Dagur - 21.08.1974, Blaðsíða 5

Dagur - 21.08.1974, Blaðsíða 5
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. Stjórnarmyndun MARGIR hörmuðu. að ekki tókst myndun nýrrar vinstri stjórnar í landinu. Framsóknarflokkurinn, undir forystu Ólafs Jóhannessonar, forsætisráðherra, reyndi liana til þrautar. Forystumenn vinstri flokk- anna hafa skýrt niðurstöður fyrir landsfólkinu og á liverju samningar strönduðu, nema forsætisráðherra, sem sagðist ekki bera neinn söktun í þessu efni. Hins vegar væri hverjum ljóst, að myndun stjórnarstefnu og ríkisstjórnar fjögurra flokka væri erfiðari en þriggja. Ennfremur liefði liann ekki getað fallist á kröfur Al- þýðuflokks um samráð við aðila vinnumarkaðarins um myndun stjórnar og stefnumótun, þótt sam- starf margra aðila, utan þings, væri bæði nauðsynlegt og sjálfsagt eftir stjórnarmyndun. En hinir mörgu kjósendur lands- ins, sem áttu von vinstri stjórnar en fengu ekki, bregðast misjafnlega við þeim tilraunum, er nú standa yfir þótt fyrst og fremst lýsi þeir óánægju sinni yfir því, að vinstri stjórn var ekki mynduð. Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn kenna hvor öðr- um um, að ekki tókst betur en raun ber vitni. Þótt ekki verði dómur lagður á það mál að sinni, mun sú almenna skoðun réttust, að þessa tvo flokka hafi fyrst og fremst vantað áhuga á að glíma við þau vandamál, sem ný ríkisstjórn verður að leysa og að vantraust þeirra í milli sé gagn- kvæmt. Sé þetta rétt ályktað, liafa þessir flokkar brugðist því trausti kjósenda sinna, að mynda vinstri stjórn að loknum kosningum. Afstaða Framsóknarflokksins er ljós í þessu efni. Forsætisráðherra hafði áður lýst því yfir, að hann hyggðist að kosningum loknum mynda nýja og sterka vinstri stjórn ef flokkur hans og aðrir vinstri flokk- ar í landinu fengju til þess þingstyrk: Þetta var reynt til þrautar. Þegar forseti íslands fól Ólafi Jó- hannessyni að halda stjórnarmynd- unartilraunum sínum áfram, eftir að vinstri stjóm var úr sögunni, var ekki um neina aðra leið að velja en tilraun til stjórnarmyndunar með Sjálfstæðisflokknum. Þær tilraunir standa enn, og má ætla að þær beri árangur. Þótt Framsóknarflokkurinn hafi, í meira en hálfrar aldar þátttöku í íslenskum stjórnmálum, jafnan talið eðlilegra samstarf við þá stjómmála- flokka, sem kallaðir em til vinstri, hlýtur hann nú, sem jafnan áður, að láta málefnin ráða og víkjast ekki undan þeirri ábyrgð, sem honum em á herðar lögð. □ Hugleiðing um Hólastól „Hólastóll með hefð og sóma hafinn stóð, biskup nýr með listaljóma lýsti þjóð. Postullega prýddi Hóla, presta lærði, vígði skóla, lék á hörpu himnaljóð. . . . “ Þannig hóf sr. Matthías sinn alkunna lofsöng um Jón biskup Ögmundsson og starf hans á sinni tíð, hástemmdan og ógleymanlegan öllum, sem num ið hafa, og fundið jafnframt hvers nú er vant. Fátt held ég að sé hinum öldr uðu meira gleðiefni, en að sjá eitthvað sögufrægt rísa úr rúst- um, sjá gamalt og gott endur- nýjast og verða betra, koma auga á eitt og annað, sem mikils má af vænta fyrir samfélag framtíðarinnar. Það hefir líka orðið hlutskipti okkar, sem