Dagur - 06.06.1974, Side 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Síniar 1-11-66 og 1-11-67
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓHANN K. SIGURÐSSON
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Vinstri stefna
í ALÞINGISKOSNINGUNUM 30.
júní næstkomandi verður um það
kosið, fyrst og fremst, hvort fram
verður haldið byggðastefnunni í
verki og við það miðað að jafna og
bæta lífskjör fólks á landinu öllu,
samkvæmt núverandi stjórnarstefnu,
eða hvort hin dauða hönd peninga-
valds og íhalds eigi að taka við.stjóm
artaumunum. Þjóðin fellir einnig
sinn dóm um það, hvort hún treystir
núverandi stjórn betur í landhelgis-
málum en þeim mönnum og flokk-
um, sem á þrettán ára valdaferli sín-
um hreyfðu hvorki hönd né fót til að
stækka landhelgina og voru við hin
ýmsu tækifæri öruggir talsmenn
Breta á örlagastundum. Þjóðin hefur
ekki gleymt atvinnuleysinu, gengis-
fellingunum, landflótta þúsundanna
og átakanlegu misrétti þegnanna á
þrettán ára valdaferli íhaldsins. Spor
in hraða og þau ættu að vera nægi-
leg viðvörun í næstu alþingiskosn-
ingum.
Landsfólkið sýnir það í vaxandi
mæli, að það vantreystir íhaldinu og
hafnar því. Sjást þess glögg merki í
hinum nýja kaupstað, Dalvík. Þar
tóku vinstri menn höndum saman í
sveitarstjómarkosningum, unnu sig-
ur og stjórna framvindu bæjarmál-
anna. Hið sama gerðist á Húsavík.
Þar tóku vinstri menn völdin í sínar
hendur og á báðum þessum stöðum
em ungir Framsóknarmenn bæjar-
stjórar og forsetar bæjarstjórnar.
Þriðji staðurinn, þar sem valdaskipti
hafa orðið í bæjarmálum er Ólafs-
f jörður. Þar hefur íhaldið lengi ver-
ið einrátt og vinstri menn tvístraðir.
Þar var íhaldinu loks steypt af stóli,
starf bæjarstjóra auglýst frá næstu
áramótum og kunnur samvinnu-
maður hefur tekið sæti á forsetastóli.
Naumast þarf að draga í efa, að
stór meirihluti fólksins á þessum
stöðum öllum er fylgjandi vinstri
stefnu í bæjarmálum og landsmál-
um, og má telja þessi tíðindi vem-
legan stuðning við stefnu vinstri
stjórnarinnar í landinu.
í höfuðstað Norðurlands, Akur-
eyri, fara þessa daga fram viðræður
vinstri flokkanna um stjórn bæjar-
málanna og líklegt að til samninga
dragi.
Bæjarstjómarkosningarnar gefa á
ýmsum stöðum alranga mynd af við-
horfum fólks til alþingiskosninga
þeirra, er nú fara í hönd. Sigur Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjómarkosning-
unum á Akureyri og í Reykjavík er
mótaðist af hinni sveiflukenndu af-
stöðu krata, er skammvinnur og eng-
inn leiðarvísir í alþingiskosningun-
um 30. júní. □
Sá yfiar er syndlaus er
Akureyri, 3. júní 1974.
MORGUNBLAÐIÐ 29. maí
1974 kom mörgum manninum á
óvart, þegar það birti svohljóð-
andi frétt, undir nafninu: DAG-
LANGUR ELTINGALEIKUR
VIÐ ÖLVAÐAN ÖKUMANN.
Þétta er að mestu leyti slúður-
frétt. Hef ég undirritaður feng-
ið lögfræðing minn, Sigurð
Gissurarson, til að annast það
mál. Það rétta og sanna í þessu
máli er það sem fer hér á eftir:
Ég undirritaður var ásamt unn-
ustu minni staddur í bíl mínum
Mercedes Benz 220 S á plani
vjð Ferðaskrifstofu Akureyrar
laust fyrir kl. 2 aðfaranótt
sunnudagsins 26. maí ’74 er lög-
reglunni urðu á þau hrapalegu
mistök að þverleggja bíl sínum
fyrir framan bifreið mína.
