Dagur - 18.09.1974, Síða 7

Dagur - 18.09.1974, Síða 7
7 SMÁTT & STÓRT (Framhald af blaðsíðu 8) þær aðgerðir, sem nú blasa við, miklu harkalegri en vera þurfti ef gerðar hefðu verið í vetur. Almenningur verður nú að gjalda fyrir það að of lengi var daufheyrst við vandanum. HVERNIG VERÐUR RÉTT- LÆTINU FULLNÆGT? Þær efnahagsaðgerðir, svo sem liækkun söluskatts og gengis- felling, án bóta, er auðvitað bein skérðing lífskjara. Að lienni hlaut að koma vegna óhagstæðra viðskiptakjara, sem fslendingar fá ekki við ráðið, og þess einfalda sannleika, að til lengdar verður ekki meiru eytt en aflað er, en um sinn hef- ur það verið gert hér á landi. Margir segja sem svo, að svip- aðar efnahagsaðgerðir hefðu verið gerðar, hvaða flokkar sem farið hefðu með völd. Nokkuð er til í því. En óánægja manna er ekki fyrst og fremst sú, að lífskjörin eru nú skert verulega, heldur vantreysta menn því, að þessi ríkisstjórn fullnægi eins vel réttlætinu og vinstri stjórn og vinnufriðurinn sé í hættu. LITIÐ f BÆJARBLÖÐIN fslendingur er furðu lostinn yfir þ.ví, að bæjaryfirvöld skuli ekki hafa notað niðurstöður rann- sókna á stöðu aldraðra á Akur- eyri, sem nokkrir menntaskóla- nemar unnu og lá fyrir í síðasta janúarmánuði. Áhuga fslend- ings á málinu má marka af því, að það leið hálft ár þar til hon- um þótti rannsóknin frásagnar- verð. „ALLT ER BETRA EN ÍHALDIГ Alþýðumaðurinn minnir á kjör- orðið, „allt er betra en íhaldið“ og segir það muni bögglast eitt- hvað fyrir Framsóknarmönnum að það sé nú eftirsóttur sam- starfsaðili. Ekki þarf að minna Framsóknarmenn á, að þeir óskuðu ekki aðeins eftir nýrri vinstri stjórn, heldur unnu markvisst og opinberlega að því. Krafa Alþýðuflokks um aðild vinnumarkaðarins við stjórnarmyndunina og krafa Alþýðubandalagsins um ákveð- inn brottfarradag varnarliðsins, og hin óyfirstíganlega tor- tryggni milli þessara flokka kom í veg fyrir stjórnarmynd- unina. FLOKKARNIR, SEM BRUGÐUST ALÞÝÐUNNI En fleira kom til en þetta. Báða þessa flokka brast kjark til að takast á við efnahagsvandann og scttu fram fyrrnefndar kröf- ur til þess að láta samstarfsvið- ræðurnar springa. Nú, þegar vinstrisinnað fólk í landinu liarmar stjórnmálaþróunina og að ekki var mynduð vinstri stjórn, grípa Alþýðubandalags- menn, samanbcr Alþýðubanda- lagsblaðið á Akureyri, til hreinna ósanninda er þeir kenna Ólafi Jóhannessyni um, að liann hafi lieldur kosið að vinna með íhaldinu. Ólafur Jó- hannesson reyndi stjórnar- rnyndun með vinstri flokkunum til þrautar og það veit öll þjóð- in, og hún veit líka livaða flokk- ar það voru, sem brugðust al- þýðunni á örlagastund. EINKENNILEGT RÉTTLÆTI Ford, núverandi Bandaríkjafor- seti, hefur náðað Nixon, fyrr- verandi forseta. Hefur þetta fengið allgóðán liljómgrunn víða erlendis, en innanlands er náðuninni fremur illa tekið. Til Hvítahússins bárust strax yfir 50 þúsund mótmælaskeyti og síminn varð „rauðglóandi“ af upphringingum fólks, sem mót- mælti náðuninni kröftuglega. Af fyrri samstarfsmönnum Nixons hafa 48 verið opinber- lega verið kærðir fyrir afglöp í starfi og 14 sitja þegar bak við lás og slá. Þykir mörgum Banda ríkjamanninum hart, að aðal sögudólgurinn sé náðaður, eða það sé að minnsta kosti ein- kennilegt réttlæti. HJÓLREIÐARMAÐURINN