Dagur - 19.09.1973, Blaðsíða 4
4
Fjórðungssiúkrahúsið á Ak.
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Simar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Bjömssonar hi.
Gróska í höfuðstað
Norðurlands
TALSVERÐ gróska er í höfuðstað
Norðurlands um þessar mundir og
nær hún til margra þátta í atvinnu-
lífi, framkvæmda og menningar-
mála. Deilur rísa ekki hátt um þessi
mál, enda á bærinn fáa uþphlaups-
menn, engan Amarhól, nægilega
margar peningastofnanir og allgóð
samstaða helztu ráðamanna næst um
allar meiriháttar, sameiginlegar
ákvarðanir. Þetta er hin liljóðláta og
farsæla þróun ellefu þúsund dugandi
manna, sem hafa kosið að dvelja
á Akureyri, og starfa við iðnað, verzl-
un, útgerð og margar þjónustugrein-
ar fyrir bæ og hérað og taka jafn-
framt þátt í félagsmálum.
Hin farsæla þróun hófst með aukn
um áhrifum samvinnu- og félags-
hyggjumanna í stjórn bæjarins, eftir
langa og svo drungalega stjóm, að
atvinnuleysi á hverjum vetri var tal-
ið jafn sjálfsagt og skammdegið, og
vill nú enginn við kannast. En sam-
félagsmálin eru aldrei leyst að fullu
og þau em hverju sinni mörg í
brennidepli, og ber atvinnumálin,
sem er grundvöllur velmegunar og
allra breytinga í framfaraátt, öðmm
hærra. Stóriðja samvinnumanna á
Gleráreyrum, sem þúsundir hafa
framfæri sitt af og áfallalaus rekstur
Kaupfélags Eyfirðinga í verzlun, iðn
aði og mörgum þjónustugreinum,
myndarleg bæjarútgerð togara, fisk-
iðja, niðursuða, stálskipasmíði og
hvers konar önnur iðja og iðnaður,
skapar hinn trausta grundvöll iðn-
aðar- og samvinnubæjar, þar sem
margir eru bjargálna í efnalegu til-
liti, fáir ríkir og tiltölulega færri,
sem búa við ömurleg lífskjör en í
nokkmm öðrum kaupstað landsins.
Um þessar mundir er undirbúin
sjúkrahúsbygging, sem kosta mun
milljarð króna, nýir skólar rísa, fleiri
íbúðir em í smíðum en nokkru sinni
fyrr. Ný vöruhöfn er í smíðum, nýir
vegir með góðu slitlagi auðvelda um-
ferðina og auka þrifnaðinn, leikvell-
ir, dagheimili og vöggustofur leysa
dýrmætt vinnuafl úr læðingi og taka
húsmæður vaxandi þátt í atvinnu-
lífinu á fjölmörgum sviðum. At-
vinnuleikhús er tekið til starfa,
íþróttaaðstaða hefur verið byggð upp
nema sjálf íþróttahöllin, en einnig
hún rís af gmnni, fagurbúin miðstöð
æsku og hreysti á grænum völlum,
fyrir hverjar kosningar. En um leið
og við hugleiðum bæjarmál og horf-
um fram á veginn, þyrftu sem flestir
að eiga þess kost, áður en vetur geng-
ur í garð, að sjá litadýrð liaustsins og
safna sér forða fegurðar til vetrarins.
F J ORÐUN GSS JUKR AHU SIÐ
á Akureyri var tekið í notkun
fyrir um það bil 20 árum og
var til fyrirmyndar á þeim
tíma. En þróun ú í sjúkrahúsa-
byggingum og tæknilegum fram
förum í læknisfræði á þessari
öld, heldur einkum orðið eftir
síðari heimsstyrjöld. Það hús-
næði, sem Fjórðungssjúkrahús-
ið rekur sína starfsemi í, er orð-
ið ófullnægjandi í stærð og fyrir
komulagi og ekki undarlegt.
