Dagur - 15.12.1973, Page 5

Dagur - 15.12.1973, Page 5
4 5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. OLIAN VEÐURFRÆÐINGAR og sjómenn segja okkur, að ísinn sé nú skammt undan Norðurlandi og Vestfjörðum. Sá veðurfræðingurinn, sem mest hef- ur spáð í ísinn á undanförnum ár- um, telur líklegt, að ís verði nálægt landi 2—4 mánuði síðari liluta vetr- ar, en stormar og straumar ráði svo úrslitum um það, hvort eða hve lengi ísinn verði landfastur. Fyrrum voru harðindin og hungurdauði fólks og fénaðar hin trúfasta fylgikona haf- íssins, og víst getur sú fylgikona minnt á sig á ný, þótt það verði með öðrum hætti en áður. Níu þjóðir í Vestur-Evrópu hafa ýmist tekið upp skömmtun á olíum og benzíni eða ætla að gera það. Allar hafa þær livatt almenning til sparnaðar í notkun þessara vara. Ástæðan er sú að hinar olíuauðugu Arabaþjóðir ákváðu fyrirvaralaust að draga úr framleiðslu og sölu olíu til þessara og fleiri þjóða og hafa boðað meiri samdrátt þeirra við- skipta með nýju ári. Þessar olíu- auðugu þjóðir beita sínu olíuvopni í baráttunni við ísrael og þær þjóðir, sem þær telja sér ekki nægilega vin- veittar í þeirri baráttu. Vestur-Evrópuríkin eru svo mjög háð olíuverzluninni, að olíubannið svokallaða kom sem reiðarslag yfir þær og er enn óséð hvaða afleiðingar það hefur. Bann við sunnudags- akstri og ljósaskreytingum, sem mest hefur verið frá sagt í fréttum, eru smávægileg atriði, en sýnir þó svo glöggt sem verða má, livernig ástatt er um raforkuna, þar sem hún er framleidd með hinni arabisku olíu. Er þá einnig ljóst hversu fer um hinn margþætta iðnað, liáðan raf- orku, hinna ýmsu landa, á meðan Arabaríkin nota liið bitra olíuvopn sitt á eins óvægilegan hátt, sem raun ber vitni. Atvinnuleysi, samdráttur í framleiðslu og minnkandi kaup- máttur almennings eru þættir nýrrar efnahagskreppu, sem allt í einu ógn- ar fjölmörgum þjóðum, sem um of hafa verið háðar olíuviðskiptum við Afríkuþjóðir. Islendingar kvíða ekki olíuskorti næsta ár, samkvæmt samningi við Sovétlýðveldin, og búa því vel í þessu efni. En þeir, sem hita hús sín með olíu, mega þó búast við að þurfa að greiða einn milljarð króna í verð- hækkuninni einni saman næsta ár. Er því þörf á skjótri nýtingu fall- vatna og jarðhita hér á landi. Á þann eina hátt geta íslendingar svarað olíukreppunni. □ HINN HVÍTI GALDUR ÞAÐ verður ekki annað sagt um bókaútgáfu þessa hausts, en að hún hefur á sér dálítið óvenjulegt yfirbragð, og vekur óvenjumiklar umræður og um- hugsun um málefni, sem mörg- um virðist eðlilegt að væru liðin undir lok með aukinni þekk- ingu, og betur upplýstu fólki heldur en áður var, þegar menn trúðu á álfa og drauga, bæði til gagns og ógagns. Oft var grátt með álfum og mönnum segja þjóðsögur, en eins oft var hitt, að yvinsamleg samskipti tókust og blessun fylgdi sambúð þess- ari, eins og þegar vinátta ríkir með mennskum grönnum. í hinni nýju bók Ólafs Tryggvasonar, Hinn hvíti gald- ur, reynir höfundur að gera lesendum ljós þau sannindi, að dularöfl, máttur