Dagur - 26.02.1975, Síða 1

Dagur - 26.02.1975, Síða 1
Mjög gott atvinnu- og atliafnalíf á Dalvík Á félagsi'áSsfundi í síðustu viku hitti ég aS máli Kristján Olafs- son, útibússtjóra Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík, og spurði tíðinda, er við svo festum á blað á mánudaginn. Hann sagði þá meðal annars: Leikfélag Dalvíkur æfir nú Hart í bak eftir Jökul Jakobs- son. Leikstjóri er Jóhann Ög- mundsson. Verkið verður frum- sýnt upp úr miðjum mars. Karlakór Dalvíkur æfir undir •stjórn Gests Hjörleifssonar og hélt samsöngva um jólin og konsert verður hjá kórnum á . föstudaginn. Hann býr sig undir hljómplötuupptöku og kemur sú plata út í vor. Undirleikari er Guðmundur Jóhannsson frá Akureyri. Afli fimm netabáta, sem hér eru gerðir út, er heldur lélegur, þetta frá einu og upp í fimm tonn. Bátarnir eru: Vinur, Otur, Bliki, Haraldur og Fagranes. Togararnir hafa hins vegar aflað vel. Björgvin landaði 120 tonn- um í síðustu viku og Baldur kemur á morgun, þriðjudag. Atvinna í hraðfrystihúsinu er mikil. Togararnir eru undir- staða atvinnulífsins. Nýr frysti- hússtjóri, Árni Óskarsson, tók við af ívari Baldvinssyni um síðustu áramót. Rækjubáturinn Sæþór, eign Snorra Snorrasonar, hefur sótt afla sinn á Grímseyjarmið í vetur þegar gefur. Aflinn hefur verið fluttur á bílum frá Dalvík til Akureyrar til vinnslu. Veiði hefur verið mjög góð, allt upp í 14 tonn í veiðiferð, en því mið- ur gefui' of sjaldan til þessara veiða. Við erum ekki sem hress- astir yfir því að þurfa að senda rækjuna til Akureyrar. Unnið er af fullum krafti við heimavistarbyggingu fyrir fram haldsskólastigið. Þessi heima- vist á að taka 40 nemendur og verður væntanlega tekin í notk- un á næsta hausti. Fjögur sveit- arfélög standa að þessari fram- kvæmd. Ákveðið er að hefja byggingu læknamiðstöðvar hér á Dalvík og skilst manni að hún verði boðin út með vorinu. Er það mikil framkvæmd og verður mikil framför í heilsugæslunni. í fjárlögum nú eru tæpar 17 milljónir króna ætlaðar til þess ara framkvæmda. Hitaveitan okkar hefur reynst framúrskarandi vel. Ákveðið er að fá liingað nýjan bor til að reyna að auka enn magn heita vatnsins. □ Tilraunaboranirnar við Kröflu fóru fram skammt frá Víti, sem hér sést. (Ljósm.: H. Hg.) störf tefur Kröflunefnd, sem er stjórn- skipuð nefnd til að annast um framkvæmdaþætti 60 megavatta raforkuvers við Kröflu í Suður- Þingeyjarsýslu, sem ákveðið hefur vei'ið að reisa, hélt á mið- vikudaginn sinn fyrsta blaða- mannafund á Akureyri, en nefndin hefur þar aðsetur. For- maður Kröflunefndar er Jón G. Sólnes alþingismaður og hafði hann orð fyrir nefndinni, ásamt varaformanni, Ingvari Gíslasyni alþingismanni. í fréttatilkynningu Kröflu- nefndar við þetta tækifæri er þetta meðal annars: „Sl. haust var gengið frá samn ingi við verkfræðiskrifstofu S. Thoroddsen s.f., Reykjavík, og Rogers Engineering Inc., San Francisco, um skipulagningu og hönnun verkfræðiframkvæmda og öflun tilboða í vélbúnað jarð gufuvirkjunar við Kröflu. Það var ljóst, að öflun vélbúnaðar og þá sérstaklega aflvéla til væntanlegs orkuvers myndi taka lengstan tíma og því ráða hraða byggingarframkvæmda. Kröflunefndin lagði því áherslu á að flýta þessum undirbúningi. Ráðgjafaverkfræðingar töldu tilboð fyrirtækisins Mitsubishi hagstæðast og afgreiðslufrestur stuttur. Samningar voru því gerðir um kaup á tveim 30 mega vatta gufuhverfilrafal-samstæð- um og er samningsverðið 890 millj. kr. á núverandi gengi, miðað við afgreiðslu cif., Húsa- vík. Afgreiðslufrestur fyrri véla samstæðunnar er 16 mánuðir og á þeirri síðari 18 mánuðir. í verðinu er innifaldir varahlutir fyrir 130 millj. kr. Raforkuframleiðsla á að geta hafist síðla árs 1976 því prófun fyrri samstæðunnar á að vera lokið með fullum afköstum í októbermánuði það ár — ef ekki Frá félasfsráðsfundi K.E.A. bilar neinn hlekkur í fram- kvæmdakeð j unni. Kröflunefnd hefur bent yfir- völdum á nauðsyn þess, að hraðað verði lagningu byggða- línu frá Kröflu til Akureyrar og ennfremur bendir hún á hag- kvæmni þess að leggja línu frá Kröflu til Austurlands. Þá hef- ur Kröflunefnd athugað um kaup á 5—10 megavatta gufu- aflstöð, sem upp yrði sett á þessu ári, en ennþá hefur sú athugun ekki borið árangur. Þess má geta, að allur undir- búningur Kröfluvirkjunar ei' í höndum ríkisins, en til þess ætl ast, að Norðurlandsvirkjun taki við af Kröflunefnd. Sem kunn- ugt er, hefur Norðurlandsvirkj- un, sameign ríkis, sveitarfélaga og fleiri aðila, ekki verið stofn- uð ennþá.