Dagur - 13.02.1974, Síða 1
LVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. febrúar 1974 — 7. tölubl.
Línuslit og skömmtun
ALLT er í heiminum hverfult
og svo má segja um rafmagnið.
Um kl. 6 í gærmorgun slitnaði
rafmagnslínan frá Laxá og hófst
þá þegar skömmtun, 2 klst. raf-
magn og 6 klst. rafmagnslaust,
að því er blaðinu var tjáð á
skrifstofum bæjarins árdegis í
grer. Viðgerðarflokkar leituðu
bilunarinnar. Frostlaust var
í byggð, krapahríð og reglulegt
ísingaveður. Raflínur slitnuðu
einnig til Ólafsfjarðar og Siglu-
fjarðar, frá Skeiðfossvirkjun.
Síðar í gær: Slitnir eru tveir
fasar raflínunnar í Reykjadal.
Veðurhæð er þar mikil og við-
gerð erfið. Viðgerðarmenn frá
Húsavík brutust fram í Reykja-
dal og voru komnir að biluninni
um kl. 4. Eru það síðustu fregn-
ir um þetta efni, áður en blaðið
fór í .prentun. □
Fréttir al iogurum
FRÁ skrifstofu Ú. A. í gær:
Kaldbakur liggur bundinn á
Akureyri og bíður sinnar brota-
járnsferðar til Spánar. En nýtt
skip með sama nafni er þar
syðra.
Svalbakur EA 2 er á veiðum
og landar síðar í vikunni.
Svalbakur EA 302 fór í sína
fyrstu veiðiferð í morgun. Skip-
stjóri er Halldór Hallgrímsson,
fyrsti vélstjóri Freysteinn
Bjarnason og fyrsti stýrimaður
Benjamín Antonsson.
Harðbakur kom með ca. 100
tonn af fiski til löndunar í
morgun.
Nýtt skip suður á Spáni hlaut
nafnið Harðbakur. Frú Sólveig
Axelsdóttir gaf skipinu nafn á
föstudaginn.
Sléttbakur EA 4 liggur bund-
inn, afskrifaður í brotajárn.
Sléttbakur EA 304 er búinn
að vera nokkra daga á veiðum.
Sólbakur er á veiðum.
Hraðfrystihús Ú. A. vantar
margar konur til starfa. □
Öll tæki voru sett í gang við snjómokstur á Akur eyri.
Stórvifiri gekk yfir Norfiurland
FYRIR helgina brast á norð-
austan stórhríð á Norðurlandi
og birti ekki upp fyrr en á
mánudagsmorgun. Þetta óveður
náði frá Langanesi til Vest-
fjarða. Snjókoman var feikna-
mikil svo víða varð stórfenni.
Ekki þurfa þeir að kvarla
ÞÓTT íslendingar séu ekki tald
ir sérlega áhugasamir í trúmál-
um, má undanskilja marga
hópa með einhverjar sérskoð-
anir í trúmálum. Og nýlega
bættist einn hópurinn við og er
hann öðrum sérstæðari hér á
landi og er það Ásatrúarfélagið,
rammheiðinn félagsskapur. Ása-
trúarmenn hafa látið gera barm
merki í tilefni ellefu alda
byggðar á íslandi.
Ásatrúarmcnn hafa verið dug
legir að heimsækja hina ýmsu
skóla landsins, einkum mennta-
skólana og útskýrt þar sjónar-
mið sín og skoðanir, m. a. á
Akureyri. Ilefur ekki vantað
áhuga ungs fólks að hlusta á
boðskap Ásatrúarmanna, og
þurfa þeir ekki að kvarta í því
eini.
Erlendis hefur Ásatrúarfélag-
ið vakið athygli, svo sem eðli-
legt er og hafa Ásatrúarmenn
gert sjónvarpsþætti og útvarps-
STAURAR BROTNA -
LÍNUR SLÍTNA
í FYRRINÓTT féll snjóflóð við
Áshól í Grýtubakkahreppi og
brotnuðu þar 3 raflínustaurar.
