsari en þau, sem fyrr voru nefnd, og heyrðust þau hafa yfir setningar úr skólabók- um sínum, og fundu nú þeim orðum stað í lifandi náttúrunni. Átti ég að lokum fullt í fangi með að snúa heimleiðis, vegna áhuga hinna ungu náttúruskoð- ara. Eitthvað á þessa leið sagði bæjarbúi einn á skrifstofum Dags, og er blaðinu ánægja að minna á þetta mál og þá mögu- leika, sem náttúran og allt um- hverfis okkur hefur að bjóða á þessum árstíma, þeim er augu og eyru hafa opin fyrir röddum náttúrunnar og margþættum undrum hennar. ATHUGASEMD f 21. tölublaði Dags 9. maí sl. er smáfrétt frá Guttormi Óskars syni á Sauðárkróki, um skóla, sem byrjað er að byggja í Varmahlíð. Að skóla þessum Standa fyrir víst 10 hreppar í Skagafjarðarsýslu, og hafa þeir gert bindandi samning sín í milli um byggingu hans. Auk þess hefur Lýtingsstaðahreppur óskað éftir aðild að skólanum með vissum skilyrðum, og er það mál á umræðustigi. Einnig getur Fellshreppur gengið í samtök þessi með tvo efstu bekkina, eins og Hofsós og hrepparnir þar í grenndinni. Munu engin dæmi til, að jafn- mörg sveitarfélög hafi samein- azt í skólahverfi hér á landi eins og þarna á sér stað. Kostnaðaráætlun, dagsett 3. maí sl., er 130—140 milljónir. Með mikilli hagsýni hefur oft tekizt að reisa slík mannvirki undir áætluðu kostnaðarverði, sérstaklega ef brennandi áhugi hefur verið hjá þeiip, sem að verkinu standa, að koma því fljótt og vel í framkvæmd. Og hér er gamalt hugsjóna- og nauðsynjamál loksins að fá framgang. Hvort sem kostnaður við byggingu skólans stenzt áætlun eða ekki, þá finnst mér, að Guttormur hefði átt að leita sér upplýsinga um þetta mál hjá einhverjum, sem til þekkja, en senda ekki flugufregnir af Sauð árkróki, um sem næst 50% hærri áætlun en gerð hefur verið, þar eð hann mun vera ábyrgur fréttamaður fyrir Fram sóknarflokkinn hér í Skagafirði. Rétt er það, að bygginga- meistarinn heitir Guðmundur Márusson, en hann er frá Bjarnastöðum í Akrahreppi, en ekki frá Bjarnastaðahlíð. 15. maí 1973. Helga Kristjánsdóttir, Silfrastöðum. ATH. Mér er skylt að gera hér örlitla athugasemd, og þá fyrst, að aðspurður um skóla- byggingar í Varmahlíð vísaði Guttormur Óskarsson mér til Halldórs Benediktssonar á Fjalli, formanns byggingar- nefndar. Við Halldór ræddi ég og sagði hann ekki ólíklegt, að allur byggingarkostnaður færi í 200 millj. króna, þrátt fyrir áætlun þá, sem nú gildir og breytist með breyttum bygg- ingarkostnaði. Setti ég svo þess- ar upplýsingar inn í fréttaklaus una frá Guttormi, og er því við mig að sakast en ekki hann, ef ranglega er frá sagt. Þessu til viðbótar er svo það að segja, að hinn mikli áfangi, tvær stórar byggingar, sem í sumar á að vinna að, er áætlað þriggja ára verk og mun þar um að ræða um helming skólabygginganna. Þakka ég svo tilskrifið og vona, að byggingarkostnaður verði sem minnstur og skólinn sem beztur. Ritstjóri. að sú þeirra, sem betur mátti, hafi drepið hina. Samkvæmt úrskurði veiði- stjóra, var hér um villiminka að ræða, en ekki minka frá minkabúinu Grávöru, sem þarna er á næstu grösum. Frá því búi er það að segja, að þar eru fæddir 7200 hvolpar. Ekki þykir það nægileg frjósemi, en þó skárra en í fyrra. Aflabrögð hafa verið ágæt og KVIKMYNDASÝNING KVIKMYND Ásgeirs Long, „íþróttahátíð Í.S.