Dagur


Dagur - 06.03.1974, Qupperneq 1

Dagur - 06.03.1974, Qupperneq 1
Lífiepr timi eftir áramótin Raufarhöfn, 4. marz. Við erum búnir að taka á móti 7.200 tonn- um af loðnu og er verið að bræða og gengur það vel. Rauðinúpur landaði 102 tonn- um á fimmtudaginn og stuttu áður kom hann með 80 tonn. Lcðna Vopnafirði, 4. marz. Komin eru 12.000 tonn eða meira af loðnu í verksmiðjuna. Þrær taka 8 þús. tonn og nú er eftir um það bil hálfsmánaðar vinna við að bræða það sem eftir er. Þróar- rými er nú talsvert og er meiri loðna kærkomin hingað. Vinna hefur verið mikil, svo sem nærri má geta. Jörð hefur verið ákaflega svleluð og tún að mestu undir svellum, en hlákur hafa verið og jörð er að smákoma upp þessa dagana. Stórfeldir vatna- vextir hafa ekki orðið. Hreindýrin gerðu sig heima- komin um tíma og voru hér heima við bæina og hefur það naumazt komið fyrir áður. Var að þessu nokkur tilbreyting. En nú eru öll hreindýr horfin inn til heiða. Varla er hægt að segja, að fært sé yfir Sandvíkurheiðina ennþá, nema þá ofan á snjónum, því að vegurinn hefur ekki ver- ið ruddur. Þ. Þ. Góður afli togarans hefur skap- að samfelda vinnu síðan um ára mót, að heita má. Það hefur verið líflegur tími eftir áramót- in, bæði í vetur og í fyrra. En þessi tími var dauður í atvinnu- legu tilliti og hefur þetta bless- unarlega snúizt við-. Vegurinn til Þórhafnar er ekki góður, en betri til Kópa- skers. Maður er aðeins byrjaður að sjá rauðmaga og hefur einn maður lagt hrognkelsanet. En síðar munu margir hyggja á hrognkelsaveiðar svo sem áður. Margir eiga net sín og hrogn- kelsaveiðarnar hafa gefið ár- vissar tekjur á vorin. Atvinnuleysisskráning má heita fallin niður síðustu tvo vetur. H. H. Á félagsráðsfundi á Hótel KEA. (Ljósm.: G. P. K.) Frá félagsráðsfundi KEA FÉLAGSRÁÐSFUNDUR Kaup félags Eyfirðinga var haldinn 27. febrúar á Hótel KEA og hófst klukkan tvö síðdegis. Á félagsráðsfundi eiga sæti deild- arstjórar hinna 24 deilda KEA á félagssvæðinu og einn félags- ráðsmaður frá hverri deild, auk stjórnar og framkvæmdastjóra félagsins. Fundinn sátu svo að venju ýmsir starfsmenn KEA Sigurður Óli Brynjólfsson, varaformaður stjórnar, setti fundinn í forföllum formanns, Hjartar E. Þórarinssonar, bauð VELTAN A FJÓRÐA MILLJARÐ Á S. L. ÁRI ör á Dalvík FRAMSÓKNARFÉLAG Dalvík ur gengst fyrir prófkjöri um röð fjögurra efstu manna á lista flokksins við sveitarstjórnar- kosningarnar á Dalvík í vor. Korið er um tíu manns og er prófkjörið bindandi ef þátttaka nær 60% af fylgi listans við síð- ustu sveitarstjórnarkosningar. Þeir, sem kosið er um í próf- kjörinu eru þessir: Árni Óskarsson verkstjóri, Baldvin Magnússon bóndi, Haf- steinn Pálsson bóndi, Eíelgi Jónsson rafvirkjameistari, Hilm ar Daníelsson fyrrverandi sveit- arstjóri, Hörður Kristgeirsson bifvélavirki, Jóhann Antonsson viðskiptafræðinemi, Jóhann Friðgeirsson húsasmíðanemi, Kristján Ólafsson útibússtjóri, Margrét Vally Jóhannsdóttir fóstra og Valgerður Guðmunds- dóttir húsmóðir. Prófkjörið er opið öllum stuðningsmönnum listans og fer fram í Jónínubúð laugardaginn 9. marz kl. 13—-19 og á sunnu- daginn 10. marz kl. 10—20. í sveitarstjórn Dalvíkur fyrir Framsóknarflokkinn eru nú Baldvin Magnússon og Val- gerður Guðmundsdóttir. □ fulltrúa og gesti velkomna og las upp nöfn fulltrúanna, sem flestir voru mættir. Arnsteinn Stefánsson var kosinn fundar- stjóri en Sigurður Jósefsson fundarritari. Á félagsráðsfundum eru veitt- ar fyrstu upplýsingar um rekst- ur Kaupfélags Eyfirðinga á liðnu starfsári, þótt órsuppgjöri sé ekki að fullu lokið. Og á fé- lagsráðsfundum eru samvinnu- málin