Fannst mér þá sem mér væri
þar ofaukið, þrátt fyrir að það
er almenningsbílastæði. Við-
brögð mín urðu ósjálfrátt þau
að leita annað, þar sem ég er
þannig að guði gerður að ég læt
alla í friði, smáa og stóra, svo
lengi sem ég lifi á þessari jörðu,
og finnst mér það lágmarks-
krafa að ég sé látinn í friði,
hvort heldur lögregla eða
óbreyttir borgarar eiga í hlut.
Svo lengi sem ég. hef ekkert
brotið af mér.
SMÁ LÝSING Á UMTÖLUÐ-
UM ELTINGALEIK, MILLJ
MÍN OG LÖGREGLUNNAR:
Ók ég norður Hólabraut, upp
Oddeyrargötu, upp Þingvalla-
stræti, suður Þórunnarstræti
og heim að bænum Naustum og
stansaði þar og hleypti út far-
þega. Finnst mér þá að ég eigi
að halda áfram leiðar minnar,
þar sem ég viti ekki til þess að
lögreglan hafi neina ástæðu til
þess að elta mig. Ek ég þá
áfram sem leið liggur áleiðis
niður Naustaveg. Veiti ég því
þá eftirtekt, að óbreyttur borg-
ari tekur það upp hjá sjálfum
sér að loka veginum með bíl
sínum A 62 og stöðvar hann við
ræsi og verð ég þess vegna að
nema staðar á veginum. Sé ég
þá að út úr A 62 kemur maður
vinstra megin, að mér sýndist
ölvaður. Athuga ég þá allar að-
stæður og sé það, að ég get ekið
framhjá A 62 þrátt fyrir að
hurðir séu opnar hægrá megin,
og hár kantur og djúpur skurð-
ur yfir að fara. Ek ég þá áfram
niður Naustaveg, suður fyrir
Krókeyri og er rétt kominn inn
á hraðbrautina er ég verð var
við andahjón sem eru á
skemmtigöngu á hraðbrautinni
og stoppa ég þar þangað til að
þeim þóknaðist að fara af veg-
inum. Ek ég þá sem leið liggur
austur yfir Eyjafjarðarárbrýr
og stoppaði ég við tvær þeirra
til að hleypa bílum yfir. Síðan
fór ég upp Vaðlaheiði og mætti
þar nokkrum bílum. Upp á há-
heiðinni var bíll útaf veginum
og aðgætti ég hvort um slys á
fólki væri að ræða. Reyndist
það ekki vera og engan mann
að sjá. Hélt ég þá áfram til
Húsávíkur, og á lögreglustöð-
ina; Var þar engan mann að sjá,
á lögreglustöðina á Húsavík
aftur og var þar heldur enginn
í það skipti. Ek ég þá áleiðis til
stoppa ég þá rétt austan við
Húsavík. Um kl. 8.30 f. h. fer ég
Akureyrar með viðkomu á ýms
um stöðum. Um hádegisbilið
nálgast ég Háls í Fnjóskadal, er
þar lögreglubíl lagt þversum á
veginn í brekku við blindhæð.
Þetta hefði getað þýtt bráðan
dauða ökumanns á austurleið,
sem ekki hefði dottið slík hindr
un í hug. Er ég ætla að stöðva,
veiti ég eftirtekt hvítum bíl á
miklum hraða fyrir aftan mig,
ek ég þá framhjá lögreglubíln-
um og yfir nýju brúna á
Fnjóská. Veiti ég þá eftirtekt að
lögreglubíllinn og þessi hvíti
bíll eru komnir í hörku eltingar
leik eins og hvolpar að elta
skottið á sér. Um kvöldmatar-
leitið er ég á leið á lögreglu-
stöðina á Akureyri. Er ég kem
að vestustu brúnni er þar stödd
lögreglubifreið. Legg ég þá mín
um bíl og geng í átt til lögreglu-
mannanna, því ég sá að þeir
myndu ætla að hafa tal af mér.