heilsuðum þessari öld á ungl- ingsaldri, að sjá margt rísa úr rúst og ótal margt nýtt af nál- inni boða gott, þótt sumt sem nú verður að horfa á sé ömurlegt, eins og t. a. m. vaxandi drykkju skap og margskonar óreiðu, sem þjóðin verður að sigrast á. En til þess verður að vekja hana til ábyrgðar og einbeittrar starf- semi gegn þeim voða, sem fíkni- lyfin eru allri framtíð hennar. Þarf ekki að orðlengja það, því að nú þegar lætur hann sig ekki án vitnisburðar. En nú er mér einkum Hóla- stóll í hug, og hefir oft verið. Stórmerk er saga hans fyrir þjóðina alla. Hvert væri nú t. a. m. ástand þjóðtungunnar ef hann hefði ekki komið Biblí- unni út meðal þjóðarinnar á hennar eigin tungu, svo að segja í upphafi siðaskiptanna hér. Saga Norðmanna er harla lærdómsrík í þeim efnum. Þó mættu Norðlendingar best vita hvað þeir misstu. Það mun líka hafa gengið nærri mörgum að vita Skálholt í rústum. Og aldrei hefir mér sviðið meir sú niðurlæging en þá er ég fyrir hálfri öld kom þangað með tvo erlenda kenn- ara, og varð að reyna til að rétt- læta það ástand og koma því yfir á „máttarvöldin“! En nú er ánægjulegt að hafa lifað það, að sjá Skálholt rísa úr rústum. Og segja má að það hafi fyrst og fremst gerst með því, að menn bundust samtökum, stofnuðu Skálholtsfélag undir forustu nú- verandi biskups. Svo kom ríkis- valdið til skjalanna og gerðist býsna stórvirkt, sem kunnugt er, og frændurnir ytra með opinn faðm til hjálpar. Nú er lýðháskólinn toppurinn á þess- ari endurreisn Skálholts, með nýstárlegt svipmót á gömlum grunni, svo sem eðlilegt er, og þjóðin væntanlega mun kunna að meta. Svo mun þar ón efa rísa biskupsstóll að nýju. En hvað um Hólastól? Ég man frá Hólavist minni 1911, hversu Gísli gamli á Hofi, er þá sýndi oft gestum staðinn, þaulkunnugur sögu hans og öll- um staðháttum þar, var sár missir margs þess, sem horfið var. Þó voru Hólar þá ólíkt bet- ur settir en Skálholt. Þar var þó gamla steinkirkjan með sín sér- kenni, skraut og virðuleik, mikilsmetinn búnaðarskóli og trjáræktarstöð. Og þegar ég 30 árum síðar tók að kynnast Hól- um á ný á námsstjóraferli mín- um um Norðurland, var mikill áhugi ýmsra þar vaknaður á því, að koma kirkjunni að inn- an í það horf, sem væri sem næst hennar fyrra búnaði. Vann sóknarnefndin að því und ir stjórn form. síns, Árna bónda Sveinssonar á Kálfsstöðum, og varð mikið ágengt. Svo kom turninn mikli til minningar um Jón biskup Arason, og setur hann nú mikinn svip á staðinn, sem verðugt er. Þar voru ekki síst Skagfirðingar að verki, m.a. bæði teiknarinn og bygginga- meistarinn, að ógleymdum Ólafi þessu hátíðarári, að endurreist- ur skuli biskupsstóll á Hólum, reistur þar á næsta áratug (eða svo) biskupsgarður, og í tengsl- um við hann aðstaða til skóla- halds, sennilegast í formi nám- skeiða, handa prestum og kenn- urum, til eflingar kristinni lífs- stefnu, trú og siðgæði, íslenskri Snorri Sigfússon, fyrrum námsstjóri. Sigurðssyni bónda á Hellulandi og félögum hans, svo og fjölda manna um allt Norðurland, o. fl. Þetta var myndarlegt framtak þá og öllum til sæmdar. Svo kom ríkisstjórnin