Dagur - 06.03.1974, Síða 1
Lífiepr timi eftir áramótin
Raufarhöfn, 4. marz. Við erum
búnir að taka á móti 7.200 tonn-
um af loðnu og er verið að
bræða og gengur það vel.
Rauðinúpur landaði 102 tonn-
um á fimmtudaginn og stuttu
áður kom hann með 80 tonn.
Lcðna
Vopnafirði, 4. marz. Komin eru
12.000 tonn eða meira af loðnu
í verksmiðjuna. Þrær taka 8
þús. tonn og nú er eftir um það
bil hálfsmánaðar vinna við að
bræða það sem eftir er. Þróar-
rými er nú talsvert og er meiri
loðna kærkomin hingað. Vinna
hefur verið mikil, svo sem
nærri má geta.
Jörð hefur verið ákaflega
svleluð og tún að mestu undir
svellum, en hlákur hafa verið
og jörð er að smákoma upp
þessa dagana. Stórfeldir vatna-
vextir hafa ekki orðið.
Hreindýrin gerðu sig heima-
komin um tíma og voru hér
heima við bæina og hefur það
naumazt komið fyrir áður. Var
að þessu nokkur tilbreyting. En
nú eru öll hreindýr horfin inn
til heiða.
Varla er hægt að segja, að
fært sé yfir Sandvíkurheiðina
ennþá, nema þá ofan á snjónum,
því að vegurinn hefur ekki ver-
ið ruddur. Þ. Þ.
Góður afli togarans hefur skap-
að samfelda vinnu síðan um ára
mót, að heita má. Það hefur
verið líflegur tími eftir áramót-
in, bæði í vetur og í fyrra. En
þessi tími var dauður í atvinnu-
legu tilliti og hefur þetta bless-
unarlega snúizt við-.
Vegurinn til Þórhafnar er
ekki góður, en betri til Kópa-
skers.
Maður er aðeins byrjaður að
sjá rauðmaga og hefur einn
maður lagt hrognkelsanet. En
síðar munu margir hyggja á
hrognkelsaveiðar svo sem áður.
Margir eiga net sín og hrogn-
kelsaveiðarnar hafa gefið ár-
vissar tekjur á vorin.
Atvinnuleysisskráning má
heita fallin niður síðustu tvo
vetur. H. H.
Á félagsráðsfundi á Hótel KEA.
(Ljósm.: G. P. K.)
Frá félagsráðsfundi KEA
FÉLAGSRÁÐSFUNDUR Kaup
félags Eyfirðinga var haldinn
27. febrúar á Hótel KEA og
hófst klukkan tvö síðdegis. Á
félagsráðsfundi eiga sæti deild-
arstjórar hinna 24 deilda KEA
á félagssvæðinu og einn félags-
ráðsmaður frá hverri deild, auk
stjórnar og framkvæmdastjóra
félagsins. Fundinn sátu svo að
venju ýmsir starfsmenn KEA
Sigurður Óli Brynjólfsson,
varaformaður stjórnar, setti
fundinn í forföllum formanns,
Hjartar E. Þórarinssonar, bauð
VELTAN A FJÓRÐA MILLJARÐ Á S. L. ÁRI
ör á Dalvík
FRAMSÓKNARFÉLAG Dalvík
ur gengst fyrir prófkjöri um röð
fjögurra efstu manna á lista
flokksins við sveitarstjórnar-
kosningarnar á Dalvík í vor.
Korið er um tíu manns og er
prófkjörið bindandi ef þátttaka
nær 60% af fylgi listans við síð-
ustu sveitarstjórnarkosningar.
Þeir, sem kosið er um í próf-
kjörinu eru þessir:
Árni Óskarsson verkstjóri,
Baldvin Magnússon bóndi, Haf-
steinn Pálsson bóndi, Eíelgi
Jónsson rafvirkjameistari, Hilm
ar Daníelsson fyrrverandi sveit-
arstjóri, Hörður Kristgeirsson
bifvélavirki, Jóhann Antonsson
viðskiptafræðinemi, Jóhann
Friðgeirsson húsasmíðanemi,
Kristján Ólafsson útibússtjóri,
Margrét Vally Jóhannsdóttir
fóstra og Valgerður Guðmunds-
dóttir húsmóðir.
Prófkjörið er opið öllum
stuðningsmönnum listans og fer
fram í Jónínubúð laugardaginn
9. marz kl. 13—-19 og á sunnu-
daginn 10. marz kl. 10—20.
í sveitarstjórn Dalvíkur fyrir
Framsóknarflokkinn eru nú
Baldvin Magnússon og Val-
gerður Guðmundsdóttir. □
fulltrúa og gesti velkomna og
las upp nöfn fulltrúanna, sem
flestir voru mættir. Arnsteinn
Stefánsson var kosinn fundar-
stjóri en Sigurður Jósefsson
fundarritari.