Reyndist það rétt og fór ég þá
með þeim upp á stöð og gaf þar
skýrslu. Strax að skýrslugerð
lokinni ók lögreglan mér og
unnustu minni aftur að minni
bifreið við Eyjafjarðarárbrú.
LÖGREGLAN OG SÝSLU-
MANNSEMBÆTTIÐ Á ÁKUR-
EYRI:
Mun ég nú leitast við í fáum
orðum að útskýra vinnubrögð
þeirra eins og þau koma mér
fyrir sjónir. Þar sem mér finnst
almenningur eiga skýlausan
rétt á að vita hvað fer fram inn-
an þeirra veggja og hvernig
svona mál fá afgreiðslú. Þegar
skýrsla var tekin af mér á lög-
reglustöðinni tilkynnti lögregl-
an að það væri ósk sýslumanns
að ökuskírteinið væri tekið af
mér. Og afhenti ég það í þeirri
góðu trú að ég fengi það strax
aftur. Enda var mér afhent það
daginn eftir, þegar skýrsla hafði
verið tekin af mér. Efni skýrslu
þeirrar er í stuttu máli á þessa
leið:
a) Ástæðuna fyrir eltinga-
leiknum taldi lögreglan vera þá,
að tveir þeirra hafi séð mið ölv-
aðan á gangi í miðbænum að-
faranótt sunnudagsins 26. maí
’74. Lögregluþjónunum bar
ekki fyllilega saman fyrir rétti.
b) Farþegi sem var í bifreið-
inni fullyrti fyrir rétti að hann
hefði ekki getað merkt að ég
væri undir áhrifum áfengis.
Þrátt fyrir það að við værum
búnir að rabba lengi saman
niðri f miðbæ. Enda hvergi full-
yrt um meinta ölvun mína,
nema hjá þeim tveimur lög-
regluþjónum er urðu tvísaga
fyrir rétti.
c) Er þá snúið sér að þeirri
fullyrðingu lögreglunnar að ég
hafi ekið of hratt. Ég viður-
kenndi það þegar í stað við yfir-
heyrslu hjá dómara. Að mínu
áliti (70—90). Einnig viður-
kenndi ég strax að ég hefði ekki
gegnt hljóðmerkjum lögregl-
unnar, sem mér fannst fárán-
legt af þeim að nota á þessum
tíma sólarhringsins, þegar bæj-
arbúar eru í fasta svefni, þótt
slíkt sé leyfilegt í neyðartilfell-
um.
Þriðjudagsmorgun 28. maí kl.
8.30 er ég vakinn upp af lög-
reglunni og sagt að mæta hjá
dómara kl. 9 f. h. Gerði ég það
og var haldið þar í nokkurra
klukkutíma yfirheyrslu. Til-
kynnir dómari mér þá að hann
ætli að svipta mig ökuleyfi til
bráðabirgða. Afhenti ég honum
ökuskírteinið í þeirri góðu trú
að ég fengi það þegar skýrslu-
gerð lyki. Þar sem ákeyrsla á
A 62 reyndist uppspuni lög-
reglu og eiganda bílsins sam-
kvæmt skriflegri yfirlýsingu,
sem ég hef í vörslum mínum,
undirritað af Ófeigi Baldurs-
syni lögreglumanni no. II. Ann-
að skriflegt plagg hef ég einnig
í minni vörslu undirritað af
Árna Magnússyni varðstjóra,
um að það sé þvættingur í sorp-
grein Morgunblaðsins sem það
birtir 29. maí ’74 að ég hafi haft
í frammi ljótan munnsöfnuð og
verið settur í fangageymslur
lögreglunnar.
Fór ég þess á leit við dómara
að yfirheyrslum loknum, að þar
sem ég hafði ekki valdið neinu
tjóni eða gert á hlut nokkurs
manns að ég fengi að halda öku
skírteininu mínu í 4 til 5 vikur,
þar til dómur félli. Þar sem það
er atvinna mín að ferðast um
landið með kvikmynd mína.