þeirra og feg- urð, sé alls ekki eins fjarrænt eða fjarstætt venjulegu mann- legu lífi eins og margir halda, sem aldrei hafa kynnt sér þessi málefni. Undirrituðum virðist að mörgum hætti til, af tak- mörkuðum skilningi og lítilli hógværð, ýmist að óvirða þessi mál og þá sem að þeim standa, með ofstæki án þess að kynna sér upptök og eðli málsins og hvernig er að þeim staðið, — en aðrir sveipa þau dýrðar- ljóma, hefja þau upp yfir dag- legt líf. Þannig verða þau óað- gengileg fyrir hinn almenna hlutlausa mann, sem þráir sann indi, og ekkert annað. Aldrei hef ég á miðilsfund komið og ekki haft löngun til þess, hef hálft í hvoru óttast slík sambönd, og í öðru lagi fundist mér ekki koma þessi mál neitt við. En við lestur bók- ar Ólafs breyttist þetta viðhorf mitt. Ég finn betur en áður, að á bak við gráan hversdagsleik- ann er fegurð, sem enginn þarf að óttast og öllum kemur við. Við lestur góðra bóka öðlast maður aukinn næmleika fyrir Endurminningar Friðriks Guðmundss. Á síðastliðnu ári kom út hjá Víkurútgáfunni, endurminn- ingabók Friðriks Guðmunds- sonar frá Syðra-Lóni, fyrra bindi, en þar bjó hann í 22 ár, en flutti þá vestur um haf. Hann skrifaði endurminningar sínar á gamals aldri. Nú er síðara bindið komið út og hefur Gils Guðmundsson séð um útgáfuna. Það er um 300 blaðsíður og skiptist í marga kafla, marga þeirra bæði skemmtilega og fróðlega. Nafna skrá er aftast í bókinni. í bók þessari er sögulegur fróðleikur af mörgu tagi. En í fyrsta kafla segir frá Þingvalla- fundinum og ferðinni á hestum þangað norðan úr Norður-Þing- eyjarsýslu. Og það gerðist 1895. Blaðinu hafa borizt þrjár bækur frá Bókamiðstöðinni. Þær eru þessar: Sumardagar í Stóradal eftir Hugrúnu, Haust- blóm, Ijóðmæli, eftir sama höf- und og Hrundar borgir eftir Þorstein Matthíasson. Hugrún, eða Filippía Krist- jánsdóttir, er löngu þjóðkunn af sögum sínum og ljóðum. Þessi nýja Ijóðabók hennar, Haustblóm, er fimmta ljóðabók skáldkonunnar. Félagsprent- smiðjan prentaði. Hin bókin, Sumardagar í Stóradal, er ætluð börnum og unglingum, og var hún lesin í hinu dulræna. Ólafur Tryggva- son kallar ekki á hulduverur eða himnaverur, það eru þær sem leita á fund hans, því þar fá þær góðar viðtökur. Skylt er að hafa það, sem sannara reyn- ist. Það er rangt að dæma án þess að kynna sér fyrst mála- vexti. Kaflinn Alþýðukonan, þriðji kafli bókarinnar vakti athygli mína sérstaklega. Hann vekur hvern heilbrigðan mann til um- hugsunar um það, hve margir skyldu þeir vera „óbrotnu" al- þýðumennirnir, konur og karl- ar, sem geyma í einangrun sinni „alla þá ást, sem aldrei var get- ið að neinu“ og auk þess speki, Ólafur Tryggvason. lífsreynslu og andlegan þroska. Maður skyldi þó ætla að þenn- an andlega auð væri fremur að sækja til hinna skólagengnu manna, en því miður, þá virð- ast þeir, sumir hverjir, allt of oft vera uppfullir af stolti og hroka fyrir sínum lærdómssjóð- um, og líta þá með lítilsvirðingu til þeirra ólærðu, sem hafa til- tæka andlega fjársjóði í poka- horninu