Dagur - 04.09.1974, Page 8
AUGLVSINGASÍMl
AGU
Akureyri, miðvikudaginn 4. sept. 1974
V, , *
ASAHI ■é; 'V, ;
PENTAX B . GOLLSMIÐU? ;
sjónaukarnir M \ SIGTRYGGUR
komnir. J & PÉTUR * ÁKUREYRI
SMATT & STORT
EFTIR frófall Hauks Hauks-
sonar blaðamanns, var að til-
hlutan ekkju hans, Margrétar
Schram, og Blaðamannafélags
íslands hafin söfnun fyrir
sjúkrabíl, sem nefndur hefur
verið hjartabíll. Þessi bíll var
afhentur Rauða krossinum á
miðvikudaginn og er til minn-
ingar um hinn unga blaðamann.
í bílnum eru ýmis ný tæki, sem
gerir kleift að veita sjúkum
betri aðstoð en áður.
í framhaldi af þessu og í sam-
bandi við níræðisafmæli Snorra
Sigfússonar, hafa ættmenn hans
og fleiri aðilar gefið fjárhæðir,
einnig til minningar um Hauk
Háukssön, sem var sonarsonur
Snorra og hans fyrsta barna-
barn, sonur Else og Iiauks
Snorrasonar, sem lengi var rit-
stjóri Dags og Samvinnunnar og
síðustu ár sín ritstjóri Tímans.
Vörugeymsla.
Framkvæmdum við væntan-
legar stórbyggingar Sambands-
ins við Elliðavog í Reykjavík
hefur miðað eftir áætlun, og er
nú svo komið, að fyrsti hluti
þeirra er um það bil að komast
í notkun. Er það Skipadeild,
sem tekur í notkun vöru-
geymslu í kjallara undir hluta
hinnar væntanlegu Birgðastöðv
ar og á geymslusvæði utan
hennar.
Hjörtur Hjartar framkv.stjóri
tjáði SF að deildin hefði nú
þegar tekið í notkun fyrir vöru-
geymslu um 500 fermetra tengi-
álmu í væntanlegri byggingu.
Þá yrði einnig' tekin í notkun á
næstunni í þremur áföngum
4.000 fermetra vörugeymsla í
AÐALFUNDUR Stéttarsam-
bands bænda var haldinn á
Laugum í S.-Þing. dagana 29. og
30. ágúst sl. Hann sóttu 46 full-
trúar auk gesta.
Formaður Stéttarsambands-
ins, Gunnar Guðbjartsson, setti
aðalfundinn. Fundarstjórar
voru Bjarni Halldórsson á Upp-
FRÁ FJÓRÐUNGS-
SJÚKRAHÚSINU
HINN 28. júlí sl. færði Þor-
steinn M. Símonarson, Norður-
götu 56, Ak., sjúkrahúsinu að
gjöf kr. 100.000,00.
Er þesi gjöf afhent í minn-
ingu um foreldra hans, Símon
Jóhannes Jónsson útvegsbónda
í Grímsey og Jórunni Magnús-
dóttur, en eitthundrað ár voru
liðin frá fæðingu Símonar þenn-
an dag.
Meiningin er að gjafir, sem
kunna að berast til minningar
um þessi heiðurshjón renni til
búnaðar ákveðinnar sjúkrastofu
í nýja sjúkrahúsinu, som beri
nafnið „Grímseyjarstofa".
Stjórn sjúkrahússins þakkar
þeim hjónum Þorsteini Símonar
syni og Báru Kjartansdóttur
fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Torfi Guðlaugsson.
Sem fyrr hafa gjafir þessar
verið afhentar Blaðamanna-
félagi íslands, sem hyggst halda
kjallara Birgðastöðvarinnar, og
væri gert ráð fyrir að hún yrði
komin í fulla notkun um ára-
mótin. Líka væri verið að ljúka
við að ganga frá 7.500 fermetra
útigeymslusvæði, sem deildin
myndi taka í notkun á næst-
unni.
82% söluaukning.
Heildarsala Véladeildar
fyrstu sex mánuði þessa árs
nam 688 millj. kr. á móti 378
millj. sama tímabil í fyrra, sem
er aukning um 82,3%. Að sögn
Jóns Þórs Jóhannssonar fram-
kv.stjóra er aukningin nokkuð
jöfn í öllum undirdeildum og
útlit fyrir að hún haldist að
verulegu leyti það-fsem eftir er
ásins.
sölum og Sigurður Jónsson,
Efralóni, en fundarritarar þeir
Guðmundur Ingi Kristjánsson á
Kirkjubóli og Þorsteinn Jó-
hannsson, Svínafelli.
Meðal gesta fundarins voru
Halldór E. Sigurðsson landbún-
aðarráðherra og Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra og fluttu báðir ávörp. Vil-
hjálmur átti sæti í stjórn Stétt-
arsambandsins en lét nú af því
starfi og við tók Þorsteinn Geirs
son á Reyðará. Hjörtur E. Þór-
arinsson, Oskar Gunnarsson og
Agnar Guðmundsson fluttu
ávörp.