Bygging nýs sjúkrahúss á Akur
eyri eða stækkun hefur verið á
dagskrá í mörg ár. Nú fyrst
virðist málið komið á þann rek-
spöl að framkvæmdir hefjist
innan skamms. Af því tilefni
sneri blaðið sér til Gauta Arn-
þórssonar yfirlæknis og bað
hann að svara nokkrum spurn-
ingum um fyrirhugaða sjúkra-
húsbyggingu á Akureyri og
varð hann fúslega við því og
sagði m. a.:
Um starfið á Fjórðungssjúkra
húsinu er það fyrst að segja, að
teknar hafa verið upp nýjar
sérgreinar, svo sem augnlækn-
ingar og háls-, nef og eyrna-
lækningar, og aðrar greinar
hafa, hver fyrir sig, orðið fjöl-
þættari, þótt þær beri sömu
nöfnin og áður, svo sem hand-
lækningar, almennar lyflækn-
ingar, rannsóknarlækningar og
fleira.
Húsnæði Fjórðungssjúkra-
hússins er alltof lítið og óheppi-
legt fyrir þá greindu starfsemi,
sem fram fer innan stofnunar-
innar, og steinhúsin, traust og
sterk, sem byggð eru hér á
-landi eru erfið í breytingu,
einkum í sjúkrahúsum, þar sem
sjúklingar þurfa að hafa næði.
Hve mörg eru sjúkrarúmin
nú?
Eins og er höfum við 132
sjúkrarúm fyrir bráða líkams-
sjúkdóma, þar af eru 12 sjúkra-
rúm á Kristnesi, sem er lungna-
deild. Á Akureyri eru 120
sjúkrarúm. Þörfin er miklu
meiri og miðað við staðal heil-
brigðisráðuneytisins, sem gerð-
ur er að nokkru að sænskri og
enskri fyrirmynd, er þörf á 157
sjúkrarúmum á Akureyri mið-
að við árið 1971 í stað 120 eins
og nú er. Þetta segir þó lítinn
hluta sögunnar, því að það eru
ekki fyrst og fremst sjúkrarúm-
in, sem vantar, heldur starfs-
aðstaðan.
En hvernig standa bygginga-
málin í dag?
Mörg ár eru síðan forystulið
sjúkrahússins, bæði læknar og
annað starfsfólk, ásamt fulltrú-
um hins almenna og sjúkrahús-
stjórn, lagði drög að áætlun að
stækkun Fjórðungssjúkrahúss-
ins. Fyrir nokkrum árum lágu
fyrir frumteikningar að viðbót-
arbyggingu, sem síðar var horf-
ið frá, en þá þegar varð mönn-
um ljóst, að gera þurfti miklu
stærra átak í sjúkrahúsmálum,
miðað við nútímakröfur. Þar
við bætist, að heilbrigðisstjórn
landsins hefur gert að stefnu-
máli hugmynd um það, að Fjórð
ungssjúkrahúsið á Akureyri
verði aðal varasjúkrahús lands-
ins og því varð að endurskoða
fyrri áætlanir í samræmi við
það. Núverandi áætlun er skil-
greind þannig, að Fjórðungs-
sjúkrahúsið eigi að vera: I
fyrsta lagi almennt sjúkrahús
fyrir Akureyri og Eyjafjarðar-
sýslu, og veita 10% af almennri
sjúkrahúsþjónustu á öllu Norð-
urlandi og hluta af Austurlandi.
En á þessu svæði eiga önnur
sjúkrahús að veita 90% al-
menna þjónustu. í öðru lagi er
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur
eyri ætlað að veita sérfræði-
þjónustu fyrir Skagafjörð, Þing
eyjarsýslur og 40% á Austur-
landi, auk Akureyrar og Eyja-
fjarðarsýslu. Síðast en ekki sízt
á sjúkrahúsið, að skoðun heil-
brigðisyfirvalda, að vera aðal
varasjúkrahús landsins utan
höfuðborgarsvæðisins með til-
liti til almannavarna.
Sjúkrahússtjórn, bæjarstjórn
og fleiri aðilar hafa samþykkt
hinar nýju teikningar. Á ný-
byggingin að verða 78.000 rúm-
metrar og 22.670 fermetrar að
flatarmáli. í þjónustukjarna, er
verður 2 hæðir og kjallari,
verða meðal annars gjörgæzlu-,
skurð- og röntgendeildir ásamt
slysavarðstofu og göngudeild.
