Dagur - 18.09.1974, Síða 2

Dagur - 18.09.1974, Síða 2
2 Myiifthi er teldn í Drammen, við efri enda „Spiraien", hringfaga bíivegs, sem liggur upp fjall til rnjög fjölsótts útsýnisstaðar. Þarna úppi er góður veitingastaður. gegn um ÞÆR DUTTU í LUKKUPOTT Á síðastliðnum vetri efndu Barnablaðið Æskan og Flug- félag íslands (Flugleiðir h.f.) til verðlaunasamkeppni, og voru tvenn fyrstu verðlaun í boði auk aukaverðlauna. Fyrstu verðlaun voru ferð til Osló. Ferðin var farin 19. til 21. ágúst sl. og nutu verðlaunahafarnir, þær Gíslný Þórðardóttir frá Akranesi og Vilborg Borgþórs- dóttir frá Seyðisfirði svo og Grímur Engilberts ritstjóri Æsk unnar og Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi, góðrar fyrir- greiðslu dagblaðsins Verdens Gang í Ósló, sem hafði skipu- lagt móttökur þar. Meðan dvalið var í Ósló bjuggu þátttakendur að Garden Hotel og skoðuðu borgina og nágrenni. Leiðsögumenn frá Verdens Gang voru Siri Horn og Jan Greve, ljósmyndari. □ FólksílutnÍRgarnir ntiklu 1940-73 „FÆKKUN í strjálbýli getur verið eðlileg að vissu marki. Vélvæðing, aukin tækni og breyttir búskaparhættir leiða af sér, að æ færri menn þarf til að stunda landbúnaðarstörf, þrátt fyrir aukna framleiðslu. En þeg- ar heilar sveitir leggjast nálega í auðn og eftir standa mann- virkin og ræktuð lönd, þá hlýt- ur sú spurning að vakna, hvort sé hagkvæmara fyrir þjóðar- heildina að afskrifa til fulls það fjármagn, sem í þessum bújörð- um liggur, eða stuðla að því með ýmsum ráðum að efla og viðhalda byggð þessara sveita.“ Þannig kemst Áskell Einars- son, framkvæmdastjóri Fjórð- ungssambands Norðlendinga, að orði í yfirliti, er hann hefur sam ið um búsetuþróun í landinu árin 1940—1973. f þessu yfirliti kemur fram, að landsmönnum hefur fjölgað um 75,4% á þessum árum — sem næst 2,28% að meðaltali á ári. En þessi mannfjölgun hefur deilst mjög misjafnt niður, því að enginn landshlutanna nær meðaltali nema Reykjavík og Reykjaneskjördæmi, þar sem íbúatala hefur aftur á móti allt að því þrefaldast á áðurnefndu tímabili. Langharðast hafa sveit irnar þó orðið úti. Skýrslur, sem Áskell hefur leiða í Ijós, að á þessum áratug- um hafa Reykjavík og Reykja- nesskagi dregið til sín úr öðrum landshlutum um fimmta hluta íslensku þjóðarinnar, 43 þúsund manns. Blóðtakan, sem Norður- land hefur orðið fyrir, nemur fimmtán þúsund manns, og Vestfirðir um þrettán þúsund manns, en þessir landshlutar hafa mest afhroð goldið. Minnstu hefur Vesturland tap- að, um fjögur þúsund manns.. Á Norðurlandi og Austurlandi he£ ur þó heldur dregið úr búsetu- röskun, en vaxandi á i Suður- landi, Vesturlandi og Vestfjörð- um. Á milli áranna 197£ og 1973 var mannfjölgun á Austurlandi meira að segja 2,2%, og varð þá hvergi meiri, nema í Reykjanes- kjördæmi. Á Vestfjörðum hefur hlutfallstala íbúanna staðið ná- kvæmlega í stað þrjú síðustu árin, og slíkt hið sama á Suður- landi f tvö ár. Á móti tölunni 100 árið 1940 eru nú íbúatölur sem hér segir: Reykjavíkursvæðið með 253,4, Reykjaneskjördæmi 323,8, Vest- urland 136,8, Vestfirðir 76,6, Norðurland 120,9, Austurland 115,8 og Suðurland 135,2. □ - Við hverja reiður? (Framhald á blaðsíðu 4) F réttir af Svalbarðsströnd Túnsbergi, Svalbarðsströnd, 15. september. Slátrun hófst hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar á fimmtudag'inn. Áætlað er að slátra um 18 þúsund fjár, sem er um þriðjungi fleira en var fyrir tveim árum. Dilkar virðast nú með lakara móti og kenna menn einkum tvennu um: Næt- urfrostum í maí, er