Dagur - 13.02.1974, Qupperneq 8
AUGLÝSINGASÍMi
Dague
Akureyri, miðvikudaginn 13. febrúar 1974
Danski
excellence
borS-
búnaSurinn
kominn.
SMÁTT & STÓRT
FERÐAMENN
Talið er, að á árinu 1950 hafi
erlendir ferðamenn, er liingað
komu til landsins verið 4383
talsins, en voru 12806 árið 1960.
En árið 1970 voru erlendir ferða
menn 52908 og tveim árum síð-
ar voru þeir 68062. Hér með eru
ekki taldir þeir, sem koma með
skemmtiferðaskipum, er hafa
hér skanuna viðdvöl.
Á árinu 1972 voru beinar og
óbeinar gjaldeyristekjur af er-
lendum ferðamönnum taldar 1.2
milljarður króna, en sú upphæð
er nær 8% af heildarútflutnings
verðmæti það ár.
OLÍAN
Meginhlutinn af þeirri olíu, sem
notuð er á íslandi, hefur síðustu
árin komið frá Sovétríkjunum.
Verðið er miðað við heimsmark-
aðsverð og hækkar því óðfluga.
Ileildarútsöluverð hér á landi af
benzíni, gasolíu og fluelolíu var
árið 1972 3300 milljónir króna.
Á yfirstandandi ári má búast
við, að útsöluverð sömu teg-
unda verði 8700 milljónir. Mis-
munurinn er 5400 milljónir kr.
Vilhjálmur Jónsson forstjóri
Olíufélagsins ságði þetta í við-
tali við Hlyn í janúarmánuði.
Allt að helmingur lands-
manna býr á hitaveitusvæðum.
Hinn mikli kostnaðarmunur á
liúsahitun verður alveg ótrúleg-
ur á þessu ári. Stjórnvöld glíma
nú við þann vanda, að minnka
þennan mun.
HÖFNIN, SEM SÍGUR
Ný og hálfbyggð vöruhöfn á
Akureyri hefur sígið meira en
gert var ráð fyrir. Verkið var
liannað af Vita- og hafnarmála-
skrifstofunni. Síðar voru er-
lendir sérfræðingar fengnir til
að kanna hafnarstæðið að nýju.
Framkvæmd hefur tafizt mjög
og um framvindu málsins er eitt
og annað í óvissu. Þegar slíkt
kemur fyrir, vill oft svo verða,
að margir gerist dómarar og sjá
allt í einu — eftirá — bæði einn
og annan sannleika málsins, og
ekki laust við, samkvæmt
ábyrgðarlitlum skrifum í sum-
um Akureyrarblöðum til dæm-
is, að enn séu þeir menn til,
sem reyna að slá sig til riddara
þegar óhöpp henda, og reyna
samtímis að koma sér undan
allri óbyrgð. (Framh. á bls. 4)
Bændaklúbbsfundur
NOKKURT hlé hefur verið nú
á Bændaklúbbsfundum. Hafa
þar ráðið orsakir, sem ekki
verða raktar hér. Næsti fundur
verður mánudaginn 18. febrúar
n. k. og hefst að venju kl. 21 að
Hótel KEA.
Frummælendur að þessu
sinni verða þeir Friðþjófur
Hraundal og Gísli Jónsson.
Ræða þeir um rafmagnsmál
sveitanna. Friðþjófur Hraundal
ræðir um öryggisbúnað og hætt
ur af rafmagni, en Gísli Jónsson
um nýtingu á rafmagni s. s. til
húsahitunar. Þeir munu svo
svara fyrirspurnum um raf-
magnsmál í dreifbýli, eftir því
sem tími og ástæður leyfa. Q
Nemendur fengu frí
NEMENDUR í skólum á Akur-
eyri fengu frí í gær, vegna
knapprar rafmagnsskömmtunar.
II z1 ff^ ■ -- ■
Nyi Bjorgvm
Dalvík, 11. febrúar. Það er verið
að landa 110 tonnum af fiski úr
nýja skuttogaranum okkar,
Björgvini EA 311, en hann kom
inn í nótt með þennan góða afla
eftir viku útivist. Veður var þó
vont, svo að ekki var verið við
veiðar nema í fimm daga.
Reyndist allt vel um borð og
miðað við aflann hjá fyrri tog-
urum okkar, sem búið er að
selja, virðist okkur þétta harlá
gott.
Snjókoma byrjaði hér á föstu-
daginn með dimmum hríðarélj-
um og á laugardag og sunnudag
var vont veður með mikilli snjó
komu, hart veður framan af
aflaSi vel
nóttu og þar til undir morgun,
eiginlega vitlaust veður. Stór-
fenni er mikið, einkum við hús
og bæi, sjálfsagt 4—5 metra
skaflar og allt ófært. Tvær jarð-
ýtur fóru fram í sveit í gær-
kveldi til að sækja mjólk og
voru ókomnar nú um hádegið.
En fremst frammi í Svarfaðar-
dal snjóaði í logni og er þar
mikill jafnfallinn snjór, allt í
kafi, óskáplegt fannfergi.
Ekkei't varð að hér um slóðir,
svo vitað sé, og sagði lögreglan,
að engin hjálparbeiðni hefði
borizt í þessum óveðurskafla.
J. II.
ienl lil Ólafsvíkinga
Garðar II í reynsluför.
skip af!