í útbyggingu verður m. a. kyndi
stöð, kapella og líkhús og viðbót
Gauti Arnþórsson, yfirlæknir.
við verkstæði. f tengiálmum
verða skrifstofur, búningsað-
stöður starfsfólks og ræstimið-
stöð. í legudeildarálmum, sem
verða tvær, hver upp á fjórar
hæðir með kjallara, verða auk
legudeildanna rannsókna- og
endurhæfingadeild. f grunn-
byggingu legudeildanna verða
eldhús og borðstofur. Áætlaður
byggingatími er 5 ár.
Nýbyggingin verður sunnan
og suðvestan við gamla Fjórð-
ungssjúkrahúsið og byggingarn
ar tengdar saman með tengi-
gangi, og ekki alltof mikið tillit
tekið til gamla sjúkrahússins,
hvað snertir útlit og gerð.
Gamla sjúkrahúsið verður þó
ekki lagt niður, heldur verður
því breytt og í því höfð ýmisleg
nauðsynleg starfsemi fyrir hið
nýja og endurfædda sjúkrahús.
Framkvæmdin er miðuð við
íbúafjöldaspá og þörf, sem
einnig er sniðin eftir áætluðu
þjónustusviði sjúkrahússins.
Áætlunartíminn er til 1990 og
samkvæmt þessu er áætluð
þörf árið 1990 fyrir 190 sjúkra-
rúm fyrir bráða líkamssjúk-
dóma, en þar við bætist þörf
fyrir geðsjúkrahús um 78—86
rúm og hjúkrunarheimili og
endurhæfingardeild með 41
rúmi. En almennt er talað um,
að þetta sjúkrahús eigi að verða
með um 300 sjúkrarúm full-
byggt, og byggingartíminn er
áætlaður 5 ár.
Er mögulciki á, að byrja fram
kvæmdir í haust?
Já, og húsnæðisskorturinn í
sjúkrahúsinu er svo geigvæn-
legur, að albr sem þar vinna
gera sér ljóst, að komið er í
eindaga að bæta húsnæðisskort-
inn, og það fyrir löngu síðan.
Það er nauðsyn að hefja fram-
kvæmdir í haust, til þess að
þurfa ekki næsta vor að bíða
eftir því að klaki fari úr jörð.
Byggingatími næsta ár yrði þá
mun lengri. Mjög góðar teikn-
ingar eru tilbúnar, sem bygg-
inganefnd og bæjarstjórn hafa
samþykkt fyrir sitt leyti. Sér-
stök hönnunarnefnd hefur verið
starfandi, og eftir er aðeins að
fá formlegt samþykki ríkis-
valdsins.
Heilbrigðisyfirvöldin eru sam
þykk þessu og heilbrigðisráðu-
neytið hefur átt mikinn þátt í
þessari áætlunargerð, en fjár-
málavaldið hefur ekki sam-
þykkt framkvæmdina ennþá.
Ennfremur á samstarfsnefnd
eftir að leggja þar blessun sína
yfir, en sú nefnd þarf að sam-
þykkja allar framkvæmdir, sem
gerðar eru á vegum ríkis og
sveitarfélaga í sameiningu.
Byggingin verður boðin út, en
sjálft gæti sjúkrahúsið annast
útgröft og byggingu grunnsins,
þar sem tími til útboðs er of
skammur fyrir framkvæmdir í
haust, en verkið yrði þá boðið
út í byrjun næsta árs.
Mannmörg stofnun
Sjúkrahjálp er með mann-
frekustu þjónustustörfum og
má gera ráð fyrir fleira starfs-
fólki en sjúklingum. Það nægir
ekki að stunda sjúklinga aðeins
átta klukkustundir á dag, held-
ur verður að gera það allan sól-
arhringinn árið út.
Á sama tíma og Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri hefur
staðið í stað hefur miklum fjár-
munum verið varið til sjúkra-
húsa á höfuðborgarsvæðinu. Er
því tími til kominn að hefjast
handa hér, og líta má á þetta
mál sem þátt byggðastefnunnar
í framkvæmd. Mörg öfl þjóð-
félagsins vinna að því eftir ýms
um leiðum að öll meiriháttar
starfsemi sé í Reykjavík. Ef
ekki verður brugðizt við þessu
á réttan hátt, þá verður að
nokkrum tíma liðnum engin
þörf fyrir hinar ýmsu stofnanir
úti á landi, til augljóss óhag-
ræðis fyrir fólkið út um landið,
sem missir þjónustu til fjarlægs
landshluta. Fullkomið sjúkra-
hús hér á Akureyri eykur og
jafnvægi í þessari grein og at-
vinnumöguleika fyrir hæfasta
fólk í heilbrigðisgreinum hér,
ekki síður en syðra. Fyrir bæjar
félagið hlýtur svo þetta stækk-
aða og endurbætta fyrirtæki að
verða verulegur þáttur atvinnu
lífsins. ; i
Er það rétt, að þú hafir í
hyggju að flytja héðan?