til að miðla öðrum. Annars virðist mér af þeim kynnum, sem ég hef haft af lær dómsmönnum, þá sé það aðals- merki hinna sönnu mennta- manna, að hafa stöðugt opinn hug fyrir nýjum hugmyndum, hugdettum og reynslu annarra, hvort sem í hlut á húsgangur eða lærdómsmaður. Enda hefði mannkynið alls ekki verið kom- ið það áleiðis á þroskabrautinni, sem raun ber vitni um, ef öll andleg reynsla hinna mörgu og smáu hefði verið fótum troðin eða lokuð úti. Mikið eigum við þeim hugrökku mönnum að þakka, sem ekki létu hræða sig frá því að bera sannleikanum vitni. Og „hún snýst samt“ hvað sem hinir þrjósku og þráu segja. útvarp fyrir þremur árum. Hún fjallar m. a. um drenginn Magga frá Reykjavík, sem lendir í mörgum ævintýrum í Stóradal, ásamt bömunum þar á bænum. Gísli Rúnar Jónsson teiknaði myndir í bókina, sem er prent- uð í Prentverki Kópavogs. Hrundar borgir er 180 blað- síðna bók og fjallar hún um Djúpuvík, Ingólfsfjörð og Gjög- ur. Höfundurinn, Þorsteinn Matthíasson, rekur sögur þess- ara staða og ýmiskonar ævin- týri, sem þar gerðust. í bókinni eru allmargar myndir, og er hún bæði læsileg og einkar fróðleg, svo langt sem hún nær. Áður voru það ómenntuðu lærdómsmennimir, sem afneit- uðu dulspekinni, og þeir gera það enn í dag, þó að úti í hinum stóra heimi, bæði í Rússlandi og Bandaríkjunum, séu fjölda margar vísindastofnanir, sem senda frá sér markvisst, hægt en örugglega upplýsingar um margvíslega nýja þekkingu og vísindi, sem miðlar og annað dulrænt fólk hefur verið búið að segja okkur fyrir löngu, en aðeins fáir viljað trúa. Eins hefur það verið með ýmsar vísindalegar uppgötvan- ir aðrar. Sagt er að fyrsta skip- ið, sem sigldi yfir Atlantshaf og var knúið gufuafli, hafi haft innanborðs stórt upplag af riti, sem hafði að geyma fullkomin xök fyrir því, að ómögulegt væri að knýja skip yfir höf með þessu afli. Þessi saga rifjaðist upp fyrir mér, er ég var að lesa þessa ágætu bók Ólafs Tryggva sonar, og varð hugsað til and- mælenda þessara bókmennta. Þetta er fyrsta bókin sem ég les eftir Ólaf, en hún verður ekki sú eina, því að svo mikil verðmæti hefur þessi bók að gefa. Hún auðveldar manni vissulega að lifa þessu lífi lif- andi. Stíll bókarinnar er þægilega léttur og málfar mjög gott, minnir lesendur á að íslenzkan er auðug af orðum og hugtök- um til að lýsa því, sem orðum verður yfir komið. En það veit ég, að til eru þau verðmæti, og margvísleg reynsla, sem ekki verður með orðum túlkuð, þótt sumum þyki það kannski kyn- legt. Um þetta ber bók Ólafs merki, og ef til vill finnst sum- um orðgnóttin vera um of, en það finnst mér ekki, því höf- undur leitast við að lýsa sál- rænni og dulrænni fegurð, sem sumir þekkja ekki, og afar erfitt er að koma orðum að, en þar falla orðin oft svo þægilega að því, sem höfundur er að lýsa. Mér finnst bókin Hinn hvíti galdur, dulúðug, skemmtileg og góð bók. H. Jóhess. FJÖRAR B.O. Hljóðin á heiðinni Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri hefur sent frá sér sjöttu bókina eftir