með hljóðfær- ið góða, sem hæfa þótti hinu aldna og virðuléga musteri, en áður hafði verið settur prestur á staðinn, sem lengi hafði verið „útkirkja" frá Viðvík. Það hefir því margt verið gert á þessari öld til éndurreisnar Hólum. Jafnvel skólinn talinn endurreistur, þótt á öðrum stað sé. En sjálfa kórónuna vantar á það endurreisnarverk, hinn virðulega biskupsstól. Hann verður að endurheimta. Og það eiga Norðlendingar að samein- ast um, gera að sínu máli, taka höndum saman við það félag, sem fyrir er og prestar o. fl. hafa haldið uppi, ná samstöðu við það og stefna að því marki með festu og hyggindum, og vænta hins áhugasama og vin- sæla vígslubiskups í forustu- liðið. En eðlilegast mætti þykja, að hin andlega stétt norðan- lands og Fjórðungssambandið, tæki málið upp og fylgdu því eftir. Síðar myndi svo ríkið að sjálfsögðu taka við. „Eyðing fornmenja er einatt eyðing andlegra verðmæta.. . “, segir Sigurður skólameistari á einum stað, er hann hugleiðir þessi mál. Hér á þetta við, slík söguleg verðmæti og andleg þarf að nýta, en ekki glata þeim, sýna þá ræktarsemi við söguna og þann skilning á þörf komandi tíma á andlegri afls- stöð á hinum fornhelga stað, er mikils mundi mega sín í sókn til fullkomnara mannlífs, sem framundan hlýtur að vera. Það væri því veglegt verk- efni fyrir Norðurland að sam- einasi um. að heita því nú “ talað, sem eitt af því nauðsyn- lega, að „ná valdi yfir náttúr- unni“, eins og þetta var orðað þá. Munu þó flestir varla hafa átt við annað en þá nauðsyn, að fá sem gleggsta og réttasta fræðslu um hin einföldustu lög- mál hennar, svo að þeirra yrði notið. Nú er hins vegar svo kom ið þeirri þrotlausu þekkingar- leit, að inenn taka að ugga um hag sinn. Hún hefir að vísu margt dásamlegt uppgötvað mönnum itil handa, en einnig líka það, sem öllu lífi stendur nú ógn og skelfing af. Og allt undir manninum komið hvernig til tekst tim framvinduna, hvort hún verður gróandi líf eða eyð- ing og daUða. Hér eru því mikil þáttaskil í öllum mannheimi, allri mannlegri þekkingarleit og þroskasögu og ekki undarlegt þótt nú séu hrópuð aðvörunar- orð um alla heimsbyggðina, og mönnum bent á hættuna. Þó er eins og lítil alvara fylgi ennþá, og sumir vilji ekki sjá né skilja. En vitrir menn og sjáendur benda nú sem oft áður á kenn- ingar Meistarans frá Nazaret, minna á lífsnauðsyn þess, að gera mönnum þær sem ljósast- ar, dýpka lífsskilning þeirra og göfga hugarfarið. Og að þetta þurfi og eigi að vera sterkasti þátturinn í öllu uppeldi vorra daga, andinn ofar efninu, og kærleikurinn til guðs og manna hið eina sem varir. Og að þessa lífsskoðun eigi kristin kirkja að efla meðal manna, eftir þeim mætti, sem henni er gefinn, og þeim styrk í starfi, er samfélag- ið veitir henni, því að hún og það eiga að vera eitt. Og „h e i m a n“ frá Hólum, hinu forna og endurreista biskupssetri, skyldi sú rödd jafnan hljóma um Norðurland, voldug og sterk, vígð gróand- anum í samfélagi manna, er hvetur til drengskapar og dáða, og til eflingar því ríki, sém J e s ú s frá Nazaret boð.aði mönnunum og sagði búa innra með þeim sjálfum, og