Það er of mikið sagt. Hins
vegar hef ég sótt um dósent-
starf við Háskólann í hand-
læknisfræði, en umsókn mín er
þannig, að ég geri ráð fyrir yfir-
læknisstarfi við handlækninga-
deildina hér á Akureyri eftir
sem áður. Auglýst var pró-
fessorsstaða í handlæknisfræði
við Háskólann og sótti ég um
hana ásamt fjölmörgum öðrum
og er þar hörð samkeppni. En
mér finnst sjálfsagt að allir hæf
ir menn sæki um þessa stöðu
hjá Háskólanum, og að sumu
leyti finnst mér það skylda mín
gagnvart þeirri stofnun, sem ég
vinn hjá, að sækja ef maður
telur sig hlutgengann í sam-
keppninni, því að það er álits-
auki fyrir stofnun þá, sem mað-
ur vinnur hjá ef það sýnir sig
að starfsmaður hennar er hlut-
gengur í samkeppni um æðstu
stöðu í greininni hér á landi,
jafnvel þótt þeir hljóti hana
ekki. Ef svo ólíklega vildi til, að
ég fengi þessa stöðu, myndi það
vera mér mikill söknuður og
fjölskyldu minni enn meiri, að
flytja héðan, eins og nú stendur
á, því að nú göngum við á
sjúkrahúsiiiu mót miklu bjart-
ari framtíð en áður, vegna fyrir
hugaðra framkvæmda. En
frómt frá sagt, hef ég enn engar
áhyggjúr af brottflutningi.
Verður þetta fullkomnasta
sjúkrahús landsins?
. Það er mín skoðun, að þessi
áætlunargerð við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri sé lík-
lega sú fullkomnasta, sem gerð
hefur verið á íslandi, í hönnun
heilbrigðisstofnunar. Þetta
sjúkrahús verður langbezta og
nýtízkulegasta sjúkrahús hér á
landi.
I i | nwr
Dagur þakkar Gauta Arnþórs
syni yfirlækni svörin. E. D.
HLIFARKONUR
GEFA BARNADEILD
Á sl. VETRI færði Minninga-
sjóður Kvenfélagsins Hlífar
barnadeild Fjórðungssjúkra-
hússins að gjöf mikið úrval
leikfanga ásamt klukku, að
verðmæti 20 til 30 þúsundir
króna.
Nú í ^l. viku færðu fulltrúar
Hlífar barnadeildinni mjög full-
komna fóstru (hitakassa), ljósa-
lampa, sem notaður er gegn
gulu í nýfæddum börnum og
súrefnismæli. Kostaði þetta kr.
253.615,00. Fylgja fóstrunni öll
nýjustu hjálpartæki og búnaður
og er mikill fengur að þessum
góðu gjöfum.
Þakkar sjúkrahúsið Hlífarkon
um fyrir góðar gjafir, fyrr og
íðar.
Torfi Guðlaugsson
Nýkomnar
Peysur, stærðir 1—12.
Smekkbuxur í stærð-
um 1—10.
Úlpur, sokkabuxur,
ihvítar rúllu/kragapeys-
ur, norskar.
Vöggusett á kr. 370,00.
Koddaver, vagnteppi
nneð ikoddaverum.
Stuttermapeysur og
golltreyjur eins, 4 litir,
stærðir 1—3.
Nýjar vörur daglega.
ÁSBYRGI
Hafnarstræti 108,
Akureyri.
Kýr til sölu
Tilboð óskast í kýr, sem eru til sölu hjá Búfjár-
ræktarstöðinni á Lundi við Akureyri.
Kýrnar verða tiPskoðunar jjriðjudaginn 25. sept-
ember og verður tekið á tnóti tilboðum til hádeg-
is miðvikudaginn 26. september.
STJÓRN S.N.E.
