Dagur - 13.02.1974, Blaðsíða 8

Dagur - 13.02.1974, Blaðsíða 8
AUGLÝSINGASÍMi Dague Akureyri, miðvikudaginn 13. febrúar 1974 Danski excellence borS- búnaSurinn kominn. SMÁTT & STÓRT FERÐAMENN Talið er, að á árinu 1950 hafi erlendir ferðamenn, er liingað komu til landsins verið 4383 talsins, en voru 12806 árið 1960. En árið 1970 voru erlendir ferða menn 52908 og tveim árum síð- ar voru þeir 68062. Hér með eru ekki taldir þeir, sem koma með skemmtiferðaskipum, er hafa hér skanuna viðdvöl. Á árinu 1972 voru beinar og óbeinar gjaldeyristekjur af er- lendum ferðamönnum taldar 1.2 milljarður króna, en sú upphæð er nær 8% af heildarútflutnings verðmæti það ár. OLÍAN Meginhlutinn af þeirri olíu, sem notuð er á íslandi, hefur síðustu árin komið frá Sovétríkjunum. Verðið er miðað við heimsmark- aðsverð og hækkar því óðfluga. Ileildarútsöluverð hér á landi af benzíni, gasolíu og fluelolíu var árið 1972 3300 milljónir króna. Á yfirstandandi ári má búast við, að útsöluverð sömu teg- unda verði 8700 milljónir. Mis- munurinn er 5400 milljónir kr. Vilhjálmur Jónsson forstjóri Olíufélagsins ságði þetta í við- tali við Hlyn í janúarmánuði. Allt að helmingur lands- manna býr á hitaveitusvæðum. Hinn mikli kostnaðarmunur á liúsahitun verður alveg ótrúleg- ur á þessu ári. Stjórnvöld glíma nú við þann vanda, að minnka þennan mun. HÖFNIN, SEM SÍGUR Ný og hálfbyggð vöruhöfn á Akureyri hefur sígið meira en gert var ráð fyrir. Verkið var liannað af Vita- og hafnarmála- skrifstofunni. Síðar voru er- lendir sérfræðingar fengnir til að kanna hafnarstæðið að nýju. Framkvæmd hefur tafizt mjög og um framvindu málsins er eitt og annað í óvissu. Þegar slíkt kemur fyrir, vill oft svo verða, að margir gerist dómarar og sjá allt í einu — eftirá — bæði einn og annan sannleika málsins, og ekki laust við, samkvæmt ábyrgðarlitlum skrifum í sum- um Akureyrarblöðum til dæm- is, að enn séu þeir menn til, sem reyna að slá sig til riddara þegar óhöpp henda, og reyna samtímis að koma sér undan allri óbyrgð. (Framh. á bls. 4) Bændaklúbbsfundur NOKKURT hlé hefur verið nú á Bændaklúbbsfundum. Hafa þar ráðið orsakir, sem ekki verða raktar hér. Næsti fundur verður mánudaginn 18. febrúar n. k. og hefst að venju kl. 21 að Hótel KEA. Frummælendur að þessu sinni verða þeir Friðþjófur Hraundal og Gísli Jónsson. Ræða þeir um rafmagnsmál sveitanna. Friðþjófur Hraundal ræðir um öryggisbúnað og hætt ur af rafmagni, en Gísli Jónsson um nýtingu á rafmagni s. s. til húsahitunar. Þeir munu svo svara fyrirspurnum um raf- magnsmál í dreifbýli, eftir því sem tími og ástæður leyfa. Q Nemendur fengu frí NEMENDUR í skólum á Akur- eyri fengu frí í gær, vegna knapprar rafmagnsskömmtunar. II z1 ff^ ■ -- ■ Nyi Bjorgvm Dalvík, 11. febrúar. Það er verið að landa 110 tonnum af fiski úr nýja skuttogaranum okkar, Björgvini EA 311, en hann kom inn í nótt með þennan góða afla eftir viku útivist. Veður var þó vont, svo að ekki var verið við veiðar nema í fimm daga. Reyndist allt vel um borð og miðað við aflann hjá fyrri tog- urum okkar, sem búið er að selja, virðist okkur þétta harlá gott. Snjókoma byrjaði hér á föstu- daginn með dimmum hríðarélj- um og á laugardag og sunnudag var vont veður með mikilli snjó komu, hart veður framan af aflaSi vel nóttu og þar til undir morgun, eiginlega vitlaust veður. Stór- fenni er mikið, einkum við hús og bæi, sjálfsagt 4—5 metra skaflar og allt ófært. Tvær jarð- ýtur fóru fram í sveit í gær- kveldi til að sækja mjólk og voru ókomnar nú um hádegið. En fremst frammi í Svarfaðar- dal snjóaði í logni og er þar mikill jafnfallinn snjór, allt í kafi, óskáplegt fannfergi. Ekkei't varð að hér um slóðir, svo vitað sé, og sagði lögreglan, að engin hjálparbeiðni hefði borizt í þessum óveðurskafla. J. II. ienl lil Ólafsvíkinga Garðar II í reynsluför. skip af! í DAG — miðvikudaginn 6. febrúar — afhenti Slippstöðin h.f. 150 lesta stálfiskiskip til Björns & Einars h.f. í Olafsvík. Skipið var sjósett 19. október 1973 pg hlaut þá nafnið „M/b Garðar II SH 164.