Dagur - 18.09.1974, Blaðsíða 7
7
SMÁTT & STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8)
þær aðgerðir, sem nú blasa við,
miklu harkalegri en vera þurfti
ef gerðar hefðu verið í vetur.
Almenningur verður nú að
gjalda fyrir það að of lengi var
daufheyrst við vandanum.
HVERNIG VERÐUR RÉTT-
LÆTINU FULLNÆGT?
Þær efnahagsaðgerðir, svo sem
liækkun söluskatts og gengis-
felling, án bóta, er auðvitað
bein skérðing lífskjara. Að
lienni hlaut að koma vegna
óhagstæðra viðskiptakjara, sem
fslendingar fá ekki við ráðið,
og þess einfalda sannleika, að
til lengdar verður ekki meiru
eytt en aflað er, en um sinn hef-
ur það verið gert hér á landi.
Margir segja sem svo, að svip-
aðar efnahagsaðgerðir hefðu
verið gerðar, hvaða flokkar sem
farið hefðu með völd. Nokkuð
er til í því. En óánægja manna
er ekki fyrst og fremst sú, að
lífskjörin eru nú skert verulega,
heldur vantreysta menn því, að
þessi ríkisstjórn fullnægi eins
vel réttlætinu og vinstri stjórn
og vinnufriðurinn sé í hættu.
LITIÐ f BÆJARBLÖÐIN
fslendingur er furðu lostinn yfir
þ.ví, að bæjaryfirvöld skuli ekki
hafa notað niðurstöður rann-
sókna á stöðu aldraðra á Akur-
eyri, sem nokkrir menntaskóla-
nemar unnu og lá fyrir í síðasta
janúarmánuði. Áhuga fslend-
ings á málinu má marka af því,
að það leið hálft ár þar til hon-
um þótti rannsóknin frásagnar-
verð.
„ALLT ER BETRA EN
ÍHALDIГ
Alþýðumaðurinn minnir á kjör-
orðið, „allt er betra en íhaldið“
og segir það muni bögglast eitt-
hvað fyrir Framsóknarmönnum
að það sé nú eftirsóttur sam-
starfsaðili. Ekki þarf að minna
Framsóknarmenn á, að þeir
óskuðu ekki aðeins eftir nýrri
vinstri stjórn, heldur unnu
markvisst og opinberlega að
því. Krafa Alþýðuflokks um
aðild vinnumarkaðarins við
stjórnarmyndunina og krafa
Alþýðubandalagsins um ákveð-
inn brottfarradag varnarliðsins,
og hin óyfirstíganlega tor-
tryggni milli þessara flokka
kom í veg fyrir stjórnarmynd-
unina.
FLOKKARNIR, SEM
BRUGÐUST ALÞÝÐUNNI
En fleira kom til en þetta. Báða
þessa flokka brast kjark til að
takast á við efnahagsvandann
og scttu fram fyrrnefndar kröf-
ur til þess að láta samstarfsvið-
ræðurnar springa. Nú, þegar
vinstrisinnað fólk í landinu
liarmar stjórnmálaþróunina og
að ekki var mynduð vinstri
stjórn, grípa Alþýðubandalags-
menn, samanbcr Alþýðubanda-
lagsblaðið á Akureyri, til
hreinna ósanninda er þeir
kenna Ólafi Jóhannessyni um,
að liann hafi lieldur kosið að
vinna með íhaldinu. Ólafur Jó-
hannesson reyndi stjórnar-
rnyndun með vinstri flokkunum
til þrautar og það veit öll þjóð-
in, og hún veit líka livaða flokk-
ar það voru, sem brugðust al-
þýðunni á örlagastund.
EINKENNILEGT RÉTTLÆTI
Ford, núverandi Bandaríkjafor-
seti, hefur náðað Nixon, fyrr-
verandi forseta. Hefur þetta
fengið allgóðán liljómgrunn
víða erlendis, en innanlands er
náðuninni fremur illa tekið. Til
Hvítahússins bárust strax yfir
50 þúsund mótmælaskeyti og
síminn varð „rauðglóandi“ af
upphringingum fólks, sem mót-
mælti náðuninni kröftuglega.
Af fyrri samstarfsmönnum
Nixons hafa 48 verið opinber-
lega verið kærðir fyrir afglöp í
starfi og 14 sitja þegar bak við
lás og slá. Þykir mörgum Banda
ríkjamanninum hart, að aðal
sögudólgurinn sé náðaður, eða
það sé að minnsta kosti ein-
kennilegt réttlæti.
HJÓLREIÐARMAÐURINN
Bandarísku dómsmálin áttu
nokkra daga skæðan keppinaut
í fjölmiðlum. Sá keppinautur
var hjólreiðarkappi einn, kallað
ur Evel Knievel. Hann ætlaði
að stökkva á mótorhjóli sínu
yfir Snákafljótsgljúfur í Banda-
ríkjunum, af miklum stökkpalli
og lenda þúsund metrum frá
pallinum liinu megin gils, með
hjálp fallhlífar. Honmn mistókst
stökkið, en lifði það þó af, lítið
meiddur og mörgum milljónum
ríkari.
