Dagur - 07.12.1974, Blaðsíða 6

Dagur - 07.12.1974, Blaðsíða 6
6 Þakkar sönginn. Fréttaritari blaðsins í Hrísey, sendir Karlakór Akureyrar sínar bestu þakkir fyrir sönginn á sunnudaginn, er kórinn heim sótti eyna og söng innlend og erlend lög við hrifningu áheyr enda. Minningarspjöld Hríseyjar- kirkju fást í Bókabúð Jónasar Jóhannssonar. Hestamenn skiluðu áliti. Mis- hermt var það í síðasta tölu- blaði Dags, að skrúðgarða- nefnd hefði ein skilað áliti og tillögum um búfjárhald í bænum, sem bæjarstjórn ósk- aði eftir. Félag hestamanna skilaði áliti til bæjarstjórnar fyrir meira en tveim mánuð- um. Leiðréttist hér með þetta atriði. Kökubasarinn er að Hótel KEA sunnudaginn 8. desember kl. 3. — Kvenfélagið Framtíðin. wAtvinna Ráðskona óskast á gott sveitaheimili í Borgar- firði vestra. Má liafa barn. Uppl. í síma 2-33-14. Tapad Tapast liafa kvengler- augu. Finnandi hringi í síma Hjálpræðislierinn. — Sunnudag 8. des. kl. 14.00 Sunnudagaskóli. Sunnudag 8. des. kl. 17.00 (5) Almenn samkoma. Mánudag 9. des. kl. 16.00 Heimilasambandið. Kapteinn Áse Endresen, Lautnant Hild ur Stavenes stjórnar og talar. Söngur og vitnisburðir. Allir velkomnir. S©rti dagsins! |á Slfeureprij jöhni 2 1S40Í S-Hringii) ogS Sfeluátiíi!....| 2-20-57. HHHBBISHlHHHHBBnBi Til jólagjafa! Greiðslusloppar, 5 gerðir. Hanskar og lúffur. , Slæður og ullarklútar. Töskur, ný sending. Samkivæmisblússur. Pils, síð og hálfsíð. Samkvæmistöskur. Sængurnar vinsælu o. fl. MARKAÐURINN Fæst í kaupfélaginu Brunaöryggis- kaðlar og slökkvitæki. GRÁNA H.F. Ef einhver á SELLÓ sem hann mundi vilja selja, hafi hann vinsam- legast samband við Tónlistarskóla Akureyrar sem fyrst. Sími 2-14-29 á daginn og 2-23-26 á kvöldin. wÝmisíegtmm Til sölu mótorlaus Volkswagen 1962 til niðurrifs, einnig Raflra eldavélasamstæða, selst ódýrt. Einnig óskast á sama stað notaður ísskápur. Uppl. í Norðurgötu 31 b. Náttúrugripasafnið verður lok- að vegna innréttinga og flutn- ings fram yfir áramót. mmm Nonnahúsið verður opið 15. des. kl. 3—5. Afhentar pantaðar bækur. Sími safnvarðar er 1 22777. Minjasafnið á Akureyri er lokað vegna byggingarframkvæmda. Þó verður tekið á móti ferða- fólki og skólafólki eftir sam- komulagi við safnvörð. Sími safnsins er 11162 og safn- varðar 11272. Amtsbókasafnið. Opið mánud.— föstud. kl. 1—7 e. h. Laugar- daga kl. 10 f. h. — 4 e. h. Sunnudaga kl. 1—4 e. h. Fæst í kaupfélaginu Ávarp á bindindisdaginn 24. nóvember FÉLAGAR í íslensku bindindis samtökunum eru nú um átta þúsund og eru barnastúkurnar fjölmennastar, með 4500 félaga. Ungtemplarar telja um 1100 og í stúkum fyrir þá eldri um 2400 manns. Bindindisdagurinn var síðasta sunnudag og var þá starfsemi bindindismanna kynnt í blöð- um og öðrum fjölmiðlum. Ávarp til þjóðarinnar á bindindisdag- inn, undirritað af mörgum þjóð- kunnum mönnum, svo sem biskupi íslands, menntamálaráð herra, heilbrigðisráðherra, ýms- um alþingismönnum og fleirum, hljóðar svo: Ljóst er að augu æ fleiri manna opnast nú fyrir því að áfengi er hættulegt fíkniefni, bölvaldur manna og þjóða. Evrópuráðið og Norðurlanda- ráð hafa nýlega gert samþykkt- ir um áfengismál og hvetur hið fyrrnefnda meðal annars til að halda áfengi í háu verði og auka bindindisfræðslu, bæði í skólum og æskulýðsfélögum. í sumum nágrannalöndum okkar, þar sem sala áfengis er engum hömlum bundin, fjölgar dauðsföllum af völdum áfengis- neyslu svo mjög að einungis krabbamein og hjarta- og æða- sjúkdómar valda dauða fleiri manna (Frakkland). Hérlendis hafa meðal annarra læknasamtökin varað við þeim hættum sem við blasa og hvatt til þess „að sala áfengra drykkja verði takmörkuð“. Framundan er mikið átak í