“ Garðar II er 9. skipið í röð 150 rúmlesta fiskiskipa, sem Slippstöðin hefur smíðað undan farin ár í raðsmíði. Fjögur næstu skip sem verða af sömu stærð fara til Bíldudals, Eski- fjarðar, Olafsvíkur og Stykkis- hólms. „M/b Garðar II SH 164“ er útbúinn til línu-, tog- og nóta- veiða og er togbúnaðurinn gerð ur íyrir skuttog. Aðalvél er af gerðinni Mann- heim og er 765 ha. við 850 snúrt- inga á mínútu. Ein hjálparvél af gerðinni Dorman, sem knýr 36 kw rafal (220 volta riðstraum ur) og einnig varaspildælu og vökvadælu fyrir færslublökk og síldardælu. í skipinu er 49 kw jarðstraumsrafall, sem er knú- inn af aðalvél. Orkan fró þess- um rafal knýr síðan spennu- breyti, sem gefur 36 kw, 22 volta riðstraum. Skipið er búið tveim radsjám af gerðunum Kelvin Huges, sem dregur 64 mílur og Decca, sem dregur 60 mílur. Fiskleitartæki af gerðinni Simrad eru mjög fullkomin og af nýjustu gerð. Talstöð og ör- bylgjustöð eru af gerðinni Sailor. í skipinu er einnig mið- unarstöð, lóran, vegmælir, þrjú símakallkerfi, útvarp segulband og sjónvarp. Skipið reyndist mjög vel í NÆSTKOMANDI laugardag 16. febrúar opna 4 félagar úr Mynd listafélagi Akureyrar sýningu á 78 málverkum í húsakynnum Norræna Hússins í Reykjavík. Þeir sem sýna eru: Aðalsteinn Vestmann, Öli G. Jóhannsson, Valgarður Stefánsson og Orn Ingi. Fjórmenningarnir sýna í boði Norræna Hússins, en góð samskipti hafa verið milli Mynd listafélagsins og Norræna Húss- ins og hefur Myndlistafélagið staðið að einni sýningu, sem fengin var frá Norræna Húsinu, en það var sýningin „7 ungir Danir.“ Málverk þau, sem sýnd verða í Norræna Húsinu, eru unnin í akryl, olíu og pastellitum, flest gerð á síðastliðnu ári. (Ljósm.: Matthías Ó. Gestsson) reynsluferð og gekk þá 13.0 sjó- mílur. Skipstjóri á Garðari II er Einar Kristjónsson og 1. vél- stjóri er Bii'gir Gunnarsson. Skipið heldur til heimahafnar — Ólafsvíkur — og mun fljót- lega halda til loðnuveiða. (Fréttatilkynning) Forráðamenn Akureyrarbæj- ar hafa verið mjög velviljaðir í garð Myndlistafélagsins og hafa heitið styrk til þessarar sýn- ingar. r ÓIi Jóhannsson. Valgarður Steíánsson. Aðalsteinn Vestmann. Örn Ingi. NEIKVÆTT NÖLDUR Þingmenn íhaldsins í Norður- landskjördæmi skrifa langlokur í málgagn sitt á Akureyri um raforkumál á Norðurlandi og á Alþingi eru þeir með þrálátt nöldur um orkumálin. Ala þeir á sundrung og leggja lítt eða ekki jákvætt til málanna. Þeir vita, sem aðrir, að flokksbræður þeirra í „viðreisnar“-stjórninni skildu við þessi mál á hörmu- legan hátt og það tekur sinn tíma, að minnsta kosti nokkur ár, að bæta úr á viðunandi hótt. Um mál þessi urðu enn um- ræður á Alþingi fyrir skömmu, vegna fyrirspurnar frá Lárusi Jónssyni. Tóku nokkrir þátt í þeim og sagði Ingvar Gíslason þá meðal annars: SÖK BÍTUR SEKAN „En hitt er annað mál, að orku- vandamál Norðlendinga er orð- ið að neikvæðu nöldursmáli nokkurra Sjálfstæðismanna, og þá alveg sérstaklega háttvirts fyrirspyrjanda, Lárusar Jóns- sonar. Mér hefur stundum fund- izt, að þetta nöldur minnti á gamlan málshátt, sem segir, að sök bíti sekan. Hóttvirtur fyrir- spyrjandi veit mæta vel, að nú- verandi orkuskortur á Norður- landi er til kominn vegna óstjórnar orkumála í tíð fyrr- verandi ríkisstjórnar. Það var þá stefna ríkisstjórnarinnar að svelta Norðlendinga í orkumál- um og hafa uppi þau vinnu- brögð, sem hlutu að leiða til ófarnaðar.“ m Sýningin verður opin virka daga frá kl. 16.00 til 23.00 og um helgar frá kl. 14.00 til 24.00. Sýningunni lýkur 26. febrúar. (F réttatilkynning)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.