Guðjón Sveinsson og heitir hún Hljóðin á heiðinni. Hinar eru: Njósnir að næturþeli, Ógnir Einidals, Leyndardómar Lundeyja 1—2, Svarti skugginn og Ört rennur æskublóð. Hin nýja bók er um 190 blað síður og skiptist í 15 kafla. Á titilblaði stendur: Með kærri kveðju til lesenda og þökk fyrir samfylgdina í þessari sögu og hinum fyrri: Addi, Bolli, Skúli, Dísa, Kata og Krummi. Börn og unglingar, sem lesið hafa fyrri bækur Guðjóns Sveinssonar með þessum ágætu söguhetjum, eiga þess nú kost að fylgjast með framhaldinu. Töfrabrosið Töfrabrosið eftir Guðnýju Sigurðardóttur er 114 blaðsíðu bók frá Bókaforlagi Odds Björnssonar og hefur hún áður birtzt í Heima er bezt. Þetta er skáldsaga úr Reykjavíkurlífinu, eins og segir á bókarkápu. Hús- móðir er söguhetjan og hjóna- band hennar er hætt komið. Hún ætlar að skilja við eigin- manninn, og þá gerast þeir atburðir, sem sköpum skipt’a. Þrjár bækur frá Bókamiðsföðinni Stóð ég úti í tunglsljósi Um bók sína STÓÐ ÉG ÚTI f TUNGLSLJÓSI segir Guð- mundur G. Hagalín: Á árunum 1951—1955 komu frá minni hendi 5 bindi, sem öll hefðu getað komið út undir titli þess fyrsta: ÉG VEIT EKKI BETUR. í þremur þeirra er sagt frá ætt minni og átthögum, bernsku minni og unglingsár- um vestra, názni mínu og störf- um þar á landi og sjó og fólki, sem ég hafði kynni af. Hin bind in fjalla um dvöl mína hér í Reykjavík við nám og ritstörf, kynni mín af góðskáldum og öðrum menntamönnum og einn ig nokkrum af merkustu stjórn- málagörpum þeirrar tíðar — og síðast en ekki sízt frá því sam- félagi ungskálda og verðandi menntamanna, sem ég lifði og hrærðist í, en furðu margir þessara félaga minna hafa mark að djúp spor í bókmenntum og menningarlífi þjóðarinnar. Nú tek ég upp þráðinn aftur. f þess ari bók kveð ég í bili vini og velunnara í Reykjavík, skrepp vestur í Firði til fundar við ættingja og kunningja og fer í síðasta sinn í fiskiróður undir forystu föður míns á heimamið ættar minnar. □ Þjóðsagnabók Nordals Þriðja bindið af Þjóðsagna- bók Nordals er komið út. Þar með er þessu merka útgáfu- verki lokið. Að þessu sinni nefn ir Sigurður Nordal forspjall sitt Að viðskilnaði, en heita má, að þessar inngangsritgerðir hans, sem fylgt hafa bókunum, og eru að samanlögðu nálægt 100 lesmálssíðum sé í raun sjálf- stætt bókmenntaverk, sem rek- ur rætur íslenzkra þjóðsagna og þjóðsagnasöfnunar af mikilli þekkingu og þeirri skemmti- legu hugkvæmni, sem höfund- inum er lagin. Á það sennilega B. BÆKUR Niður um strompinn Ármann Kr. Einarsson hefur skrifað bókina Niður tun strompinn, sögu frá eldgosinu í Vestmannaeyjum. En Bókafor- lag Odds Björnssonar á Akur- eyri gefur út. En sami höfundur skrifaði einnig bók um Surts- eyjargosið og eru þetta ungl- ingabækur. Hin nýja bók er skáldsaga en byggist í aðalatriðum á heimild- um, sem eru nærtækar. Bókin er um 150 blaðsíður. Baltasar gerði teikningar. Læloiaþing Bókaforlag Odds Björnssonar hefur enn sent frá sér eina af bókum Franks G. Slaughters og nefnist hún Læknaþing og er þýdd af