Dagur - 26.02.1975, Page 4

Dagur - 26.02.1975, Page 4
5 Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-11-66 og 1-11-67 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Auglýsingar og afgreiðsla: JÓHANN K. SIGURÐSSON Prentverk Odds Björnssonar h.f. r Askorun Félög verksmiðjufólks í landinu hafa sent frá sér orðsendingu til þjóðar- innar, sem vert er að veita atliygli. Þar segir réttilega: „Vegna hins alvar lega gjaldeyrisástands er nú ríkir og, sem að verulegu leyti stafar af hóf- lausum innflutningi, þar á meðal allskonar iðnvarningi, sem liægt er að framleiða hér innanlands, sam- bærilegan að verði og gæðum, vilja samtök iðnverkafólks hér með skora á landsmenn alla, að haga innkaup- um sínunr þannig, að innlend fram- leiðsla hafi þar algeran forgang. Með þvx myndi sparast dýrmætur gjaldeyrir og atvinnuöryggi iðnverka fólks, sem nii virðist í nokknrri hættu, væri tryggt. Enn er í fulli gildi liið fornkveðna, að liollur er heimafenginn baggi. Þá vilja samtök iðnverkafólks benda á, að naumast er vansalaust að dýrmætt hráefni sé flutt úr landi lítt eða ekki unnið, til fullvinnslu erlendis, svo sem verið hefur um lopaútflutning til Dan- merkur undanfarið. Höfum það í minni, að sparaður gjaldeyrir er engu þýðingarminni en gjaldeyris- framleiðsla." Þetta er hin þarfasta ábending og mætti hún leiða til þjóðai-vakningar, um að efla og nota íslenskar iðn- vörur. Hér mætti nefna áþreifanlega liluti og eru þá nærtækar þær lirein- lætisvörur, sem hér eru framleiddar og seldar í samkeppni við erlendar, setn ekki er sparað að auglýsa. Hér má einnig nefna málningarvörumar. Niðurlagðar og niðursoðnar mat- vörur, kjöt- og fiskréttir, sem liér á Akureyri er framleiddar, og standast allan samanburð, eins og áðumefnd- ar vörur. Verksmiðjufólkið nefndi lopann og minnir það á hinar rnarg- þættu ullar- og skinnavörur og fatn- að, sem á Akureyri em framleiddar, og er þá skófatnaður ekki undan skilinn. í húsgagnaframleiðslunni er nú vaxandi samkeppni og svo virð- ist, að umbjóðendur erlendra liús- gagna hafi ráð á betri þjónustu en heimamenn, hvort sem það er vegna sérstakrar fyrirgreiðslu framleiðenda eða innlendra lánastofnana. Norð- lendingar þurfa ekki að kaupa er- lend húsgögn eða innréttingar. Um öl, gosdrykki, súkkulaði, sælgætis- vörur og margskonar efnavörur er sömu sögu að segja, þar sem sii fram- leiðsla lirekkur til. I málmiðnaði og skipasmíðum fáum við ekki betri þjónustu í öðrunr löndum. Þannig mætti lengi telja, og vöruflokkar þessir nefndir sem dæmi. En um nauðsyn þess að styðja innlendan iðnað geta víst allir verið samnrála. Þá er sá hluturinn eftir, að sýna hug sinn í verki, og það nrun alnrenn- ingur gera. □ Frá félagsráðsfundi K. E. A. Ö (Framhald af blaðsíðu 1) Jarðepli, teknar hafa verið 2.870 tunur af jarðeplum. Árið 1973 nam þetta 1.794 tunnum. Freðfiskur, unninn á hrað- frystihúsum á Dalvík og í Hrís- ey alls 1.904.054 kg eða 48.4% aukning'. Fiskimjöl, unnið í Hrísey og Dalvík alls 762.650 kg eða 27.87% aukning frá fyrra ári. Saltfiskur, framleiddur í