Dagur - 04.07.1973, Page 2
2
Nýja Miklabæjarkirkjan í SkagafirSi
EINS og kunnugt er af fréttum
brann Miklabæjarkirkja í
Skagafirði á sl. vetri. í brunan-
um eyðilögðust gamlir og verð-
mætir kirkjugripir, sem mikil
eftirsjá var að.
Kirkjan sjálf var allgömul
orðin, frá 1894, og komin á fall-
anda fót. En þar sem Blönd-
hlíðingum a. m. k. mun ekki
hafa þótt annað hlýða en að
Miklibær yrði áfram kirkju-
staður voru tveir kostir fyrir
hendi: að gera við hina gömlu
kirkju svo að til frambúðar
yrði eða að byggja nýja. Skoð-
un á kirkjunni var gerð árið
1966, af Finni Ámasyni, eftir-
litsmanni með kirkjustöðum, og
leiddi hún það í ljós, að viðhlýt-
andi viðgerð á kirkjunni mundi
verða mjög kostnaðarsöm. Var
því horfið að því ráði, að reisa
nýja kirkju.
Framkvæmdir við kirkjubygg
inguna hófust í júlí 1970 og um
sl. mánaðamót var þeim lokið,
ásamt frágangi á lóð.
Margir lögðu að sjálfsögðu
hönd að því verki, sem hér hef-
ur verið unnið og er ekki unnt
að geta þeirra allra. Arkitekt
var Jörundur Pálsson, bygginga
meistari Guðmundur Márusson
frá Bjarnastöðum, yfirsmiður
Ingólfur Þorsteinsson, Ásgarði,
múrararnir Þórir Bergsteinsson
og Þorsteinn Björnsson lögðu
flísar í gólf og gengu frá grunni
og sperrustöplum, Pétur Pálma
son verkfræðingur á Akureyri
sá um vinnuteikningar, Bjarni
Jónsson rafvirki á Sauðárkróki
lagði raflagnir, vélsmiðjan Logi
á Sauðárkróki smíðaði járna- og
burðarvirki í kirkju og turn,
trésmiðjan Borg á Sauðárkróki
smíðaði prédikunarstól, bekki,
hurðir o. fl., Sigurður Helgason
steinsmiður í Reykjavík smíð-
aði altari og skírnarsá úr ís-
lenzkum grásteini, Haukur
Stefánsson og Jónas Þór Páls-
son málarar á Sauðárkróki mál-
uðu kirkjuna utan og innan,
Marteinn Davíðsson listmúrari
skreytti kirkjutröppur og
klukknastöpul, Aðalsteinn Stein
dórsson sá um skipulagningu og
frágarig lóðar. En aflvakinn að
baki þessum framkvæmdum
voru svo að sjálfsögðu sóknar-
börnin, með sóknarnefndina
(form. Magnús Kr. Gíslason á
Vöglum) og byggingarnefndina
(form. Hólmsteinn Jóhannesson
á Þorleifsstöðum) í broddi fylk-
irigar og svo ekki hvað sízt
sóknarpresturinn á Miklabæ,
sr. Sigfús J. Árnason.
Síðastliðinn sunnudag, 3. júní,
vígði svo biskupinn yfir íslandi,
hr. Sigurbjöm Einarsson, hina
nýju kirkju, en sr. Sigfús J.
Árnason þjónaði fyrir altari.
Við upphaf athafnarinnar var
gengið í skrúðgöngu til kirkju
og báru byggingarnefndar- og
sóknarnefndarmenn helga muni
kirkjunnar. Kirkjukór Mikla-
bæjar- og Flugumýrarsóknar
annaðist söng við vígsluna und-
ir stjórn Jóhönnu Sigríðar Sig-
urðardóttur, prestsfrúar á
Miklabæ. Þá sungu og nokkrir
menn úr karlakórnum Heimi.
Fjölmenni var við vígsluna
og m. á. voru þar mættir prest-
ar úr nágrannabyggðum.
