Dagur


Dagur - 04.09.1974, Qupperneq 2

Dagur - 04.09.1974, Qupperneq 2
2 - ÞaS var skylda Alþingis að niynda sijórn (Framhald af blaðsíðu 5). alger forsenda þess, að sam- steypustjórnir verði yfirleitt myndaðar, og gildir þá einu, hverjir eiga í samningum. Og því var ekki mynduð vinstri stjórn, að þetta sjónarmið fékk ekki að njóta sín í viðræðum við Alþýðuflokk og Alþýðubanda- lag. Þar réð kreddufesta og vilja leysi til samkomulags af hálfu viðmælenda Framsóknarflokks- ins. Framsóknarmenn hafa unnið að lausn stjórnarkreppunnar með það höfuðsjónarmið í huga, að brýnasta verkefni Alþingis og ríkisstjórnar nú sé að stöðva óheillaþróun á sviði efnahags- og atvinnumála. Fráfarandi rík- isstjórn brast fylgi til þess að ráða fram úr efnahagsvandan- um f vor, og vinstri flokkana brast vilja til þess að vinna sam an að lausr þeirra með mynd- un sameiginlegrar ríkisstjórnar að kosningum loknum. Sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn er nú tekið upp í þeirri trú, að sterk þingræðisstjórn fái vinnu- frið til þess að gera nauðsyn- legar efnahagsráðstafanir. Þær ráðstafanir, sem fyrirhugaðar eru, eru að efni til líkar því, sem hver önnur ríkisstjórn hefði orðið að grípa til. Talað um hug sér. í viðræðum um vinstri stjórn með Alþýðubandalagi og Al- þýðuflokki var ekki ágreining- ur um, hverjar efnahagsaðgerð- ir kæmu helst til greina, og eru þær í öllum höfuðatriðum hinar sömu og núverandi ríkisstjórn hyggst beita. Þegar fraroámenn Alþýðubandalagsins — að ekki sé minnst á Alþýðuflokkinn — ráðast með stóryrðum að hinni nýju ríkisstjórn og ásökunum um kjararýrnun og árás á launa fólkið í landinu, þá tala þeir þvert um hug sér, því að þeir voru tilbúnir til að sætta sig við nauðsynlegar efnahagsaðgerðir, ef semdist um önnur mál. Geng- isfelling er ekkert bannorð í hugarheimi Lúðvíks Jósepsson- ar og Gylfa Þ. Gíslasonar. Réttlátar aðgerðir. Það er ekki síður áhugamál núverandi ríkisstjórnar en hinn ar fyrri, að efnahagsráðstafan- irnar komi sem réttlátast niður. Þess vegna verður megináhersla lögð á að vernda hag og af- komu þeirra, sem lægst laun hafa og lakast eru settir. Er vart að efa, að um þetta ætti að nást einlæg samstaða við hagsmuna- samtök launþega og önnur stéttasamtök. Að slíku sam- komulagi vill ríkisstjórnin vinna. Ólafur eða Geir? Talsverða athygli hefur vakið og nokkurt umtal, að lyktir stjórnarmyndunartilrauna F ram sóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks urðu á þann veg, að Geir Hallgrímsson varð forsætisráð- herra, en ekki Olafur Jóhannes- son, þrátt fyrir þá staðreynd, að Ólafi var falin stjórnarmyndun og víst, að hann stýrði viðræð- um fram á lokastig. Því hafa menn sagt í gamni og alvöru, að Ólafur Jóhannesson hafi mynd- að stjórn fyrir Geir Hallgríms- son. Ég mun ekki rekja feril við- ræðnanna frá degi til dags, enda óþarfi með öllu, því auðvitað spyrja menn að leikslokum en ekki vopnaviðskiptum í þessu máli. Hitt vil ég nefna, að þing- flokkur og framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins voru sam- mála um að viðræðurnar við Sjálfstæðisfloklíinn bæri að reisa á jafnréttisgrundvelli, en það tekur m. a. til þess, að verka skipting innan ríkisstjórnar og dreifing ábyrgðar á landsmál- um yrði sem jöfnust milli flokk- anna. Hygg ég að Sjálfstæðis- menn hafi fallist á þetta sjónar- mið sem meginstefnu. Hinu er ekki að leyna, að í báðum flokk- um litu menn misjöfnum augum á, hvernig þessu jafnræði mætti ná, svo að viðunandi væri. Inn- an Framsóknarflokksins var sterkur vilji fyrir því að Ólafur Jóhannesson yrði forsætisráð- herra, þótt menn viðurkenndu, að sá stærðarmunur væri á flokkunum, sem gerði það að vissu leyti eðlilegra að oddviti stjórnarinnar yrði úr Sjálf- stæðisflokknum. Vildu margir þingmenn og framkvæmda- stjórnarmenn Framsóknar- flokksins mikið til þess vinna, að Ólafur yrði forsætisráðherra. Sjálfstæðismenn höfnuðu ekki þeirri hugmynd, að Ólafur Jó- hannesson yrði oddviti ríkis- stjórnarinnar, en augljóst var að þeir myndu ekki fella sig við þá skipan nema því aðeins að þeir fengju 4 ráðherra á móti 3 frá Framsóknarflokknum og • auk þess yfirráð fleiri mála- flokka. Að því er mér virtist augljóst frá upphafi til enda við- ræðnanna stóðu sakir jiannig milli flokkanna að um tvær leið ir var að velja að þvi er varðar verkaskiptingu: 1. Að Framsóknarflokkurinn fengi forsætisráðuneytið og 4 önnur ráðuneyti, samtals 5 ráðu neyti og 3 ráðherra. Þá hefði Sjálfstæðisflokkurinn fengið 7 ráðuneyti og 4 ráðherra. 