Hrís- ey, Hjalteyri, Grímsey, Árskógs strönd og Akureyri alls 1.160.150 kg' eða 123.73% aukning frá fyrra ári. Hrogn, frá Grímsey, Greni- vík, Árskógsströnd og Dalvík alls 950 tunnur eða 566 tunnum færra en í fyrra. Lýsi, framleitt á Dalvík, Ár- skógsströnd og Hrísey alls 671.547 kg. Helstu verklegar franrkvæmdir og fjárfestingar 1974. Haldið var áfram framkvæmd um við nýju mjólkurstöðina á Akureyri og var það lang stærsta einstaka framkvæmdin, sem unnið var við á árinu. Aðal byggingin, ásamt móttökuhúsi, var steypt upp og strengja- steypuþak reist. Steyptar voru undirstöður að ketilhúsi, verk- stæði og spennistöð. Kjallari var einangraður og múrhúðaður að hluta. Á árinu var samið við Alfa- Laval í Svíþjóð um vélabúnað til nýju mjólkurstöðvarinnar á Lundstúni og er það lang stærsti samningurinn, sem félagið hef- ur gert til þessa, um vélakaup. Á árinu voru greiddar kr. 15 milljónir inn á þennan samning. Lokið var að mestu fram- kvæmdum við nýbygginguna að Hafnarstræti 95 á Akureyri. Fjórða hæð hússins var innrétt- uð fyrir Skattstofu Norðurlands umdæmis eystra, svo og fyrir göngudeild Fjórðungssjúkra- hússins og læknastofur sérfræð- inga. Fólkslyfta var sett upp í austanvert húsið og vörulyfta keypt, sem sett verður upp á árinu 1975. Má segja að fram- kvæmdum við þetta hús sé lok- ið, að öðru leyti en því að þriðja hæð hússins er óinnréttuð og verður geymd til síðari tíma. Frá Sveinafél. Sölubúð Byggingavörudeildar að Glerárgötu 36 var stækkuð og endurbætt. Grafinn var grunnur og geng- ið frá undirstöðum fyrir nýtt verslunarútibú matvörudeildar við Hrísalund. Unnið var að endurbyggingu Kjötiðnaðarstöðvarinnar eftir sprenginguna. Framkvæmdum var ekki lokið í árslok og halda því áfram á árinu 1975. Nokkrar framkvæmdir voru við frystihúsið og beinamjöls- verksmiðjuna í Hrísey, aðallega vegna lagningar hitaveitu, og við frystihúsið á Dalvík, aðal- lega við fiskmóttöku og aðstöðu til affermingar úr frystigeymslu. Haldið var áfram endurbót- um á sláturhúsi félagsins á Dal- vík til samræmis við auknar heilbrigðiskröfur, svo og í hag- ræðingarskyni. Nokkrar endurbætur voru gerðar á húsnæði bifreiðaverk- stæðisins á Dalvík vegna eld- varna. Vélar og tæki, auk véla nýju mjólkurstöðvarinnar, þurfti að venju að kaupa vegna hinna ýmsu fyrirtækja, svo sem til Kjötiðnaðarstöðvar, gúmmívið- gerðar, þvottahúss, frystihús- anna á Dalvík og Hrísey, slátur húss á Grenivík og beinaverk- smiðju á Dalvík. Þá eru ótalin tæki á skrifstofur. En þar er tölvunotkun að hefjast. Þá voru keypt margskonar flutninga- tæki. Fjárfestingar námu alls 150 millj. kr. á árinu. Framkvæmdir á árinu 1975. Á árinu verður tekið við meg- inhluta vélbúnaðar nýju mjólk- urstöðvarinnar. Á árinu þarf því að greiða þann hluta kaupverðs ins, sem ekki fæst að láni er- lendis, og verður þetta lang stærsta fjárfesting ársins. Haldið verður áfram nauðsyn legasta frágangi utanhúss á nýju mjólkurstöðvarbygging- unni og einnig verður unnið nokkuð í kjallara stöðvarinnar. Keyptar verða ýmsar vélar til Kjötiðnaðarstöðvarinnar, keypt