skaðað hafi nýgræðing þann, er kominn var þá, og slæmu tíðarfari nú í ágústmánuði. Svipað mun vera ástand fénaðar liér austur í sýslu hefi ég frétt. Aðeins úti á Flateyjardalsheiði hef ég séð væn lömb í sumar, enda töldu gróðursérfræðing'ar, er þar voru við rannsóknir, afréttina þá fallegustu, er þeir hefðu séð á sínum ferðum. Eitthvað munu dilkar bæta við sig í haust á góðum haga, en ekki mega þeir fitna um of, því nú er það hor- kjöt og undanrenna, sem fólk vill í vaxandi mæli. Heyrst hef- ur, að fara eigi að refsa þeim bændum, sem koma með of stóra og feita dilka, með verð- fellingu á slíku kjöti, og fer þá lítið að verða úr kynbótum lið- inna áratuga. Ekki bætti það úr skák, að í sumar gerðu hundar Samband Massey-Ferguson frá Banda- ríkjunum. Skv. upplýsingum frá Arnóri Valgeirssyni framkv.stjóra hafa Dráttarvélar h.f. nú byrjað inn- flutning á Massey-Ferguson gröfu- og moksturssamstæðum frá Bandaríkjunum. Nefnast þær MF-70, og eru þær stærri, sterkbyggðari og miklu aflmeiri en þær, sem áður hafa verið fluttar inn frá Bretlandi, en við val þeirra var haft í huga að bjóða aflmiklar vinnuvélar, sem jafnframt væru auðveldar í flutningi á milli staða. Hins veg- ar er verð þeirra tiltölulega nokkru hærra en á öðrum hlið- stæðum gröfu- og moksturssam- stæðum, sem áður hafa verið fluttar inn. mikinn usla í fé á norðurhluta Vaðlaheiðar, hröktu það í hóp- um fram og aftur, og er talið að af þeirra völdum hafi drepist a. m. k. 20 kindur, er fundist hafa. Sumt af fénu hrapaði fyr- ir björg en sumt hraktist í skurði og drapst þar í vatni, allt upp í fjórar kindur í stað. Þá sáust fyrir skömmu tvær kindur í sjálfheldu ofan við Garðsvík, sem bændur þar náðu þó með því að síga eftir þeim. Kvartanir yfir végestum þess- um hafa ekki borið nægan árangur. Nú stendur kartöfluuppsker- an sem hæst og er uppskeran mikil, allt upp í 900 pokar af hektara, sem er lýgilega mikið. Kartöflukóngar, sem slíka upp- skeru fá, brosa nú breitt, reykja digra vindla og hugsa í margra stafa tölum. Fyrirsjáanlegt er, að erfitt verður um gevmslu- rými í haust og varðveislu upp- skerunnar fram á næsta sumar. Með tilkomu stórvirkra upp- skeruvéla munu bændur lands- ins einfærir um að sjá markað- inum fyrir nægilegum kartöfl- um. Þá þurfa þeir að fá lög- verndaðan rétt til framleiðsl- sfréttir Breytingar á blaðaútgáfu. Áður boðaðar breytingar á blaðaútgáfu Sambandsins ganga eftir áætlun. Vegna prentara- verkfallsins í vor eru síðustu heftin með því formi sem verið hefur orðin nokkuð á eftir áætl- un, en 6. og síðasta tölublað HLYNS verður sent áskrifend- um næstu daga, og 3. tölublað SAMVINNUNNAR berst vænt- anlega til áskrifenda í lok þessa mánaðar. Undirbúningur hins nýja félagsmannablaðs, sem bera á heitið SAMVINNAN, er vel á veg kominn, og ráðgert að fyrsta heftið komi út fyrri hluta september. Hið nýja blað verð- ur sent öllum áskrifendum beggja hinna blaðanna. □ unnar, svo menn úr öðrum stéttum þrengi ekki um of að markaðinum, með stórfram- leiðslu að aukastarfi. Flestar stéttir í landinu hafa sín vinnu- réttindi, lögvernduð, og er ekki nema sanngjarnt, að ábúendur bújarða landsins hafi það einnig. Göngur eru hér hvorki langar né erfiðar. En næstkomandi laugardag munum við ganga á Vaðlaheiði og rétta sama dag í Miðvíkurrétt. Á flestum bæjum hefur verið málað í sumar, á sumum stöð- um allt niður í minnsta reyk- kofa, annars staðar minna. Brátt verður flutt í fyrsta nýja húsið, sem byggt var á Svalbarðseyri í sumar og þrjú í