Ficher teclmik Nýtt leikfang fyrir stráka. Úr því má gera ótal skemmtilegra hluta á auðveldan hátt. Ficher-Price Toys smábarnaleikföngin sterku og góðu. Leikfangamarkaðurinn Hafnarstræti 96.
BLAÐBURÐUR Vantar krakka eða full- orðinn mann til að bera Tímann út í Norður- byggð, Rauðuinýri og Grænumýri. Ujrpl. í síma 1-14-43 f. h. U mboðsmaður.
Tökum upp í dag Mikið úrval af sléttum flauelefnum. Terlenka buxna jersey. Ennfremur frönsk buxnaefni úr soðinni ull og terlene. Margar gerðir af rósótt- um kjólefnum. VERZLUNIN SKEMMAN — AKUREYRI—•
Nýkomnar Drengja- og telpu- peysur, margar gerðir og litir. VERZLUNIN DRÍFA Sími 1-15-21.
HERRADEILD
STAKAR BUXUR
(PERM PRESS)
Stórar stærðir. -
GÓÐAR VÖRUR
GOTT VERÐ
UMSE VANN HSÞ
í ÁRLEGRI frjálsíþróttakeppni
milli Eyfirðinga og Þingeyinga,
sigruðu þeir fyrrnefndu með
108 stigum gegn 88. Keppnin
var háð á íþróttavellinum að
Laugalandi í kulda og hvass-
viðri. Keppt var í 18 greinum
karla og kvenna, og voru tveir
keppendur frá hvorum aðila í
hverri grein. Nokkra af beztu
mönnum vantðai í lið Þingey-
inga. □
Rafha ísskápur til sölu.
Uppl. í síma 1-28-05
eftir kl. 5 á daginn.
Forystuhrútur til sölu,
3ja vetra.
Uppl. í síma 1-28-24
milli kl. 8 og 10 næstu
kvöld.
Fataskápur, dívan,
kommóða, servantur og
útvarp til sölu ódýrt,
í Aðalstræti 16,
að sunnan.
Til sölu nokkrar ungar
ÆR.
Uppl. í síma 2-11-74.
HESTHUS TIL SOLU!
10 básar í nýlegu hest-
'húsi asamt ldöðuplássi
til sölu.
Uppl. í síma 1-24-25
milli kl. 7—8 á kvöldin.
Til sölu nýlegur vel
með farinn RIFFILL,
teg. Vogere Cal. 22,
6 skota með kíki.
Einnig svefnstóll.
Uppl. í síma 1-29-73
milli kl. 10—11 á
kvöldin. i
Sem nýr kerruvagn til
sölu. Verð kr. 10,000.
Uppl. í síma 2-17-26.
Verkamaður óskast að
Nesi í Aðaldal.
Þarf helzt að vera vanur
landbúnaðarstörfum.
Sími urn Staðarhól.
Ráðskona óskast á
sveitaheimili, 35—40 ára.
Má hafa með sér börn.
Tilboð óskast send á
afgreiðslu blaðsins fyrir
1. október, merkt
„RÁÐSKONA*.
Tvær stúlkur óskast til
starfa í verksmiðjunni,
hálfs dags vinna kemur
til greina.
SANA HF.,
sími 2-14-44.
Inlffiiiiifl
UMSIÚN: EINAR HELGHSQN
IMÖTSLOK KNATTSPYRNUNNAR
ÞESSA dagana er að ljúka
keppnistímabili knattspyrnu-
manna á Akureyri. Meistara-
flokkur ÍBA er farinn til ítalíu
og mun koma við í Randers í
Danmörku í heimleiðinni og
leika þar við lið Randers Freja,
sem leikur eins og kunnugt er
í dönsku 1. deildinni.
Sl. föstudagskvöld lék ÍBA-
liðið síðasta leik sinn í 1. deild-
inni í ár. Mótherjarnir voru KR
ingar. Leiknum lauk með jafn-
tefli, einu marki gegn einu.
Leikurinn þótti rislítill og leik-
menn beggja liða harla áhuga-
litlir. KR-ingar fengu dæmda
vítaspyrnu á ÍBA undir lokin,
en okkar mönnum til blessunar
skutu þeir himinhátt yfir mark-
ið.