ný brauðgerðarsamstæða til Brauðgerðarinnar, nýr vél- búnaður til Smjörlíkisgerðar- innai', og sett verður upp vöru- lyfta í Hafnarstræti 95. Keyptar verða þrjár bifreiðar, ein til tankflutninga á mjólk, ein til olíuflutninga og ein til flutninga á lausu fóðri. Mörgum fleiri verkefnum í fjárfestingum og framkvæmd- um hefði félagið þurft að sinna á árinu 1975, en vegna hins alvarlega efnahagsástands hefur verið ákveðið, að félagið haldi að sér höndum í fjárfestingum eftir því sem framast er unnt, sagði kaupfélagsstjórinn, og ennfremur: Það blasir við, að rekstrarútkoman er miklum mun verri en á árinu 1973 og eru helstu orsakir hinnar verri afkomu mjög augljósar. Launa- kostnaður jókst gífurlega, vaxta byrði hækkaði mjög mikið, veru legt tap varð á erlendum vöru- kaupavíxlum vegna gengissigs og gengisfellingar, og afkoma frystihúsanna og beinamjöls- verksmiðjanna á Dalvík og í Hrísey versnaði mjög frá fyrra ári. Þá hafði sprengingin í Kjöt- iðnaðarstöðinni að sjálfsögðu mjög slæm áhrif á afkomu stöðv arinnar, en sala hennar á árinu varð miklum mun minni en ella. Ennfremur ber að geta þess, að verslunarálagning var lækkuð við gengisfellinguna í septem- berbyrjun, en afkoma þjóðustu- verslunar í dreifbýlinu er al- mennt talin slæm. Þegar öll þessi atriði eru athuguð verður niðurstaðan óhjákvæmilega sú, að þrátt fyrir mikla veltuaukn- ingu á árinu 1974, hafi afkoman orðið með versta móti og mun verri en á undangengnum árum. Þá verður ekki á þessu stigi reynt að spá um rekstursafkom- una á árinu 1975, en útlitið er vissulega dökkt. Verulegur sam dráttur virðist vera framundan í verslun og viðskiptum, jafn- framt því sem allur tilkostnaður vex stöðugt. Sérstökum áhyggj- um veldur það stóraukna fjár- magn, sem þarf til birgðahalds vegna hinnar gífurlegu verð- bólgu. Fáanlegt lánsfé er af skornum skammti, en vaxtakjör eru auk þess slík, að mjög ber að gjalda varhug við því að taka síaukin lán til rekstursins. Vegna hinnar gífurlegu verð- bólgu varð félagið að auka fjár- bindingu sína í ýmiss konar birgðahaldi um rúmlega kr. 300 milljónir á árinu 1974 og er úti- lokað, að félagið geti aukið fjár- bindingu sína í birgðahaldi á ár- inu 1975. Verðbólgan virðist hins vegar ætla að halda áfram, þannig að félagsfólkið verður að vera við því búið, að nokkuð geti borið á vöruskorti í einstök um verslunardeildum. Jafn- framt er það augljóst, að félagið verður mjög að draga úr útlán- um frá því sem áður hefur er grátt Kvcnfélagskonur afhenda gjöf sína í sjúkrahúsinu. Gjöf frá Kvenfélagiim HLlF Kvenfélagið Hlíf, sem hafði um 22ja ára skeið rekið barnaheim- ilið Pálmholt og gefið Akur- eyrarbæ það 1972, hefir af mikl- um skörungsskap snúið sér að því að styrkja barnadeild FSA. 1973 gaf félagið deildinni vandaðan hitakassa, svonefnda fóstru, einnig súrefnismæli og Ijósalampa, sem notaður er við gulu hjá nýfæddum börnum. Næsta ár gaf félagið blóð- þrýstingsmæli, sem gerir kleift að mæla blóðþrýsting jafnvel hjá fyrirburðum og sjúklingum í losti, sem annars hefir verið erfitt að mæla blóðþrýsting