væri hið eina eftirsóknarverða á þessari jörð. Megi komandi tíð njóta sem mestra heilla af starfi okkar nú á þessu blessaða hátíðarári. • i 26/5 1974. Snorri Sigfússon. OPIÐ BRÉF lil Boga Sigurbjörnssonar, Siglufirði Á uppstigningardag var auka- þing Kjördæmasambands fram- sóknarmanna á Norðurlandi- Vestra haldið í Húnaveri. Verkefni þessa þings var það, að samþykkja endanlega fram- boðslista til Alþingiskosninga 30. júní n. k. Á þessari samkomu lýsti ég þeirri skoðun minni, að konur ættu ekki erindi á Alþingi og ættu ekki að vera alþingismenn. Maðurinn frá Siglufirði, Bogi Sigurbjörnsson, kvaddi sér þá hljóðs og sagðist kenna í brjósti um mig, fyrir þessa skoðun. Hún væri úrelt með öllu, en hefði verið uppi höfð um 1920. Ekki gat ég gert grein fyrir mínu máli þar á þinginu, því bannað var að ræða um annað en röð á framboðslista. í þessu bréfi vil ég gera nokkra grein fyrir. skoðunum mínum um það, hvað konur eiga að gera og hvað konur eiga ekki að gera. Konur eiga ékki að standa í stjómmálabaráttu, því stjórn- málabarátta er af hinu illa. All- ir kannast við illt' umtal, óvild og jafnvel hatur, sem þeir verða Heimsókn í óbyggt liérað tungu, bókmenntum og listum. Skipuleggja nú þegar staðinn og hefja síðan almenna fjársöfn- un um allt Norðurland í þessu skyni, sýna þar með vilja og fórnarlund, og fá því svo fram- gengt að fé verði smátt og smátt fest þar til þessara nota. Og hugsa sér síðan og hlakka til að koma þessu mikla og merka framtaki á laggir sem fyrst. Leitið fyrst guðsríkis og hans réttlætis, þá mun allt hitt veit- ast að auki, segir Ritningin, en víst öðru nær en menn hafi eftir því boði lifað, heldur sótt á önnur mið og auðveldari hingað til, þar sem svokölluð veraldleg gæði voru fáanleg, og öllum mega að sjálfsögðu teljast nauð- synleg að vissu marki. En fíkni manna í auð og völd, sem þó er vitað um að eru valtastir vina, hefir löngum orðið mönnum ærinn vegartálmi. En allt eru þetta alkunnar staðreyndir, sem óþarft er að hafa fleiri orð um. I æsku minni var oft um það SUNNUDAGINN 11. ágúst sl. héldu nokkrir forvitnir ferða- félagar á vélbátnum „Degi“ frá Siglufirði til Héðinsfjarðar. Veð ur var gott og sléttur sjór. Á bátnum voru fjögur systkin, börn Steinþórs Þorsteinssonar, sem bjó í Vík í Héðinsfirði í 16 ár. Fóru þau til að skoða þar æskustöðvar sínar og rifja upp gamlar minningar. Þau voru: Anna búsett í Reykjavík, Jón- ina búsett á Akureyri, Olöf bú- sett á Siglufirði og Sigurpáll búsettur í Reykjavík, en Krist- jönu vantaði, sem var stödd erlendis. Bátnum stjórnuðu bræðurnir Jón Sveinsson skip- stjóri og Sveinn Sveinsson vél- stjóri. Þessi ferð var að nokkru leyti bundin við það, að Steinþór Þor steinsson átti aldarafmæli þann 18. ágúst sl. Auk búskapar hans í Vik bjó hann einnig að Þverá í Ólafsfirði og síðar í Ólafs- fjarðarkaupstað. En nú er Héðinsfjörður í eyði. Þegar að landi kom blasti við grasi vafin tún og hvanngrænar tóttir, þar sem áður var bústað- ur fólks. Fjöllin gnæfðu tignar- lég yfir fjörðinn. Víkurbyrða, Víkurhyrna og Hesturinn glömpuðu í sólskininu. Örfáar kindur