Hersteini Pálssyni og er hún 345 blaðsíður. Bækur Franks G. Slaughters hafa verið mjög vinsælar „af- þreyingarbækur“, um líf og störf lækna og hjúkrunar- kvenna, ástir, afbríði og glæpi. Höfundurinn var starfandi skurðlæknir og öllum hnútum kunnugur bak við tjöldin í sjúkrahúsum. En það var þó ekki skurðhnífurinn, heldur penninn, sem aflaði honum frægðar. Bækur hans eru spenn andi og viðburðaríkar. Q allverulegan hlut í þeim al- mennu vinsældum, sem þessu verki hafa hlotnazt. Að for- spjallinu frátöldu eru efnis- flokkar þessa bindis, sem hér segir: Viðburðasögur, Útilcgu- mannasögur, og eru þar fyrst á blaði Hellimannasaga og Syst- kinin í Ódáðahrauni, en flokkn- um lýkur með Fjalla-Eyvindi. Taka þá við Ævintýri. Síðasti flokkurinn er Gamansögur, og hafi einhver talið íslenzku þjóð- ina fyrr á öldum snauða af kímnigáfu og skopskyni, ættu þessar rammíslenzku gaman- sögur að vera vel fallnar til að leiðrétta þann misskilning. Þjóðsagnabókin, III. bindi, er alls 360 bls. að stærð. □ Dómínó (leikrit) Nú hefur Almenna bókafélag ið ráðgert að hefja útgáfu á flokki leikrita, frumsömdum og þýddum, í smekklegri gerð og jafnframt eins ódýrri og fram- ast er fært. Fyrsta bókin í þess- um flokki er DOMÍNÓ, leikrit í 3 þáttum eftir Jökul Jakobs- son. Leikrit þetta var frumsýnt 4. júní 1972 í tilefni Listahátíðar í Reykjavík, og sýningar á því teknar upp aftur þá um haust- ið. Þar sem hvort tveggja er, að höfundurinn er öllum lesendum kunnur, og svo margir leikhús- gestir hafa séð leikritið, ætti að vera óþarft að kynna efni þess mörgum orðum. En í fljótu bragði má segja, að það sé eins konar þverskurður af mannlegu hversdagslífi, sem framar öðru vekur mönnum spurninguna um það, hvað sé raunveruleiki og hvað sé sjónhverfing eða draumur. .• * »•• ■ □ Þrjár nýjar ljóðabæk- ur frá AB Almenna bókafélagið hóf árið 1968 að gefa út sérstakan flokk ljóðabóka í samstæðum bún- ingi. Hafa nú alls komið 20 bækur í þessum flokki og eru þá taldar með þær þrjár nýju Ijóðabækur, sem félagið sendir frá sér þessa dagana, en þær eru: Grænt líf eftir Ragnheiði Erlu Bjarnadóttur, ungan Reyk víking (f. 1953). Leit að tjaldstæði eftir Þóru Jónsdóttur (f. 1925). Gerðir eftir Gísla Ágúst Gunnlaugsson, ungan Hafnfirð- ing (f. 1953). Allar eru þessar 3 ljóðabækur prentaðar í Odda og bundnar í Sveinabókbandinu. Auglýsinga- stofa Kristínar Þorkelsdóttur gerði káputeikningar. □ Fiskvinnsla á íslandi Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar hefur nýlega sent frá sér bókina FISTVINNSLA A ÍSLANDI — sem hefur að' geyma 7 erindi, er voru flutt í Ríkisútvarpinu á vegum Rann- sóknarstofnunar fiskiðnaðarins í byrjun árs 1973. I bókinni eru erindin birt í þeirri röð, sem þau voru flutt. Þórður Þor- bjarnarson fjallar um fiskiðnað- inn og rannsóknastofnanir hans, Geir Arnesen um salt og salt- fisk, Páll Pétursson um niður- suðu og niðurlagningu sjávar- afurða, Björn Dagbjartsson um frystingu og frystigeymslu, Páll Olafsson um framleiðslu og notkun fiskimjöls