hjá með venjulegum mælum. Einn- ig gáfu konurnar vökvadælu, sem stjórnar nákvæmlega því magni af vökva, sem gefið er í æð, yfir ákveðinn tíma. Nýlega höfum við fengið barnavöggur, upphitaðar með Ijósaperum, fyrir fyrirburði, sem ekki þurfa að dveljast í lokuðum hitakassa með súrefnisgjöf. Auk alls þessa hefir Minn- ingarsjóður Hlífar gefið barna- deildinni þessi tvö ár vönduð leikföng', bækur og klukkur á sjúkrastofurnar. Þetta er ómetanlegt fyrir deildina að njóta stuðnings hinna mætu félagskvenna. Tæki þessi hafa þegar komið að góðu gagni og skapa mikið öryggi við hjúkrun barnanna. □ verið. □ Um nokkurra ára skeið hefir Náttúrulækningafélag Akureyr- ar unnið markvisst að því að undirbúa byggingu hressingar- hælis á Norðurlandi. Á síðast- liðnu ári hefir komið veruleg hreyfing þar á, meðal annars hefir félaginu verið úthlutuð lóð í landi Skjaldarvíkur fyrir bygginguna, undirbúningur er hafinn að vatnslögn til hælisins og spursmálið um heita vatnið að komast á hæsta stig. Undirbúningsvinna mun vera svo langt á veg komin að fram- kvænrdir geta hafist á þessu ári ef ekkert ófyrirsjáanlegt grípur inn í. Að undanförnu hefir félagið aflað fjár til framkvæmdanna með ýmsu nróti og er þegar til nokkur sjóður, en meira mun þurfa til að byrja með. Aðalfundur Sveinafélags járn- iðnaðarmanna á Akureyri hald- inn 23/2 1975 lýsir fullri and- stöðu sinni við þær aðgerðir stjórnvalda, að rifta gerðum kjarasamningum verkalýðsfélag anna og atvinnurekenda með lagaboði. Fundurinn skorar á aðildarfélög A.S.Í. að standa fast að baki samninganefndar A.S.Í., í þeirri baráttu að endur heimta jafngildi þeirra kjara er náðust í samningum í febrúar 1974. Fundurinn skorar á stjórn- völd, að láta ekki þann doða og ráðleysi sem hefur einkennt valdaferil núverandi ríkisstjórn ar verða orsök frekari óráða við lausn þess efnahagsvanda sem við er að etja. Þá vill fundurinn koma þeirri skoðun sinni á framfæri, að þegar efnahagsvandi steðjar að sé eðlilegt að úttekt sé gerð á afkomumöguleikum heimilanna í landinu, á samsvarandi hátt og gert er við atvinnufyrirtæk- in, og aðgerðir miðaðar við að íþyngja launafólki ekki meira en brýn nauðsyn ber til. (F réttatilky nning ) Leshrisigur hjá í vetur stofnuðu 10 konur úr Saurbæjar- og Hrafnagilshrepp- um til leshrings um námsefni Bréfaskóla SÍS og ASÍ, „Fundar reglur og fundarstjórn." Fundir voru haldnir vikulega í félags- heimilinu Sólgarði. Fyrri hluti hvers fundar fór til úrlausnar á verkefnum kennslubréfanna en í seinni hluta tímans voru tekin fyrir ýmis umræðuefni, sem allir urðu að segja skoðun sína á. Fundirnir voru alls 7 talsins og á þeim síðasta afhenti leið- beinandi leshringsins, Gunn- laugur P. Kristinsson, fræðslu- fulltrúi KEA, þátttakendum námsskírteini Bréfaskóla SÍS og ASÍ. Áhugi kvennanna á starf- semi leshringsins var með mikl- um ágætum. Nám í leshringum er ennþá mjög lítt þekkt hér á landi, þrátt fyrir meir en hálfrar aldar iðkun þess og vinsældir víða um heim, ekki hvað síst á hin- um Norðurlöndunum, sem mjög beita þessari námstilhögun