sáust þar í hlíðunum og hafa þær haft nóg að bíta. En nokkrar sauðkindur frá Siglu- firði og Ólafsfirði koma á sumri hverju yfir í þennan friðsæla reit. Ferðafólkið snæddi miðdegis- verð í Slysavarnaskýlinu í Vík. Þar er snyrtilegt og vel um gengið. Þaðan var haldið inn með firðinum inn á Sandvelli. Þar er mikill rekvaiður á fjör- um og hefur rekið langt upp á land. Veiðifélag úr Reykjavík hef- ur tekið Héðinsfjarðarvatn á leigu til silungsræktar. Hefur félagið byggt snoturt sumarhús á Sandvöllum, kambinum milli vatns og sjávar. En þar voru áður beitarhús frá Vík. Mun þetta vera þriðja sumarið síðan þessi fiskirækt hófst. En jarðir í Héðinsfirði eru í eign Siglfirð- inga, og margir þeirra hafa alist þar upp. Um síðustu aldamót voru 5 bæir í Héðinsfirði: Vík, Vatns- endi, Grundarkot, Möðruvellir og Ámá. En síðustu ábúendur Héðinsfjarðar voru hjónin Þor- valdur Sigurðsson og Ólína Einarsdóttir, sem fluttu frá Vatnsenda til Siglufjarðar 1949, og þau mæðginin Anna Sigurð- ardóttir og Sigurður Björnsson, sem fluttu frá Syðri-Vík til Akureyrar 1951. í rúm 20 ár hefur Héðinsfjörður verið í eyði. Aðalástæðan til þess eru erfið ar samgöngur. Höfn er þar eng- in og illfært yfir há fjallaskörð til nærliggjandi byggða. Ferðafólkið skoðaði bæjar- rústir í Vík og fjárhúsrústir á Sandvöllum, en þaðan sést yfir vatnið inn til hinna bæjanna. Ferðafólkinu, sem statt var í Héðinsfirði þennan fagra sumar dag mun verða hann minnis- stæður. En ekki er útlit fyrir að þessi fagri fjörður byggist aftur fyrst um sinn. E. S. fyrir, er sitja á Alþingi eða bjóða sig fram til þings. Svört hugsanagerfi sækja að þeim úr öllum áttum. Það er best, að hið grófara kyn, karlmennirnir taki á móti slíkum sendingum. Það er fleira sem ég tel að konur eigi ekki að gera. Þær eiga ekki að flytja mál fyrir dómi og þess vegna þurfa þær ekki að læra lögfræði Það er ekki við þeirra hæfi að segja hálfan sannleik og flækja mál. Konur eiga ekki að sitja í dóm- arasæti. Dæmið ekki, stendur skrifað. Það væri í mesta máta óviðfeldið, ef kona sem bæri líf undir brjósti, dæmdi sakborn- ing til þyngstu refsingar, til dauða eða í 16 ára fangelsi eins og lög standa til hér á landi. Konur eiga ekki að taka skepn- ur af lífi með eigin hendi. . Það er fjarri mér að halda því fram, að konur eigi ekki annað að gera, en þurrka rykið, sem alltaf kemur aftur. Þær eiga að vera hámenntaðar, læra læknis fræði og hjúkrunarstörf. Þær eiga að lærá guðfræði og pré- dika kristinn dóm. Því skyldu þær ekki vera prestar eins og karlmenn? Konur eiga að stunda sórfræði- og vísindastörf ef þær óska og þær eiga að styðja menningar- og mannúðar mál svo sem þær hafa löngum gert. Þær eiga að vinna að öllu, sem er af hinu góða, öllu sem beinist að því, að bæta og fegra mannlegt líf. Á síðari tímum hafa nokkrar konur átt sæti á Alþingi. Ég get ekki séð að þær hafi markað nein spor varðandi löggjöf síð- ustu áratuga fram yfir karl- menn. Þær hafa gengið inn í raðir hinna pólitísku flokka og tekið þátt í hinu neikvæða þrasi sem þeim fylgir. Kona nokkur sat á Alþingi fyrir alllöngu og barðist fyrir