Dagur - 15.01.1975, Blaðsíða 1

Dagur - 15.01.1975, Blaðsíða 1
LVIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 15. jan. 1975 — 2. tölublað Jmut FILMUhúsib TOOíV®1 pappw AKUREYRI Samkvæmt bráðabirgðatölum, sem Fiskifélag íslands hefur seiit frá sér um afla íslendinga á árinu 1974, er heildaraflinn 1974 sá fjórði mesti, sem um getur í sögu fiskveiða íslend- inga. Heildaraflinn 1974 var 938,5 þús. lestir á móti 906 þús. lestum 1973. Meira aflamagn barst á land 1964, eða 971 þús. tonn, 1199 þús. lestir árið 1965 og 1243 þús. lestir 1966. Ársháfíð Fram- séknarinanna Árshátíð framsóknarfélaganna á Akureyri verður á Hótel KEA á laugardaginn og hefst með borðhaldi kl. 7 síðdegis. Heiðursgestir á hátíðinni verða Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra og Anna Margrét Þorkelsdóttir kona hans og flytur hann ávarp. Þarna verða ýmiskonar skemmtiatriði og að síðustu dans. Þetta er nánar auglýst á öðrum stað. □ Vilhjálmur Hjálmarsson. Flinn 11. þ. m. lenti tveggja ára barn utan í bifreið og höfuð- kúpubrotnaði. Bílstjórinn tók barnið og flutti það heim til foreldranna, en síðan var það lagt í sjúkrahús og dvelur þar. í framsöguræðu Sigurðar Óla Brynjólfssonar, á fundi Fram- sóknarfélaganna sl. fimmtudag kom m. a. fram: Á árinu 1974 var greiðslu- staða bæjarsjóðs lengst af mjög erfið og var yfirdráttur á hlaupa reikningi hjá Landsbankanum hærri en áður liefur verið, sem m. a. sést á því, að vextir af lánum, sem áætlaðir voru um fimm milljónir króna, urðu um sextán milljónir króna. Orsak- irnar fyrir þessum erfiðleikum eru fyrst og fremst ört vaxandi dýrtíð, sem jók framkvæmda- Á sl. ári var þorskafli lands- manna um 400 þús. lestir og loðnuaflinn 460 þús. lestir þann- ig að þessir tveir stofnar eru tæplega 100% af afla lands- manna. Þorskafli bátaflotans 1974 var 250 þús. lestir á móti 292 þús. lestum 1973 og þorsk- afli togaraflotans 1974 var 152 þús. lestir á móti 97 þús. lest- um 1973. Síldarafli var 40 þús. lestir 1974, mest landað erlendis, en 43 þús. lestir 1973, loðnuafli var 462 þús. lestir 1974, en 441,5 þús. lestir 1973, rækjuafli 6500 lestir á móti 7300, humarafli 2000 lestir á móti 2800 árið 1973, hörpudiskur 2,9 þús. lestir á móti 4,7, hrognkelsi 3,8 þús. lestir á móti 4,5 og annar afli var 19,4 þús. lestir. Tölur ársins 1974 eru byggðar á bráðabirgðayfirliti trúnaðar- manna Fiskifélagsins, en þess ber að geta að mestum hluta síldarafians var landað erlendis. Tölur um afla hrognkelsa eru áætlaðar með tilliti til fram- leiðslu grásleppuhrogna. □ Snjórinn er víða orðinn geysimikiil. (Ljósm.: E. D.) Frá því á sunnudagsnótt hefur verið norðan stórhríð á Norður- landi 'öllu, svo ög á Austurlandi, Véstfjörðum og allt súður á Snæfellsnes. Fádæma miklum snjó kyngdi niður og er víða ótrúlegt stórfenni og nær allir vegir urðu ófærir venjulegum biíreiðum. Blaðið hafði samband við nokkra fréttaritara sína í gær- morgun og eru upplýsingar eftirfarandi: Skagaströncl: Enn er hið versta veður og snjókoma. Snjór er gífurlegur og allir veg- ir ófærir. í fyrrinótt sökk 15 tonna bátur, Sæbjörn, vegna ísingar og annar bátur var nær sokkinn af sömu orsökum í gær- kvöldi. Sjómenn börðu klaka af bátum sínum dag og nótt þegar veður var verst og ísingin örust. Þetta er betra núna. Eitthvað brotnáði af rúðum í íbúðarhús- um á sunnudag, enda var þá og reksturskostnað meira en nokkurn óraði fyrir í upphafi ársins. En tekjur bæjarsjóðs stóðust hins vegar áætlun. Rekstrargjöld, sem áætluð höfðu verið 395 millj. kr. á ár- inu 1974, urðu 436 milljónir, samkvæmt bráðabirgðayfirliti, eða um 10% hærri en áætlað var. Þess ber þó að geta, að inn í þessum rekstrargjöldum er nýbygging og malbikun gatna og þar voru framkvæmdir meiri en áætlaðar höfðu verið og fór kostnaður við gerð þeirra 20 millj. kr. fram úr áætlun. Enn- fremur fóru til nýbygginga, svo Vatnsdalur: Engin mjólk hef- ur borist mjólkursamlaginu á Blönduósi síðan á föstudag og enn er vont veður og víða kom- ið