Að lokinni vígsluathöfninni
var gestum boðið til höfðing-
legra veitinga í félagsheimilinu
Héðinsminni og sáu konur úr
söfnuðinum um þær. Þar fluttu
stuttar ræður biskup, sóknar-
prestur og formaður sóknar-
nefndar.
Hin nýja Miklabæjarkirkja er
að öllu veglegt hús og vandað
og umhverfi hennar frábærlega
vel frá gengið og snyrtilegt. Er
hún talandi vottur um að enn
eru, sem betur fer, í fullu gildi
þau orð Hjálmars skálds frá
Bólu, að „miklu fá orkað í mann
vina höndum samlynd tryggða-
tök.“
Magnús H. Gíslason.
Breyting á nafnskírteinunum
ÁKVEÐEÐ hefur verið að gera
ýmsar breytingar á nafnskrí-
teinakerfinu, í þeim tilgangi að
hamla gegn misnotkun í sam-
bandi við skírteini.
Framvegis verða öll nýútgef-
in og endurútgefin skírteini
plasthúðuð, áður en Hagstofan
lætur þau af hendi. Með þessu
á að vera loku fyrir það skotið,
að menn geti falsað fæðingarár
eða aðra áritun á skírteini eða
skipt um mynd á því. Tilraunir
í á átt leiða, eftir þessa endur-
bót, til þess eins, að nafnskír-
teinið eyðileggst. Auk þess
verða skírteinin hentugri í ndtk
un, og ending þeirra eykst til
mikilla muna.
Þá hafa og verið settar nýjar
og strangari reglur til varnar
því, að ungmenni, sem segjast
hafa týnt nafnskírteini, geti
svikið út nýtt skírteini með eig-
in mynd, en á nafni annars,
eldra ungmennis. Einstaklingur
á 12—25 ára aldursbili fær fram
vegis ekki útgefið nýtt nafn-
skírteini á Hagstofunni, nema
með honum mæti karl eða kona,
Frá Golfklúbbi Akureyrar
UM síðastliðna helgi fór fram
hin svokallaða Junior Chamber
keppni. Urslit urðu þau, að
Hörður Steinbergsson sigraði
bæði með og án forgjafar. Ann-
ar, án forgjafar, varð Sævar
Gunnarsson og annar, með for-
gjöf, var Tómas Sigurjónsson,
eftir harða úrslitakeppni við
Árna Jónsson. Næst á dagskrá
hjá Klúbbnum er svo Akureyr-
armót í golfi og hefur verið rað
að niður í ráshópa:
Fyrsti ráshópur (kvennaflokk-
ur) kl. 16.00:
1. Jóhanna Jóhannsdóttir.
2. Karólína Guðmundsdóttir.
3. Margrét Jóhannsdóttir.
Meistarafl. karla kl. 17.30:
1. Björgvin Þorsteinsson.
2. Gunnar Þórðarson.
3. Sævar Gunnarsson.
KI. 17.40:
1. Gunnar Sólnes.
2. Ragnar Steinbergsson.
3. Hörður Steinbergsson.
Kl. 17.50:
1. Þengill Vaidimarsson.
2. Bragi Hjartarson.
3. Árni Jónsson.
1. flokkur — kl. 18.05:
1. Haukur Jakobsson.
2. Eggert Eggertsson.
Kl. 18.15:
1. Sigtryggur Júlíusson.
2. Sigurður Ringsted.
3. Jón Steinbergsson.
2. flokkur — kl. 18.30:
1. Tómas Sigurjónsson.
2. Sveinbjörn Sigurðsson.
Kl. 18.40:
1. Rafn Gíslason.
2. Jóhann Guðmundsson.
3. Heimir Jóhannesson.
3. flokkur — kl. 18.50:
1. Sigurður Stefánsson.
2. Tryggvi Sæmundsson.
•3. Sveinn Sigurgeirsson.
