Dagur - 19.02.1975, Blaðsíða 1
HVAÐ TEFUR
Undanfavin ár hafa ýmsir aðilar
beitt sér fyrir stofnun virkjun-
arfélags ríkis og sveitarfélaga á
Norðurlandi — Norðurlands-
virkjun. Lög um Kröfluvirkjun
gera ráð fyrir, að vœntanleg
Norðurlandsvirkjun taki við af
Kröflunefnd. Viðræður á fyrri
hluta síðasta árs fóru fram um
virkjunarfélagið Norðurlands-
virkjun, en hafa ekki verið
teknar upp á ný eftir stjórnar-
skiptin. Á fundi Fjórðungssam-
bandsins með þingmönnum kom
fram ákveðinn vilji á Norður-
landsvirkjun. Kom einnig fram,
að orkumálaráðherra, Gunnar
Thoroddsen, ætlaði að skipa
samstarfsnefnd heimaaðila,
virkjunaraðila og ríkisstjórnar
um skipulag raforkumála Norð-
urlands, sem beitti sér fyrir
stofnun Norðurlandsvirkjunar
og úrræðum til að bæta úr raf-
orkuskortinum.
Nú hafa borist ályktanir bæj-
arstjórnanna á Akureyri og
Húsavík um að hraðað verði
stofnun hins væntanlega virkj-
unarfélags. í fréttasamtali út-
varpsins við Hauk Harðarson,
bæjarstjóra á Húsavík kom
fram, að orkumálaráðherra hafi
ákveðið að koma á fót samstarfs
nefndum.
Tæplega stendur á Fjórðungs
sambandinu og virkjunaraðilum
á Norðurlandi, að tilnefna í
nefndina og hefja störf. En hvað
tefur iðnaðar- og orkumálaráð-
herra að efna gefin heit? □
Skólarnir á Laugum í Reykjadal.
NorSurlands-
virkjun -
Bæjarstjórn Húsavíkur beinir
þeim tiimælum til allra þeirra,
er hlut eiga að máli, að Norður-
landsvirkjun verði stofnuð sem
fyi'st. Leggur bæjai'stjórnin
áherslu á, að eignarhluti hvers
íbúa í fjórðungnum verði sem
jafnastur.
Bæjarstjórn Húsavíkur skor-
ar á Norðlendinga að standa
heilshugar saman í þessu máli,
í trausti þess, að þetta fyrir-
komulag færi íbúum Norðlend-
ingafjórðungs framtíðarlausn á
núverandi öngþveiti í orku-
málum. □
Nú er heita vatnið farið að
streyma upp úr borholu á Laug
um í Reykjadal, sem verið er að
bora í vetur. Samkvæmt viðtali
við Guðmund Sigurðsson hjá
Orkustofnuninni á mánudag, er
búið að bora 522 m djúpa holu
með bor þeim, er áður var við
Kröflu. Nú streyma 20—30 lítr-
ar á sekúndu upp úr holunni,
af 62 gráðu heitu vatni og er
þrýstingur talsverður. Aðal-
magn þessa vatns er á 522 m
dýpi.
Nú mun tekin ákvörðun um,
hvort áfram verði haldið að
bora, en jarðfræðingar munu
hafa á því áhuga, allt niður í
1000 metra dýpi. En það eru
skólarnir á Laugum og Reyk-
dælahreppur, sem kosta borun-
ina og mun það vatnsmagn, sem
nú er upp komið, meira en nóg
til nota á menntasetrinu Laug-
um og nágrenni.
Skólarnir á Laugum og næstu
bæir eru hitaðir með rúmlega
50 stiga heitu vatni, serri í litlu
magni en á nokkrum stöðum
kemur upp í brekkum heiðai'-
innar í austanverðum Reykja-
dal og nægði ekki lengur til
hitunar hinum vaxandi stað.
Staður sá, sem jarðbornum
var valinn staður, er örskammt
austan við héraðsskólann, eða
milli skólans og hússins Hvíta-
fells.
Samkvæmt viðtali við Pál H.
Jónsson á Laugum í gær, telja
borunarmenn heita vatnið yfir
40 lítra á sek. og 63 gráðu heitt.
Þrýstingur þess er svo mikill,
að vafasamt er að bora dýpra.
Túnsbergi, Svalbarðsströnd, 18.
febrúar. Ekki er það daglegur
viðburður, að haldnar séu list-
sýningar hér í hreppunum aust-
an Eyjafjarðar, hvað þá að tvær
slíkar séu sama daginn. Þetta
gerðist þó sl. sunnudag. Á Greni
vik gengust Lionsmenn þar fyr-
ir .má'lverkasýningu o. fl. Hér á
, Svalbarðsströnd voru það hins
i vegar kvenfélagskonur, sem
sýndu árangur sinn af tíu daga
flosnámskeiði, er lauk daginn
áður. Leiðbeinandi var frú
Magðalena Sigþórsdóttir, Rvík.
Sýningu þessa sóttu á þriðja
hundrað manns og voru flestir
á einu máli um fegurð og fjölda
þeirra gripa, er unnir voru á svo
skömmum tíma. Formaður kven
félagsins er frú Bára Sævalds-
dóttir í Sigluvík. Strax að sýn-
ingu lokinni hélt frú Magðalena
til Grenivíkur, þar sem hún
mun halda samskonar námskeið
næstu daga.
