Dagur


Dagur - 13.02.1974, Qupperneq 1

Dagur - 13.02.1974, Qupperneq 1
LVII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 13. febrúar 1974 — 7. tölubl. Línuslit og skömmtun ALLT er í heiminum hverfult og svo má segja um rafmagnið. Um kl. 6 í gærmorgun slitnaði rafmagnslínan frá Laxá og hófst þá þegar skömmtun, 2 klst. raf- magn og 6 klst. rafmagnslaust, að því er blaðinu var tjáð á skrifstofum bæjarins árdegis í grer. Viðgerðarflokkar leituðu bilunarinnar. Frostlaust var í byggð, krapahríð og reglulegt ísingaveður. Raflínur slitnuðu einnig til Ólafsfjarðar og Siglu- fjarðar, frá Skeiðfossvirkjun. Síðar í gær: Slitnir eru tveir fasar raflínunnar í Reykjadal. Veðurhæð er þar mikil og við- gerð erfið. Viðgerðarmenn frá Húsavík brutust fram í Reykja- dal og voru komnir að biluninni um kl. 4. Eru það síðustu fregn- ir um þetta efni, áður en blaðið fór í .prentun. □ Fréttir al iogurum FRÁ skrifstofu Ú. A. í gær: Kaldbakur liggur bundinn á Akureyri og bíður sinnar brota- járnsferðar til Spánar. En nýtt skip með sama nafni er þar syðra. Svalbakur EA 2 er á veiðum og landar síðar í vikunni. Svalbakur EA 302 fór í sína fyrstu veiðiferð í morgun. Skip- stjóri er Halldór Hallgrímsson, fyrsti vélstjóri Freysteinn Bjarnason og fyrsti stýrimaður Benjamín Antonsson. Harðbakur kom með ca. 100 tonn af fiski til löndunar í morgun. Nýtt skip suður á Spáni hlaut nafnið Harðbakur. Frú Sólveig Axelsdóttir gaf skipinu nafn á föstudaginn. Sléttbakur EA 4 liggur bund- inn, afskrifaður í brotajárn. Sléttbakur EA 304 er búinn að vera nokkra daga á veiðum. Sólbakur er á veiðum. Hraðfrystihús Ú. A. vantar margar konur til starfa. □ Öll tæki voru sett í gang við snjómokstur á Akur eyri. Stórvifiri gekk yfir Norfiurland FYRIR helgina brast á norð- austan stórhríð á Norðurlandi og birti ekki upp fyrr en á mánudagsmorgun. Þetta óveður náði frá Langanesi til Vest- fjarða. Snjókoman var feikna- mikil svo víða varð stórfenni. Ekki þurfa þeir að kvarla ÞÓTT íslendingar séu ekki tald ir sérlega áhugasamir í trúmál- um, má undanskilja marga hópa með einhverjar sérskoð- anir í trúmálum. Og nýlega bættist einn hópurinn við og er hann öðrum sérstæðari hér á landi og er það Ásatrúarfélagið, rammheiðinn félagsskapur. Ása- trúarmenn hafa látið gera barm merki í tilefni ellefu alda byggðar á íslandi. Ásatrúarmcnn hafa verið dug legir að heimsækja hina ýmsu skóla landsins, einkum mennta- skólana og útskýrt þar sjónar- mið sín og skoðanir, m. a. á Akureyri. Ilefur ekki vantað áhuga ungs fólks að hlusta á boðskap Ásatrúarmanna, og þurfa þeir ekki að kvarta í því eini. Erlendis hefur Ásatrúarfélag- ið vakið athygli, svo sem eðli- legt er og hafa Ásatrúarmenn gert sjónvarpsþætti og útvarps- STAURAR BROTNA - LÍNUR SLÍTNA í FYRRINÓTT féll snjóflóð við Áshól í Grýtubakkahreppi og brotnuðu þar 3 raflínustaurar. í Köldukinn slitnuðu línur, í Axarfirði brotnuðu 3 staurar, og í neðanverðum Svarfaðardal urðu bilanir á raflínum, enn- fremur á gömlu Dalvíkurlín- unni. Frammi í Eyjafirði varð línubilun í gær. Erfitt var um viðgerðir, vegir ófærir og á sumum stöðum bil- aður sími. (Samkv. viðtali við Ingólf Árnason). þætti fyrir sænska og hollenska útvarpið. Von er á Ásatrúar- mönnum frá Bandaríkjunum og Þýzkalandi í sumar, í tilefni af ellefu alda byggð hér á landi. í Eyjafjarðarsýslu varð hver vegarspotti ófær, að því er Björn Brynjólfsson hjá Vega- gerðinni tjáði blaðinu. Og á Akureyri var engin gata fær venjulegum bílum. Á mánudags morguninn voru öll tiltæk snjó- ruðnings- og moksturstæki bæj- arins tekin í notkun og unnið allan mánudaginn og helztu götur opnaðar allri umferð. Vegagerðin sendi tæki sín fram í Hrafnagils- og Saur- bæjarhrepp, ennfremur var strax hafist handa um að opna Dalvíkurveg. Jarðýta frá Sval- barðsströnd vor notuð til að ryðja snjó af veginum, og á móti henni var sendur veghefill Vegagerðarinnar frá Akureyri og frá Vegagerðinni var enn- fremur veghefill í Grýtubakka- hreppi við snjóruðning þar. Brotist verður til Dalvíkúr í nótt. Mjólk barst til bæjarins síðla á mánudag úr nokkrum hreppum, þar sem vegir voru hreinsaðir. □ Meira siórfenni en m áraiugi Sauðárkróki, 11. febrúar. Menn standa