ÞRÍR NÝIR RITSTJÓRAR
í sumar hóf íslendingur göngu
sína, en útgáfa hans hefur verið
slitrótt undanfarin misseri. Rit-
stjóri er Sigrún Stefánsdóttir.
Þá hafa eitt eða tvö Alþýðu-
bandalagsblöð komið út, nú í
haustkauptíðinni. Ritstjóri er
Jón Daníelsson, og Alþýðumað-
urinn, eitt tölublað, er einnig
komið út. Ritstjóri er Hjörleifur
Hallgrímsson. ÖIl eiga þessi
blöð það sammerkt, að koma út
endrum og eins. Þau þjóna því
hagsmunum almennings að
mjög takmörkuðu Ieyti.
Kaup________________
Viljum kaupa notaðan
fataskáp eða kommóðu,
einnig gólfteppi.
Uppl. í síma 1-21-37.
Notaður saxafónn ósk-
ast til kaups.
Uppl. í síma 2-Í0-9Í
á kvöldin.
Vil kaupa notaðan raf-
magnsþvottapott.
Helga Þórisdóttir Bakka
sími um Dalvík.
Lagtækur og reglusamur
verkamaður
óskast ti! starfa í vetur við Menntaskólann á
Akureyri.
Umsóknir skulu sendar skólanum fyrir mánudag-
inn 23. september n. k.
SKÓLAMEISTARI.
10% AFSLÁTTUR FRÁ
SMÁSÖLUVERÐI
FLÓRU ANANASSAFI í 1/2 ltr.
FLÓRU ANANASSAFI í 3/4 ltr.
FLÓRU ANANASSAFI í 2 ltr.
DAGUR
Blaðburðarbarn óskast í Innbæinn.
Einnig blaðburðarbarn í Innbæinn.
UPPL. Á AFGREIÐSLUNNI
Skrifstofa Rauða kross
íslands Skipagöfu 18
verður opin mánudaga og fimmtudaga
kl. 5-6
Frá Oddeyrarskólanum
Skólasetning fyrir unglingadeildir fer frarn í sal
skólans nránudaginn 23. september n. k. kl. 9 f.h.
fyrir 8. bekk og kl. 9,50 f.h. fyrir 7. bekk.
Vegna þrengsla í 8 ára bekkjum, er ekki búist við
að í þessari árdeild geti skólinn veitt viðtöku öðr-
um börnum en þeim sem búsett eru á skóla-
svæðinu.
SKÓLASTJÓRI.
Sendimenn
karlar eða konur, óskast sem fyrst til skeytaút-
burðar við símastöðina á Akureyri.
Vinnutími 5 daga vikunnar (mánudaga — föstu-
daga) kl. 9—20.
Upplýsingar hjá símastjóranum sírni 1-10-01
eða fulltrúa hans sími 1-10 00.
SÍMASTJÓRINN, AKUREYRI.
SÍMl
21400
KARL-
MANNNAFÖT
MIKLU URVALI
(Ný
litn
snið)
m
SMOKINGFOT
(Nýtt
smð)
KLÆÐSKERA-
ÞJÓNUSTA
HERRADEILD
Til sölu kýr og kvígur,
burðartími í mars—apríl
Helgi Ingólfsson,
Hrisabakka,
sími um Staðarhól.
Lítið gamalt sófasett,
djúpbólstrað til sölu.
Sími 2-12-52.
Til sölu 4ra tonna trilla
með Simrad dýptarmæli
og eigna talstöð.
Nánari uppl. í síma
4-14-28, Húsavík eftir
kl. 19.
KÝR til sölu.
Sigurður Jósefsson,
Torfufelli,
sími um Saurbæ.
Fjórar fyrsta kálfs kvíg
ur til sölu, burðartími
um mánaðarmót janúar
febrúar.
Árinann Rögnvaldsson,
Syðri-Haga,
sími um Dalvík.
Til sölu nýlegt Coþper
reiðhjól með gírum.
Uppl. í síma 2-23-20 frá
9—12 f. h. og síma
2-21-55 eftir kl. 7 e. h.
Verð kr. 15.000,00.
Til sölu SUZUKI vél-
hjól árg. 1974 ekið
2.000 km.
Uppl. í síma 6-23-45
milli kl. 7 og 8.
FUGLABÚR óskast.
Sími 1-1194.
FORD V-8 vél ásamt
4ra gíra gólfskiptum
gírkassa (passar í
Bronco). Gírkassann má
nota við 6 cyl vél.
Sími 4-15-86, Húsavík
á kvöldin.