í sambandi við fullorðinsfræðslu sína. Til leshringa geta hópar (8—12 manns) stofnað til þess að afla sér fræðslu á flestum sviðum, en algengast er, að það sé í sambandi við bréfaskóla. í leshringum er námið mun ódýrara og, að flestra áliti, skemmtilegra og fjölbreyttara en einstaklingsnám. □ Þátttakendur í leshring kvenna í Saurbæjar- og Hrafnagilshrepp- um (á myndina vantar þó eina ltonu) ásamt leiðbeinanda. Um næstu helgi er hinn ár- legi söfnunardagur félagsins, á laugardaginn 1. mars verða seld merki um allan bæinn og nær- liggjandi sveitir, og er þess vænst að vel vei'ði tekið á móti þeim sem merkin selja. Á sunnudaginn 2. mars kl. 3 verður síðdegisskemmtun í Sjálfstæðishúsinu, sem félagar annast að mestu leyti sjálfir. Verður þar boðið upp á kaffi GÍFURLEG AUKNING DRYKKJUSÝKI Níu milljónir Bandai'íkjamanna eru drykkjusjúklingar eða of- drykkjumenn. Drykkja eykst en neysla annarra vímuefna minnkar. 9 Drykkjusýki er nú meira vandamál í Bandaríkjunum en aðrir sjúkdómar, að undan- skildu krabbameini og hjarta- og æðasjúkdómum. Gera má ráð fyrir að drykkjusýki stytti ævi- skeiðið um 10—12 ár. ® Rúmur helmingur þeirra 55 þúsund Bandaríkjamanna, sem bana bíða í umferðarslys- um ár hvert, deyr í slysum þar sem áfengi kemur við sögu. 9 Hjónaskilnaðir eru miklu algengari meðal fólks, sem neyt ir áfengis í óhófi, en annarra. • Bandarískur iðnaður tap- ar, að álitið er, 12 milljörðum dala á ári vegna áfengisneyslu starfsmanna. (Folket, 1. 1975.) Áfengisvarnaráð. TALSTÖÐ STOLIÐ Talstöð var stolið úr olíubíl frá Esso, sem stóð við verkstæði Þórshamars 19. og 20. febrúar. Talstöð.in er Fisher 801, 50 vött og 12 volta, og mun kosta um 250 þúsund lcrónur. Lögreglan biður þá, sem veitt geta ein- hverjar upplýsingar um mál þetta, að gera aðvart. □ með heimabökuðum kökum og léttu skemmtiefni, einnig verða sýndar litskuggamyndir af ís- lenskum steinum sem Ágúst Jónsson hefir unnið og ljós- myndað og sýna þær undrafeg- urð sem býr í hinum íslensku steinum, ennfremur verða sýnd ar myndir frá þjóðgarðinum við Jökulsá, Hljóðaklettum og Hólmatungum. Steinamyndir eru einnig til í stækkuðu formi og eru til sölu í Amaró og nem- ur hluti af andvirði þeirrar sölu í byggingarsjóð N.L.F.A. Félagið væntir þess að bæjar- búar fjölmenni í Sjálfstæðishús- ið á sunnudaginn kemur. (F réttatilkynning) í síðustu tölublöðum Alþýðu- mannsins hafa birzt furðuskrif um Leikfélag Akureyrar. Höf- undur kallar þessar ritsmíðar sínar „skopgreinar“, og verður ekki annað sagt, en skopskynið sé undarlega brenglað, ef dylgj- ur, álygar og önnur mann- skemmandi ummæli eru að hans mati gamanmál, og verður vart séð, að þessi draugur geti skreytt sig með dulnefninu „leik listarunnandi", heldur væri meira við hæfi, að þar stæði „leiklistarFÁKunnandi". Greinar þessar bera með sér, að höfuðmarkmið þeh-ra er, að ata félagið, störf þess og starfs- lið auri, og læða inn hjá les- endum, þeirri skoðun, að þarna sé saman komið glæpahyski, sem ekki skirrist við að nota fjármuni þá, sem L. A. hefur undir höndum, og skiptir millj- ónum