Dagur


Dagur - 19.02.1975, Qupperneq 1

Dagur - 19.02.1975, Qupperneq 1
HVAÐ TEFUR Undanfavin ár hafa ýmsir aðilar beitt sér fyrir stofnun virkjun- arfélags ríkis og sveitarfélaga á Norðurlandi — Norðurlands- virkjun. Lög um Kröfluvirkjun gera ráð fyrir, að vœntanleg Norðurlandsvirkjun taki við af Kröflunefnd. Viðræður á fyrri hluta síðasta árs fóru fram um virkjunarfélagið Norðurlands- virkjun, en hafa ekki verið teknar upp á ný eftir stjórnar- skiptin. Á fundi Fjórðungssam- bandsins með þingmönnum kom fram ákveðinn vilji á Norður- landsvirkjun. Kom einnig fram, að orkumálaráðherra, Gunnar Thoroddsen, ætlaði að skipa samstarfsnefnd heimaaðila, virkjunaraðila og ríkisstjórnar um skipulag raforkumála Norð- urlands, sem beitti sér fyrir stofnun Norðurlandsvirkjunar og úrræðum til að bæta úr raf- orkuskortinum. Nú hafa borist ályktanir bæj- arstjórnanna á Akureyri og Húsavík um að hraðað verði stofnun hins væntanlega virkj- unarfélags. í fréttasamtali út- varpsins við Hauk Harðarson, bæjarstjóra á Húsavík kom fram, að orkumálaráðherra hafi ákveðið að koma á fót samstarfs nefndum. Tæplega stendur á Fjórðungs sambandinu og virkjunaraðilum á Norðurlandi, að tilnefna í nefndina og hefja störf. En hvað tefur iðnaðar- og orkumálaráð- herra að efna gefin heit? □ Skólarnir á Laugum í Reykjadal. NorSurlands- virkjun - Bæjarstjórn Húsavíkur beinir þeim tiimælum til allra þeirra, er hlut eiga að máli, að Norður- landsvirkjun verði stofnuð sem fyi'st. Leggur bæjai'stjórnin áherslu á, að eignarhluti hvers íbúa í fjórðungnum verði sem jafnastur. Bæjarstjórn Húsavíkur skor- ar á Norðlendinga að standa heilshugar saman í þessu máli, í trausti þess, að þetta fyrir- komulag færi íbúum Norðlend- ingafjórðungs framtíðarlausn á núverandi öngþveiti í orku- málum. □ Nú er heita vatnið farið að streyma upp úr borholu á Laug um í Reykjadal, sem verið er að bora í vetur. Samkvæmt viðtali við Guðmund Sigurðsson hjá Orkustofnuninni á mánudag, er búið að bora 522 m djúpa holu með bor þeim, er áður var við Kröflu. Nú streyma 20—30 lítr- ar á sekúndu upp úr holunni, af 62 gráðu heitu vatni og er þrýstingur talsverður. Aðal- magn þessa vatns er á 522 m dýpi. Nú mun tekin ákvörðun um, hvort áfram verði haldið að bora, en jarðfræðingar munu hafa á því áhuga, allt niður í 1000 metra dýpi. En það eru skólarnir á Laugum og Reyk- dælahreppur, sem kosta borun- ina og mun það vatnsmagn, sem nú er upp komið, meira en nóg til nota á menntasetrinu Laug- um og nágrenni. Skólarnir á Laugum og næstu bæir eru hitaðir með rúmlega 50 stiga heitu vatni, serri í litlu magni en á nokkrum stöðum kemur upp í brekkum heiðai'- innar í austanverðum Reykja- dal og nægði ekki lengur til hitunar hinum vaxandi stað. Staður sá, sem jarðbornum var valinn staður, er örskammt austan við héraðsskólann, eða milli skólans og hússins Hvíta- fells. Samkvæmt viðtali við Pál H. Jónsson á Laugum í gær, telja borunarmenn heita vatnið yfir 40 lítra á sek. og 63 gráðu heitt. Þrýstingur þess er svo mikill, að vafasamt er að bora dýpra. Túnsbergi, Svalbarðsströnd, 18. febrúar. Ekki er það daglegur viðburður, að haldnar séu list- sýningar hér í hreppunum aust- an Eyjafjarðar, hvað þá að tvær slíkar séu sama daginn. Þetta gerðist þó sl. sunnudag. Á Greni vik gengust Lionsmenn þar fyr- ir .má'lverkasýningu o. fl. Hér á , Svalbarðsströnd voru það hins i vegar kvenfélagskonur, sem sýndu árangur sinn af tíu daga flosnámskeiði, er lauk daginn áður. Leiðbeinandi var frú Magðalena Sigþórsdóttir, Rvík. Sýningu þessa sóttu á þriðja hundrað manns og voru flestir á einu máli um fegurð og fjölda þeirra gripa, er unnir voru á svo skömmum tíma. Formaður kven félagsins er frú Bára Sævalds- dóttir í Sigluvík. Strax að sýn- ingu lokinni hélt frú Magðalena til Grenivíkur, þar sem hún mun halda samskonar námskeið næstu daga. Einnig voru á sýningunni á