sérsköttun hjóna, en landfeður fjármála hafa ekki ennþá getað samþykkt þá ráð- stöfun. Konur þurfa ekki að sitja á Alþingi til þess að koma fram sínum málum. Fyrir síðustu aldamót voru réttindi kvenna lítil hér á landi. Konur höfðu þá ekki kosningarrétt eða kjör- gengi. Þær höfðu þá ekki kosn- ingarétt og kjörgengi. Þær höfðu ekki aðgang að Lærða- Hvernig verða bðrnin til? Eiríkur Sigurðsson. HVITÁRBAKKASKOUNN 1905-1931 BLAÐINU hefur borist bókin Hvítárbakkaskólinn 1905—1931, en höfundur hennar er Magnús Sveinsson kennari frá Hvítsstöð um á Mýrum og er hann áður kunnur af bók sinni Mýramenn, sem út kom 1969 og hlaut góða dóma. Höfundur er sjálfur einn af hinum gömlu nemendum Hvítárbakkaskóla og er af þeim sökum og öðrum staðháttum og skólasögunni nákunnugur. Bók- in er um 180 blaðsíður og hefur að geyma margskonar fróðleik um skólann, jafnframt því að vera hluti skólasögu landsins fyrstu þrjá áratugi aldarinnar. Höfundur ^nnaíi^ sjálfur útgáf- una og fæst bókin í Bókabúð Jónasar á Akureyri en ekki í öðrum norðlenskum bókaversl- unum. Fyrst segir frá drögum að stofnun Hvítárbakkaskólans og upphafi skólaseturs. Næst er kafli um Sigurð Þórólfsson skólastjóra, sem var brautryðj- andi í skólastarfi, ennfremur um stjórn skólans, fjármál hans, helstu atriði úr reglugerð hans og lélagslíf í skólanum. Birtar eru í bókinni ritgerðir kunnra manna, svo sem Magn- úsar Péturssonar, Helga Hjörv- ar, Jóns ívarssonar og kennara- tal i tíð Sigurðar skólastjóra. , Um 1920 urðu þau þáttaskil, að nýir menn tóku til starfa við skólann og er það allt rakið skipulega, bæði kennaratal frá upphafi til loka, svo og nem- endatal, allt mjög aðgengilegt til lestrar og fróðleiks. Þá er ýmislegt tekið úr göml- um skólablöðum og prentað í bók þessari. Hvítárbakkaskólinn er snyrti- leg bók, vel rituð og skipulega og sýnist höfundi sínum til sóma, en mun ennfremur einkar kærkomin hinum mikla fjölda nemenda hins gamla, borgfirska skóla. □ 3 BÓKAÚTGÁFAN ÖRN og ÖR- LYGUR hendir þessa dagana frá sér tvær nýjar bækur, sem ætlaðar eru ungum börnum og foreldrum þeirra og fjalla báðar um, hvernig börnin koma í heiminn. Hvetrnig verða börnin til? er eftir danskan listamann, Per Holm Knudsen, sem þekktur er í heimalandi sínu fyrir mynda- bækur handa ungum börnum, en þessi bók hefur náð miklum vinsældum langt út fyrir Dan- mörk, en þýðingar hennar eru nú fáanlegar í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, íslandi, Þýska Sam- bandslýðveldinu, Englandi, Hol- landi, Bandaríkjunum og Japon. Árið 1972 hlaut bókin viður- kenningu í Danmörku sem besta bamabók ársins. Hin bókin, Þannig komstu í heiminn, eftir A. C. Andry og S. Schepp, er upphaflega banda rísk en hefur komið út víða um heim á vegum stórfyrirtækisins TIME—LEFE, sem er hérlendis sem erlendis þekkt fyrir góðar og vandaðar fræðslubækur. í þessari bók eru sérkennilegar en mjög skýrar og vandaðar myndir: ljósmyndir af „skúlp- skólanum og laun þeirra voru helmingi lægri en karlmanna við sömu vinnu. Á þessum tíma hóf Bríet Bjarnhéðinsdóttir bar- áttu fyrir kvenfrelsi. Engin kona á