Bandarísku dómsmálin áttu nokkra daga skæðan keppinaut í fjölmiðlum. Sá keppinautur var hjólreiðarkappi einn, kallað ur Evel Knievel. Hann ætlaði að stökkva á mótorhjóli sínu yfir Snákafljótsgljúfur í Banda- ríkjunum, af miklum stökkpalli og lenda þúsund metrum frá pallinum liinu megin gils, með hjálp fallhlífar. Honmn mistókst stökkið, en lifði það þó af, lítið meiddur og mörgum milljónum ríkari. ÞRÍR NÝIR RITSTJÓRAR í sumar hóf íslendingur göngu sína, en útgáfa hans hefur verið slitrótt undanfarin misseri. Rit- stjóri er Sigrún Stefánsdóttir. Þá hafa eitt eða tvö Alþýðu- bandalagsblöð komið út, nú í haustkauptíðinni. Ritstjóri er Jón Daníelsson, og Alþýðumað- urinn, eitt tölublað, er einnig komið út. Ritstjóri er Hjörleifur Hallgrímsson. ÖIl eiga þessi blöð það sammerkt, að koma út endrum og eins. Þau þjóna því hagsmunum almennings að mjög takmörkuðu Ieyti. Kaup________________ Viljum kaupa notaðan fataskáp eða kommóðu, einnig gólfteppi. Uppl. í síma 1-21-37. Notaður saxafónn ósk- ast til kaups. Uppl. í síma 2-Í0-9Í á kvöldin. Vil kaupa notaðan raf- magnsþvottapott. Helga Þórisdóttir Bakka sími um Dalvík. Lagtækur og reglusamur verkamaður óskast ti! starfa í vetur við Menntaskólann á Akureyri. Umsóknir skulu sendar skólanum fyrir mánudag- inn 23. september n. k. SKÓLAMEISTARI. 10% AFSLÁTTUR FRÁ SMÁSÖLUVERÐI FLÓRU ANANASSAFI í 1/2 ltr. FLÓRU ANANASSAFI í 3/4 ltr. FLÓRU ANANASSAFI í 2 ltr. DAGUR Blaðburðarbarn óskast í Innbæinn. Einnig blaðburðarbarn í Innbæinn. UPPL. Á AFGREIÐSLUNNI Skrifstofa Rauða kross íslands Skipagöfu 18 verður opin mánudaga og fimmtudaga kl. 5-6 Frá Oddeyrarskólanum Skólasetning fyrir unglingadeildir fer frarn í sal skólans nránudaginn 23. september n. k. kl. 9 f.h. fyrir 8. bekk og kl. 9,50 f.h. fyrir 7. bekk. Vegna þrengsla í 8 ára bekkjum, er ekki búist við að í þessari árdeild geti skólinn veitt viðtöku öðr- um börnum en þeim sem búsett eru á skóla- svæðinu. SKÓLASTJÓRI. Sendimenn karlar eða konur, óskast sem fyrst til skeytaút- burðar við símastöðina á Akureyri. Vinnutími 5 daga vikunnar (mánudaga — föstu- daga) kl. 9—20. Upplýsingar hjá símastjóranum sírni 1-10-01 eða fulltrúa hans sími 1-10 00. SÍMASTJÓRINN, AKUREYRI. SÍMl 21400 KARL- MANNNAFÖT MIKLU URVALI (Ný litn snið) m SMOKINGFOT (Nýtt smð) KLÆÐSKERA- ÞJÓNUSTA HERRADEILD Til sölu kýr og kvígur, burðartími í mars—apríl Helgi Ingólfsson, Hrisabakka, sími um Staðarhól. Lítið gamalt sófasett, djúpbólstrað til sölu. Sími 2-12-52. Til sölu 4ra tonna trilla með Simrad dýptarmæli og eigna talstöð. Nánari uppl. í síma 4-14-28, Húsavík eftir kl. 19. KÝR til sölu. Sigurður Jósefsson, Torfufelli, sími um Saurbæ. Fjórar fyrsta kálfs kvíg ur til sölu, burðartími um mánaðarmót janúar febrúar. Árinann Rögnvaldsson, Syðri-Haga, sími um Dalvík. Til sölu nýlegt Coþper reiðhjól með gírum. Uppl. í síma 2-23-20 frá 9—12 f. h. og síma 2-21-55 eftir kl. 7 e. h. Verð kr. 15.000,00. Til sölu SUZUKI vél- hjól árg. 1974 ekið 2.000 km. Uppl. í síma 6-23-45 milli kl. 7 og 8. FUGLABÚR óskast. Sími 1-1194. FORD V-8 vél ásamt 4ra gíra gólfskiptum gírkassa (passar í Bronco). Gírkassann má nota við 6 cyl vél. Sími 4-15-86, Húsavík á kvöldin.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.