viðbót munu rísa af grunni fyrir veturinn. í sumar hefur mikið verið unnið að byggingu á götu þeirri er hús þessi standa við. Þá hefur hreppurinn sótt um lán til byggingar leiguíbúða og eftirspurn eftir þeim er mikil. Kaupfélag Svalbarðseyrar mun í haust taka í notkun stóra viðbyggingu við frystihús sitt, sem verður til mikils hagræðis fyrir félagið. í einu Akureyrarblaðanna var fyrir skömmu sagt frá því, að stöðugur samdráttur hafi verið á Svalbarðseyri í 30 ár. Ég tel þetta hreint ekki rétt, því að á þessum tíma hefur kaupfélagið til dæmis byggt yfir alla sína starfsemi, og er enn í sókn þrátt fyrir það, að að því hafi verið sótt úr ýmsum áttum. Hefði kaupfélagið liðið undir lok, væri ekki verið að byggja ný íbúðar- hús á Svalbarðseyri núna. Þá er það rangt, að þar séu ekki hafn- armannvirki, því til eru þau þó léleg séu, og losun og lestun kaupskipa fer þar fram eftir þörfum og það með meiri afköst um en sumsstaðar annars stað- ar. Sv. Lax. HINN 9. ágúst barst Gagnfræða skólanum á Sauðárkróki vegleg gjöf, stjörnukíkir, sem gefinn er til minningar um Jón Þ. Björns- son fyrrv. skólastjóra á Sauðár- króki, en hann var skólastjóri Barna- og ungmennaskóla Sauð árkróks um hálfrar aldar skeið. Gefendurnir eru synir Jóns, þeir Björn Jónsson læknir í Kanada og Stefán Jónsson arki- tekt í Reykjavík. Björn afhenti gjöfina fyrir hönd þeirra bræðra að við- staddri skólanefnd, skólastjóra, bæjaryfirvöldum og nokkrum vina sinna. Skólastjóri, Friðrik Margeirsson, veitti stjörnukík- inum viðtöku fyrir hönd gagn- fræðaskólans og þakkaði gef- endum. Að afhendingu lokinni bauð bæjarráð Sauðárkróksbæjar til kaffidrykkju að Hótel Mælifelli. Undir borðum flutti formaður skólanefndar, Guðjón Ingimund arson, ræðu, þar sem hann minntist Jóns Þ. Björnssonar og þakkaði gefendum hlýhug þeirra og ræktarsemi við heima byggð. □ Fæst í kaupfélaginu hluti gerir, skuli ekki vera forsætisráðherra landsins. En við liina ýmsu reiðu vinstrimenn verður að segja, að flestir ættu þeir að líta x eigin barm og sinna flokka. Þar finna þeir þá sem sviku vinstri stjórnina eða höfðu ekki kjark til að mynda nýja. Áðalfundur SUNN 1974 AÐALFUNDUR SUNN, sam- taka um náttúruvernd, 1974 var haldinn á Húnavöllum (Reykj- um) við Svínavatn dagana 17. —18. ágúst sl. Orkumálin og nýjar virkjanir á Norðurlandi voru sérstaklega til umræðu á fundinum, og gerði Haukur Tómasson jarð- fræðingur frá Orkustofnuninni grein fyrir þeim hugmyndum, sem fram hafa komið í því efni. Spunnust af því fjörugar um- ræður, einkum um fyrirhugaða Blönduvirkjun, sem vitað er að veldur töluverðu tjóni á afrétt- arlöndum. í tilefni af fimm ára afmæli félagsins samþykkti fundurinn sérstakt ávarp til Norolendinga. Þá voru gerðar ályktanir um ýmis efni, m. a. um verndurj á auðlindum sjávarins, votlendis- vernd, landgræðslu, vistfræði- rannsóknir við undirbúning virkjana og umgengni á Kröflu- svæðinu. Einnig samþykkti fundurinn að heimila stjórn fé- lagsins að vinna að stofnun landssambands náttúruverndar- félaganna, sem áætlað er að geti orðið á hausti komanda. Stjórn félagsins var endur- kjörin, en hana skipa: Árni Sigurðsson, Blönduósi, Haukur Hafstað, Vík, Helgi Hallgríms- son, Víkurbakka, Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn og Sigurður Jónsson, Yzta-Felli. Síðari daginn var farið í skoð unarferð um Vatnsdal, Vatns- nes og Vesturhóp í -fegursta veðri. Um 20 manns sóttu fund- inn. (Frétt frá stjórn SUNN)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.