íslandi hefur háð jafn langa og sigursæla baráttu fyrir réttindum kvenna og sat hún á Alþingi. Bríet gaf út Kvenna- blaðið í aldarfjórðung, 1895 til 1920. Auk þess var hún óþreyt- andi að flytja málið, þar sem því varð við komið. Á árunum 1911 til 1918 fengu konur kosningarrétt og að- gang að skólum til jafns við karlmenn. Tveir þingskörung- ar, Hannes Hafstein og Skúli Thoroddsen studdu frelsismál kvenna á Alþingi. Svo mætti það enn vera, að konur hlytu stuðning hinna víðsýnustu og bestu Alþingismanna í sínum baráttumálum. Nýlega las ég það í blaði frá Rauðsokkahreyfingunni, að rétt indabaráttu kvenna væri nú að mestu lokið. Þó svo væri, eru næg verkefni fyrir konur að bæta heiminn, göfgá mannlífið. Það væri verðugt verkefni fyrir konur að hefja harða baráttu gegn frjálsum fóstureyðingum, en það mál er eitt hið hryllileg- asta, sem hefur legið fyrir Al- þingi. Konum væri best trúandi til að kveða þann ósóma niður. Eitt vil ég nefna enn, sem konur eiga að gera. Þær eiga að vera gjaldkerar í bönkum, því það er miklu minni hætta, að þær steli, af því þær eru betri helmingur mannsins. Vegna fyrr greindra um- mæla minna í Húnaveri, hefur það verið sagt við mig, að ég væri kvennahatari og hefði ver- ið það um langa ævi. Hitt mun sanni nær, að ég elski konur og hina góðu eiginleika þeirra. Ég á erfitt með að skilja, að Bogi Sigurbjörnsson skuli kenna í brjósti um mig fyrir skoðanir mínar. Er það aumkv- unarlegt að hafa skoðanir og bera þær fram. Ég get ekki að því gert, að það læðist að mér sá grunur, að þessi höfuðsmað- ur Framsóknarmanna á Siglu- firði sé því andvígur, að skoð- anir, sem hann telur óheppi- legar komi fram. Það væri svo sem eftir öðru á hinum síðustu og vérstu tímum, að innan Framsóknarflokksins bólaði á þeirri kennigu að hefta beri tjáningarfrelsi. 9. júní 1974. Björn Egilsson, Sveinsstöoum. Verðlaunaferð F.L og Æskunnar SÍDASTLIÐINN vetur efndu barnablaðið Æskan og Flug- félag íslands til verðlaunasam- keppni. Tvenn fyrstu verðlaun, (ferðir til Osló) voru í boði ásamt flugferðum innanlands og bókaverðlaunum. Nokkuð á sjötta þúsund lausn ir bárust og reyndust um helm- ingur þeirra réttar. Dregið var úr réttum lausnum og komu eftirfarandi nöfn upp: Gíslný Þórðardóttir, Akranesi og Vil- borg Borgþórsdóttir, Seyðis- firði, hlutu 1. verðlaun, ferð til Osló. Þær eru báðar 12 ára. Flugferðir innanlands hlutu: Hákon Bjarnason, Haga, Barða- strönd, Hjördís Björg Þorsteins- dóttir, Akureyri, Sigurður H. Flosason, Reykjavík, Salvör Egilsdóttir, Fáskrúðsfirði. Bókaverðlaun hlutu: Stein- unn Ósk Stefánsdóttir, Reyn, Suður-Þingeyjarsýslu, Einar Axel Schiöth, Hólshúsum, Eyja- firði, Þórunn Jónsdóttir, Ólafs- firði og Jón Ólafsson, Reykja- Verðlaunaferðin til Osló verð ur farin í ágústmánuði, en þar hefir dagblaðið „Verdens Gang“ skipulagt dagskrá í samráði við hina sameiginlegu skrifstofu Flugfélags íslands og Loftleiða Nýr vegur fram í Eyjafjarðardal túr“ úr marglitum pappír eftir Blake Hampton. Að bókinni standa margir bandarískir sér- fræðingar og stofnanir: barna- verndar- og barnafræðslusam- tök og samtök