2. Að Sjálfstæðisflokkurinn fengi forsætisráðuneytið og 5 önnur ráðuneyti, samtals 6 ráðu neyti og 4 ráðherra. Framsókn- arflokkurinn fengi einnig 6 ráðu neyti og 4 ráðherra. Lyktir urðu þær, að sætst var á síðari leiðina. Hún hafði þann augljósa ókost frá sjónarmiði framsóknarmanna, að flokkur- inn varð af forsætisráðuneyt- inu, en sá kostur fylgdi að tala ráðherra og ráðuneyta var jöfn hjá báðum flokkum. Þegar upp er staðið hygg ég, að báðir megi vel við una. Það segi ég, þótt ég hafi verið í hópi þeirra, sem fast ast héldu því fram, að fórna mætti ýmsu fyrir forsætisráðu- neytið og tryggingu þess að Ólafur Jóhannesson yrði áfram forsætisráðherra. Kenjar Alþýðubandalagsins. Ég geng þess ekki dulinn, að mörgum góðum framsóknar- manni eru það sár vonbrigði, að ekki gat orðið framhald á vinstra samstarfi undir forystu Ólafs Jóhannessonar. Ekki situr á mér að gera lítið úr slíkum vonbrigðum. Þau eru mér skilj- anleg og þingmönnum Fram- sóknarflokksins yfirleitt. Hitt er jafnvíst, að skilyrði til áfram- haldandi vinstra samstarfs voru ekki fyrir hendi. Eins og ég hef áður greint frá strönduðu við- ræður um vinstri stjórn á vilja- leysi Alþýðubandalagsins og Alþýðuflokks. Alþýðubandalag- ið neitaði að líta raunsæjum augum á stjórnmálaaðstæður eins og þær blasa nú við. Sjálf- ur Lúðvík Jósepsson, sem þó er minnst kreddubundinn þeirra Alþýðubandalagsforingja og yfirleitt kunnur að því að vera í öruggu jarðsambandi, sýndi vinstri viðræðum ódulda fyrir- litningu. Engum getum skal að því leitt, hvernig á því stóð, að Alþýðubandalagið lék þann leik, sem raun bar vitni. En það skal verða klárt, að framsóknar- menn láta ekki hafa sig í að eltast við pólitískar kenjar. Það var nauðsynlegt að mynda starf hæfa ríkisstjórn, og úr því að Alþýðubandalagið valdi þann kost að „draga sig út úr pólitík“, þá varð að leita annarra ráða til stjórnarmyndunar og flokka- samstarfs á Alþingi. Myndun núverandi ríkisstjórnar var þingræðisleg nauðsyn. Án henn ar hefði verið stefnt út í póli- tískt öngþveiti, sem er í and- stöðu við almennan vilja fólks- ins í landinu og andstætt lýð- ræði og þingræði og þó fyrst og fremst andstætt grundvallar- hagsmunum íslenskrar þjóðar og þjóðarbús. Þess skulu menn minnast, að með myndun ríkis- stjórnarinnar er fundin lausn á alvarlegri stjórnarkreppu og sköpuð skilyrði til stöðugra stjórnarfars en þjóðin hefur mátt búa við að undanförnu. Mikilvægi núverandi ríkis- stjórnar verður best skilið í því ljósi. Dóm um þessa ríkisstjórn ætti enginn að kveða upp fyrir- fram. Hana ber að dæma eftir verkum og árangri þeirra. Sá dómur bíður síns tíma. Ingvar Gíslason. wBjfi^eiójr^m Til sölu Hilmann INP árg. 19G6 til niðurrifs. Uppl. í síma 2-17-95 á kvöldin. Til sölu er Volvo Ama son árg. 1961. Lán getur fylgt. Uppl. gefur Sigurður Vaklimarson í síma 2-22-55. Til sölu er bifreiðin A-268. Tilboð óskast. Sími 1-16-68. Guðmundur Jörundsson. Þinggjöld - Dráiiarvexfir Að gefnu tilefni skal tekið fram að síðasti gjald- dagi tekju- og eignaskatts er 1. ágúst ár hvert. Sé skatturinn eigi greiddur áður en tveir mán- uðir erti liðnir frá gjalddaga, þ.e. fyrir 1. október skal greiða dráttarvexti til ríkissjóðs af því, sem ógreitt er, I ]/>% fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði, sem líður, talið frá og með gjalddaga, uns skattui inn er að fullu greiddur. BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI OG DALVÍK. SÝSLUMAÐURINN í EYJAFJARÐARSÝSLU. Byrjað verður að taka á móti ullarvörum fimmtudaginn 5. sept- ember kl. 1 e. h. á afgreiðslu Gefjunar. ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg- um mynztrum og litum. Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjöf, hverj- um sem hlýtur. Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og lífgið upp á litina í svefnherberginu. Reynið Night and Day og sannfærizt.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.