ÍBA byrjaði mótið með jafn-
teflisleik við Fram, íslands-
meistara frá því í fyrra, og
margir voru bjartsýnir á gengi
liðsins. Síðan dró snögglega
fyrir sólu og hver tapleikurinn
kom á fætur öðrum. Um mitt
sumar fór að rofa til og þá kom
. góð lota hjá liðinu, sem vann 4
leiki í röð og tryggði þá áfram-
haldandi setu sína í 1. deildinni.
Bjartsýnir menn voru farnir að
reikna með 3. sæti í mótinu.
Þær vonir urðu að engu. Eftir
þá ágætu lotu, sem færði liðinu
8 stig, unnust aðeins 2 stig til
viðbótar, jafntefli við ÍBK og
KR. Heildarstigatalan varð því
11 stig í 14 leikjum, sem er
39.3% af mögulegum stiga-
Frá Golfklúbbnum
HELGINA 8. og 9. sept. sl. fór
fram opin golfkeppni hjá G. A.
Keppni þessi var Saab-Toyota-
keppnin, en umboðsfyrirtæki
þessara bifreiðategunda á ís-
landi gáfu verðlaun í hana.
Sigurvegari án forgjafar varð
Björgvin Þorsteinsson, en með
forgjöf sigraði Þórarinn B. Jóns
son.
Nú um helgina fór fram öld-
ungakeppni og þar sigraði
Gunnar Konráðsson án forgjaf-
ar, en með forgjöf sigraði Jó-
hann Guðmundsson.
N. k. laugardag verða svo
úrslit í firmakeppni G. A., en
um 100 fyrirtæki taka þátt í
keppninni. Klúbbmeðlimir eru
hvattir til að mæta vel í úrslita-
keppnina.
Sunnudaginn 23. sept. verður
Parakeppni G. A., en henni
varð að fresta vegna veðurs
þegar hún átti að fara fram. □
FRÁ SKÍÐARÁÐI AK.
FYRST um sinn verða æfingEtr
SRA sem hér segir:
í íþróttaskemmunni þriðju-
daga kl. 6.30—7.30, 12 ára og
eldri.
1 íþróttahúsinu við Laugar-
götu miðvikudaga kl. 7.00—8.00,
16 ára og eldri.
Á íþróttavellinum fimmtu-
daga kl. 6.00—7.00, 15 ára og
eldri, og 7.00—8.00, 16 ára og
eldri.
Æfingarbúðir verða að Illuga
töðum 22. og 23. sept. n. k. fyrir
12 ára og eldri. Farið verður frá
Iðnskólanum n. k. laugardag
kl. 1 e. h. Áskriftarlisti liggur
frammi í Sportvöru- og hljóð-
færaverzlun Akureyrar.
Æfingar yngstu flokka verða
ákveðnar síðar. □
fjölda. Það verður að teljast við-
unandi árangur, þegar þess er
gætt, að liðið lék í 2. deild í
fyrra. Munurinn á deildunum
er mikill og erfitt fyrir lið, sem
koma upp í 1. deild að festa sig
þar í sessi.
í Bikarkeppni KSÍ komst lið-
ið í aðra umferð aðalkeppninn-
ar, en tapaði þá fyrir Akranesi
í aukaleik.
I. flokkur ÍBA tók þátt í
Bikarkeppni I. flokks og sigraði
í keppninni með miklum sóma,
vann úrslitaleikinn gegn Þrótti
með 6 mörkum gegn 1. Það
voru einu sigurlaunin, ‘ sem
knattspyrnumenn á Akureyri
unnu til á liðnu sumri.
í íslandsmóti 2. flokks keppti
lið frá ÍBA. Því gekk heldur
illa og tókst ekki að kornast í
úrslitakeppnina frekar en öðr-
um liðum yngri flokkanna-.
HÉRAÐSMÓT
UMF. REYNIR sigraði í stiga-
keppni Héraðsmóts UMSE, sem
haldið var að Laugalandi 25. og
26. ágúst sl. Alls tóku 10 félög
þátt í mótinu.
Stigahæstu einstaklingar
urðu: Dóroþea Reimafsdóttir,
umf. Svarfdæla og Jóhann Jóns
son, Bindindisfél. Dalbúinn.
Sigurvegarar í einstökum
greinum urðu:
KARLAR.
100 m hlaup. sek.
Felix Jósafatsson 11.4
400 m hlaup. sek.
Gísli Pálsson 55.1
1500 m hlaup. mín..