Í. 1970“ verður sýnd í Borgarbíói í dag, mið- vikudag, kl. 6. Þessi mynd, sem gerð var í sambandi við sumar- og vetrar- hótíð Í.S.Í., hefir ekki verið sýnd opinberlega áður. Myndin er í litum og einkar skemmti- leg fyrir þá, sem gaman hafa af íþróttum og útilífi. □ NORÐMENN STYÐJA Á SÍÐASTA fundi utanríkis- ráðherra Norðurlanda létu Norðmenn í ljós stuðning við það sjónarmið íslendinga, að strandríki ættu rétt til yfirráða yfir auðæfum hafsins við strend ur landanna og þetta sjónarmið myndu Norðmenn styðja á haf- réttarráðstfnu Sameinuðu þjóð- anna. Hann sagði, að norska stjórnin hefði samúð með mál- stað íslendinga í þessu máli. □ því meiri vinna síðan um ára- mót en áður hefur verið á sama árstíma. Gildir þessi góði afli bæði um þorskinn og.gráslepp- una. Hretin hafa tafið grásleppu veiðarnar, en netatjón mun þó ekki hafa orðið verulegt. Sauðburður stendur yfir og gengur vel. Margt er um tví- lembinga. Vegirnir eru vel þurrir og harðir, en ákaflega ósléttir og vondir yfirferðar. Á sunnudaginn verður barna- skólanum slitið. Ungt fólk, sem hefur verið í skóla í vetur, er nú að koma heim, ennfremur vertíðarfólk. Menn eru að undirbúa garða sína og þeir fyrstu munu byrja að setja niður kartöflur um helgina. P. A. Firmakeppni Léttis lokið Mjólkursamlag KEx4 bar þar sigur úr býtum SL. LAUGARDAG fór hin ár- lega firmakeppni Hestamanna- félagsins Léttis fram á .skeið- velli félagsins við Eyjafjarðará. Hið fegursta veður var og fjöldi fólks saman komið til að horfa á hestamenn sýna gæðingana. Keppni fór fram með svoköll- uðu útsláttarfyrirkomulagi og dæmdu fimm dómarar hestana án þess að bera sig saman. Úrslit urðu þau, að í fyrsta sæti varð Mjólkursamlag KEA, en keppandi var Ör Gests Jóns- sonar, þekktur gæðingur, en Þcrskurinn lagstur og fæst ekki Gunnarsstöðum í Þistilfirði 21. maí. Þar sem talað er um hluta- hæsta bátinn Geir, í síðustu frétt frá mér í Degi, er báturinn kallaður „einn aumasti koppur- inn“. Þetta átti ekki svo að vera, heldur átti að standa: Geir er aðeins 7—8 tonna bátur og minnsti báturinn, sem gerð- ur var út á þorskanet í vetur og alltof lítill farkostur fyrir jafn ógætan fiskimann og Jóhann Jónsson er. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessu. SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8) kosið sér allsherjargoða, Svein- björn Beinteinsson, í félagi ása- trúarmanna. Kirkjumálaráðu- neytið hefur viðurkennt þessa kosningu, og þar með munu ása trúarmenn telja sig hafa rétt til að skíra, gifta og greftra, einnig að framkvæma unglingavígslur. Og ásatrúarmenn vilja nú fara að byggja. Síðasta dag vetrar blótaði ásatrúarfélagið að fom- um sið Frey og Freyju til árs og friðar. VÖRUFLUTNINGAR OG VERÐJÖFNUN Á síðustu dögum þingsins var skipuð nefnd til að gera athuga vöruflutninga hér á Iandi, skipu lag þeirra og verðjöfnun um Iand allt. Á starf nefndarinnar að miða að því, að allar vörur séu seldar við sama verði livar sem er á landinu, á viðkomu- stöðum skipa, flugvéla og áætl- unarbíla. Sæti í nefndinni eiga Vilhjáhnur Hjálmarsson, Sverr- ir Hermannsson, séra Gunnar Gíslason, Magnús Reynir