Dagur - 26.06.1974, Page 1
ALGER UMSKIPTI
Á SIGLUFIRÐI
<8*^xSx£<SxS>«kÍ^xSxSxÍ><3xíxJxJx$>3xJx$*Jx3><3xÍx3xJ><JxJ*$x$<J><Sx3xJ*$><JxJ><Jx3x£<Í«S>3>3><JxS>^^«8x$xÍx3><S>3xJx$>3><JxJxJxÍxJxJ><S><Sx$^<J
Siglufir'ði, 24. júní. í gær var
heitasti dagur, sem ég hef lifað
hér á Siglufirði. Blæjalogn var
fyrri hluta dagsins en seinni
hluta dagsins hvessti nokkuð.
í fyrradag var einnig hið besta
veður.
Hér er mikið um að vera og
vantar fólk til ýmissa starfa.
Uppbyggingin er mikil, verið er
að steypa götur og laga aðrar,
byggja hús o. þ. h. Allir togar-
arnir eru í gangi, — Stálvík,
Sigluvík og Dagný. Dagný hef-
ur aflað vel og hinir sæmilega.
Hlutafélagið Þormóður rammi
er að byggja nýtt hraðfrystihús,
stórt og vandað, og standa vonir
til að stórum áfanga þess ljúki
í sumar. Félagið rekur nú frysti
hús síldarverksmiðjanna, þang-
að til það nýja kemst í gang.
Einnig er unnið af fullum krafti
í frystihúsinu ísafold. Eigendur
þess eiga togara í smíðum í
skipasmíðastöðinni Stálvík. Enn
fremur hafa þeir fjölda smærri
báta núna, en nokkur hluti
þeirra er að búa sig út á hand-
færi um þessar mundir. Dekk-
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á AKUREYRI
AÐFARANÓTT síðasta laugar-
dags var bifreið stolið á Akur-
eyri. Hún fannst daginn eftir á
Dalvík, óskemmd. Sömu nótt
var bifreið stolið á Dalvík og
fannst hún einnig næsta dag á
Akureyri og var óskemmd. Bíl-
þjófurinn þurfti til Dalvíkur og
svo heim aftur og komst leiðar
sinnar með þessum hætti. At-
hugavert er, að í báðum stolnu
bílunum stóðu lyklarnir í
kveikjulásnum og hurðir voru
ólæstar. Lögreglan varar fólk
við því að ganga svo ógætilega
frá bílum sínum og hér var gert
og bauð raunar hættunni heim.
í fyrradag valt bíll hjá Kambi
í Ongulsstaðahreppi. Barn
skarst þar á fæti og var gert að
sárum þess í sjúkrahúsi. Ekki
urðu önnur meiðsli á fólki, en
bíllinn skemmdist mikið. O
bátarnir voru allir á línu í vetur
og öfluðu vel. Atvinna var því
næg í allan vetur þrátt fyrir
ýmsar tafir, sem togararnir
urðu fyrir vegna bilana.
Sigló-verksmiðjan leggur nú
niður síld fyrir Rússlandsmark-
að, en hún mun brátt færa út
starfsemi sína, auka vélakost og
vinna fleiri vörutegundir. Mark
aðurinn er nægur, en nokkuð
vantar af hráefni, einkum síld
og grásleppuhrogn.
Mikið var um dýrðir hér 17.
júní. Félagslíf liggur að mestu
niðri yfir sumarið.
Vegir eru með besta móti og
umferð mikil. Það má segja, að
hér hafi orðið algjör umskipti
og árangur breyttrar stjórnar-
stefnu, sem óðast að koma í
ljós. J. Þ.
Ilér í Kjarnaskógi er yngri og eldri skógur í hröóum vexti — og stúikurnar, sem þarna vinna
af kappi, gefa sér naumast tíma til að líta upp. (Ljósm.: E. D.)