Það var sammæli fundar-
manna, að sjaldan eða aldrei
hafi ríkt meiri einhugur á aðal-
fundi Stéttarsambands bænda
en nú, enda flestar ályktanir og
tillögur samþykktar samhljóða.
Hér fara á eftir nokkrar álykt
anir aðálítmdarins, lítið eitt
styttar vegna rúmleysis.
Um flugvarg og villimink segir
meðal annars.
Fundurinn lítur svo á, að hér
sé að verða svo stórkostleg rösk
un náttúrufars í landinu af
mannavöldum, að ekki verði
lengur dregið að ríkisvaldið
taki mál þessi föstum tökum.
Má líta svo á að þetta verkefni
sé að vissu leyti hliðstætt þeim
söfnun áfram til að geta keypt
annan hjartabíl fyrir Norður-
land, og yrði sá bíll á Akureyri,
en sá fyrri er þegar kominn í
notkun í Reykjavík.
Það eru börn og tengdabörn
Snorra Sigfússonar, sem af-
hentu gjöfina, eða Anna Snorra
dóttir fyrir þeirra hönd og er
gjöfin í ríkistryggðum skulda-
bréfum, kr. 340 þúsund. Leifur
Hannesson afhenti 25 þúsund
krónur, börn Snjólaugar Jó-
hannesdóttur frá Skáldalæk 30
þús. krónur, ennfremur bróður-
börn Snorra 25 þúsund, Sesselja
Eldjárn 5 þúsund krónur og
samtök Svarfdælinga í Reykja
vík gáfu 25 þúsund krónur frá
félagsmönnum með árnaðarósk-
ir til Snorra. Og daglega berast
góðar gjafir.
Það ætti að vera mörgum
Norðlendingum ljúft og skylt
að leggja fram fé í þennan sjóð
og hefur Blaðamannafélag ís-
lands óskað að blöð á Akureyri
taki á móti gjöfum.
Feðgarnjr Háukur Hauksson
blaðamaður og Haukur Snorra-
son ritstjóri urðu báðir skamm-
lífir, en faðir þeirra, Snorri Sig-
fússon, varð níræður á laugar-
daginn. □
ÞINGSLIT
Samkvæmt frétt ríkisútvarpsins
verður yfirstandandi sumar-
þingi slitið nú í vikulokin. Ekki
er gert ráð fyrir því, að reglu-
legt Alþingi verði kvatt saman
fyrr en um mánaðamótin októ-
ber—nóvember n.k.
Daguk
kemur næst út 11. september.
landgræðsluverkefnum sem
þjóðin liefur nú ákveðið að taka
á af myndarskap.
Fundurinn felur stjórn sam-
bandsins að vinna markvisst að
því að nauðsynlegar lagabreyt-
ingar fáist, þannig að árangurs-
ríkar veiðiaðferðir verði heimil-
SVARTOLÍAN
íslendingar kaupa mest af olíu-
vörum sínum frá Sovétríkjun-
um og eru þær góðar. Meðal
þeirra er svartolían, sem er
óhreinsuð olía, en talin mjög
góð. Hún er helmingi ódýrari
en gasolían. Gunnar Bjarnason,
fyrrum skólastjóri Vélskólans,
sagði í viðtali við Dag, að hún
hentaði vel íslenska skipaflotan-
um og sparnaður á skip með
notkun svartolíunnar gæti orð-
ið allt að 400 þúsund krónur á
mánuði, miðað við tvö þúsund
hestafla vél. Hinn aldni og vél-
fróði maður veit hvað hann
syngur í þessu efni og reynsla
sú, sem fyrir hendi er hér á
landi, sannar mál hans, „Þaö er
ekki neinum erfiðleikum bund-
ið að setja svartolíukerfi í ná-
lega öll íslensk skip og spara
með því verulegar fjárhæðir,“
sagði hann.
VERJAST FALLI
Knattspyrnumenn á Akureyri
búa við þau einstöku skilyrði,
að almenningur metur knatt-
spyrnu öðrum íþróttum meira
og fjölmenna á íþróttavöllinn í
hvert skipti að þar sést knatt-
spyrna. En úrvalslið þeirra
berst um á botninum og er að
reyna að forðast fall niður í
aðra deild. Án efa þarf að endur
skoða knattspyrnumálin á Akur
eyri. Tæplega er við það unandi
fyrir jafn stóran bæ, að eiga
ekki góðum knattspyrnuliðum á
að skipa, því efniviðurinn er
tæplega lakari hér en á öðrum
stöðum á landinu. En vera má,
að við einblínum of niikið á
úrvalsliðið okkar hverju sinni
en sjáum síður nauðsyn þess að
þjálfa yngri flokkana. Það verð-
ur ekkert gott knattspyrnulið
til, án þess að yngri flokkunum
sé jafnframt sinnt. í þessu er og
hefur veikleiki knattspyrn-
aðar. Samstarfs verði leitað við
samtök náttúruverndarmanna
og fjárveitingar hins opinbera
stórauknar í þessu skyni.