“ F élagsráðsfundur Kaupfélags Eyfirðinga var haldinn á Hótel KEA miðvikudaginn 19. febrú- ar. Á félagsráðsfundi eiga sæti deildarstjórar hinna 24 kaup- félagsdeilda á félagssvæðinu og félagsráðsmaður frá hverri deild. Þar mæta og jafnan for- stöðumenn hinna ýmsu versl- unar- og viðskiptadeilda kaup- félagsins, auk kaupfélagsstjórn- ar og kaupfélagsstjóra. Á félagsráðsfundi, sem jafnan er haldinn snemma árs, flytur kaupfélagsstjórinn sína fyrstu skýrslu um rekstur kaupfélags- ins á liðnu ári. Þá er sýnt hvern ig málefni fyrirtækisins hafa þróast, þótt ársreikningum sé ekki lokið og endanlegar tölur liggi því ekki fyrir. Þá bera félagsráðsmenn fram fyrirspurn ir og láta í ljósi álit sitt á hin- um fjölþætta og mikla rekstri, sem um sex þúsund félagsmenn standa að í þessu stærsta kaup- félagi landsins. Hjörtur E. Þórarinsson, stjórn arformaður Kaupfélags Eyfirð- inga, setti þennan fund, bauð fulltrúa hinna 24 félagsdeilda velkomna og las nöfn þeirra. Fundarstjóri var Hörður Garð arsson á Rifkelsstöðum og fund arritari Rögnvaldur Skíði Frið- bjarnarson, Dalvík. Valur Arnþórsson flutti þessu næst skýrslu sína um starfsemi Kaupfélags Eyfirðinga árið 1974, Valur Arnþórsson kaupfélagstj. greinargóða og yfirgripsmikla. Þar kom fram, að velta fyrir- tækisins alls hefur orðið 5.476 milljarðar króna á árinu, móti 3.6 milljörðum á árinu 1973. í skýrslu kaupfélagsstjóra segir m. a.: Sala verslunardeilda félags- ins hefur aukist að krónutölu og magni um 50—60% og nam allt að 1.8 milljarði króna. Sala verksmiðjanna og þjónustu- deilda hefur aukist tæp 60% og nam 875 millj. króna. Launa- kostnaður hefur aukist um rúm 60% miðað við fyrra ár. Innlögð mjólk nam samtals 21.825.350 ltr. eða um 2.48% hækkun frá fyrra ári. Utborgun til framleiðenda á árinu kr. 576.576.206,60 og er hún 171.353.961,00 krónum hærri en í fyrra. Á hvern líter er útborg- unin 2.641,77 a urar, sem eru 76.22% af grundvallarverði. Á sláturhúsum félagsins var slátrað 52.964 kindum. Nam kjöt þungi 785.667 kg og var það 2.6% lægri þungi en í fyrra. Meðalvigt dilka lækkaði um 0.93 kg og var 14.12 kg án nýrna- mörs. Af sláturhússtjórastarfi lét Haukur Olafsson, en við tók Þórarinn Halldórsson. Gæruinnlegg nam 55.001 stk., 170.492,3 kg, sem er 3.500 kg minni þungi en árið 1973. Ullarinnlegg nam 56.731 kg eða 4.805 kg minna en árið áður' Kjötiðnaðarstöðin tók 730.717 af kjötmeti til vinnslu og sölu- meðferðar. (Framhald á bls. 4) í október n. k. minnast Norð- menn þess, að 150 ár eru liðin frá því fjöldi Norðmanna flutt- ist vestur um haf. Tóku þeir fyrstu land í New York. Verða þar mikil hátíðahöld. Þotur Loft leiða munu af þessu tilefni flytja 500 Norðmenn vestur og heim aftur ó næsta hausti. Frá 1825 til 1925 fluttu 800 þús. manns frá Noregi til Banda ríkjanna. Er talið, að undirrót Línulögn frá Kröflu til Akur- eyrar hefur verið falin Raf- magnsveitum ríkisins. Vegna skamms tíma, verða fram- kvæmdir við Kröfluvirkjun ekki boðnar út, en leitað samn- inga við verktaka, óvíst hverja. Orkumálastofnunin hefur tekið að sér að bora fimm vinnslu- holur í Kröflu í sumar. Væntanlega verður gengið svo frá samningum við landeig- endur um allan rétt tii fyrir- (Framhald á blaðsíðu 6) hinna miklu fólksflutninga hafi verið löngun til meira trúfrelsis, en ríkti í heimalandinu. Fræg kvikmynd, Vesturfar- arnir, gcrð eftir samnefndri bók, var nýlega sýnt hér í sjónvai'p- inu. Á þessu ári munu íslendingar einnig fjölmenna vestur, til að minnast 100 ára byggðar í Kanada. □ Loflleiðir flyfja 500 norðmenn

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.