Gunn arsson á Siglufirði og Haukur Hafstað bóndi í Skagafirði. Hef- ur nefndin haldið sinn fyrsta fund og var Vilhjálmur kosinn formaður hennar. BIFREIÐASKOÐUN MISBRESTUR mun á því, að menn færi ökutæki sín til skoð- unar á réttum tíma. Samkvæmt áður birtri auglýsingu þar um, er lögreglan þegar farin að taka þá bíla úr umferð, sem van- rækja skoðunarskylduna og hljóta eigendur sektir. Er því betra fyrir menn að bregða fljótt við og heimsækja Bifreiða eftirlitið, svo sem skylt er og lög og reglur mæla fyrir um. LAXÁRDEILU LOKIÐ ÞAÐ var tilkynnt fyrir helgina, að Laxárdeilunni væri lokið með sættum. Blaðið sneri sér af því tilefni til formanns Lax- árvirkjunarstjórnar, Vals Arn- þórssonar, og hefur hann góð- fúslega lofað að svara í næsta tölublaði nokkrum spurningum um málið, Q Hér er glaða sólskin dag og nótt, en þriggja til sjö stiga frost á nóttunni og fer gróðri því lítið fram. Sauðburður er í fullum gangi og gengur vel, þar sem ég hef frétt til og frjó- semi ánna mikil. Hjá bjálfum hér á Gunnarsstöðum, . sem misstu flest lömbin í fyrra, eru nú að verða hundrað ær bornar og vantar níu lömb til að eiga tvö á hverja á. Það var hú það, sem hélt í okkur lífinu í fyrra- vor, þegar lömbin voru að hrynja niður, að einhverntíma myndi ganga skár. Flestir eru búnir að taka upp net sín og eru að dytta að bát- um sínum. Fiskurinn hefur lagzt, segja sjómenn, og veiðist ekki í netin. Bráðum fara svo minni bátamir á fæii, en hinir stærri verða með þorskanót. Grásleppan veiðist ennþá, en eitthvað hefur dregið úr veið- inni. En margir eru komnir með 100 tunnur af hrognum og meira og má það kallast gott. Ó. H. hana sat Ingólfur Ármannsson. í öðru sæti var Bílasalan h.f., keppandi Sindri Jóhanns Kon- ráðssonar og var hann einnig knapi. Og í þriðja sæti var Skó- gerð Iðunnar, keppandi Stjarni Gunnars Malmquist, knapi Sig- urgeir Steindórsson. Fjöldi fyrirtækja í keppni þessari voru 45. Áberandi var hve hestar voru fallegir og vel hirtir og er slíkt til sóma fyrir hestamenn. Þá var og verðlaun- aður bezti knapi mótsins og var það að þessu sinni Sveinsína G. Steindórsdóttir og var hún fyrir mynd bæði hvað ásetu og bún- að knapa snerti. Þá fóru fram boðreiðar milli eldri og yngri félaga og bar sveit yngri manna sigur úr být- um. Að lokum var börnum leyft að fara á bak og voru mörg til að nota sér það og er óskandi að hestamenn gætu oftar veitt þá sjálfsögðu þjón- ustu við börnin. En eins og er þá hafa hestamenn enga að- stöðu til sýninga og móta hér við eða í bænum nema þarna fram á bökkunum og eru þá háðir vatnsmagni árinnar hvort hægt er að nota svæðið og má segja að slíkt sé vart viðunandi fyrir svo fjölmenna íþrótt sem hestamennska er. Þá má og geta þess að sú athugasemd sem oft er sett aft- an við fréttir frá hestamótum um áfengisneyzlu á staðnum á hér hvergi heima og hjálpaði það mjög til að setja þann góða svip á þessa skemmtun. Að lokum skal öllum fyrir- tækjum sem þátt tóku í þessari keppni þakkaður stuðningur- inn, einnig öllum er að þessu unnu og síðast en ekki sízt öll- um þeim áhorfendum er mótið sóttu. Alfreð Arnljótsson teymir undir ungum knapa.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.