Einnig voru á sýningunni á
Svalbarðsströnd smíðisgripir úr
eir og kopar eftir Sigmar Bene-
diktsson vélstjóra á Svalbarðs-
Vatnið er tært og án brenni-
steinslyktar. Þegar er farið að
ræða um nýtingu þess og leiðsl-
ur um hreppinn, en íbúar hans
eru 420. Mikill áhugi er á því,
að láta hér ekki staðar numið
en halda rannsóknarborunum
áfram.
Héraðsskólinn á Laugum er
nú hálfrar aldar, og virðist for-
sjónin rausnarleg við skólann á
þessu afmælisári. □
Dagur
kemur næst út 26. febrúar. —
Fjérir nfir báfar sjósellir
á Akureyri lyrir helgina
eyri. Gripir þessir, kertastjakar,
fánastengur og fleira, eru allir
listavel gerðir með fábreyttum
verkfærum við frumstæða að-
stöðu. Elsta gripinn, sem þarna
var, kveðst Sigmar hafa smíðað
á hnjám sér á frívöktum til sjós
fyrir 40 árum.
Ekki má svo gleyma því, að
sýningargestir höfðu líka list —
með ypsiloni — á kaffi og bakk-
elsi, sem kvenfélagskonur seldu
á staðnum til ágóða fyrir starf-
semi sína. Sv. Lax.
Á Akureyri hafa lengi verið
kunnir bóta- og skipasmiðir, og
svo var það víðar við Eyjafjörð.
Til skamms tíma voru það ein-
göngu bátar úr tré, sem smíð-
aðir voru, en hin síðari árin hafa
stálskipasmíðar rutt sér til rúms
og er Akureyri þar í fremstu
röð, þar sem er Slippstöðin h.f.
Á föstudaginn sjósetti Slipp-
stöðin 150 tonna stálfiskiskip,
sem fara á til Olafsvíkur og frá
er sagt á öðrum stað. Sama dag
sjósetti Skipasmíðastöð KEA 27
tonna trébát, sem fer út á Litla-
Árskógssand. En daginn áður
voru sjósettir tveir aðrir tré-
bátar, annar frá Vör og er hann
29 tonn og er eigandi hans á
Bakkafirði og sama dag sjósetti
Baldur bóndi og skipasmiður á
Hlíðarenda 8—9 tonna bát, sem
fer til Raufarhafnar.
Má með sanni segja, að báta-
smíðin standi í miklum blóma
GENGI KRÓNUNNAR FELLT UM 20
c
Seðlabankinn, með samþykki
ríkisstjórnarinnar, ákvað 20%
gengisfellingu íslensku krón-
unnar gagnvart dollar síðasta
miðvikudag. Kaupgengi dollars
er því kr. 149,20. Gengisbreyt-
ingin var gerð vegna versnandi
stöðu þjóðarbúsins út á við.
Gjaldeyrisstaðan hefur haldið
áfram að þrengjast og er hún
þannig nú, ásamt skuldastöð-
unni, komin á það stig, að frek-
ari rýrnun verður að fyrir-
byggja með öllum tiltækum ráð
um, ef íslcndingar eiga að geta
staðið við skuldbindingar sínar
út á við og verndað efnahagslegt
sjálfstæði sitt Með gengislækk-
uninni er verið að efla starfsemi
útflutningsatvinnu v e g a n n a,
bæði sjávarútvegs og iðnaðar,
en draga úr gjaldeyrisnotkun.
Þessi gengisbreyting er talin
hafa í för með sér 7% almenna
verðhækkun í landinu, þótt inn
fluttar vörur hækki meira, eða
í réttu hlutfalli við breytinguna.
Svokallaðar hliðarráðstafanir
eiga að fylgja breyttu gengi
krónunnar, svo sem ný eða
um þessar mundir hér í bæ, því
hér eru ekki allir upp taldir,
sem smíða báta og selja. En sjó-
setning fjögurra báta, frá 9—150
tonna, svo að segja samtímis,
hefur ekki áður orðið á Akur-
eyri. □
Næsta verkefni L. A.
Ertu nú ánægð
hækkuð innflutningsgjöld á
sumum vöruflokkum, og hefur
þetta komið til framkvæmda
hvað snertir innflutta bíla. Þá
er í athugun að slcattleggja far-
seðla, koma á skyldusparnaði
þeirra tekjuháu o. fl. Jafnframt
er því heitið, að hækka elli- og
örorkulífeyri, einnig láglauna-
bætur. □
Á sunnudagskvöld sýnir Leik-
félag Akureyrar í Samkomu-
húsinú „Ertu nú ánægð kerl-
ing?“, sem eru nokkrir stuttir
þættir leiknir og sungnir og
eftir ýmsa höfunda bæði er-
lenda og innlenda. Meðal höf-
unda eru: Jakobína Sigurðar-
dóttir, Svava Jakobsdóttir,
Böðvar Guðmundsson og Þránd
ur Thoroddsen.
„Kerlingarnar11 — eins og
sýningin hefur verið nefnd, hafa
verið sýndar víða um Norður-
lönd við miklar vinsældir, nú
síðast í Þjóðleikhúsinu. Allir
eru þættirnir um málefni kven-
fólksins og fluttir að nær öllu
leyti af kvenþjóðinni. Fjögurra
manna pophljómsveit leikur
undir.
Næsta verkefni L. A. verður
„Tangó“. □