og lýsis, Jónas Bjarnason um næringa- gildi sjávarafurða og Guðlaug- ur -Hannesson um gerlarann- sóknir á freðfiski. í bókinni hefur erindunum ekkert verið breytt efnislega frá flutningi þeirra í útvarp, hins vegar hafa töflur verið settar, þar sem þær eiga við, og höíundar hafa tekið saman skrár yfir heimildir sínar. Einnig eru nkokrar skýringa- myndir í bókinni. □ Gestur Færeyingurinn Jens Pauli Heinesen rithöfnudur er fædd- ur 1932 og varð stúdent 1952. Hann stundaði nám í Dan- mörku, en hefur lengstum ver- ið kennari í Þórshöfn. Hann hóf kornungur að skrifa og gaf út fyrstu bók sína 21 ára að aldri. Síðan hafa margar bækur komið frá hans hendi, bæði skáldsögur og smásagnasöfn. Eru sumar þeirra skráðar í trú- verðugum endurminningastíl og spegla einkum hina næmu náttúruskynjun ungs drengs, sem jafnvel í frumbernsku sér hin margbreytilegu fyrirbæri láðs, lofts og lagar, í ljósi mikil- vægra tákna, svo að atburðir, sem fyrir venjulegum sjónum eru ósköp þýðingarlitlir, verða fyrr en varir uppistaða í harm- rænum örlögum. Þannig tekur allt í náttúrunni á sig persónu- legar myndir og mannlega eigin leika. Ogleymanleg er sagan Gestur, sem bókin dregur vís- ast nafn af og lýsir með átakan- legum hætti hundstryggð og mannvonzku. Sama má segja um Manninn í rauða vestinu, Samúel, sem getur ekki sætt sig við hina „ungbornu tíð“, sem tekur færeyskuna fram yfir dönsku. Þegar móðir hans lá fyrir dauðanum hafði hún yfir ritningastaði og sálma á dönsku, og þess vegna var það svo „hátíðlegt, þegar hún tók síðustu andvörpin“. Gestur, úrval smásagna Jens Pauli Heinesen, sem Almenna bókafélagið gefur út, er í einu orði sagt bráðskemmtileg. Vignir Guðmundsson. MAÐUR, LÍTTU ÞÉR NÆR! Nokkuð hefur verið ritað um vegalagningu yfir Pollinn og eftir endilöngum Vaðlaskógi, út Svalbarðsströnd og yfir Víkur- skarð. Því ber að fagna, að auk- ið fjármagn fáist til vegagerðar, en þessar framkvæmdir verða ekki fyrir neðan 300 milljónir. Á að stefna í hættu áratuga starfi brautryðjenda í skógrækt með því að leggja fjölfarinn veg eftir Vaðlaskógi? Ég er sann- færður um, að gildi Vaðlaskóg- ar sem útivistarsvæði fyrir Akureyringa eykst með hverju ári, og að margir koma til með að sigla yfir Pollinn og ganga á vit náttúrunnar. Ef að þessi vegur þarf nauð- synlega að fara yfir Pollinn, er það lágmarkskrafa náttúru- unnenda að vegurinn verði lagður fyrir ofan Vaðlaskóg og að hann verði malbikaður þar sem hann fer í gegn um skóg- inn. Hins vegar vil ég benda á það, að erlendis yrði örugglega ekki lagður vegur yfir svipuð svæði og Pollinn og skóginn. Hér á Akureyri er algjörlega óviðunandi ástand í heilbrigðis- málum og virðist ætla að verða það á komandi árum. Heima- menn eiga þakkir skilið fyrir skelegga baráttu í þessum efn- um, en því miður virðist fjár- magn ríkisins ekki beinast í þessa átt. Mér er spurn, hvort setur þú heilbrigðisþjónustuna eða vegaframkvæmdir ofar í þínum huga? Svo er það annað mál, sem flestir eru fullsaddir af, en það eru raforkumálin. Á