Þvertók dómari fyrir að veita
mér þessa bón mína. Gat hann
ertga skýringu gefið mér aðra
en þá að hann tæki ekki orð sín
aftur. Tjáði ég þá dómara greini
lega nauðsyn mína á að halda
ökuleyfinu þennan stutta tíma
þar sem ég hafi ekki ráð á að
hafa einkabílstjóra, og • þetta
stöðvi algjörlega atvinnurekst-
ur minn. Fór ég þá til sýslu-
manns og bað hánn þessarár
sömu bónar, þar sem mér og'
fleirum er vel kunnugt um að
slík fyrirgreiðsla hafi verið
veitt mörgum manninum. Þver-
tók sýslumaður fyrir þetta með
öllu.
SVIKAMYLLAN ER SVONA:
Dómari vísar til sýslumanns
og sýslumaður neitar að taka
fram fyrir hendur dómara.
Samt viðurkennir sýslumaður
við mig að enginn sé sekur fyrr
en dómur hafi fallið. Bauðst
sýslumaður til að hraða málinu
eins og hægt væri hjá saksókn-
ara. Tilkynnti ég þá dómara að
þessi ósanngirni hans gæti neitt
mig til að aka ökuskírteinislaus-
an, þar sem ég er tilneyddur
til að halda áfram minni vinnu
af fjárhagsástæðum.
Þessar ofangreindu línur eru
staðreyndir til leiðbeiningar
þeim sem trúað hafa á Gróu-
sögur Morgunblaðsins og bæjar
slúðrinu alþekkta* Einnig gefa
þær smá innsýn' í vinnubrögð
sýslumannsembættisins.
Bið ég sýslumann eða lög-
reglu vinsamlega að láta það
koma fram í blaðinu ef að þetta
er ekki rétt með farið.
Samkvæmt fyrmefndum vott
orðum frá tveim lögregluþjón-
um á Akureyri, er ég hef í hönd
um og get birt hvenær sem er,
er málatilbúnaður á hendur
mér, blaðaskrif og slúður úr
lausu lofti gripið og nokkurt
undrunarefni, að slík mistök,
svo vægt sé að orði kveðið,
skuli koma fyrir hjá virðulegu
dómaraembætti í - höfuðstað
Norðurlands.
ÞANN 4. júní kom til landsins
danskur leikflokkur sem kallar
sig Banden og er ætlunin að
hann fari í leikför um landið.
Fjárstyrkur til þessarar ferðar
kemur frá Norræna menningar-
málasjóðnum og er reiknað með
að hann geti greitt allan kostn-
að, einnig aðgangseyri.
Samstarfshópur Banden hér
á landi um þessa leikför er leik-
listarskóli Sál og er haft sam-
ráð við leikfélög úti á landi um
leikförina um landið.
Banden kemur með fimm
stuttar sýningar, sýningar fyrir
börn, unglinga og fullorðna.
Lengd bamasýninganna miðast
oft við kennslustund, því
Banden hefur leikið mikið í
skólum.
Okkur vitanlega hefur er-
lendur leikflokkur ekki fyrr
leikið fyrir íslensk börn. íslensk
- GRÆNLENDINGAR
(Framhald af blaðsíðu 8)
legt og menntandi fyrir mig að
kynnast þessum málum hér á
landi. Skólakerfi okkar vestra
er talsvert svipað því, sem hér
er, en ýmislegt er þó á annan
veg útfært. Okkur vantar til-
finnanlega kennara, sem bæði
kunna grænlensku og dönsku.
Flestir kennarar okkar eru
danskir, en of fáir skilja og tala
grænlensku.
Að síðustu sagði skólastjór-
inn, að án efa hefðu ungir Græn
lendingar baéði gagn og gaman
að því að koma hingað og kynn-
ást skólunum. af eigin raun og
ekki síður hefðu þeir gagn af að
kynnast atvinnulífinu, jafnvel
taka þátt í því um tíma.