Sjóðsstofnun.
Aðalfundur Stéttarsambands
(Framhald á blaðsíðu 4)
unnar á Akureyri verið fólg-
inn. Með þetta í huga þarf að
endurskipuleggja knattspym-
una á Akureyri frá rótum og
mun þá væntanlega ljúka hinni
örvæntingarfullu baráttu Akur-
eyringa við lélegustu fyrstu-
deildarlið landsins.
STÓRI LAXINN
Fyrir skömmu veiddi Adam
Jakobsson frá • Húsavík 32ja
punda lax í Laxá í Aðaldal og
er það stærsti lax, sem vitað er
um að veiðst hafi í sumar.
Fyrir nokkrum árum slepptu
Laxdælingar Iaxaseiðum í Laxá
ofan við virkjun. Síðan hefur
lax sótt njjög að komast upp-
fyrir virkjanir, en kemst ekki.
En laxinn leitar ætíð á sínar -
gömlu slóðir. í Laxárdal, á hinu
ólaxgenga svæði, allt til Mý-
vatns, eru í sumar leyfðar um
30 stengur og þar veiða menn
urriða. Beðið er eftir því, að
laxastigi verði byggður, sam-
kvæmt samningi Laxárvirkjun-
arstjórnar og bændanna eystra,
því að það er mikið fjárhags-
atriði, eins og háttað er um eftir
spurn laxveiðileyfa.
KONUR NEFNDAR
Konum þótti að vonum á sig
liallað, er sagt var frá eigendum
fegurstu garða Akureyrar, er
aðeins voru nefnd nöfn hús-
bændanna. Skal nú bætt vir því.
Lóðin að Byggðavegi 107 er í
eigu Guðrúnar Jónsdóttur;
Hamragerði 10 er í eigu ísaks
Guðmanns og Auðar Þórhalls-
dóttur; Rauðumýri 4 er í eigu
Jóliannesar Jósepssonar og
Helgu Geirlaugsdóttur og
Kringlumýri 6 er í eigu Hjartar
Fjeldsted og Guðrúnar Sigurðar
dóttur.
Gengisbreyfing
SEÐLABANKINN stöðvaði
gjaldeyrisviðskipti 21. ágúst, en
hóf þau á ný á mánudaginn.
Með samþykki ríkisstjórnarinn-
ar var þá búið að fella gengi
krónunnar um 17 %. Er þá mark
aðsgengi íslensku krónunnar
gagnvart bandarískum dollar
sem næst 17% lægra en það
gengi, er í gildi var, áður en
gengisskráningu var hætt. Verð
ur þá kaupgengi dollars kr.
118,30 og sölugengi 118,70, en
gengi annarrar myntar hliðstætt
Gengisbreytingin hefur þann
tvíþætta tilgang að tryggja
rekstrarafkomu atvinnuveg-
anna og bæta greiðslustöðuna
við útlönd. Hún er við það mið-
uð, að hún geti með viðeigandi
hliðarráðstöfunum tryggt sæmi-
lega afkomu útflutningsatvinnu
veganna við núverandi verðlag
og markaðsaðstæður. Er þá m.
a. gert ráð fyrir því, að ekki
verði um að ræða áframhald-
andi víxlhækkanir kaupgjalds
og verðlags, heldur aðeins til-
tölulega hóflega aukningu
rekstrarkostnaðar vegna launa-
uppbóta til láglaunafólks og
leiðrétting á fiskverði.
Einnig er gengisbreytingin
við það miðuð, að hún bæti við-
skiptajöfnuðinn við útlönd um
allt að 4000 millj. kr. á ársgrund
velli, en það er svipuð fjárhæð
og útlit er fyrir að greiðsluhall-
inn við útlönd verði í heild á
þessu ári, segir m. a. í frétta-
tilkynningu Seðlabankans. □
Undanfarið liefir staðið yfir á Akureyri frjálsíþróttanámskeið á
vegum ÍBA, UMSE og Æskulýðsráðs Akureyrar, undir stjórn Val-
bjarnar Þorlákssonar. Námskeiði þessu lýkur n. k. laugardag með
móti fyrir þátttakendur og hefst mótið kl. 2 e. h. á íþróttavellinum.
Keppt verður í ýmsum greinum frjálsra íþrótta fyrir eldri og yngri
þátttakendur. — Myndin hér að ofan er tekin á íþróttavellinum
meðan á námskeiðinu stóð.
Ilaukur Hauksson.
Sambandsfréttir
Frá aðalfmidi Stéttarsambands bæiida