því sviði er svo herfilega gengið fram hjá heimamönnum, að orð fá ekki lýst. Það virðist eiga að stinga upp í okkur snuði með diesel- vélum á næsta ári og leiða síð- an hund að sunnan. Ákveðið að virkja Kröflu, án þess að rann- sóknum sé lokið og Mývetn- ingar mótmæla. Það er ákveðin skoðun mín, að ekki komj. annað til greina en að ljúka við Laxárvirkjun og að rafhitun húsa á Akureyri verði komið á sem fyrst. Virðingarfyllst, Oddgeir Þ. Árnason. HEITT VATN í BÆINN ÞAÐ er erfitt með heita vatnið á Akureyri. Laugin í Glerárgili dugar ekki einu sinni til að hita upp okkar góðu sundlaug. En svo virðist, sem ekki fáist í grenndinni jarðhiti, svo að nokkur fengur sé í, til þess, að hita upp þennan stóra bæ. En nú, þegar enn er óséð, hvernig raforkuþörfinni verður full- nægt, og olían er þá og þegar komin á tvöfalt háa verðið, þá verður að leita allra úrræða, til að fá hitagjafa úr jörðu. Hvernig er statt með heita vatnið á Reykjum í Fnjóskadal (yfir 90 stiga heitt), sem alltaf streymir þar upp og hverfur? Húsvíkingar sýndu mikinn dug, er þeir sóttu sér heitt vatn um 18 km leið og eru nú mjög ánægðir með árangurinn. HESTURINN ÞINN Frá Skjaldborgarútgáfunni á Akureyri hefur blaðinu borizt bókin Hesturinn þinn, eftir Vigni Guðmundsson blaða- mann. Hún er 180 blaðsíður og prýdd mörgum myndum. Svo sem nafnið gefur til kynna, fjallar bókin um hesta og hesta- menn. Að meginhluta er hér um að ræða efni, sem áður hef- ur birzt í blöðum og tímaritum, Morgunblaðinu og Hestinum okkar, en hestamönnum mun engu að síður þykja nokkur fengur í því að fá þetta efni í einni bók. Nýtt er þó viðtal við Björn Jónsson, en sá þáttur nefnist Undralækning og hesta- mennska. Frá Reykjum, um Bíldsár- skarð, til Akureyrar mun eitt- hvað styttri leið en frá Hvera- völlum til Húsavíkur, en e. t. v. erfiðari. Bíldsárskarð er senni- lega um 400 m hátt, en ekki mun tækni okkar ofviða, að koma vatninu yfir þann þrösk- uld. Ekki veit ég. um vatns- magnið þarna, hve margir sekúndulítrar vella þar fram, alveg af sjálfsdáðum; e. t. v. er auðvelt að auka það mikið. Ef við athugun reyndist þarna nóg vatn, og það fáanlegt og við- ráðanlegt að leiða til Akureyr- ar, mætti fara um á Illugastöð- um, og bæta þar svo um, að sumarhúsin verði jafnhæf til íbúðar á vetri sem sumri' Hefur mál þetta verið til um- ræðu og aðstaðan skoðuð? Spyr sá, sem ekki veit. " 6. des. ’73. Jónas í „Brekknakoti“. VEÐURLÝ SING KL. 7 HVERNIG stendur á þvír að þar er ekki fylgt fastri reglu? Það venjulega er, að stokkið er frá Horni til Mánárbakka á Tjörnesi, við veðurlýsinguna. En 1—2 daga í viku er getið um veður á Sauðárkróki, og þá ætíð á Akureyri um leið, kl. 6. Það er reyndar undarlegt, að getið er verðurs á Galtarvita, Æðey og Horni, þrem stöðum svo nálægur hver öðrum, en svo hvergi á Norðurlandi, allt til Tjörness. Megum við ekki biðja um, að í framtíðinni sé komið við á Akureyri? Jónas. „LJÓÐ DAGSINS11 Maður kemst ekki hjá því að heyra „ljóð dagsins“ í hádegis- útvarpinu, en það