Utgerðarmaðurinn, Jónas, sól
brúnn og þreklegur myndar-
maður, segir fyrst frá því, að
hann hafi farið út á Hauganes
og heimsótt Gunnar Níelsson
útgerðarmann og kynnt sér út-
gerðina þar. Bátarnir, sem það-
an róa eru áf svipaðri stærð og
við notum, en betur búnir tækj-
uin, og þeir hafa þorskanet, sem
við höfum ekki ennþá. Við leggj
um okkar fisk upp til verkunar
heima, en Gunnar á Hauganesi
og áðrir útgerðarmenn þar
verka sjálfir aflann heima hjá
sér, í salt, og ég fæ ekki betur
séð en fólkið á Hauganesi lifi
góðu lifi og variti ekki neitt. Ég
kom, sagði útgerðarmaðurinn,
einnig til Olafsfjarðar, en þar
leggja sjómenn afla sinn upp í
fiskverkunarstöðvar, eins og
hjá okkur fyrir vestan. Heim-
sókn mín til þessara útgerðar-
stöðva var mjög fróðleg fyrir
mig, og þar sá ég eitt og annað,
sem athugandí er að notfæra
.sér.síðar. ...
Utgerðarmaðurinn segir að
hann hafi meiri trú á jákvæð-
um árangri af því fyrir Græn-
lendinga, að ferðast hingað til
lands til að kynnast atvinnu-
vegunum og ýmsu öðru, en að
leggja leið sína til Danmerkur,
þar sem mörg skilyrði séu lík-
ari í Grænlandi og á íslandi, og
ungt fólk að vestan hefði áreið-
anlgea ávinning af því að heim-
sækja ísland, til að afla sér
menntunar og starfsreynslu.
Atvinna lijá okkur, segir Jónas
að lokum, er ekki nógu mikil
og minni en hér, því að afla-
brögðin eru ekki eins góð og
vera þyrfti. Stór veiðiskip ann-
arra þjóða taka mikinn afla á
djúpmiðum, sem við getum
ekki sótt á okkar litlu fiskibát-
um. Laxveiðin hefur talsverða
þýðingu fyrir okkur, en nú meg
um við ekki veiða nema ellefu
hundruð lestir, og í fyrra fyllt-
um við snemma þann kvóta.
Hendrine Frederiksen er ung
stúlka, hlédræg, myndarleg og
börn sjá talsvert af erlendu efni
í sjónvarpi, einnig kvikmynda-
sýningar, og hvers vegna skyldi
það ekki takast með erlendar
leiksýningar?
Fyrsta sýningiri verður á
Sauðárkróki 5. júní og á Akur-
eyri sýnir flokkurinn 6. og 7.
júní og að því búnu fer flokkur
inn til Húsavíkur og sýnir þar
8. júní.
Hér á Akureyri verða fyrst
tvær barnasýningar kl. 5 í Lóni
og heita þær Sök og Sláðu mig
ekki. Sömu sýningar verða á
föstudaginn 7. júní á sama tíma
og um kvöldið verður sýning
fyrir fullorðna er heitir Preo-
metheus, og hefst hún kl. 21.00.
Þá sýningu hyggst Banden einn
ig sýna á Dalvík fimmtudaginn
6. júní kl. 8.00.
• ■ ■ ‘ ' 'I
(Fréttatilkynning)
Virðingarfyllst,
Reynir Örn Leósson.
Danskur leikflokkur í heimsókn
5
býður af sér hinn besta þokka.
Hún vinnur í skinnaiðnaðinum
og þess vegna kynnti hún sér
starfsemina á Gefjun, Heklu og
Skóverksmiðjunni. Hún var fá-
orð um sjálfa sig og veru sína
hér, en sagðist þakklát fyrir
þessa för og ýmislegan fróðleik,
sem hún hefði fengið hér í iðn-
greininni. Hún telur ekki frá-
leitt, að koma hingað aftur og
þá gjarnan til starfa, ef tæki-
færi biðist.
Að siðustu ræðum við við
bóndann, Sem Knudsen. Hann
er ungur að árum, er fjárbóndi
og hefur á sjötta hundrað. fjár.