Unglingaflokkur — kl. 19.00:
1. Konráð Gunnarsson.
2. Sigurður G. Ringsted.
3. Karl Frímannsson.
Ef fleiri klúbbfélagar hyggja
á þátttöku í móti þessu, eru þeir
beðnir að hafa samband sem
fyrst við Arnar Einarsson í síma
11382. Menn eru beðnir um að
mæta tímanlega vegna breyt-
inga, sem gætu orðið á rásröð.
Reynt verður að hliðra til fyrir
þá keppendur, sem vegna vinnu
eða annarra löglegra orsaka
geta ekki mætt á tilsettum
tíma. Q
sem með undirskrift sinni
ábyrgist, að hann sé sá, sem
hann segist vera. Ábyrgðarmað-
ur skal hafa náð 30 ára aldri,
vera búsettur hér á landi, og
hann verður að sanna, hver
hann er, með framlagningu
vegabréfs eða ökuskírteinis.
Verði ábyrgðarmaður uppvís að
því að hafa látið í té rangt vott-
orð, verður mál hans umsvifa-
laust sent dómstóli til með-
ferðar.
Einstaklingar á 12—25 ára
aldursbili, sem óska að fá út-
gefið nýtt nafnskírteini, skulu
framvegis afhenda 2 eins mynd-
ir af sér, og er önnur þeirra
fest á beiðnina, áður en ábyrgð-
armaður ritar vottorð sitt á
hana.
Loks er það einn liður í þess-
um aðgerðum, að framvegis
fæst endurútgefið skírteini ekki
afhent fyrr en daginn eftir að
beiðni um það var borin fram.
Með þessu fæst svigrúm til að
rannsaka réttmæti beiðnar, ef
ástæða er til.
Innan skamms verða gerðar
hliðstæðar breytingar á þeim
reglum, sem gilda utan Reykja-
víkursvæðis um móttöku beiðna
um endurútgáfu nafnskírteina.
Aðrar breytingar á nafnskír-
teinakerfinu, sem krefjast breyt
inga á gildandi lögum, eru í
undirbúningi, og verða tillögur
þar að lútandi væntanlega lagð-
ar fyrir næsta Alþingi.
(Fréttatilkynning
frá Hagstofu íslands)
TAPAÐ
E YRN ALOKKUR
Stór si'lfur-eyrnalokkur
tapaðist s. 1. föstudags-
kvöld.
Góð fundarlaun.
Skilist á afgreiðslu Dags.
Gleraugu töpuðust.
Finnandi vinsamlegast
skili þeim á úrsmíða-
vinnustofu Jóns
Bjarnasonar.
Fréttatilkynning frá
Alþýðubandalaginu »
í Neskaupstað
Á AÐALFUNDI Alþýðubanda-
lagsins í Neskaupstað, sem hald
inn var 25. júní 1973, var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun um
brottför hersins og endurskoð-
un á afstöðunni til NATÓ. Er
ályktun þessi hér með send fjöl
miðlum með ósk um, að þeir
kynni hana.
„Aðalfundur Alþýðubanda-
lagsins í Neskaupstað, haldinn
25. júní 1973, lýsir yfir ánægju
sinni yfir, að nú skuli hafin
framkvæmd á ákvæði stjórnar-
sáttmálans um brottför hersins.
Heitir fundurinn á ríkisstjórn-
ina að sjá til þess, að allur her
verði á brott af landinu fyrir
árslok 1974.
Jafnframt skorar fundurinn
á ríkisstjórnina að endurskoða
afstöðu sína til Atlantshafs-
bandalagsins og losa þjóðina úr
því svo fljótt sem samningar
leyfa.“
Jón Rögnvaldsson
MINNINGARORÐ
JÓN RÖGNVALDSSON, garð-
yrkjumaður, vinur minn, er
fallinn í valinn, er fallinn í
skaut jarðar, sem hann elskaði
og fórnaði öllum sínum kröftum
fyrir.
Okkur ber að minnast hans
og þakka honum af alhug hans
mörgu og miklu störf fyrir gróð
ur jarðar.