króna, fyrst og fremst í eigin þágu. Það sem mig undrar þó kannski mest, er, að slík skrif skuli fást birt í blaði, sem vafalítið vill halda sig ofar sorp blaðamennsku. Eitt af því sem leikhúsdraug- ur þessi heldur fram er að L. A. sé rekið sem fjölskyldufyrir- tæki. Er augljóst, að þarna er draugsi að magna sendingu á mig persónulega, þar sem sonur minn og tengdadóttir eru hér starfandi. Það verður ekki ann- að séð, en þessum huldumanni sé mjög í mun að koma á mig höggi svo um muni, og honum er raunar í lófa lagið, í skjóli ósýnileika síns, að skjóta að mér eiturörfum, án þess að ég eigi þess kost að verjast, hvað sem ég kann að hafa honum í móti gert, og mér er hrein ráð- gáta, nema þá að eitthvað hafi komið uppá, á fyrri tilveruskeið um. Það eina sem ég get því vonast til, er, að lesendur hlúi ekki að þessum rógsfræjum, heldur merji þau undir hæli dómgreindar sinnar. En eins og töluð orð verða ekki aftur tek- in, verða skrifuð orð heldur ekki afmáð og höfundur hefur ekki lengur vald á áhrifamætti þeirra. „Leiklistarunnandi" má vita það, að þessi skrif hans hafa valdið sársauka, bæði mér og öðrum, er þau hitta, og kann að vera, að það vekji honum einhverrar ánægju, en hræddur Hart er nú til beitar Stórutungu, 20. febrúar. Eins og víða á landinu hefur tíðarfar verið byljasamt hér í sveit. Þó hafa ekki orðið stórskaðar, mið- að við það, sem um heyrist annars staðar. Mjög er hart til jarðar en snjór er ekki að sama skapi mikill. Erfitt var um samgöngur á meðan mestu illviðrin voru og komu þá hjálpartæki við sögu, bæði jarðýtur og heflar, heimil- isdráttarvélar og vélsleðar. Nú eru vegir greiðfærir en mjög svellaðir og sumsstaðar ekið á hjarninu utan vegar, og þannig fært til fremstu bæja, jafnvel á fólksbílum. Sauðfé hefur verið á innistöðu frá því það var tekið í hús, lömb um 20. september og ær nokkru síðar. Þetta er óvenju löng inni- staða fjár vegna jarðleysis. En minna er nú lagt upp úr vetrar- beitinni en áður og er það vel farið. „Krafstursjörð" fór illa með landið, og sjást þess merki. Eins og að líkum lætur var félagslíf rólegt á meðan veður og færi var órólegt. Þegar það breytist lifnaði yfir mannfólk- inu og hreyfing komst á hin ýmsu félagssamtök, sem hér starfa. Má þar nefna ungmenna- félag í hefðbundnu formi og á þess vegum er spilað bridge og stundum spilað við aðrar sveit- ir. Það sér einnig um þorrablót og það mun standa til nú á næstu dögum. Um þorrablót sér nefnd, skipuð karlmanni og fjór urn konum, sennilega í tilefni kvennaársins, og er vel til fall- ið. Ekki má gleyma „Klúbbn- um“, þó betra nafn mætti senni lega finna á þau ágætu samtök karla og kvenna, sem sagt: kon- ur starfa í tveim saumaklúbb- um, eldri konur og yngri konur, fyrir svo utan það, að kven- félag starfar og lætur margt gott af sér leiða. Kirkjunni má ekki gleyma og æfður er kirkjukór í góðri samvinnu við nágranna- kóra í prestakallinu. í Staðar- fellsprestakall kom á síðasta sumri ungur og áhugasamur prestur, Jón Baldvinsson, og ráð inn er einn og' sami organisti við allar þrjár