Hann segist hafa lært margt í
sinni ferð, svo sem hve þýðing-
armikil samvinna bændanna sé
og hve vel þeir séu búnir vélum
og tækjum til landbúnaðarstarf
anna. Hann segist hafa dvalið á
þrem bændabýlum og ferðast í
áætlúnarbílum, séð mikið af
landinu og virt fyrir sér fjölda
bændabýlanna, landslag, íækt-
un, búpening og alla aðstöðu og
sér hafi litist vel á margt af því,
sem fyrir augu hafi borið. Græn
lenski bóndinn er alvarlegur
maður, en er við að síðustu ber-
um fram þá spurningu, hvort
borið hafi fyrir augu hans ein-
hverja fallega heimasætu,
brosti hann og sagði: Já, marg-
ar.
Við þökkum Grænlendingun-
um fýrir heimsóknina til Norð-
urlands og fyrir það að gefa sér
tíma til að líta inn til Dags.
Megi för þeirra hér á landi
verða ánægjuleg og árangurs-
rik. □
Bifreidin
Blíl til sölu.
Volikswagen 1200 árg.
1964 með ’66 vél ný-
upptekinni. Þarfnast
viðgerðar. Selst ódýrt.
Uppl. að Gránufélags-
götu 41 B.
Til sölu Volkswagen,
árg. 1961, ekinn 52
þús. km.
Verð mjög hágstætt.
Uppl. í síma 4-11-57 eða
1-22-98 eftir kl. 7 s. d.
Bifreiðin A-3511, Land
Rover bensín árg. 1967
er til sölu.
Verður til sýnis við hús
Brunabótafélagsins
laugardaginn 8 þ. m. kl.
13-14. - Tilboð óskast.
Skógræktarfélag
Eyfirðinga.
Til sölu Volkswagen
1300 árg. 1970. Ekinn
25 þús. km., í góðu lagi.
Uppl. í síma 2-12-67.
Fíat 127 árg. 1974 til
sölu.
Uppl. í síma 2-13-70 og
á vinnustað í síma
2-28-40.
Til sölu bifreiðin A-151
sem er Peugeot 504 árg.
1974, ekin aðeins 1.600
km.
Uppl. í síma 2-10-70.
Volkswagen bifreið er
til sölu (eldri gerð) í
Byggðaveg 154, sími
1-15-44 á kvöldin.
ATHUGASEMD
FRÁ ÓLAFSFIRÐI
FRÁ Ármanni Þórðarsyni,
kaupfélagsstjóra í Ólafsfirði,
hefur blaðinu borist eftirfar-
andi:
Fyrsti bæjarstjórnarfundur í
Ólafsfirði, eftir kosningarnar,
var boðaður af aldursforseta
bæjarstjórnar, Ásgrími Hart-
mannssyni. Þar fór fram kjör
forseta og varaforseta og fasta-
nefnda bæjarstjórnarinnar. Þá
var samþykkt, að Ásgrímur
Hartmannsson, sem verið hefur
bæjarstjóri í Ólafsfirði í 28 ár,
gegndi bæjarstjórastörfum til
næstu áramóta.
mér vonbrigðum og gremju,
að Morgunblaðið skyldi strax
morguninn eftir birta viðtal við
Ásgrím, þar sem hann rangtúlk-
ar þessa afgreiðslu og reynir að
slá sig til riddara og lítillækka
okkur, sem broslega aumingja,
fyrir að gera þetta samkomulag
við hann. Það getur verið, að
þetta boð okkar hafi komið hon
um á óvart, því að það mun lík-
lega fjarri honum að sýna póli-
tískum andstæðingum sínum
sanngirni og drenglyndi. Hitt,
að hann hafi ekki skuldbundið
sig til að gegna störfum lengur,
en til næstu áramóta, kom
aldrei til mála. Honum gefst
enginn kostur á, að gegna því
. léngur. Starf bæjarstjórans
verður nú auglýst laust til um-
sókpar í fyrsta sinn í 28 ár og
nýr bæjarstjóri ráðinn. □
Árni Óðinsson og Margrét Baldvinsdóttir, Bikarmeistarar SKÍ 1974
Akureyringar í sérllokki á SkarSsmóti
ÁRANGUR Akureyringa á
Skarðsmótinu, sem fór fram um
hvítasunnuna verður að teljast
til meiriháttar viðburða á sviði
skíðamála.