umhverfismálum. Uppblástur gróðurlendis skal stöðvaður, vörnum beitt og helst snúið í sókn. En við skyldum minnast þess að fleira getur blásið upp og sundrast en grænir reitir. Neysla áfengis og annarra vímu efna veldur þeim uppblæstri sem oft reynist erfitt að græða. Áfengisneysla er ekki einkamál. Margt barnið vex úr grasi og hefur ævistarf sitt kalið á hjarta vegna drykkju foreldra. Og margt atgervisfólk hefir ísland misst í þá óseðjandi hít sem elfur áfengisins er. (Framhald af blaðsíðu 8) valdir álitlegir einstaklingar í prófun. Við athugun á því hvort há- fættir hrútar gæfu þyngri föll kom í ljós að fótahæð virðist ekki skipta miklu máli. Þó hafa háfættir hrútar aldrei komið bestir út úr neinni rannsókn. Þá drap framsögumaður nokk uð á frjósemi og hve miklu máli skipti að hún væri í lagi fyrir arðsemi fjárbúsins og þyrfti með kynbótum að fá frjósemi inn í fjárstofninn. Að því ber að stefna. Hins vegar væri oft hægt að auka frjósemi verulega með fengieldi og hefði verið talið fram undir þetta að snögg- ur bati væri árangursríkur og nefndi hann 20 ára gamla til- raun sem studdi þetta. Nú væri það aftur á móti skoðun flestra að góð hold og jöfn fóðrun væri heppilegri heldur en að láta féð leggja af framanaf hausti og hleypa þá snöggu eldi í ærnar . rétt fyrir fengitíð. Þá sagði Sveinn það sína skoðun, að menn ættu ekki að Það er þarft að berjast gegn mengun umhverfisins. Hitt er þó enn mikilvægara að koma í veg fyrir mengun líkama og sálar, háskalega mengun sem getur siðblindað jafnvel hina bestu menn. — Við teljum það skyldu hugsandi manna að skera upp herör gegn drykkju- tískunni og hörmulegum afleið- ingum hennar. Slík hérör hæfir vel á þjóðhátíðafári.' □ búa mjög stórt heldur hafa góð- an arð af því sem þeir hefðu handa á milli og eins væri það mönnum nauðsynlegt að hafa sína sérvisku t. d. að hafa mis- litt fé og þess háttar. Menn þyrftu að hafa ánægju af því sem þeir væru að gera, ef vel ætti að fara. Að lokinni framsöguræðu hófust mjög fjörugar umræður sem stóðu fram undir kl. 2 um nóttina. Var víða komið við og nokkrir létu fjúka í kviðlingum. Lýstu menn ánægju sinni yfir því að Búnaðarfélag íslands skyldi hafa opinbera stefnu í sauðfjárrækt. Einnig var nokk- uð rætt um hrútasýningar frá liðnu hausti og sauðfjársæð- ingar. Var þessi fundur með þeim betri sem haldnir hafa verið hér um nokkurn tíma og er von til að svo verði áfram að menn efli þetta fundarstarf með góðri fundarsókn og þátttöku í um- ræðum. □ Æ. H. Illllllllllll Afgreiðslutími helstu versl aua KEA í desember 1974 r 1. A föstudögum er opið til kl. 19 að venju. \ ,• _ - Bændaklúbbslundur í ! 2. Vörukús KEA, Byggingavörudeild og Raflagnadeild Laugardag 7. des. opið til kl. 16 Laugardag 14. des. opið til kl. 18 Laugardag 21. des. opið til kl. 22 Mánudag 23. des. opið til kl. 23 3. Matvörudeild Laugardag 7. des. lokað Laugardag 14. des. opið til kl. 16 í fimm verzlunum, þ. e. Strandgata 25 — Hafnar- stræti 91 — Byggðavegur 98 — Brekkugata 1 — Höfðahl. 1. Laugardag 21. des. opið til kl. 22 í áður nefndum Kjör búðum en til kl. 18 í hinum sex, þ. e. Hlíðatgata 11 — Grænumýri 9 — Ránargata 10 — Hafnarstræti 20 — Eiðsvalla gata 6 — Brekkugata 47. Mánudag 23. des. opið til kl. 23 í stærri Kjörbúðun- uim fimm, en til kl. 20 í minni Kjörbúðununr sex. 4. Véladeild Hefur ekki opið á laugardögum í desember. 5. Kjötbúð Er opin eins og sex minni Kjörbúðirnar. i iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin n iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinimi 11111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ...

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.