í Köldukinn slitnuðu línur, í
Axarfirði brotnuðu 3 staurar,
og í neðanverðum Svarfaðardal
urðu bilanir á raflínum, enn-
fremur á gömlu Dalvíkurlín-
unni. Frammi í Eyjafirði varð
línubilun í gær.
Erfitt var um viðgerðir, vegir
ófærir og á sumum stöðum bil-
aður sími.
(Samkv. viðtali við Ingólf
Árnason).
þætti fyrir sænska og hollenska
útvarpið. Von er á Ásatrúar-
mönnum frá Bandaríkjunum og
Þýzkalandi í sumar, í tilefni af
ellefu alda byggð hér á landi.
í Eyjafjarðarsýslu varð hver
vegarspotti ófær, að því er
Björn Brynjólfsson hjá Vega-
gerðinni tjáði blaðinu. Og á
Akureyri var engin gata fær
venjulegum bílum. Á mánudags
morguninn voru öll tiltæk snjó-
ruðnings- og moksturstæki bæj-
arins tekin í notkun og unnið
allan mánudaginn og helztu
götur opnaðar allri umferð.
Vegagerðin sendi tæki sín
fram í Hrafnagils- og Saur-
bæjarhrepp, ennfremur var
strax hafist handa um að opna
Dalvíkurveg. Jarðýta frá Sval-
barðsströnd vor notuð til að
ryðja snjó af veginum, og á
móti henni var sendur veghefill
Vegagerðarinnar frá Akureyri
og frá Vegagerðinni var enn-
fremur veghefill í Grýtubakka-
hreppi við snjóruðning þar.
Brotist verður til Dalvíkúr í
nótt. Mjólk barst til bæjarins
síðla á mánudag úr nokkrum
hreppum, þar sem vegir voru
hreinsaðir. □
Meira siórfenni en m áraiugi
Sauðárkróki, 11. febrúar. Menn
standa lítið upp úr snjónum,
því að hann er mikill og meira
stórfenni talið hér nú, en komið
hefur í áratugi. Skaflarnir við
einbýlishús, næst mínu húsi,
eru jafn háir því og ófært varð
Meginhluli hreindýrasfolnsins í
HREINDÝRASTOFNINN, hin
mikla hálendisprýði Norðaustur
lands, hefur staðið af sér harða
vetur og fjölgað. Þess vegna
hafa oft takmarkaðar veiðar
verið leyfðar á haustin. Á vetr-
um hafa dýrin leitað mjög til
byggða hin síðari ár, t. d. á
Héraði.
Fréttir hafa af því borizt, að
haglaust sé með öllu á stórum
svæðum norðaustanlands og
hreindýrin séu farin að falla á
stöku stað. Blaðið leitaði fregna-
af þessu hjá hreindýraeftirlits-
manninum fyrir austan, en
hann heitir Egill Gunnarsson,
Egilsstöðum, Fljótsdal. Hann
sagði:
Það er dálítið hart um hjá
hrcindýrunum, á því er enginn
vafi. En þau eru ekki farin að
falla, en enginn veit hvað verð-
ur, ef harðindi og hagleysi verð-
ur mjög langvarandi. Hreindýr-
in cru út um allt Hérað, í byggð
um og mun meginhluti hrein-
dýrastofnsins vera þangað kom-
inn. Snjó hefur lagt óskaplega
illa hér um slóðir svo að nú er
meira harðfenni en oftast áður.
En með hverjum deginum, sem
líður, er einum degi styttra til
hlákunnar og senn fer sólar að
gæta meira.
í verstu harðindaárum hefur
það verið á dagskrá, að gefa
hreindýrunum hey út á gadd-
inn, en það hefur þó ekki kom-
izt í framkvæmd, enda ýmsum
erfiðleikum bundið að gera svo
að verulegu gagni.komi. Ég hef
ekki trú á, að þess sé þörf eins
og er, þótt harðnað hafi um fyr-
ir hreindýrunum.