Svalbarðsströnd smíðisgripir úr eir og kopar eftir Sigmar Bene- diktsson vélstjóra á Svalbarðs- Vatnið er tært og án brenni- steinslyktar. Þegar er farið að ræða um nýtingu þess og leiðsl- ur um hreppinn, en íbúar hans eru 420. Mikill áhugi er á því, að láta hér ekki staðar numið en halda rannsóknarborunum áfram. Héraðsskólinn á Laugum er nú hálfrar aldar, og virðist for- sjónin rausnarleg við skólann á þessu afmælisári. □ Dagur kemur næst út 26. febrúar. — Fjérir nfir báfar sjósellir á Akureyri lyrir helgina eyri. Gripir þessir, kertastjakar, fánastengur og fleira, eru allir listavel gerðir með fábreyttum verkfærum við frumstæða að- stöðu. Elsta gripinn, sem þarna var, kveðst Sigmar hafa smíðað á hnjám sér á frívöktum til sjós fyrir 40 árum. Ekki má svo gleyma því, að sýningargestir höfðu líka list — með ypsiloni — á kaffi og bakk- elsi, sem kvenfélagskonur seldu á staðnum til ágóða fyrir starf- semi sína. Sv. Lax. Á Akureyri hafa lengi verið kunnir bóta- og skipasmiðir, og svo var það víðar við Eyjafjörð. Til skamms tíma voru það ein- göngu bátar úr tré, sem smíð- aðir voru, en hin síðari árin hafa stálskipasmíðar rutt sér til rúms og er Akureyri þar í fremstu röð, þar sem er Slippstöðin h.f. Á föstudaginn sjósetti Slipp- stöðin 150 tonna stálfiskiskip, sem fara á til Olafsvíkur og frá er sagt á öðrum stað. Sama dag sjósetti Skipasmíðastöð KEA 27 tonna trébát, sem fer út á Litla- Árskógssand. En daginn áður voru sjósettir tveir aðrir tré- bátar, annar frá Vör og er hann 29 tonn og er eigandi hans á Bakkafirði og sama dag sjósetti Baldur bóndi og skipasmiður á Hlíðarenda 8—9 tonna bát, sem fer til Raufarhafnar. Má með sanni segja, að báta- smíðin standi í miklum blóma GENGI KRÓNUNNAR FELLT UM 20 c Seðlabankinn, með samþykki ríkisstjórnarinnar, ákvað 20% gengisfellingu íslensku krón- unnar gagnvart dollar síðasta miðvikudag. Kaupgengi dollars er því kr. 149,20. Gengisbreyt- ingin var gerð vegna versnandi stöðu þjóðarbúsins út á við. Gjaldeyrisstaðan hefur haldið áfram að þrengjast og er hún þannig nú, ásamt skuldastöð- unni, komin á það stig, að frek- ari rýrnun verður að fyrir- byggja með öllum tiltækum ráð um, ef íslcndingar eiga að geta staðið við skuldbindingar sínar út á við og verndað efnahagslegt sjálfstæði sitt Með gengislækk- uninni er verið að efla starfsemi útflutningsatvinnu v e g a n n a, bæði sjávarútvegs og iðnaðar, en draga úr gjaldeyrisnotkun. Þessi gengisbreyting er talin hafa í för með sér 7% almenna verðhækkun í landinu, þótt inn fluttar vörur hækki meira, eða í réttu hlutfalli við breytinguna. Svokallaðar hliðarráðstafanir eiga að fylgja breyttu gengi krónunnar, svo sem ný eða um þessar mundir hér í bæ, því hér eru ekki allir upp taldir, sem smíða báta og selja. En sjó- setning fjögurra báta, frá 9—150 tonna, svo að segja samtímis, hefur ekki áður orðið á Akur- eyri. □ Næsta verkefni L. A. Ertu nú ánægð hækkuð innflutningsgjöld á sumum vöruflokkum, og hefur þetta komið til framkvæmda hvað snertir innflutta bíla. Þá er í athugun að slcattleggja far- seðla, koma á skyldusparnaði þeirra tekjuháu o. fl. Jafnframt er því heitið, að hækka elli- og örorkulífeyri, einnig láglauna- bætur. □ Á sunnudagskvöld sýnir Leik- félag Akureyrar í Samkomu- húsinú „Ertu nú ánægð kerl- ing?“, sem eru nokkrir stuttir þættir leiknir og sungnir og eftir ýmsa höfunda bæði er- lenda og innlenda. Meðal höf- unda eru: Jakobína Sigurðar- dóttir, Svava Jakobsdóttir, Böðvar Guðmundsson og Þránd ur Thoroddsen. „Kerlingarnar11 — eins og sýningin hefur verið nefnd, hafa verið sýndar víða um Norður- lönd við miklar vinsældir, nú síðast í Þjóðleikhúsinu. Allir eru þættirnir um málefni kven- fólksins og fluttir að nær öllu leyti af kvenþjóðinni. Fjögurra manna pophljómsveit leikur undir. Næsta verkefni L. A. verður „Tangó“. □

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.