Ég minnist hans árin í Fífil-
gerði, þar sem hann, og hans
fólk, vann af alhug og fómfýsi.
Svo komu árin á Akureyri:
Óþrotlegt var það starf, sem
hann vann fyrir bæinn og Lysti
garðinn og Grasagarðinn sinn.
Bærinn ber þess merki.
Jón var tryggur og vinfastur,
reiðubúinn að hjálpa er á lá.
Jón fór víða um byggðir lands
ins, leiðbeindi og veitti fræðslu
og aðstoð í garðyrkju og gróðri
jarðar, sem var hans hjartans
Tilboð óskast í ÁS II,
Glerárhverfi, lítið ein
býlishús.
Til sýnis næstu daga
milli kl. 8—10.
HÚS TIL SÖLU.
íbúð í raðhúsi við Furu-
iund 15, selst fokhelt.
Uppl. veitir Guðmund-
ur Jónsson, Langholti
22, eftir kl. 7 s. d. eða á
byggingarstaðnum frá 1
til 6 næstu daga.
Einstæð móðir, sem er á
götunni, óskar eftir
HÚSNÆÐI, má vera
aðeins herbergi.
Uppl. hjá Helgu Jóns-
dóttur lijá Hjálpræðis-
hernum fram á föstudag
Reglusamur ungur mað-
ur óskar eftir að leigja
herbergi í sumar.
Sími 2-10-78.
Til sölu einbýlishús í
smíðum við Hraungerði
6, selst foklielt.
Uppl. í síma 1-13-00.
mál. Frægastur varð hann fyrir
Grasagarð sinn, með búsundir
plantna, um víða veröld. Bróðir
Jóns starfaði með honum öll ár,
góður bróðir.
Jón barðist fyrir endurreisn
garðyrkjuskóla í Gróðrarstöð-
inni. Hóf námskeið í garðyrkju-
kennslu. Maður vonaði að af
þeirri byrjun risi skólinn í
Gróðrarstöðinni. Jón lagði
grundvöll við valdamenn: Al-
þingi og bæjarstjórn. Við þökk-
um það sem gert er í þessu máli
öllu til stuðnings og virðingar.
Það ber ávöxt, Guð gefur það.
Við gleymum aldrei Jóni og
þeim bræðrum alla þeirra bar-
áttu. Starfsemi fyrir Akureyrar-
bæ og Norðurland allt. Það
verður aldrei fullþakkað.
Vertu sæll, vinur, Guði falinn
og þín áhugamál.
Halldóra Bjarnadóttir.
- Sumaríþróttaliátíð
(Framhald af blaðsíðu 8)
minton milli Húsavíkur og Ak-
ureyrar Skíðamót verður hald-
ið í Hlíðarfjalli um kvöldið
miðvikudaginn 11. júlí. Keppt
verður í handknattleik um síð-
ari helgina. Sjóferðafélag Ak-
ureyrar gengst fyrir sýningu á
Akureyrarpolli og gefur bæjar-
búum kost á að sigla um Poll-
inn. Á föstudaginn lj3. júlj kem-
ur hingað til bæjarins 50 manna
hópur fimleikafólks frá Norð-
urlöndum, allt úrvals fimleika-
fólk, og sýnir hér um kvöldið,
og stendur sýningin yfir í tvo
tíma. Þar gefst bájjarbúum
kostur á að sjá eitt færasta
fimleikafólk Norðurlanda sam-
ankomið.
Að síðustu skal nefnt, að
frjálsíþróttamót verður háð á
þriðjudagskvöldið á íþróttavell-
inum og þar keppa unglingar
13—14 ára og 12 ára og yngri.
Foreldrar eru hvattir til að
koma og fylgjast með skemmti-
legum leik barnanna.
Að öllu þessu samantöldu,
sem er nánar tilgreint í aug-
lýsingum, má sjá að víða er
gripið niður og er von, að há-
tíðin verði vel sótt og af sem
flestum hér í bæ og úr nær-
sveitunum.
(Fréttatilkynning).