Ég hef ekki heyrt þess getið,
að hreindýr hafi fallið í vetur
og munu fréttir um það úr
lausu lofti gripnar. Hins vegar
heltast alltaf einhver dýr úr lest
inni, bæði ung dýr og gömul og
er ekkert við því að gera.
Eitthvað á þessa leið sagði
eftirlitsmaðurinn og þakkar
blaðið upplýsingar hans um
málið. Hins vegar má ekki taka
hreindýrin alveg út af dagskrá.
Verði enn harður vetur og hag-
bönn langvarandi, þarf að at-
huga möguleika á hjúkrun,
helzt með heyfóðri, sem senni-
lega er fremur auðvelt að út-
vega og létt að flytja á harð-
fenninu, þar sem meginhluti
hreindýrastofnsins er í byggð.
um allar götur og alla vegi í
héraðinu.* Hér er nú búið að
ryðja snjó af aðalgötunni, svo
hægt er að aka fólki í frysti-
húsin. Og í dag á að opna leið-
ina til Varmahlíðar, vegna
mjólkurflutninga.
Bílaeign fólks hér í kaupstaðn
um er að mestu undir snjó við
húsveggina, en margir hafa nú
gott af því að ganga í vinnuna,
en hvort allir gera það með
glöðu geði, er ekki alveg víst.
Rafmagnsskömmtun er hér
nú, því að vatn hefur minnkað
í Gönguskarðsár- og Laxárvatns
virkjun, sem eru samtengdar
virkjanir.
Haglaust var víða orðið fyrir
þessa hríð vegna harðfennis og
ekki bætti þessi norðanstórhríð
ástandið.
Kappvinna er við fiskinn og
þarf ekki að kvarta um atvinnu-
leysi, og hitaveitan heldur hús-
unum vel hlýjum, þótt úti blási.
G, Ó.
Prófkjör og lirognkelsaveiðar
Ilúsavík, 11. febrúar. Úrslit í
prófkjöri Framsóknarmanna í
Suður-Þingeyjarsýslu er lokið.
En prófkjörið var vegna undir-
búnings næstu alþingiskosninga
og skipun þriðja manns á lista
flokksins í kjördæminu. Úrslit
urðu þau, ’ að Ingi Tryggvason
fékk 643 atkvæði og Jónas Jóns-
son 529 atkvæði. Fáir aðrir
hlutu nokkur atkvæði hver.
Auðir seðlar voru 18 og 2 ógild-
ir. Talning fór fram á Húsavík
sl. fimmtudag.
Margir sjómenn á Húsavík
eru óánægðir yfir framkomnu
frumvarpi á Alþingi, sem þing-
menn úr öllum flokkum flytja,
um tveggja kííómetra landhelgi
æðarvarpsjarða. Þctta lokar
allri hrognkelsaveiði við Flatey,
svo'dæmi sé nefnt og veruleg-
um hluta þeirra miða, sem Hús-
víkingar hafa sótt sína hrogn-
kelsaveiði á. En það er einmitt
hrognkelsaveiðin, sem oft ræð-
ur úrslitum um ársafkomu sjó-
manna, mörg síðustu árin.
Þarna er um að ræða tuga
milljóna verðmæti.
Hér brast á með stórhríð á
laugardaginn og birti ekki upp
fyrr en í nótt. Töluverðan snjó
setti niður og renndi í skafla,
en ekki svo að óvenjulegt sé
eða mikið orð á gerandi. Útvarp
ið sagði hins vegar svo frá, að
allt væri komið á kaf hér á
Húsavík og ekki fært á milli
húsa. í gær var hörkuveður á
Húsavík og brotnuðu þá raf-
línustaurar. Þ. J.