Á félagsráðsfundum eru veitt-
ar fyrstu upplýsingar um rekst-
ur Kaupfélags Eyfirðinga á
liðnu starfsári, þótt órsuppgjöri
sé ekki að fullu lokið. Og á fé-
lagsráðsfundum eru samvinnu-
málin rædd, framtíðarverkefni
og horfur, og félagsráðsmenn
bera fram spurningar sínar um
félagsstarfið, gera athugasepadir
og bera fram tillögur.
Valur Arnþórsson kaupfélags
stjóri flutti yfirlit um rekstur
og hag kaupfélagsins á síðasta
starfsári, en að því búnu var
kaffihlé en síðan hófust almenn
ar umræður. Fram kom meðal
annars, að síðasta starfsár KEA
er eitt hið umsvifamesta og fjár-
frekar stórframkvæmdir eru
Heildarvelta kaupfélagsins og
fyrirtækja þess varð um 3.3
milljarðar króna. Söluaukning
varð mjög mikil og meiri en
kostnaðaraukningin, og styrkt-
ist því rekstursaðstaðan veru-
lega. Til fjárfestinga var varið
120 milljónum króna.
Tankvæðingin, sem þegar er
hafin í Eyjafirði og bygging
nýrrar mjólliurstöðvar er einn-
ig hafin og eru þetta fjárfrekar
framkvæmdir. Má í því sam-
bandi nefna, að mjólkurstöðin
ein, með öllum búnaði, sem
stefnt er að, að taki til starfa í
ársbyrjun 1977, er talin muni
kosta hátt í 500 milljónir króna,
miðað við verðlag síðastliðins
hausts. Tankvæðingin er undir-
búin í Grýtubakkahreppi, Saur-
bæjarhreppi og Hrafnagils-
hreppi.
í prentaðri skýrslu til félags-
ráðsfundar segir m. a.:
Sala verzlunardeilda félagsins
hefur enn aukizt í krónutölu og
að magni alls um 41% og nam
1.186 millj. kr. Sala verksmiðj-
anna og þjónustudeilda hefur
aukizt um 32% og nam 520
milljónur króna. Launakostnað-
ur hefur aukizt um 34% miðað
við fyrra ár.
(Framhald á blaðsíðu 4) '
Vinna í báðum frysiihúsunum
Ólafsfirði, 4. marz. Það var ekki
fyrr en á fimmtudaginn var,
sem búið var að ryðja snjó af
vegum hér fram í sveitina, svo
fært væri öllum bílum. Ennþá
Féð inni síðan á haustnótium
Árskógsströnd, 4. marz. Hér hef
ur ekki sauðkind farið út úr
húsi að heitið geti síðan á haust
nóttum. Að vísu er það ekki
orðin venja að beita mikið, og
eins og nú er ástatt, virðist
vera nægur vetrarforði af heyj-
um.
Bátar, sem stundað hafa róðra
síðan skömmu eftir áramót,
hafa fengið reytingsafla þegar
gefið hefur. En veðráttan hefur
verið óstillt. Sjómenn salta afla
sinn að hverri sjóferð lokinni.
í stórhriðinni, sem hér gerði
nýlega, setti niður mjög mikinn
snjó á tveim sólarhringum og
þurfti þá að létta snjóþunga af
stórum þökum. Svo kom asa-
hláka, er einnig stóð í tvo sólar-
hringa og flæddi þá vatn víða í
hús, þótt af því yrðu ekki meiri-
háttar skemmdir. Vatn lá á sum
um stöðum svo djúpt.á vegum,
að erfitt var að komast leiðar
sinnar, því mikill snjór og snjó-
ruðningar tepptu framrás vatns
ins til beggja hliða.
Samband eyfirzkra kvenna
hélt flosnámskeið á Dalvík og
var það fyrir fjóra hreppa, var
vel sótt og ánægja meðal
kvenna yfir því. Voru þar gerð-
ir ýmsir eigulegir og fagrir
munir. Sn. K.
Valur Arnþórsson í ræðustól. Sitjandi Sigurður Óli Brynjólfsson
og Arnsteinn Stefánsson.
er óhemjumikill snjór, þótt
mikið tæki í hlákunni í síðustu
viku og aftur nú.
Aflabrögðin eru með betra
móti, a. m. k. hjá netabátunum,
sem í síðustu viku voru með
allt upp í sjö tonn eftir nóttina.
En einn bátur rær með línu og
gengur treglega hjá honum og
einnig hjá togveiðibátnum Stíg-
anda. Hins vegar hefur nýja
skipið, Ólafur bekkur, komið
með góðan afla, nú síðast fyrir
helgina með rösk 100 tonn. Er
því samfeld vinna í báðum
frystihúsunum og bjargar það
atvinnumálunum, En fyrr var
þó atvinna stopul, en þá einkum
vegna ógæfta.
Á laugardagskvöldið hélt
Rotaryklúbburinn árshátíð sína
og var þar fullt hús og dansað
til klukkan tvö um nóttina, en
auk þess voru þar ýmiskonar
skemmtiatriði. B. S.
Dagub
Aukablað kemur út á laugar-
daginn, því bæði bíða auglýs-
ingar og greinar.