Þrír fyrstu í karla- og kvenna
Barnastóll óskast.
Uppl. í síma 2-17-70.
Ármann Þórðarson,
kaupfélagsstjóri.
En í sambandi við það, sem
Morgunblaðið segir nú fyrir
helgina um þessi mál, vil ég
taka fram: Ég lít á bæjarstjóra
sem starfsmann bæjarstjórna
eða framkvæmdastjóra bæjar-
félaga, er væru ráðnir til þess
starfs og hefðu það sem at-
vinnu. Nú hefur Ásgrímur Hart
mannsson starfað sem bæjar-
stjóri í Ólafsfirði í 28 ár og það
verið hans atvinna. Að vel at-
huguðu máli fannst mér það
nokkuð harkalega að farið við
Ásgrím, að svifta hann tafar-
laust atvinnu sinni, þótt flokk-
,ur hans tapaði meirihluta í
bæjarstjórn nú. Fannst mér, að
koma bæri mannlega fram við
hann og gekk ég því á fund
hans eftir kosningar og ræddi
þau viðhorf er skapast höfðu,
bauðst m. a. til að kanna, hvort
ekki næðist samstaða um að
hann héldi starfi sínu í þrjá til
sex mánuði, þar til nýr bæjar-
stjóri yrði kjörinn. En starfið
verður auglýst laust til um-
sóknar.
Sjálfur taldi hann eðlilegra
að miða við næstu áramót og
gátum við fallist á það, sáum
að það var að sumu leyti heppi-
legri tími vegna uppgjörs, eftir
hinn langa valdaferil Sjálfstæð-
ismanna í Ólafsfirði.
Ásgrímur Hartmannsson ósk-
aði þess eindregið, að ég bæri
þetta fram á bæjarstjórnar-
fundi, með ósk til sín um að
gegna embættinu til næstu ára-
móta og að umræður yrðu eng-
ar um þetta. Taldi ég ekki máli
skipta hvaða orðalag væri not-
að, en hins vegar væri rétt að
sýna samstarfsvilja og að við
myndum ekki að fyrra bragði
stjórna með einræði, eins og við
höfðum oft gagnrýnt Sjálfstæð-
ismeirihlutann í bæjarstjórn
fyrir að gera. Þar sem Ásgrímur
lagði áherslu á, að engar um-
ræður yrðu um málið, olli það
Húsnæði
Ung stúlka óskar eftir
herbergi til leigu sem
fyrst.
Uppl. í síma 2-27-35.
Herbergi óskast til
leigu.
Uppl. í síma 2-13-68.
Herbergi óskast til
leigu strax.
Uppl. í síma 2-18-18.
Óska eftir að fá her-
bergi á leigu.
Uppl. í síma 2-20-77
miflí kl .7,30 - 9,30 e.h.
Til sölu 2ja herbergja
íbúð ásamt bílskúr.
Uppl. í síma 2-21-70.
2ja herbergja íbúð ósk-
ast til leigu.
Uppl. í síma 2-14-26.
2ja herbergja íbúð til
sölu í blokk við Víði-
lund.
Uppl. í síma 2-19-79
milli kl. 7 og 8.
Herbergi óskast.
Fullorðinn maður óskar
eftir herbergi sem fyrst.
Ársfyrirframgreiðs] a
ef óskað er.
Uppl. í síma 2-13-49
eftir kl. 7,00.
3ja herbergja íbúð til
sölu við Skarðshlíð.
Uppl. í síma 2-21-35,
eftir kl. 19.
flokki í stórsvigi er árangur,
sem vert er að gefa gaum.
Margrét Baldvirisdóttir sannaði
enn einu sinni að hún er
ókrýnd drottning skíðakvenna
hé'r á landi.
Þá var árangur Árna Óðins-
son, Hauks Jóhannssonar, Tóm-
asar Leifssonar og Alberts Jen-
sen frábær.