❖3>3xS*$xe><e>3xS><SxSxJxSx®>3xS><$KjK3xexJ>«>3>3xSxSxSxJxSxJxSxJ>S>3x»<3xJxS>3xS>3>3>3xSxí>$xJxJxSxíxSxSxJxí>^<JxSxJxS><SxJxJx3xSxíxíxSxSxSxSH
Ávarp Sigurðar Óla
í alþingiskosningunum, sem nú
fara í hönd, er um það kosið,
hvort fram verði haldið núver-
andi framfara- og framkvæmda
stefnu um land allt eða ekki.
Fyrir Norðlendinga er það
alveg sérstaklega mikilvægt, að
áíram verði við völd ríkisstjórn,
sem telur eflingu byggðar um
landið allt, lið í sjálfstæðisbar-
áttu þjóðarinnar allrar. Sjálf-
stæðisbaráttu, sem fólgin er í
því, að efla innra öryggi þjóðar-
innar, sem verður að finna að
hún nýtur og notar landið allt
og þau verðmæti, er það og sjór
inn í kringum það hefir upp á
að bjóða. Sjálfstæðisbaráttu,
sem reist er á þeirri tilfinningu
fólksins að það sjálft og landið,
sem það býr í, sé einhvers virði.
Framsóknarflokkurinn hefir
einn allra flokka haldið uppi
merki þessarar stefnu á Al-
þingi. Þegar hann hefir verið
sterkastur hefir þetta merki
risið hæst og þjóðinni miðað
mest fram á við. Enginn annar
flokkur hefir sett landsbyggðar
stefnuna í öndvegi. Framsóknar
flokkurinn hefir alltaf orðið að
kaupa aðra flokka til stuðnings
við hana. Það er því ekki nægi-
legt að ófram verði vinstri
stjórn, heldur þarf Framsóknar
flokkurinn að koma svo sterkur
út úr kosningunum að hann
geti á sem auðveldastan hátt
haldið uppi merki landsbyggðar
stefnunnar.
Hér á Norðurlandi hefur
þessu merki verið haldið hátt á
lofti frá fyrstu tíð. Fólkið hér á
Norðurlandi hefur verið styrk-
asta stoð Framsóknarflokksins
og ég trúi ekki öðru en að enn
sé hér að finna þessar sterku
stoðir og því komi Framsóknar-
flokkurinn sterkur út úr þess-
um kosningum, er fólkið lætur
hinn raunverulega vilja sinn
ráða. Þá kemur líka fram rétta
myndin af vilja fólksins og
þannig nýtast atkvæðin best.
Sigurður Óli Brynjólfsson.
Afiinn glæðisf
Hrísey, 24. júní. Veður hefur
verið með besta móti í Hrísey
undanfarið, sérstaklega í gær.
Aflinn er heldur að glæðast
og er einkum veitt á handfæri.
Mest er veitt við Flatey og
Grímsey, og stærri bátarnir
sækja á Þistilfjörð. Hér er unn-
ið dag hvern í frystihúsinu og
atvinnulífið því í blóma eins og
er.
Töluvert er hér af rjúpu og
fuglafræðingar hafa verið hér
við rannsóknir.
Frambjóðendur hafa sést hér
nokkrir og menn hafa reynt að
hlusta og trúa eftir því sem að-
stæður hafa leyft. En allir eru
heilbrigðir hér og í góðu skapi.
S. F.
SKlÐAHÖTELID ER 0P!Ð
Sigurður Óli Brynjólfsson.
SKÍÐAHÓTELIÐ í Hlíðarfjalli
tók til starfa 10. júni og verður
opið til 1. sept. frá kl. 8.00—
23.00 daglega.
í hótelinu eru 11 tveggja-
manna herbergi og svefnpoka-
Geta má þess, sem gert er
Á ÞRIGGJA kjörtímabila
stjórnarsetu íhalds og krata var
ekkert gert útfærslu landhelg-
innar til framdráttar. Þó væri
of mikið sagt, að „viðreisnin"
kæmi þar alls ekkert við sögu.
Á síðasta þingi þar sem þessir
flokkar höfðu enn meirihluta á
Alþingi, felldu þeir tillögu Ólafs
Jóhannessonar um útfærslu
landhelginnar í 50 sjómílur.