gengur oft alveg fram af mér hvernig þau eru. Mig minnir það væri á þriðjudaginn, eftir að „ljóð dags ins“ var flutt, að ég greip penna og páraði þetta á blað, og ég nefni það auðvitað ljóð dagsins, í framhaldi af því, sem ég var að hlusta á. En það er svona: Mannkind reykar í myrkri að baki glottir draugur. fortíðarinnar holdlausum skolti. Handan við hamravegg helspr engj unnar hlær vofa framtíðarinnar holum hlátri vitfirringsins. Ó. H. V ARÐELD ASÖGUR ÞEIR eru orðnir æði margir sem hafa fylgt Tryggva Þor- steinssyni um ævintýraheima skátastarfsins og setið með hon- um við snarkapdi varðeld og hlustað á sögurnar hans. Há- marki náði varðeldurinn, þegar Tryggvi Þorsteinsson. „Gamli“ dró upp banjóið og seiddi fram gamlar og nýjar minningar í formi ljóða og lags. Þá sungu jafnvel þeir sem sízt skyldu. Og nú eru sumar af sögunum hans Tryggva komnar á prent. Þær eru eflaust fróðlegur og skemmtilegur lestur fyrir eldri sem yngri, hvort sem þeir hafa starfað sem skátar eða ekki. Fróðlegar eru sögurnar, því að þær rifja upp atburði frá liðn- um tíma og varpa ljósi á ýmsa mikilvæga þætti mannlífs okkar og samband við náttúruna, sem víða virðist á undanhaldi. Skemmtilegar eru sögurnar, því að þær lýsa tápmiklum piltum, stundum nokkuð fyrirferðar- miklum, en ætíð viðbúnum að takast á við verkefnin. Ef til vill virðast sumar sög- urnar nokkuð hrjúfar á yfir- borðinu, en undirtónarnir eru greinilega af sama uppruna og tónar banjósins, tærir og seið- andi. Það er trú mín, að „Varðelda- sögur“ Tryggva verði vinsælt lesefni hjá unglingum „á öllum aldri“. Ingólfur Ármannsson. LOA LITLA LANDNEMI < Komin er út barnabókin „Lóa litla landnemi“ í annarri útgáfu eftir Þóru Mörtu Stefánsdóttur, kennara. Bókin er 94 bls. og prýdd myndum eftir höfundinn, sem falla vel að efni bókarinnar. Sagan lýsir fjölskyldu í sveit, sem svo fer til Ameríku og er lýst heimilisháttum og fjöl- skyldulífi beggja megin hafsins. Og þó að þessi fjölskylda færi frá kulda og erfiðleikum hér heima, beið hennar líka marg- háttað lífsstríð í bjálkakofúnum í Kanada. Bókin er rituð á góðu og ljósu máli og lýsir uppvexti Lóu, þar sem bömin leggja sig fram til að hjálpa til á heimilinu og fjöl- skyldan er tengd föstum bönd- um. Á kápu er þess getið, að sagan styðjist við sannsögulega atburði, enda er hún sennileg í alla staði. Þetta er góð bók, sem lýsir venjulegu fólki, sem oft er í erfiðum kringumstæðum. En erfiðleikarnir stækka það. Virð- ist Lóa síðar á ævinni rifja úpp þessar minningar æskuáranna, sem ljúka við fermingaraldur. Þarna er sagt frá góðum börnum, sem taka á sig erfið- leika vegna heimilisins. Þau kasta ekki eggjum í foreldra sína eins og gert er í bama- sögum útvarpsins. Þau elska foreldrana og eru þeim þakk- lát fyrir sögurnar, sem þeim eru sagðar, og kvæði góðskáld- anna, sem þau hafa lært við móðurkné. Þessi bók er hollur föru- nautur þeirra barna, sem hana fá til lestrar. jj Eiríkur Sigurðsson. j]

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.