Helstu úrslit urðu:
Stórsvig kvenna.
1. Margrét Baldvinsdóttir, Ak.
2. Margrét Vilhelmsdóttir, A.
3. Margrét Þorvaldsdóttir, Ak.
Stórsvig karla.
1. Haukur Jóhannsson, Ak.
2. Tómas Leifsson, Ak.
3. Albert Jensen, Ak.
Svig kvenna.
1.—2. Margrét Baldvinsd., Ak.
1.—2. Jórunn Viggósd., Rvík
3. Margrét Vilhelmsd., Ak.
Svig karla.
1. Arnór Magnússon, f.
2. Hafsteinn Sigurðsson, í.
3. Árni Óðinsson, Ak.
Alpatvikeppni kvenna.
1. Margrét Baldvinsdóttir, Ak.
2. Margrét Vilhelmsdóttir, Ak.
3. Jórunn Viggósdóttir, Rvík
Alpatvíkeppni karla. t -t'rt < ’
1. Hafsteinn Sigurðsson, í.
2. Tómas Leifsson, Ak.
.3. Albert Jensen, Ak.
Á þessu móti fengust svo
úrslit í Bikarkeppni SKÍ. Sú
keppni er stigakeppni úr 12
mótum sem fram fara á 5 stöð-
um á landinu, Akureyri, ísa-
firði, Siglufirði, Reykjavík,
Húsavík og svo landsmót.
Árni Óðinsson, Akureyri,
sigraði að þessu sinni eftir geysi
harða keppni við Hafstein Sig:
urðsson, ísafirði.
Margrét Baldvinsdóttir, Akur
eyri, sigraði í kvennakeppninni
og hafði algera yfirburði. Sigr-
aði í 10 af 12 mótum.
Af Akureyringa hálfu var
Skarðsmótið mjög góður punkt-
ur aftan við fremur stormasamt
keppnistímabil, þar sem skipst
hafa á sigrar og töp.
Allt það keppnisfólk sem hélt
uppi merki Akureyrar í vetur
á heiður og þökk skilið fyrir
frábæra frammistöðu og þá sér-
staklega mesta afreksfólkið,
þau Margrét Baldvinsdóttir og
Ámi Óðinsson. Það eru full-
trúar sem hvert bæjarfélag
getur verið stolt af að eiga. □
ÍRA-VÍKINGUR j
4 LAUGARDAG
SL. LAUGARDAG lék ÍBA-
liðið sinn þriðja leik í íslands-
mótinu í knattspyrnu, 1. deild,
og voru íslandsmeistararnir frá
í fyrra Keflvíkingar mótherj-
arnir. Enn töpuðu Akureyring-
ar og nú 3—0. Og af fréttum af
leiknum virðist vörnin hafa
•brugðisi...
Fyrsti leikur Akureyringa á
heimavelli fer fram n. k. laugar
dag og koma þá Víkingar norð-
ur, en þeir urðu Reykjavíkur-
meistarar í vor.
Vonandi fjölmenna knatt-
spyrnuunnendur á Akureyri og
í nágrannabyggðum og hvetja
lið sitt betur en oft áður, ekki
mun af veita.
Leikurinn hefst kl. 2.00 e. h.
á íþróttavellinum. □
Atvinna
Sala
Nokkrar fjölærar plönt-
ur til sölu í Goðabyggð
1, næstu daga, eftir kl. 5
Honda 350 árg. ’74
tveggja silendra til sölu.
Uppl. í síma 1-14-22
í hádeginu.
Til sölu vel með farinn
bamavagn.
Uppl. í Oddeyrargötu 6
á kvöldin.
Háskólanemi óskar eftir
atvinnu. Margt kemur
til greina.
Uppl. í síma 2-50-72,
Reykjavík.
10—12 ára telpa óskast
til að gæta 1 Vi árs
barns í Hamragerði.
Sími 2-15-51.
Stúlka eða kona óskast
til að gæta U/2 árs
drengs allan daginn.
Uppl. í síma 2-18-59.