um kynferðis- fræðslu, er ná til allra fylkja Bandaríkjanna. Gefin hafa ver- ið út kennslugögn, sem notuð eru í tengslum við bókina í yfir 1200 bandarískum skólum. Framsetning og efnisval í þessum tveimur bókum er á margan hátt ólíkt, en báðar standa þær vel fyrir sínu. — Örnólfur Thorlacius hefur ís- lenskað báðar bækurnar. Þessar bækur eru viðbót við nokkurt safn bóka um uppeldis- og kynferðismál, sem ÖRN og ÖRLYGUR standa að. Handa unglingum er þar fyrir bókin Æska og kynlíf eftir John Tak- man, sænskan lækni, í þýðingu Magnúsar Ásmundssonar lækn- is. Ennfremur uppeldishand- bækurnar Foreldrar og börn og Foreldrar og táningar eftir dr. Haim G. Ginott, þekktan banda- rískan sálfræðing og sállækni, báðar í þýðingu Björns Jóns- sonar skólastjóra. (Úr fréttatilkynningu) I JÚLÍMÁNUÐI byrjuðu þeir Angantýr Hjálmarsson og Örn- ólfur Eiríksson að ryðja veg fram Eyjafjarðardal, framan við byggð, og höfðu tvær litlar jarð- ýtur ræktunarsambandsins. Verkinu hefur miðað vel, enda tíð hagstæð. Þessi framkvæmd er styrkt af sveitarfélögum og Akureyrarkaupstað, að því er Sigurður Jósefsson bóndi í Torfufelli sagði blaðinu á mánu daginn. Upphæðin, sem unnið er fyrir í ár er aðeins 800 þús- und krónur. Vonir standa til, að ruddur jappavegur vestan ár- innar og víðast nærri henni, verði fær í haust, allt fram að brún, en við vegagerð þar henta stærri jarðýtur betur. Leiðin frá byggð að Nýjabæ er um 20 km. Eflaust væri sjálfboðavinna vel þegin og mun vart á henni standa ef eftir er leitað. Sigurður í Torfufelli sagði, að nú í sumar minnkuðu gamlar hjarnfannir á hálendinu. Sil- ungsveiði væri með mesta móti í Eyjafjarðará, og lax hefði gengið fram fyrir byggð nú í sumar. Ein hélunótt hefði kom- ið, en ekki skemmt kartöflur. Tankflutningar hófust hér í Saurbæjarhreppi 1. ágúst og er almenn ánægja með þá. Sölnunar er farið að gæta í úthaga, þó minna en verið hefði ef sunnanátt hefði látið að sér kveða. En hægviðri hefur verið ríkjandi á þessu sumri og úr- koma mjög lítil. Rofabörð eru Ijós í sárið og myndu rjúka ef hvessti. Verulega gætir sölnun- ar í skóglendi Leyningshóla, enda hefur skógurinn lokið sín- um venjulega vaxtartíma, bú- inn að standa laufgaður í þrjá mánuði. □ NORSKUR KÓR BLANDAÐUR KÓR frá Noregi syngur í Akureyrarkirkju mánu daginn 26. ágúst og hefjast tón- leikarhir kl. 21. Kórinn, sem nefnist „Veit Vet“, er skipaður 30 ungmenn- um á aldrinum 18—23 ára, og stunda þau öll nám við sama tónlistarskólann í Osló. Stjórn- andi kórsins heitir Tor Skaug. Kórinn flytur lög eftir Bach, Britten, Schiitz o. fl. Jafnframt syngur hann norsk þjóðlög. Ágætur orgelleikari, Johan Varen Ugland, er með í förinni og leikur hann með kórnum, og kemur einnig fram sem einleik- ari á þessum tónleikum. Kórinn, sem er vel þekktur í sínu heimalandi, er á 9 daga söngferðalagi um ísland, og hefst ferðin í Reykjavík þann 20. ágúst. Frá Akureyri heldur kórinn til Húsavíkur, þar sem hann syngur í Húsavíkurkirkju næstkomandi þriðjudagskvöld 27. ágúst. Aðgöngumiðar fást við inn- ganginn. J

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.