rædd, framtíðarverkefni og horfur, og félagsráðsmenn bera fram spurningar sínar um félagsstarfið, gera athugasepadir og bera fram tillögur. Valur Arnþórsson kaupfélags stjóri flutti yfirlit um rekstur og hag kaupfélagsins á síðasta starfsári, en að því búnu var kaffihlé en síðan hófust almenn ar umræður. Fram kom meðal annars, að síðasta starfsár KEA er eitt hið umsvifamesta og fjár- frekar stórframkvæmdir eru Heildarvelta kaupfélagsins og fyrirtækja þess varð um 3.3 milljarðar króna. Söluaukning varð mjög mikil og meiri en kostnaðaraukningin, og styrkt- ist því rekstursaðstaðan veru- lega. Til fjárfestinga var varið 120 milljónum króna. Tankvæðingin, sem þegar er hafin í Eyjafirði og bygging nýrrar mjólliurstöðvar er einn- ig hafin og eru þetta fjárfrekar framkvæmdir. Má í því sam- bandi nefna, að mjólkurstöðin ein, með öllum búnaði, sem stefnt er að, að taki til starfa í ársbyrjun 1977, er talin muni kosta hátt í 500 milljónir króna, miðað við verðlag síðastliðins hausts. Tankvæðingin er undir- búin í Grýtubakkahreppi, Saur- bæjarhreppi og Hrafnagils- hreppi. í prentaðri skýrslu til félags- ráðsfundar segir m. a.: Sala verzlunardeilda félagsins hefur enn aukizt í krónutölu og að magni alls um 41% og nam 1.186 millj. kr. Sala verksmiðj- anna og þjónustudeilda hefur aukizt um 32% og nam 520 milljónur króna. Launakostnað- ur hefur aukizt um 34% miðað við fyrra ár. (Framhald á blaðsíðu 4) ' Vinna í báðum frysiihúsunum Ólafsfirði, 4. marz. Það var ekki fyrr en á fimmtudaginn var, sem búið var að ryðja snjó af vegum hér fram í sveitina, svo fært væri öllum bílum. Ennþá Féð inni síðan á haustnótium Árskógsströnd, 4. marz. Hér hef ur ekki sauðkind farið út úr húsi að heitið geti síðan á haust nóttum. Að vísu er það ekki orðin venja að beita mikið, og eins og nú er ástatt, virðist vera nægur vetrarforði af heyj- um. Bátar, sem stundað hafa róðra síðan skömmu eftir áramót, hafa fengið reytingsafla þegar gefið hefur. En veðráttan hefur verið óstillt. Sjómenn salta afla sinn að hverri sjóferð lokinni. í stórhriðinni, sem hér gerði nýlega, setti niður mjög mikinn snjó á tveim sólarhringum og þurfti þá að létta snjóþunga af stórum þökum. Svo kom asa- hláka, er einnig stóð í tvo sólar- hringa og flæddi þá vatn víða í hús, þótt af því yrðu ekki meiri- háttar skemmdir. Vatn lá á sum um stöðum svo djúpt.á vegum, að erfitt var að komast leiðar sinnar, því mikill snjór og snjó- ruðningar tepptu framrás vatns ins til beggja hliða. Samband eyfirzkra kvenna hélt flosnámskeið á Dalvík og var það fyrir fjóra hreppa, var vel sótt og ánægja meðal kvenna yfir því. Voru þar gerð- ir ýmsir eigulegir og fagrir munir. Sn. K. Valur Arnþórsson í ræðustól. Sitjandi Sigurður Óli Brynjólfsson og Arnsteinn Stefánsson. er óhemjumikill snjór, þótt mikið tæki í hlákunni í síðustu viku og aftur nú. Aflabrögðin eru með betra móti, a. m. k. hjá netabátunum, sem í síðustu viku voru með allt upp í sjö tonn eftir nóttina. En einn bátur rær með línu og gengur treglega hjá honum og einnig hjá togveiðibátnum Stíg- anda. Hins vegar hefur nýja skipið, Ólafur bekkur, komið með góðan afla, nú síðast fyrir helgina með rösk 100 tonn. Er því samfeld vinna í báðum frystihúsunum og bjargar það atvinnumálunum, En fyrr var þó atvinna stopul, en þá einkum vegna ógæfta. Á laugardagskvöldið hélt Rotaryklúbburinn árshátíð sína og var þar fullt hús og dansað til klukkan tvö um nóttina, en auk þess voru þar ýmiskonar skemmtiatriði. B. S. Dagub Aukablað kemur út á laugar- daginn, því bæði bíða auglýs- ingar og greinar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.