Geta skal þess sem gert er.
í kosningabaráttunni 1971
lýstu íhaldsmenn því sem „sið-
leysi“ að ætla sér að færa út
landhelgina, án þess að spyrja
Breta, V.-Þjóðverja og Hagdóm
stólinn. Hvers vegna?
Vegna þess að íhaldið gerði
samning við Breta og V.-Þjóð-
verja 1961, um að landhelgin
yrði ekki færð út einhliða, án
málskots til Hagdómstólsins. í
samningnum voru engin upp-
sagnarákvæði og hefur hann
stundum verið kallaður „land-
ráðasamningur". íhaldsmenn í
þessu kjördæmi töldu útfærslu
landhelginnar ævintýra-
mennsku og höfðu uppi úrtölur
í allri kosningabaráttunni.
En þjóðin felldi sinn dóm í
þeim kosningum. Vinstri flokk-
arnir mynduðu nýja ríkisstjórn.
Landhelgin var færð út og var-
in, þrátt fyrir vopnað ofbeldi
Breta. Gerður var síðar bráða-
birgðasamningur við Breta.
Reynslan sýnir, að útfærslan
bar árangur, því að floti er-
lendra fiskiskipa, sem áður
veiddu alveg upp að 12 mílun-
um, er nú að heita má horfinn
út fyrir 50 mílurnar. Sigur ís-
lendinga í landhelgismálinu er
því ótvíræður.
í þessu mikilvæga máli vær-
um við ennþá með 12 mílurnar,
ef íhaldið sæti í valdastólunum.
Og við værum enn í vopnuðu
stríði á miðunum ef kommúnist
ar hefðu ráðið ferðinni.
í öllum þessum málum áttu
Bretar aðeins einn málsvara á
íslandi, og það var Sjálfstæðis-
flokkurinn. Nú kemur þessi
sami flokkur fram fyrir kjós-
endur og segir: Við einir getum.
Við ætlum að færa þjóðinni 200
mílna landhelgi.
. Síðasta Alþingi samþykkti að
veita ríkisstjórninni heimild til
að færa landhelgina út í 200
mílur. Þann rétt getur ríkis-
stjórnin notað hvenær sem er.
Jafnhliða stækkun landhelg-
innar hefur ríkisstjórnin beitt
sér fyrir kaupum 53 skuttogara
til að nýta fiskimið landgrunns-
ins, sem erlendir sjómenn sóttu
áður.
Ætli nokkur vilji skipta um
stjórnarstefnu í landhelgismál-
um? □
pláss fyrir 60 manns.
í sumar verður ekki matsala
í Skíðahótelinu. Hins vegar er
á boðstólum morgunverður,
kaffi, kökur, smurt brauð, sæl-
gæti, öl og gosdrykkir.
Verið er að þekja og sá í
næsta nágrenni hússins, einnig
eru fyrirhugaðar fleiri fram-
kvæmdir til að gera staðinn vist
lcgri fyrir gesti.
í sumar verður byggð ný
skíðalyfta í Reithólum í Hliðar-
fjalli. Kemur hún í stað tog-
brautarinnar við Stromp og
verður rúmlega 500 m löng.
Framkvæmdir munu væntan-
lega hefjast um mánaðamótin
júní—júlí og mun Norðurverk
annast verkið.
(F réttatilky nning)
Vinabæjarfengsl við Gimli?
NÝLEGA barst erindi frá bæjar
stjóra Gimli í Manitoba í
Kanada, þar sem farið er fram
á, að tekin verði upp vinabæjar-
tengsl milli Akureyrar og
Gimli.
Bæjarráð leggur til við bæjar
stjórn, að tekið verið upp slíkt
vinabæjarsamband. Búist er
við, að bæjarstjóri Gimli komi
hingað til Akureyrar á þjóð-
hátíð, og verða þessi mál eflaust
rædd nánar þá. □
Dagur
kemur næst á laugardaginn. —