Benedikt Björgvinsson 4:43.(j
3000 m hlaup. mín.
Benedikt Björgvinsson 10:05.4
110 m grindahlaup. sek.
Jóhann Jónsson 17.3
4x100 m boðlilaup. sek.
Sveit umf. Reynis 47.9
Langstökk. m
Gísli Pálsson 6.48
Þrístökk. m
Gísli Pálsson 13.43
UMF. NARFI SIGRAÐI
SUNDMÓT UMSE fór fram í
sundlaug Þelamerkurskóla 18.
ágúst sl. Aðeins 6 félög áttu
keppendur á mótinu og voru
þeir aðallega úr Hrísey, Dalvík
og Svarfaðardal. Umf. Narfi úr
Hrísey hlaut lang flest stig á
mótinu og vann nú í fyrsta
skipti fagran farandbikar, sem
Kaupfélag Svalbarðseyrar gaf
til að keppa um. Helztu úrslit: KARLAGREINAR. 100 m bringusund. mín.
Árni Hjartarson, umf. Þorst. Svörfuður 1.29.5
200 m bringusund. mín.
Ámi Hjartarson, umf. Þorst. Svörfuður 3.28.2
100 m frjáls aðferð. mín.
Þórarinn Hjartarson, umf. Þorst. Svörfuður 1.19.1
50 m baksund. sek.
Kristján Hjartarson, umf. Þorst. Svörfuður 43.6
Það sem veldur manni einna
mestum vonbrigðum, er sú
óþægilega staðreynd, að enginn
yngri flokkanna frá KA eða
Þór skyldi sigra í Norðurlands-
riðlinum og komast í úrslita-
keppnina. Völsungur, Húsavík
sigraði í 5. flokki, Tindastóll,
Sauðárkróki í 4. flokki og KS,
Siglufirði í 3. flokki, sem sagt
enginn flokkur KA eða Þórs
komst áfram í keppninni. —
Félögin verða að taka unglinga-
þjálfunina til alvarlegrar endur
skoðunar ef þau ætla sér að
eiga frambærileg lið í meistara-
flokki í framtíðinni.
Úrslit í Akureyrarmóti 1973
urðu þessi: Meistaraflokkur
Þór—KA 3—0, 2. flokkur Þór—•
KA 4—2, 3. flokkur Þór—KA
4—2, 4. flokkur KA—Þór 4—1,
5. flokkur Þór—KA 2—1, og
6. flokkur Þór—KA 3—0. □
UMSE
Hástökk. m
Jóhann Jónsson 1.65
Stangarstökk. m
Valdimar Bragason 2.80
Kúluvarp. m
Þóroddur Jóhannsson 12.59
Kringlukast. m
Þóroddur Jóhannsson 31.47
Spjótkast. m
Jóhann Bjarnason 48.57
KONUR.
100 m lilaup. sek.
Fanney Jónsdóttir 14.1
4x100 m boðhlaup. sek.
A-sveit umf. Svarfdæla 58.8
Langstökk. m
Svanhildur Karlsdóttir 4.16
Hástökk. m
Dóroþea Reimarsdóttir 1.30
Kúluvarp. m
Sigurlina Hreiðarsdóttir 10.39
Kringlukast. m
Dóroþea Reimarsdóttir 29.46
Spjótkast. m
Margrét Sigurðardóttir 27.69
Á SUNDMÓTI UMSE
4x50 m boðsund. mín.
Sveit umf. Narfa 2.25.0
KVENNAGREINAR. i
50 m. bringusund. sek.
Fjóla Ottósdóttir, Narfa 48.0
Jóhanna Gunnarsd., Narfa . 48.0
100 m bringusund. mín.
Fjóla Ottósdóttir, Narfa 1.47.2
50 m frjáls aðferð. sek.
Lovísa Sigurgeirsd., Narfa 37.9
50 m baksund. sek.
Hrönn Ottósdóttir, Narfa 46.2
4x50 m boðsund. mín.
Sveit umf. Narfa 2.46.0
Stig félaga: Umf. Narfi 71,
umf. Þorsteinn Svörfuður 37%,
umf. Svarfdæla 11 og umf.
Möðruvallasóknar 1% stig.
-Flest stig í karlagreinum
hlaut Árni Hjartarson, en í
kvennagreinum varð Hrönn
Ottósdóttir stigahæst. □