kirkjur presta- kallsins. Er það Friðrik Jónsson frá Halldórsstöðum í Reykja- dal. Þ. J. er ég um, að þessi hugarfóstur hans eigi eftir að verða honum sjálfum til meiri armæðu og hugarangurs, en hann í upphafi kann að hafa reiknað með. Ég er búinn að starfa í stjórn L. A. um tveggja áratuga skeið, þar af ein átta ár sem formaðui\ sem ég í upphafi tók að mér með hálfum huga, þar sem ég vissi að það myndi taka flestar mínar tómstundir, og svo einn- ig, að ég var e'kki viss um að valda þessu hlutverki svo sem ég vildi. Ekki skal því neitað, að oft höfum við orðið fyrir von brigðum og fundist hægt miða, og vafalítið höfum við ekki alltaf fundið eða farið beztu og heppilegustu leiðina til lausnar þeim verkefnum er að var unn- ið. En það er eins og þar stend- ur, að oft er auðveldara að vera vitur eftirá. Og er ég nú lít yfir þetta tímabil finnst mér þó veru lega hafa þokast til réttrar áttar og það er að sjálfsögðu mikilsverðast, að rétt horfi. Um fjölskyldusjónarmiðið er það að segja, að þau eru mér ekki fast- ari í hendi en svo, að á tveim síðustu aðalfundum hef ég' ósk- að þess að losna úr formanns- starfinu, og mun enn gera á næsta aðalfundi, og vonandi finnst einhver, sem vill gefa sér tíma til að koma þar í skarðið, sem nú er stórum léttara að sinna eftir að fastur starfsmaður hefur tekið við öllum daglegum rekstri. Þegar sú breyting var gerð, að fastráða starfsfólk, var aug- lýst eftir leikurum, og varð eng- inn ágreiningur um ráðningu þeirra átta, sem Magnús Jóns- son þáverandi leikhússtjóri gerði tillögu um að ráðnir yrðu. Og miklu fremur finnst mér ástæða til að þakka þessum leikarahópi þrautseigjuna öll þessi ár og mikið oð óeigin- gjarnt starf, sem hefur vissu- lega verið þeim um margt óhentugt, svo sem að þurfa að sækja vinnu að hálfu utan leik- hússins, og ekki hafa launin heldur gert þetta starf sérstakt keppikefli. Félagið hefur aðeins getað boðið leikurum sínum upp á hálft starf, níu mánuði ársins, og laun, sem eru þrem til sex launaflokkum neðar en leikarar höfuðborgarinnar njóta, og þeir eru að sjálfsögðu í fullu starfi allt árið. Það eymir því ögn eftir af áhugamannastarfinu ennþá, og hefði það ekki verið fyrir hendi værum við ekki kom in þangað, sem við þó erum komin í dag. Ég held líka að fái ég áfellisdóm almennings fyrir það, að ég reki L. A. sem fjöl- skyldufyrirtæki, verði flest mín störf um dagana léttvæg fundin, og verð ég þá að sæta þeim dómi, en réttlátur finnst mér hann ekki. Að lokum vildi ég aðeins drepa á eitt annað atriði, útfrá staðhæfingum „sannleiksunn- andans“, sem er sú skoðun hans, að Samkomuhús bæjarins sé til, og viðhaldið, aðeins vegna L. A. Eftir að hafa áttað sig á þeirri staðreynd, að L. A. greiðir sömu leigu fyrir afnot sín af húsinu og aðrir, er þar fá inni, er hann þó enn við sama heygarðshorn- ið og setur nú dærnið þann veg upp, að viðhald og endurbætur á hinu nær sjötuga húsi beri að skrifa á reikning L. A. Með öðrum orðum: Ef L. A. væri ekki að flækjast í húsinu, bæjar búum til leiðinda og jafnvel skammar, að dómi „sannleiks- unnandans" þá gæti bæjarsjóð- ur sparað stórfé. Þá þyrfti ekk- ert leikhús! Þetta vekur upp þá, raunar fáráðlegu spurningu hvort höfuðstaður Norðurlands geti komist af án leikhúss? Eftir að hafa heimsótt flest fé- lagslieimili á Vestur-, Norður- og Austurlandi, þar sem víða hefur verið byggt af miklum stórhug og myndarskap, eins og t. d. á Blönduósi þar sem er rúm góður salur með föstum sætum á hallandi gólfi og einhverju bezta leiksviði, sem þekkist á landsbyggðinni, eða Valaskjálf á Egilsstöðum, svo aðeins tveir staðir séu nefndir, með stærsta leiksvið hérlendis, utan Þjóð- leikhússsviðsins, og 450—500 manna sal, fær maður alls ekki skilið hugsanagang þessa ein- staka „leiklistarunnanda". Þá fær bæjarstjórnin líka sinn skammt. Látið er að því liggja, að við í L. A. höfum hana í vasanum. Er það gleggsta dæm ið um, að lítt gjörlegt er að henda reiður á gaspri þessa draugs. Það vita og skilja sjálf- sagt flestir, að L. A. getur ekki staðið undir rekstri sínum af eigin aflafé, fremur en önnur leikhús, eða ýmsar aðrar stofn- anir, sem sjálfsagðar eru taldar í hverju menningarsamfélagi. Þannig er Þjóðleikhúsinu ætl- aðar 128 millj. kr. á fjárlögum ríkisins í ár, og Leikfélag Reykjavíkur fær líka nokkrar milljónir, auk milljónatuga frá Reykjavíkurborg m. a. til að byggja leikhús. Já, þeir eru skrýtnir suður þar. Og má ekki allt eins búast við því, að þessi sparnaöai'posíuli leggi til að ýmsar aðrar stofnanir bæjarins verði knésettar, svo verulega um muni fyrir bæjarkassann og skattborgarana? Hvað kostar t. d. rekstur Amtsbókasafnsins samkvæmt fjárhagsáætlun ’75 Tæpar 11 millj. Náttúrugripa- safnið 1.7 millj., Minjasafnið 1.9 millj., Námsflokkarnir 3.3 millj., Tónlistarskólinn rúmlega 7 millj. eða íþróttamálin með 21.3 millj. og þannig mætti halda áfram, en sem betur fer eru ekki á hverju strái slíkir furðu- fuglar eins og sá, sem Alþýðu- maðurinn fóstrar, og sýnist raunar nauðsynlegt að takast megi að kveða hann niður, því það getur orðið slíkri vansælli sál grátt gaman, að læðupokast um meðal heilbrigðra manna. Jón Kristinsson. Um vafn Samband íslenzkra sveitarfélaga efnir til ráðstefnu um vatn dag- ana 25. og 26. febrúar. Ráðstefn- an verður haldin að Hótel Esju í Reykjavík. Fjallað verður annars vegar um öflun neyzluvatns bæði í þéttbýli og í strjálbýli, um val og virkjun vatnsbóla, dreifi- kerfi vatnsveitna og stöðlun vatnslagna og hins vegar um gæði neyzluvatns, matvælaiðn- aðinn og vatnsþörf hans og um neyzluvatnsmál í ljósi heil- brigðiseftirlits. Einnig verður rætt um vatnsveitur og bruna- varnir og um gjaldtöku fyrir þjónustu vatnsveitna. Fyrri ráðstefnudaginn verður m. a. plastpípugerð Vinnuheim- ilisins að Reykjalundi skoðuð, en síðari daginn verður efnt til fundar með fulltrúum hita- veitna þeirra sveitarfélaga, sem vilja standa að skipulegu sam- starfi sín á milli um málefni hitaveitna. Ráðstefna þessi stendui' opin öllum sveitarstjórnarmönnum. (Fréttatilkynning frá Sam- bandi íslenzkra sveitarfélaga))

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.