stórfenni en rifið á milli. Það er tæplega farandi á milli húsa. Snjóbíl höfum við góðan og hefur verið mikið gagn að honum. Sauðárkrókur: Hér er öll um- ferð teppt vegna snjóa og kom enginn bíll í bæinn í gær og ekki í morgun. Norðanveðrið varð ekki verulega vont fyrr en síðari hluta sunnudags, en síð- an hefur verið stórhríð og kom- inn mikill snjór. Skemmdir hafa ekki orðið, svo vitað sé. Nú í dag er aðeins jeppafæri eftir aðalgötu bæjarins og þó illfært, og enn snjóar. Ilúsavík: Stórhríðarveður er enn og kominn geysilegur snjór. í gær var Garðarsbraut rudd. Mynduðust þá háir ruðningar, og fylltist allt milli þeirra í nótt. sem skóla og togbrautar í Hlíð- arfjalli, verulega hærri fjárhæð ir en áætlað var. Þannig vantaði í heild við árslok um 50 millj. króna til að tekjur stæðust á við gjöld. Þetta bil var brúað með 37 millj. kr. lántöku í árslok, en samningar verða bráðlega teknir upp við viðskiptabanka um aukna fyrirgreiðslu. Má í þessu sambandi benda á, að fjár hagsstaða margra kaupstaða, svo sem Reykjavíkur og Kópa- vogs, var á síðasta ári mun erfiðari en hér á Akureyri. Talað er um mjög hundruð millj. kr. fyrirgreiðslur bank- Kunnur bílstjóri, Skarphéðinn Jónasson, fór fram í Reykja- hverfi í gær með mjólkurbrúsa til bænda. Hann reynir í dag að sækja mjólk. Mjólkurbíll er lagður af stað úr Aðaldal en óvíst hvernig honum gengur að komast til Húsavíkur. Ekki hefur fréttst um skaða. Hér á Húsavík er stórfenni milli húsa, svo sjaldan hefur meira verið. Vegagerðin á Akureyri: Eng- inn mjólkurbíll komst til bæjar ins í tvo daga og ekki líklegt að svo verði í dag. Eins og veðrið er nú, virðist ekki unnt að gera neitt til aðstoðar á vegum. Munu allir vegir út frá bænum með öllu ófærir. Við, hjá Vega- gerðinni, vorum mikið á aðra klukkustund í morgun að kom- ast á vinnustað og höfðum þó tvo veghefla á undan okkur. Yfirlögregluþjónninn á Akur- eyri: Ég hef ekki séð eins mik- inn snjó síðan ég flutti í Ásveg- anna til Reykjavíkurborgar og á annað hundrað milljónir til Kópavogskaupstaðar. Fjárhagsáætlunin fyrir yfir- standandi ár er í undirbúningi og margt í óvissu um gerð hennar. Þó er ljóst, miðað við þær gjaldaáætlanir, sem þegar hafa verið gerðar um ýmsa liði, að ekki er unnt að mæta þeim fjölmörgu kröfum um fram- kvæmdir, sem fram eru bornar, jafnvel þótt tekjustofnar verði nýttir til hins ýtrasta. Sumir stór ir kostnaðarliðir bæjarins munu hækka um 50—70%, en aðrir (Framhald á blaðsíðu 2) inn. í nýlegunr hverfum vestan vert í bænum ’eTU' skaflar jafn- háir húsunum; a: m. k. á suraum stöðum og eðlilegar samgöngur rofnar, þar sem víðast var í morgun ófært bifreiðum 1 bæn- um. Snjóbílar, t. d. tveir sem Baldur Sigurðsson á og hafa verið stöðugt á ferðinni síðustu sólarhringa, hafa komið sér einkar vel, ennfremur snjóbíll Dúa Eðvaldssonar. Dalvík: Fannfergi er orðið ótrúlega mikið á Dalvík og ekki mun fólk alls staðar komast fyrirhafnarlaust út úr húsum sínum. Menn muna tæplega eftir öðru eins stórfenni og enn er stórhríð þótt aðeins sé farið að slá á hana. Enginn vegar- spotti mun fær bifreiðum. Mjólkurbílar fóru af stað fram í sveit, en komust ekki langt. Hrísey: Kominn er geysilega mikill snjór. Hér á skrifstofun- um sjáum við ekki út um neinn glugga því allt er á kafi í snjó. Séð hef ég stærri skafla en aidrei eins jafnmikinn snjó hér í Hrísey og nú. Veðurhæð varð aldrei ofsaleg en nokkuð hvasst, svona 8—9 vindstig, og engin óhöpp urðu við höfnina eða annars staðar. Við höfum næg- an hita og stundum rafmagn og okkur líður ágætlega, þótt vinnubrögðin hafi veriö heldur slök hjá okkur þessa daga. Gunnarsstöðum í Þistilfirði: Hér hefur verið grenjandi stór- hrið frá því 8. desember, með upprofum dag og dag. Og 2. janúar var mikið hvassviðri og olli skemmdum víða. Fuku þá þakplötur af húsum og gler brotnaði í gluggum. Fólk er nú veðurteppt þar sem það er kornið, og öðru hverju er raf- magnslaust. ofsaveður. anns

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.