lítið upp úr snjónum, því að hann er mikill og meira stórfenni talið hér nú, en komið hefur í áratugi. Skaflarnir við einbýlishús, næst mínu húsi, eru jafn háir því og ófært varð Meginhluli hreindýrasfolnsins í HREINDÝRASTOFNINN, hin mikla hálendisprýði Norðaustur lands, hefur staðið af sér harða vetur og fjölgað. Þess vegna hafa oft takmarkaðar veiðar verið leyfðar á haustin. Á vetr- um hafa dýrin leitað mjög til byggða hin síðari ár, t. d. á Héraði. Fréttir hafa af því borizt, að haglaust sé með öllu á stórum svæðum norðaustanlands og hreindýrin séu farin að falla á stöku stað. Blaðið leitaði fregna- af þessu hjá hreindýraeftirlits- manninum fyrir austan, en hann heitir Egill Gunnarsson, Egilsstöðum, Fljótsdal. Hann sagði: Það er dálítið hart um hjá hrcindýrunum, á því er enginn vafi. En þau eru ekki farin að falla, en enginn veit hvað verð- ur, ef harðindi og hagleysi verð- ur mjög langvarandi. Hreindýr- in cru út um allt Hérað, í byggð um og mun meginhluti hrein- dýrastofnsins vera þangað kom- inn. Snjó hefur lagt óskaplega illa hér um slóðir svo að nú er meira harðfenni en oftast áður. En með hverjum deginum, sem líður, er einum degi styttra til hlákunnar og senn fer sólar að gæta meira. í verstu harðindaárum hefur það verið á dagskrá, að gefa hreindýrunum hey út á gadd- inn, en það hefur þó ekki kom- izt í framkvæmd, enda ýmsum erfiðleikum bundið að gera svo að verulegu gagni.komi. Ég hef ekki trú á, að þess sé þörf eins og er, þótt harðnað hafi um fyr- ir hreindýrunum. Ég hef ekki heyrt þess getið, að hreindýr hafi fallið í vetur og munu fréttir um það úr lausu lofti gripnar. Hins vegar heltast alltaf einhver dýr úr lest inni, bæði ung dýr og gömul og er ekkert við því að gera. Eitthvað á þessa leið sagði eftirlitsmaðurinn og þakkar blaðið upplýsingar hans um málið. Hins vegar má ekki taka hreindýrin alveg út af dagskrá. Verði enn harður vetur og hag- bönn langvarandi, þarf að at- huga möguleika á hjúkrun, helzt með heyfóðri, sem senni- lega er fremur auðvelt að út- vega og létt að flytja á harð- fenninu, þar sem meginhluti hreindýrastofnsins er í byggð. um allar götur og alla vegi í héraðinu.* Hér er nú búið að ryðja snjó af aðalgötunni, svo hægt er að aka fólki í frysti- húsin. Og í dag á að opna leið- ina til Varmahlíðar, vegna mjólkurflutninga. Bílaeign fólks hér í kaupstaðn um er að mestu undir snjó við húsveggina, en margir hafa nú gott af því að ganga í vinnuna, en hvort allir gera það með glöðu geði, er ekki alveg víst. Rafmagnsskömmtun er hér nú, því að vatn hefur minnkað í Gönguskarðsár- og Laxárvatns virkjun, sem eru samtengdar virkjanir. Haglaust var víða orðið fyrir þessa hríð vegna harðfennis og ekki bætti þessi norðanstórhríð ástandið. Kappvinna er við fiskinn og þarf ekki að kvarta um atvinnu- leysi, og hitaveitan heldur hús- unum vel hlýjum, þótt úti blási. G, Ó. Prófkjör og lirognkelsaveiðar Ilúsavík, 11. febrúar. Úrslit í prófkjöri Framsóknarmanna í Suður-Þingeyjarsýslu er lokið. En prófkjörið var vegna undir- búnings næstu alþingiskosninga og skipun þriðja manns á lista flokksins í kjördæminu. Úrslit urðu þau, ’ að Ingi Tryggvason fékk 643 atkvæði og Jónas Jóns- son 529 atkvæði. Fáir aðrir hlutu nokkur atkvæði hver. Auðir seðlar voru 18 og 2 ógild- ir. Talning fór fram á Húsavík sl. fimmtudag. Margir sjómenn á Húsavík eru óánægðir yfir framkomnu frumvarpi á Alþingi, sem þing- menn úr öllum flokkum flytja, um tveggja kííómetra landhelgi æðarvarpsjarða. Þctta lokar allri hrognkelsaveiði við Flatey, svo'dæmi sé nefnt og veruleg- um hluta þeirra miða, sem Hús- víkingar hafa sótt sína hrogn- kelsaveiði á. En það er einmitt hrognkelsaveiðin, sem oft ræð- ur úrslitum um ársafkomu sjó- manna, mörg síðustu árin. Þarna er um að ræða tuga milljóna verðmæti. Hér brast á með stórhríð á laugardaginn og birti ekki upp fyrr en í nótt. Töluverðan snjó setti niður og renndi í skafla, en ekki svo að óvenjulegt sé eða mikið orð á gerandi. Útvarp ið sagði hins vegar svo frá, að allt væri komið á kaf hér á Húsavík og ekki fært á milli húsa. í gær var hörkuveður á Húsavík og brotnuðu þá raf- línustaurar. Þ. J.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.