í DAG — miðvikudaginn 6.
febrúar — afhenti Slippstöðin
h.f. 150 lesta stálfiskiskip til
Björns & Einars h.f. í Olafsvík.
Skipið var sjósett 19. október
1973 pg hlaut þá nafnið „M/b
Garðar II SH 164.“
Garðar II er 9. skipið í röð
150 rúmlesta fiskiskipa, sem
Slippstöðin hefur smíðað undan
farin ár í raðsmíði. Fjögur
næstu skip sem verða af sömu
stærð fara til Bíldudals, Eski-
fjarðar, Olafsvíkur og Stykkis-
hólms.
„M/b Garðar II SH 164“ er
útbúinn til línu-, tog- og nóta-
veiða og er togbúnaðurinn gerð
ur íyrir skuttog.
Aðalvél er af gerðinni Mann-
heim og er 765 ha. við 850 snúrt-
inga á mínútu. Ein hjálparvél
af gerðinni Dorman, sem knýr
36 kw rafal (220 volta riðstraum
ur) og einnig varaspildælu og
vökvadælu fyrir færslublökk og
síldardælu. í skipinu er 49 kw
jarðstraumsrafall, sem er knú-
inn af aðalvél. Orkan fró þess-
um rafal knýr síðan spennu-
breyti, sem gefur 36 kw, 22
volta riðstraum.
Skipið er búið tveim radsjám
af gerðunum Kelvin Huges, sem
dregur 64 mílur og Decca, sem
dregur 60 mílur.
Fiskleitartæki af gerðinni
Simrad eru mjög fullkomin og
af nýjustu gerð. Talstöð og ör-
bylgjustöð eru af gerðinni
Sailor. í skipinu er einnig mið-
unarstöð, lóran, vegmælir, þrjú
símakallkerfi, útvarp segulband
og sjónvarp.
Skipið reyndist mjög vel í
NÆSTKOMANDI laugardag 16.
febrúar opna 4 félagar úr Mynd
listafélagi Akureyrar sýningu á
78 málverkum í húsakynnum
Norræna Hússins í Reykjavík.
Þeir sem sýna eru: Aðalsteinn
Vestmann, Öli G. Jóhannsson,
Valgarður Stefánsson og Orn
Ingi. Fjórmenningarnir sýna í
boði Norræna Hússins, en góð
samskipti hafa verið milli Mynd
listafélagsins og Norræna Húss-
ins og hefur Myndlistafélagið
staðið að einni sýningu, sem
fengin var frá Norræna Húsinu,
en það var sýningin „7 ungir
Danir.“
Málverk þau, sem sýnd verða
í Norræna Húsinu, eru unnin í
akryl, olíu og pastellitum, flest
gerð á síðastliðnu ári.
(Ljósm.: Matthías Ó. Gestsson)
reynsluferð og gekk þá 13.0 sjó-
mílur.
Skipstjóri á Garðari II er
Einar Kristjónsson og 1. vél-
stjóri er Bii'gir Gunnarsson.
Skipið heldur til heimahafnar
— Ólafsvíkur — og mun fljót-
lega halda til loðnuveiða.
(Fréttatilkynning)
Forráðamenn Akureyrarbæj-
ar hafa verið mjög velviljaðir í
garð Myndlistafélagsins og hafa
heitið styrk til þessarar sýn-
ingar.
r
ÓIi Jóhannsson.
Valgarður Steíánsson.
Aðalsteinn Vestmann.
Örn Ingi.
NEIKVÆTT NÖLDUR
Þingmenn íhaldsins í Norður-
landskjördæmi skrifa langlokur
í málgagn sitt á Akureyri um
raforkumál á Norðurlandi og á
Alþingi eru þeir með þrálátt
nöldur um orkumálin. Ala þeir
á sundrung og leggja lítt eða
ekki jákvætt til málanna. Þeir
vita, sem aðrir, að flokksbræður
þeirra í „viðreisnar“-stjórninni
skildu við þessi mál á hörmu-
legan hátt og það tekur sinn
tíma, að minnsta kosti nokkur
ár, að bæta úr á viðunandi hótt.
Um mál þessi urðu enn um-
ræður á Alþingi fyrir skömmu,
vegna fyrirspurnar frá Lárusi
Jónssyni. Tóku nokkrir þátt í
þeim og sagði Ingvar Gíslason
þá meðal annars:
SÖK BÍTUR SEKAN
„En hitt er annað mál, að orku-
vandamál Norðlendinga er orð-
ið að neikvæðu nöldursmáli
nokkurra Sjálfstæðismanna, og
þá alveg sérstaklega háttvirts
fyrirspyrjanda, Lárusar Jóns-
sonar. Mér hefur stundum fund-
izt, að þetta nöldur minnti á
gamlan málshátt, sem segir, að
sök bíti sekan. Hóttvirtur fyrir-
spyrjandi veit mæta vel, að nú-
verandi orkuskortur á Norður-
landi er til kominn vegna
óstjórnar orkumála í tíð fyrr-
verandi ríkisstjórnar. Það var
þá stefna ríkisstjórnarinnar að
svelta Norðlendinga í orkumál-
um og hafa uppi þau vinnu-
brögð, sem hlutu að leiða til
ófarnaðar.“
m
Sýningin verður opin virka
daga frá kl. 16.00 til 23.00 og um
helgar frá kl. 14.00 til 24.00.
Sýningunni lýkur 26. febrúar.
(F réttatilkynning)